Morgunblaðið - 30.10.1994, Qupperneq 16
16 B SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
SALA Á BÓKUM
úr fallegu einkasafni
á Ásvallagötu 26, fyrstu hæð til hægri, heldur
áfram daglega frá kl. 14-18 til fimmtudagsins
3. nóvember. Fjölbreytt úrval af bókum.
Nýjar bækur koma til sýnis og sölu
á degi hverjum.
Geymið auglýsinguna.
Det Nedvendige Seminarium
i Danmörku
GETUR ENN TEKIÐ INN 3 ÍSLENSKA
NEMENDUR ÞANN 1. SEPT. 1995
4ra ára alþjóðlegt, nútíma kennaranám, sem veitir réttindi til kennslu í mörg-
um skólum og uppeldisstofnunum í Evrópu og þriðja heiminum.
Námið er:
• 1 ár með alþjóðlegu námsefni, innifalin er 4ra mánaða námsferð til Asíu.
• 1 ár námsefni innanlands, innifalin er 6 mán. þátttaka í dönsku atvinnulífi.
• 2ja ára fagnám, innifalið er 2x6 mánaða starfsnám í grunnskóla og öðrum
skólum innanlands og utan.
Eftir útskrift tekur við eins árs vinna í skóla í Afríku.
Allir nemendur búa í skólanum. Kynningarfundur um skólann verð-
ur haldinn í Reykjavík laugard. 12. nóvember kl. 16 á Hótel íslandi.
Ef þú hefur áhuga, hringdu í síma 90 45 43 99 55 44 eða sendu
símbréf 90 45 43 99 59 82.
Det Nodvendige Seminarium, DK-6990 Ulfborg
rtcuistfagnaður
ís(ensffjapans/(a féíagsins
verður ftaídinn á
SíóteC 'Borjj
þriðjudaginn 1. nóvemBer ní(
([.20.00-22.30
Síinn fráBctri matreiðsCumaður,
Síasfiitsume ‘Tsuneo, mun útSúa
stórgíœsiCegt STLSdCl-fiCað6orð fyrir
veisCuflestu
OQjnntarverða
japansffir stybningar
frá‘ft(eisfiif(an
ftCiðaverð fr. 1.500
Ofýir féCagsmenn veC^pmnir
Hcegt er að panta miða í síma 620111 frá
Cf. 14.00 -18.00 á mánuíag ogþriðjudag.
Miðasaía er einnig við innganginn
BRIDS
----ac_______________
llmsjón Arnór G.
Ragnarsson
36 pör í
Austurlandsmóti í
tvímenningi
Eftirfarandi pistill af Austurlandi
barst þættinum frá ínu Gísladóttur
um framgang íþróttarinnar þar
eystra.
Austurlandsmót í tvímenningi fór
fram í Valhöll, Eskifirði, dagana 21.
og 22. október. Þijátíu og sex pör
kepptu um titilinn og jafnframt um
þátttökurétt í íslandsmeistaramótinu
í tvímenningi. Keppnisstjóri var Krist-
ján Hauksson. Verðlaun í mótið gaf
Eskifjarðarkaupstaður og flestir að-
komumanna gistu í verbúð Hraðfrysti-
húss Eskifjarðar þar sem vel var tekið
á móti bridsfólki og því veitt ókeypis
gisting.
Efstu pör voru þessi:
KrstjánMagnússon-GunnarRóbertsson 187
BöðvarÞórisson-JónlngiIngvason 183
Siguijón Stefánsson - Svavarr Bjömsson 143
Asgeir Metúsalemsson - Kristján Kristjánsson 120
ÁgústSigurðsson-ÓlafurMagnússon 117
BjamiSveinsson-JónAðall 115
Bikarkeppni BSA er að ljúka en
þar keppti 16 sveitir. Lokaleikurinn
fer fram í Valaskjálf, Egilsstöðum,
sunnudaginn 30. október kl. 14.00 á
milli sveita Malarvinnslunnar á Egils-
stöðum og Sveins Heijólfssonar á
Egilsstöðum.
Hraðsveit BSA verður haldinn í
Skrúð, Fáskrúðsfírði, 12. nóvember,
og er það breytt dagsetning frá móta-
skrá. Bridgefélag Suðurfjarðar hefur
tekið að sér framkvæmd mótsins.
Þann 26. nóvember verður Para-
keppni BSA haldinn í Golfskálanum
að Ekkjufelli í Felium. Jólamót Bride-
félags Suðurfjarða loka svo bridgeár-
inu hér eystra á milli hátíðanna.
Bridsdeild Skagfirðinga
Reykjavík
Aðalsveitakeppni félagsins hefst á
þriðjudaginn kemur, 1. nóvember.
Keppnin mun taka 3-4 kvöld (3x10
spila leikir á kvöldi). Skráning er vel á
veg komin, en enn vantar nokkrar sveit-
ir. Skráningu annast Óiafur Lárusson
I síma 16638. Öllum heimil þátttaka.
Síðasta þriðjudag var eins kvölds
tvímenningur. Úrslit urðu:
N/S:
Einar Guðmss. - Ingi Steinar Gunnlaugss. 264
RóbertGeirsson-GunnarAndrésson 245
Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson 232
Aron Þorfinsson - Haraldur Gunnlaugsson 223
A/V:
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 242
Sigrún Jónsdóttir - Ingólfur Lilliendahl 229
Alfreð Kristjánsson - Jón ViðarJónmundsson 227
HjálmarS.Pálsson-SiguijónHarðarson 226
Aðstoðað er við myndun sveita, sé
þess óskað. Spilað er í Drangey við
Stakkahlíð 17 og hefst spilamennska
kl. 19.30.
Bridsfélag Breiðholts
Aðalfundur félagsins verður haldinn
sunnudaginn 6. nóvember á Kaffi
Milanó, Faxafeni 11, kl. 17. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Sl. þriðjudag var splaður eins kvölds
tvímenningur. Efst urðu eftirtalin pör:
Gísli Sigurkarlsson - HalldórÁrmannsson 136
Friðrik Jónsson - Guðjón Jónsson 122
Kristján Jónasson - Guðmundur Karlsson 112
Næsta þriðjudag verður spilaður
eins kvölds tvímenningur. Þriðjudag-
inn 8. nóvember hefst hraðsveita-
keppni. Skráning hjá Hermanni Lárus-
syni í síma 41597. Spilað er í Gerðu-
bergi kl. 19.30.
Bridsfélag Suðurfjarða
Hraðsveitakeppni Austurlands
verður haldin í Félagsheimilinu Skrúði,
Fáskrúðsfirði, laugardaginn 12. nóv-
ember. Hefst kl. 12.
Skráið þátttöku í seinasta lagi 9.
nóvember hjá Óttari (51225/51226)
og Skafta (56770).
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudagskvöld var þriðja
kvödið í barómeter.
Prófkjör á Reykjanesi 5. nóvember
IJngur inaður úr atvinnulífínu
VIKTÖK B, KjARTANSSÖN
Í5. SÆTI
tSlBU . f£ * Kosningaskrifstofur:
Bæjarhrauni 22, Hafnarfirði, s. 91-650735 og Hafnargötu 38, Keflavík, s. 92-12100.
Auglýsing
um námskeið og próf vegna
löggildingar fasteigna- og skipasala
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur falið prófnefnd löggiltra fasteignasala að efna til námskeiðs
fyrir þá, sem vilja öðlast löggildingu sem fasteigna- og skipasalar samkvæmt lögum um fasteigna-
og skipasölu nr. 34/1986, sbr. lög nr. 10/1987, og reglugerð nr. 519 24. nóvember 1987.
Samkvæmt reglugerðinni skal prófið og undirbúningsnámskeið skiptast í þrjá hluta. Prófnefnd og
dóms- og kirkjumálaráðuneytið hafa ákveðið að gefa þeim, sem óska eftir að gangast undir próf
samkvæmt 1. tl. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 34/1986, kost á námskeiði og prófum sem hér segir:
Námskeið Próf
I. hluti janúar - apríl 1995 maí 1995
II. hluti september - desember 1995 janúar 1996
III. hluti janúar - apríl 1996 maí 1996
Námskeiðið verður því aðeins haldið að næg þátttaka fáist. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu
réttarreglur og fjárhagsleg atriði, sem á reynir í störfum fasteigna- og skipasala, auk þess sem
kennd verður skjalagerð. Ekki er skylda að sækja námskeiðið, áður en gengist er undir próf, og
einnig getur prófnefnd heimilað þeim, sem ekki óska að gangast undir próf, að sitja námskeiðið
og skulu þeir sitja fyrir, sem hafa starfsreynslu á sviði fasteigna- og skipasölu.
Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 34/1986 skal kostnaður vegna námskeiða og prófa greiðast með
kennslu- og prófgjöldum. Fjárhæð próf- og kennslugjalda á I. hluta námskeiðsins hefur ekki verið
ákveðin, en gera má ráð fyrir því, að sú fjárhæð verði um kr. 100.000. Endanleg fjárhæð ræðst þó
af fjölda þátttakenda á námskeiðinu.
Þeir, sem hyggjast taka þátt í námskeiðinu og/eða gangast undir próf, skulu fyrir 20. nóvember nk.
bréflega tilkynna þátttöku sína til Viðars Más Matthíassonar, hrl., Borgartúni 24, Reykjavík.
Innritunargjald, kr. 10.000, skal senda með tilkynningunni, en gjaldið er endurkræft, ef af nám-
skeiðinu verður ekki eða ef tilkynnandi fellur frá þátttöku, áður en I. hluti námskeiðsins hefst.
Sérprentanir laga nr. 34/1986 og reglugerðar nr. 519/1987 fást í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
Arnarhvoli, Reykjavík.
Nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðsins veitir
Sigrún Jóhannesdóttir, lögfræðingur, í dómsmálaráðuneytinu.
Reykjavík, 28. október 1994.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
PrófkjÖr sjáli'sta ðisnianna í Heykjaneskjöi dæini 5. nóveinber 1994
Sigríður Anna Þórðardóttir
kosniiigaskrifstufiir eru í:
Ilarmirllrði, Hifjarliraimi 16, Mosl'ellsliæ, linhoiti 14,
símar 655422, 655424 og 655426 símar 666775 og 666778
Allir stuðniiigsnieiin velkomnir.
Yeljum forystukonu í fremstu röð
OIWW