Morgunblaðið - 30.10.1994, Blaðsíða 21
i
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER1994 B 21
ATVINNUAUGl YSINGAR
Vélavörður óskast
á línubát sem gerður er út frá Vestfjörðum.
Upplýsingar í símum 985-22364
eða 94-7700.
Bandaríkin
- „Au pair“
íslensk hjón með tvö ung börn, búsett í N.Y.
fylki óska eftir heimilisaðstoð, 20 ára eða
eldri. Upplýsingar í síma 613539.
Matráður
Óskum að ráða starfsmann til að sjá um
mötuneyti Húsasmiðjunnar. Æskilegt er að
viðkomandi hafi reynslu af svipuðu starfi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi.
4Ö
HÚSASMIÐJAN HE
Fasteignasala
- sölumaður
Fasteignasala óskar eftir sölumanni til starfa.
Æskilegt er að viðkomandi sé á aldrinum
20-30 ára og hafi reynslu af sölustörfum.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 4. nóvember,
merktar: „F - 16013“.
Forritari óskast
Tölvusamskipti hf. óska eftir að bæta við
forritara í þróunardeild fyrirtækisins. Viðkom-
andi þarf að hafa víðtæka þekkingu og
reynslu á forritun í C++ og Windows.
Skriflegar umsóknir óskast sendar til Tölvu-
samskipta hf, Pósthólf 12445, 132 Reykja-
vík fyrir 10. nóvember nk.
Sextug kona
óskar eftir heilsdagsstarfi. Hefur starfað við
alhliða skrifstofustörf í yfir þrjátíu ár.
Upplýsingar í síma 622412.
Skipstjóri
með vélstjóraréttindi óskar eftir vinnu á
stór-Reykjavíkursvæðinu.
Margt kemur til greina.
Tilboð sendist til afgreiðslu Mbl., merkt:
„S - 16015“.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39 - 108 Reykjavík
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Droplaugarstaðir - Snorrabraut 58 - sími 25811
Droplaugarstaðir
heimili aldraðra,
Snorrabraut 58.
Starfsmapn vantar til aðstoðar við böðun
f.h. og ræstingu e.h.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
25811 milli kl. 13-16 alla virka daga.
Pharmaco
Lyfjakynnir
Pharmaco hf. óskar að ráða lyfjakynni fyrir
erlent lyfjafyrirtæki. Æskilegt er að umsækj-
endur hafi lyfjafræðimenntun, hjúkrunarfræði-
menntun eða aðra sambærilega menntun.
Skriflegar umsóknir sendist Pharmaco hf.,
Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, merktar: „Lyfja-
kynnir" fyrir 10. nóvember nk.
Rennismiður
Vanur rennismiður óskast.
Upplýsingar í síma 652556.
Véla- og skipaþjónustan Framtakhf.
íslenskt-franskt hf.
Óskum eftir vönu starfsfólki ífiskvinnslu okkar.
Upplýsingar á staðnum.
íslenskt-franskt, Dugguvogi 8.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Til foreldra barna á
leikskólaaldri í Reykjavík
Munið að skila útsendum umsóknareyðublöð-
um um heilsdagsleikskóla fyrir 31. október.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Afgreiðsla
Erlendar bækur
Óskum eftir að ráða starfskraft til framtíðar-
starfa íverslun okkar, sem býður upp á lands-
ins mesta úrval erlendra bóka. Starfið krefst
þekkingar og áhuga á erlendum bókum.
Skriflegar umsóknir sendist okkur fyrir föstu-
daginn 4. nóvember 1994.
bók/a,l\ /túdervta,
v/Hringbraut - 101 Reykjavík.
Málefni fatlaðra
Deildarstjóri
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Suður-
landi auglýsir eftir deildarstjóra á sambýli.
Þroskaþjálfamenntun er æskileg eða mennt-
un á sviði uppeldis- eða félagsmála.
Launakjör eru skv. samningum BSRB.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar
veittar hjá deildarstjóra ráðgjafadeildar.
Umsóknarfrestur er til 5. nóvember.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
Suðurlandi, Gagnheiði 40, 800 Selfossi.
Símar 98-21922 og 98-21839.
RADAUGÍ YSINGAR
Góður söluturn
Vorum að fá til sölu góðan söluturn í Breiðholti.
Upplýsingar veitir Firmasalan, Skipholti 50b,
símar 19400/19401.
Málverk tilsölu
Gullfallegt olíumálverk eftir Jón Stefánsson
til sölu. Myndefni: Reykjanes.
Þeir, sem áhuga hafa, látið vita á afgreiðslu
Mbl., merkt: „F - 18017“.
Sólstofur
Seljum mjög vandaðar sólstofur. Fást með
sérstöku gleri með háu einangrunargildi,
með vörn gegn ofhitnun inni vegna sólar-
orku. Sýning í dag kl. 13.00-17.00 í Kirkju-
lundi 13, Garðabæ, ekið inn frá Vífilsstaða-
vegi. Nú er verðið hagstætt vegna lágs geng-
is dollars.
Tæknisalan, sími 656900.
Bókaklúbbur
Lítið útgáfufyrirtæki með bókaklúbbi (2000
fastir áskrifendur) til sölu. Góðir tekjumögu-
leikar fyrir dugmikla einstaklinga.
Áhugasamir vinsamlegast leggi inn nafn og
símanúmer fyrir 5. nóvember nk. hjá af-
greiðslu Mbl., merkt: „Útgáfa - 18018“.
jwfldM
Tímaritið Samúel er til sölu. Hefur það kom-
ið út í 25 ár samfleytt og nær öll árin verið
12 tölublöð á ári.Það hefur jafnan verið í
hópi mest lesnu tímarita landsins samkvæmt
lesendakönnunum, sem gerðar hafa verið á
undanförnum árum.
Upplýsingar um blaðið verða aðeins veittar
á skrifstofu okkar í Ármúla 18,108 Reykjavík.
FRÓDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Til sölu
Til sölu iðnaðarsaumavélar, overlockvélar,
pressuborð og blindsaumsvél ásamt sniðum
og litlum lager. Verðtilboð.
Upplýsingar í síma 651788 og 652724 í dag
og í síma 20855 á virkum dögum.
Miðlungsstór heildverslun
vill kaupafyrirtæki, sem selur verkfæri, hrein-
lætisvörur og því um líkt. Annars konar fyrir-
tæki koma einnig til greina.
Svar sendist á afgreiðslu Mbl., merkt:
„M - 1755“.
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, myndir, málverk,
silfur, Ijósakrónur, lampa, bollastell, hatta,
platta, gömul póstkort og smærri húsgögn.
Upplýsingar í síma 91-671989 eftir kl. 16.
Geymið auglýsinguna.