Morgunblaðið - 30.10.1994, Page 18
18 B SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER1994
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN NII/4UGÍ YSINGAR
„Au pair“
Bamgóð 19 ára eða eldri „au pair“ óskast til
að gæta 7 mánaða barns auk léttra heimilis-
verka, á reyklausu íslensku heimili í Frakk-
landi. Frönskukunnátta æskileg.
Upplýsingar í síma 641589.
Heildverslun
Lítil heildverslun óskar eftir að ráða starfs-
kraft í fullt starf. Um er að ræða fjölbreytt
skrifstofu- og sölustarf. Bókhaldskunnátta
og reynsla af tölvum er nauðsynleg. Einnig
er nauðsynlegt að viðkomandi hafi bíl til
umráða. Æskilegur aldur er 25-40 ár.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnað-
armál og öllum umsóknum svarað.
Ráðning verður sem fyrst.
Umsækjendur skili inn umsókn til afgreiðslu
Mbl. fyrir 5. nóvember nk. merktri:
„H - 5226“.
fBORGARSPÍTALINN
Læknar
Staða deildarlæknis við lyflækningadeild
Borgarspítalans er laus til umsóknar. Staðan
veitist frá 15. nóvember nk. í sjö mánuði eða
samkvæmt samkomulagi.
Hlíf Steingrímsdóttir, deildarlæknir, veitir
upplýsingar um stöðuna.
Umsóknir sendist fyrir 5. nóvember nk. til
Gunnars Sigurðssonar, yfirlæknis lyflækn-
ingadeildar.
SÖLU-
MARKAÐSSTJÓRI
ÓSKUM EFTIR AÐ RÁÐA sölu- og
markaðsstjóra hjá Heimsmynd.
STARFIÐ FELST f umsjón með auglýs-
inga- og áskriftaöflun, tilboðsgerð og frá-
gangi sölusamninga, viðhaldi viðskipta-
tengsla og öflun nýrra jafnframt því að sinna
markaðssetningu svo og öðrum þeim verk-
efnum er tengjast auglýsinga- og markaðs-
málum.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur
séu með marktæka þekkingu og reynslu
af sölu- og markaðsmálum. Kostur er ef
þekking um prentvinnslu er fyrir hendi.
Viðkomandi þarfa að vera vel skipulagður,
hafa frumkvæði og geta unnið sjálfstætt.
Leitað er að kröftugum og hugmyndaríkum
aðila til að takast á við kref jandi verkefni.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með
9. nóvember nk. Ráðning verður sem fyrst.
Um er að ræða áhugaverð laun og starf
fyrir réttan aðila.
Vinsamlega athugið að fyrirspurn-
um varðandi ofangreint starf verð-
ur eingöngu svarað hjá STRÁ Starf s-
ráðningum.
Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á skrif-
stofunni, sem opin er frá kl. 10-16.
Viðtalstímar eru frá kl. 10-13.
Starfsráðningar hf
Suöurlandsbraut 30 ■ 5. hceð ■ 108 Reykjavík
, Sími: 88 30 31 Fax: 88 30 10
CuÍný Hardardóttir
Siglufjörður
Blaðbera vantar á Háveg, Hverfisgötu
og Lindargötu.
Upplýsingar í síma 71489.
Heildverslun
í Garðabæ óskar eftir skrifstofumanni í hálft
starf. Þarf að geta stemmt af og gengið frá
bókhaldi í hendur endurskoðanda, séð um
launaútreikning o.fl.
Svar sendist á afgreiðslu Mbl., merkt:
„H - 7522".
Tveir Norðmenn
25 og 27 ára, sem núna starfa sem mat-
reiðslumaður og afgreiðslumaður í Noregi,
óska eftir vinnu á íslandi, hvar sem er, við
hvað sem er. Æskilegt að húsnæði fylgi
með, eða sé útvegað. Þeir áælta komu til
íslands snemma í desember nk.
Áhugasamir snúi sér til Agnars Erlingssonar
í síma 14150/15150 í vinnutíma, fax 615150,
Reykjavík.
Umboð
Til afhendingar eru mjög góð umboð.
Boðleiðin inn á markaðinn er augljós og
markhópurinn skýr. Um er að ræða vissa
einkaleyfisvernd sem hefur það í för með sér
að samkeppni er ekki til staðar. Gott tæki-
færi fyrir rétta aðila eða fyrirtæki.
Áhugasamir aðilar leggi inn fyrirspurnir hjá
afgreiðslu Mbl. merktar: „Bjart - 95“.
Ollum fyrirspurnum verður svarað.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Óskum eftir að ráða framkvæmdastjóra til
starfa hjá framleiðslu- og þjónustufyrirtæki í
Reykjavík. Starfsmannafjöldi 25-30,
Starfs- og ábyrgðarsvið:
1. Dagleg framkvæmdastjóm, ábyrgð,
stjómun og stefnumótun í framleiðslu,
gæðamálum, markaðs- og söluaðgerðum.
2. Stjórnun og ábyrgð á gerð framleiðslu-
rekstrar- og greiðsluáætlana og daglegri
fjármálastýringu.
3. Framkvæmdastjóri heflir frumkvæði að
stefnumörkun og mótun framtíðar-
markmiða í samvinnu við stjórn og aðra
stjórnendur fyrirtækisins.
Kröfur til umsækjenda:
Leitað er að manni með stjórnunar reynslu
og þekkingu á íslensku atvinnulífi.
Háskólamenntun á viðskipta- og/eða
rekstrarsviði æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
"Framkvæmdastjóri 321" fyrir 5. nóv. n.k.
i
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólakennarar
Staða aðstoðarleikskólastjóra í Lindarborg
v/Lindargötu er laus til umsóknar.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Ragnheiður
Halldórsdóttir, í síma 15390.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Sjúkraþjálfarar
Yfirsjúkraþjálfari óskast til starfa nú þegar eða
eftir nánara samkomulagi. Um fullt starf er
að ræða. Möguleiki er á að nýta aðstöðu eftir
dagvinnutíma. íbúð í boði ef óskað er.
Allar nánari upplýsingar í síma 26222 milli
kl. 10 og 12 alla virka daga.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Leikskólakennarar
Leikskólinn á Hólmavík óskar að ráða leik-
skólastjóra og leikskólakennara.
Um er að ræða 62,5% störf.
Nánari upplýsingar gefur Stefán Gíslason,
sveitarstjóri, í síma 95-13193, (heimasími
95-13112).
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu Hólma-
víkurhrepps, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík,
í síðasta lagi mánudaginn 14. nóvember 1994.
Sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps.
OSTA OG
SMJÖRSALAN SH
Verslunarstjóri
- Ostabúðin -
OSTA OG SMJÖRSALAN SF. óskar að ráða
verslunarstjóra í Ostabúð fyrirtækisins á Bi-
truhálsi 2.
Starfið
Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini,
umsjón með versluninni og tengd störf.
Hæfniskröfur
Lögð er áhersla á þjónustulipurð og sjálf-
stæði í starfi ásamt metnaði til að veita
fyrsta flokks þjónustu.
Góð framkoma ásamt snyrtimennsku nauð-
synleg. Reyklaus vinnustaður.
Vinnutími frá kl. 9-18.30.
í boði er sérlega gott framtíðarstarf í
skemmtilegu umhverfi.
Nánari upplýsingar veitir Auður Bjarnadóttir
hjá Ráðgarði. Ath. upplýsingar um starfið
eingöngu veittar hjá Ráðgarði.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs
á eyðublöðum er þar liggja frammi merktar:
„Ostabúðin11 fyrir 5. nóvember. nk.
RÁÐGARÐUR hf.
STfÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17105 REYKJAVÍK SÍMI616688