Morgunblaðið - 30.10.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER1994 B 15
Án formerkja
ANDLÁT Ham var meðlim-
um sveitarinnar mikill léttir,
enda gafst þá tækifæri til
að sinna öðru og annarri
gerð tónlistar. Fyrsti Ham-
limur sem gefur út eftir and-
lát sveitarinnar er Siguijón
Kjartansson sem stofnaði
eins manns hljómsveitina
Ólympíu, en fyrsta breiðskífa
Ólympíu kemur út í vikunni.
Lag með Ólympíu kom út
á safndisk Smekkleysu
í sumar og brá mörgum í
brún við að heyra Siguijón
syngja við tölvupoppundir-
leik, en fregnir herma að á
breiðskífunni skiptist á rokk
og tölvutónar. Siguijón segir
að hann hafi alla tíð sett sér
að gera breiðskífu, en ekki
með neinum formerkjum. „Ég
ætlaði bara að taka upp plötu,
ég var ekki að einskorða mig við ein-
hvem stíl, ætlaði mér bara að velja
þann stíl sem hæfði hveiju lagi.“
Siguijón neitar því ekki að í
rokklögunum megi eflaust greina
einhveija Hamlega takta, og ekki
nema vonlegt, „enda hef ég ekki
breyst í annan mann“.
„Mér fannst ég vera kominn
í sköpunarlegt einstigi og
mikill léttir að hætta í Ham,
því þá opnuðust gáttir fyrir
nýjum hlutum og ég fór
þegar semja lög fyrir
Ólympíu. Ymsu bregður
fyrir á plötunni og með-
al annars nýtir ég org-
el Bústaðakirkju,
enda er kraumandi
kirkjuorgel ekta
rokkhljóðfæri, þó
það skapi viss
vandræði í tón-
leikahaldi.“
Morgunblaðið/ Sverrir
Léttir Siguijón
Ólympía Kjart-
ansson.
Kraftur Quicksand Jesus, Finni,
Amar, Franz og Dabbi.
DÆGURTONLIST
Kraft-
mikil
keyrsla
Hvab er danstónlistt
Dansrokk-
fönksveim
DANSSVEITIN Bubbleflies vakti mikla athygli á síðasta
ári fyrir sveimkennt rokk og líflegt tónleikahald. Síðan
hefur hljómsveitin leikið af krafti víða um land en tók
sér hlé til að hljóðrita breiðskífu sem gefin var út í vikunni.
Bubbleflies á sér sér-
kennilegan aðdrag-
anda, því segja má að
sveitin hafi orðið til þegar
undirbúið var tónleikahald
w^m^mmmmmmi til að
fylgja
fyrstu
breiðskíf-
unni eft-
ir. Fram
að því var
eftir Árna Bubbl-
ttatthíosson eflies
þriggja
manna sveit og einn þeirra
sem stofnsettu hana er
Davíð Magnússon gítar-
leikari.
Davíð segir að platan
nýja, Pinocchio, hafi verið
tekin upp í ágúst og segja
megi að hún sé rökrétt
framhald fyrstu skífu
sveitarinnar, með þeim
fyrirvara þó að sveitin hef-
ur þróast hratt frá því hún
var þriggja manna hljóð-
verssveit í að vera starf-
andi dansrokksveit.
„Platan er markvissari
og betur undirbúin," segir
Dansrokkfönksveím Bubbleflies.
íiður Snorri
Davíð, „við vorum með fleiri markaðri í stíl, við höldum
lög áður en farið var af stað því að gera bara það sem
og hún er meiri hljómsveitar- við viljum gera í hvert sinn.
plata, en hún er ekkert af- Við viljum ekki afmarka
okkur lítinn hring sem við
megum ekki fara út fyrir
enda erum við að þessu til
að skemmta okkur.“
Tónleikagestir hafa tekið
eftir því að meira ber á gítar-
leik en í árdaga, en Davíð
gerir lítið úr því og segir að
þó ef til vill beri meira á
gítarhljómi, sé hann fráleitt
í aðalhlutverki. „Aðal mun-
urinn er vitanlega að nú
erum við með bassa- og
trommuleikara, sem ekki var
á síðustu plötu. Við vinnum
samt áfram mikið á tölvur
og það er ekkert minna af
hljómborðum; frekar er
meira af öðrum hljóðfærum.
Við erum samt allir miklir
áhugamenn um danstónlist
og það ægir öllu saman á
plötunni, hvort sem það er
fönk, danstónlist eða rokk,
enda má dansa við alla tón-
list, það er öll tónlist dans-
tónlist.“
Útgáfutónleikar Bubbl-
eflies verða í Tunglinu föstu-
daginn 4. nóvember.
ROKKSVEITIN Quicksand
Jesus er meðal þeirra sveita
sem senda frá sér sína fyrstu
breiðskífu fyrir þessi jól.
Hljómsveitin hefur þó áður
látið á sér kræla, því hún
átti lög á tveimur safnplötum
Skífunnar.
Liðsmenn Quicksand Jesus
segja að plata sveit-
arinnar, sem heitir The More
Things Change, the More
They Stay the Same og kem-
ur út á fimmtudag, hafí verið
tekinn upp á eins einfaldan
hátt og unnt var, en hún var
tekin upp í hljóðveri suður í
Keflavík. Græjur og tól voru
sett í samband og síðan var
keyrt í gegnum prógrammið
líkt og á tónleikum. Alls tóku
þeir félagar upp sautján lög
og létu það ekki á sig fá þó
finna megi einhveija hnökra.
Sveitin á nóg af lögum á lag-
er, því þeir félagar segjast
þegar vera með aðra plötu
tilbúna til upptöku, en fyrst
sé að selja þessa, sem þeir
gefa sjálfír út.
Quicksand Jesus hefur
vakið athygli fyrir þéttan leik
og kraftmikla keyrslu á tón-
leikum og tækifæri gefst til
sannfærast á útgáfutónleikar
verða Tjamarbíói 11. nóv.
Madonna og Björk
VINSÆLDIR Madonnu
hafa farið minnkandi hér á
landi ekki síður en annars
staðar. Þannig var áhugi á
væntanlegri breiðskífu
hennar, Bedtime Stories,
harla lítill þar til það spurð-
ist að eitt lag á plötunni
væri eftir Björk Guðmunds-
dóttur.
Madonna lýsti því fyrir
skömmu í viðtali við
tískublaðið Face að plata
Bjarkar, Debut, væri uppá-
halds plata sín í mörg ár og
meðal annars þess vegna
hafi hún leitað til Nellees
Hoopers, sem stjórnaði upp-
tökum á
Debut, til að vinna með sér
að Bedtime Stories. Það
hlaut því að fara svo að ein-
hveiju svipaði saman á plöt-
unum tveimur, og hér á landi
að minnsta kosti hafa menn
beðið spenntir eftir að fá að
heyra Bjarkalagið í flutningi
Madonnu, en það er reyndar
ekki eftir Björk eina.
Fyrsta smáskífan af
Bedtime Stories, Secret,
hefur náð hylli hér, sem
« ætti að ýta undir áhuga
á breiðskífunni, en
Bjarkarlagið, sem ber
reyndar mikinn „Debut-
svip“ hjálpar eflaust til
líka, ekki síður en ný og
öllu siðlegri ímynd Ma-
donnu.
Siðleg
Madonna.
pf' „'tíÍÍmUí ’gHjHI' pv*
Sóló-
skífa
Björns
Jörundar
ROKKSVEITIN góðkunna
Nýdönsk hefur lagt upp
laupana og gefur ekki meira
út í bráð. Aðdáendur sveit-
arinnar skyldu þó ekki ör-
vænta, því einn liðsmanna
hennar, Björn Jörundur
Friðbjörnsson kvaddi sér
hljóðs í liðinni viku með
sólóskífu.
Björn segist hafa lengi
ætlað sér að gera sóló-
skífu, en meðan Nýdönsk
var á fullu gafst lítill tími
til slíks. Þegar liðsmenn
sveitarinnar ákváðu svo að
fara í frí hafi hann sest nið-
ur, ákveðið hvert þemað
ætti að vera og setið svo
við á kvöldin frá janúar og
fram í maí og samið lög og
texta.
Björn segist hafa viijað
vinna plötuna með öðrum
og því hafi hann fengið þá
tónlistar-
menn sem
leika með hon-
um á plötunni til að
leggja hugmyndir í púkkið,
enda eru allar útsetningar
skrifaðar á alla sem léku á
plötunni, Björn sjálfan, Ey-
þór Gunnarsson, Sigurð
Bjólu, Ólaf Hólm og Þor-
stein Magnússon. Björn
segist þó hafa verið verk-
stjóri, enda hugmyndin og
lögin öll hans.
Björn segist hafa haft
mikið
gaman af
því að vinna
með þessum piltum
og ekki hafi hann minna
gaman af því að setja saman
hljómsveit þá sem hann
ætlar að leika með víða um
land, til að fylgja plötunni
eftir. Svo gaman reyndar
að hann segist hafa fullan
hug á að vinna frekar með
sveitinni eftir áramót og þá
jafnvel að vinna plötu í sam-
einingu.