Morgunblaðið - 30.10.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER1994 B 11
MANNLÍFSSTRAUMAR
LÆKNISFRÆÐI/Er von á hlekknum sem vantabi?
Harðjaxl
ÞEGAR Darwin og skoðanabræður
hans voru að smíða þróunarkenn-
inguna á öldinni sem leið töldu þeir
víst að meira en lítill skyldleiki
væri með okkur og sumum ápateg-
undum í Afríku.
Og á þeim áratugum sem liðnir
eru frá því Darwin hvarf af
sjónarsviðinu hefur hitt og annað
komið í ljós sem styður tilgátur
þeirra félaga og þá ekki síst æva-
forn og steinrunn-
in bein sem menn
hafa rekist á víðs
vegar um lönd á
suðurhveli jarðar.
Hér verður drepið
á fátt eitt af því
tagi.
Arið 1891
fannst hluti af
gamalli hauskúpu á Jövu og á sömu
slóðum lærleggur ári seinna. Síðan
þá hafa mörg bein til viðbótar kom-
ið í leitirnar á eynni og þykir mega
af þeim ráða að þar hafi frummenn
átt heima fyrir hálfri annarri milljón
ára. Þeir voru að líkindum fyrstu
útflytjendur frá Afríku, móðurjörð
mannkynsins. Eitt með öðru sem
gefur vísbendingu um býsna náinn
skyldleika jövumannsins við apana
eru stórar og vígalegar augntennur
hans.
Pekingmaðurinn finnst í helli
austur í Kína 1927 og er talinn
„aðeins“ 400 þúsund ára gamall.
Tennur hans líkjast meira geiflun-
um okkar en þeim vígbúnaði sem
jövumaðurinn hafði í munninum.
Nokkru áður hafði fundist haus-
kúpa í Taung í Suður-Afríku og
athugull maður að nafni Raymond
Dart kvað upp úr með það að hún
hefði hvorki setið á herðum manns
né apa, heldur einhvers þar á milli.
— Og þegar saxast fer á ofanverða
20. öld verða merkar líkamsleifar
sem dregnar eru fram í dagsljósið
æ fornlegri og árið 1974 fannst
beinagrind ungrar og smávaxinnar
konu sem til hægðarauka var gefið
nafnið Lucy. Hún hafði lifað og
dáið austanvert í miðri Afríku, þar
sem nú heitir Eþíópía, og miklu
fyrr en aðrir sem hér hafa verið
upp taldir; raunar varla síðar en
fyrir rösklega þremur milljónum
ára.
Og þá er komið að harðjaxlinum,
elstu mannaleifum sem fundist hafa
og það ekki fyrr en nú fyrir
skömmu. Suður í Eþíópíu um 70
,kílómetra frá staðnum þar sem
Lucy bar beinin var japanskur stein-
gervingafræðingur á hnotskóg dag
einn í desember fyrir tæpum tveim
árum. Og sem hann rölti um eyði-
mörkina og virti fyrir sér steinvölur
og hvaðeina sem skar sig úr, kom
hann allt í einu auga á eitthvað sem
glitraði í sandinum. Þegar hann tók
það upp sá hann að þetta var brot
af mannskjálka og það sem blikað
hafði í sólarbirtunni var glerungur
á heillegasta jaxlinum. Aldursat-
huganir benda til að sá eða sú sem
tuggði matinn sinn með þessari
tönn hafí verið uppi æðilöngu á
undan Lucy eða fyrir nærri hálfri
fímmtu milljón ára.
Eftir þetta óvænta stökk svo
langt aftur í tímann skjóta gamlar
spurningar upp kollinum. Einn
aðdáenda Darwins og samtíðar-
maður hans um skeið var Þjóðveij-
inn Ernst Haeckel. Hann mun fyrst-
ur manna hafa talað um „týnda
hlekkinn" (missing link) sem hlyti
að vera vel geymdur einhvers stað-
ar á bernskuslóðum mannkyns og
kæmi vonandi upp úr kafínu fyrr
eða síðar. Hugmyndin um þennan
hlekk sem vantaði í þróunarkeðju
mannsins, millistig manns og apa,
hefur ekki átt upp á pallborðið hjá
vísindamönnum síðari ára. Þeir
segja sem svo að tilgangslaust sé
að bíða eftir einum slíkum hlekk;
apaþjóðin hafí einhvern tíma í óra-
fyrnd greinst í tvennt og önnur
ættkvíslin haldið áfram að vera
apar, en hin smám' saman tekið
breytingum sem í aldanna rás
stefndu lengra og lengra í þá átt
að verða apamenn, mannskepnur,
eftir Þórorinn
Guðnoson
í EYÐIMÖRKINNI þar sem jaxlinn fannst.
frummenn eða hvað sem okkur
finnst við hæfi að nefna þessa fjar-
skyldu ættingja. Ef sú væri raunin
vantar líklega engan hlekk, enda
varla þörf á honum eða pláss fyrir
hann, en þó sagði einn af forsprökk-
um leiðangursins sem fann harð-
jaxlinn og ýmisskonar beinarusl úr
sextán öðrum kroppum á sama
stað, að jaxlinn væri „elsti hlekkur
sem vitað er um úr þeirri keðju sem
tengir okkur við foreldra manns og
apa“. — Og breskur sérfræðingur
í þessum efnum hefur látið hafa
eftir sér um síðustu rannsóknir í
Eþíópíu: „Mér virðist sem þessi
bein gætu verið úr sameiginlegum
forföður eða því sem næst. Það er
erfitt að stilla sig um að impra á
týndum hlekk.“
VERALDARVAFSTUR/£m sömu áhriffrá „tíbm1 efnis
og efninu sjálfu? _
Vatnsvandamál
náttúru og
landbúnaÖar
DAUÐI stöðuvatna vegna súrefniss-
korts og vandamál landbúnaðarins
vegna uppsafnaðs hlands hafa plag-
að mörg lönd nú á síðustu áratugum.
Menn standa ráðalausir gagnvart
vandanum, því bæði er hann illleys-
anlegur og sömuleiðis kosta þekktar
lausnir ógrynni fjár.
Þýskur vélfræðingur að nafni
Roland Plocher hefur þó ekki
setið aðgerðalaus. Hann hefur um
tíu ára skeið notað nýstárlega aðferð
með mjög góðum árangri. Hann seg-
ist hafa fengið
punkta til lausnar
vandamálinu frá
Nicola Tesla, Vict-
or Schauberger og
Wilhelm Reich,
sem allir skildu eft-
ir sig ítarlegar frá-
sagnir af starfi
sínu á mörkum vís-
eftir Einor
Þorstein
inda og hins óþekkta og umdeilda.
En hvers vegna hefur lausn Ro-
lands Plochers ekki breiðst hraðar
út þrátt fyrir vísindalega staðfestan
árangur? Bæði er það að grundvöllur
uppgötvunar hans er utan við skiln-
ingssvið vísindanna og hitt að hann
hefur ekki viljað selja framleiðslu-
réttinn til að tryggja að hugmynd-
inni verði ekki bara stungið undir
stól.
Lausn hans er nefnnilega það
ódýr að allir hafa efni á að nota
hana og er því í harðri samkeppni
við efnaverksmiðjur.
í dag er framleiðsla hans notuð í
Þýskalandi (af 25 þúsund bændum),
á Spáni, á Ítalíu, í Danmörku og í
Bandaríkjunum. Mælingar á vötnum
sem hann meðhöndlar me§ tækjum
sínum sýna stöðugt súrefnismagn,
sviffrumungum fækkar, hiti vatns-
ins lækkar, ph-gildi er stöðugt, sýra
og önnur umhverfiseitrun minnkar
og neikvæðum jónum fer stigfjölg-
andi í kringum tækin. Þetta sýna
rannsóknir Helmuts Arffs frá Land-
búnaðarháskólanum í Hohneheim.
Plocher telur sjálfur að það' sé
vísindunum áður óþekkt alheims-
orka sem valdi þessum niðurstöðum.
En tækni hans felst í því að færa
upplýsinguna um súrefni í önnur
efni eins og malaðan kvartsstein eða
álfólíu með aðstoð alheimsorkunnar.
Fræðilega segir hann unnt að færa
upplýsingu hvaða efnis sem er í
önnur efni. Það sé rétt eins og unnt
sé að færa hljómlist yfir á geisla-
diska. Hvað snertir kvartssteinsduft-
ið til dæmis þá færi hann ákveðið
„tíðni“-munstur frá súrefninu yfir í
atóm steinsins. Þegar síðan duftinu
er hellt útí hlandforina þá flytji hann
yfir í hana upplýsingar um súrefni,
samkvæmt lögmáli endurómsins (re-
sonans), sem virki eins og súrefni.
Hlandið er nú lífgað og má nota til
áburgðar án frekari áhættu á meng-
un í náttúrunni.
Siegfried Höller er suður-þýskur
bóndi, sem hefur notað þessa tækni
í nokkur ár. Hann er með kýr og
notar duftið í hlandið. Eftir árið
hvarf ammoníaksstækjan úr fjósinu
og kýrnar urðu heilbrigðari.
Nafnið á framleiðslu Plochers er
Penac. Höller notaði hana einnig til
RÖRIN með upplýsingaber-
andi efni áður en þeim er
sökkt í stöðuvatnið Kleiner
Abersee í Bayern. Þar er nú
aftur líf eftir 20 ára dauða.
að hreinsa hlandforina alla. En það
er þekkt vandamál hvernig hlandið
myndar þykka skán á yfírborðinu,
sem ekki er hægt að ná burtu nema
með vélum með miklu erfiði. Eftir
sex mánuði hafi Penac-duftið leyst
þetta allt upp án véla. Og það var
auðvelt að keyra hlandið á túnið.
Lyktin var mild en ekki stækja og
kýrnar voru farnar að bíta gras á
sama túninu skömmu síðar, sem er
óhugsandi ef ómeðhöndlað hland á
í hlut.
Reynslan af þessu Penac-hlandi
til áburðar er það góð, að Höller
hefur ákveðið að hætta að kaupa
tilbúinn áburð, en hann hafði borgað
200 þúsund krónur fyrir hann áður
á ári.
Árangurinn er ekki síðri í með-
höndlun stöðuvatna. Súrefnis-upp-
lýsingafyllt fólía er sett í vatnsþétt
rör og síðan komið fyrir á botni
þeirra. Á sex til tólf mánuðum lifna
algerlega dauð stöðuvötn við og
kostnaðurinn er sáralítill.
Nú er Plocher að gera tilraunir
með álfólíu-ræmur á vatnsrörum og
klóakrörum til að hindra stíflumynd-
anir og lífga bæði vatn og klóakúr-
gang, sem brotnar þá auðveldar nið-
ur.
Og nú er það spurningin: Er góð-
ur árangur það sem sækjumst eftir
eða sönnun á óþekktum vísindakenn-
ingum?
LIFSSKOLINN VESTURBERGI73
Selma Júlíusdóttir, ilmfræð-
ingur, heldur námskeið í
meðferð ilmolía og sog-
æðanuddi, helgina 5.-6.
nóvember
Námskeið verða haldin í
vetur um heilun, þyngra
eyrnapunktanuddi og um
forvarnir almennt gegn
sjúkdómum.
SÍMI77070 -----
r
Þessa viku veitum
við 25% afslátt af
eftirfarandi vörum
frá BABY BJÖRN:
/ Fullt verö Afsláttarverö
ömmustólar, dökkbláir 3.700 kr. 2.775 kr.
Skiptitöskur 3.950 kr. 2.963 kr.
Buröarrúm/kerrupoki 8.600 kr. 6.450 kr. .
Ný sending af SiMO
kerruvögnum.
Nylonyfirbreiösla fylgir
vögnunum í nóvember.
ALLT FYRIR BORNIN
Klapparstíg 27, sími 19910. |