Morgunblaðið - 30.10.1994, Qupperneq 22
22 B SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER1994
MORGUNBLAÐIÐ
RAÐ/A / JCZI Y^IMC^AR
■ \ v / v—/L / N \—'/ V/ v
Byggingarkrani til sölu
Linden byggingarkrani til sölu. Þarfnast smá-
vægilegrar lagfæringar.
Upplýsingar gefnar í síma 32354.
Einbýlishús
Óska eftir einbýlishúsi 130-200 fm til leigu
á svæði 101.
Tilboð sendist til afgreiðslu Mbl., merkt:
„Svæði 101“.
Risajólamarkaður
verður opnaður á 1.500 mz gólffleti um miðj-
an nóvember á besta stað á Skeifu-/Faxa-
fenssvæðinu. Óskum eftir traustum söluaðil-
um. Hagstæð leiga.
Upplýsingar í síma 989-27040.
Ferðaþjónusta
Óska eftir samstarfi við fjársterka aðila um
að hrinda íframkvæmd hugmynd um framtíð-
ar fjáröflun fyrir hin ýmsu líknarfélög.
Svör sendist til Æ.H., pósthólf 82,
202 Kópavogi.
Peningar - hagnaður
Viltu eignast hlut í fyrirtæki sem setur á
markaðinn í Danmörku arðvænlega vöru árið
1995? Fyrirtækið verður í eigu íslendinga.
Söluaðferðin er „network marketing" og
hefur á einu ári tekist ótrúlega vel til í Nor-
egi og Svíþjóð.
Vörurnar eru seldar sama viðskiptavini aftur
og aftur, samkeppni er ekki til staðar vegna
einkaleyfa.
Vegna sérstöðu vörunnar og öruggrar sölu-
aðferðar verður um verulegan hagnað að
ræða. Áhugasamur aðili þarf að leggja fram
fjármagn en ekkert vinnuframlag og er hagn-
aðarvonin í samræmi við það. A stuttum
kynningarfundi verður málið reifað, vörurnar
sýndar og farið yfir uppbygginguna.
Áhugasamir aðilar leggi inn fyrirspurnir hjá
Mbl. merkt: „STÓRT - 95“.
BESSASTAÐAHREPPUR
Húsnæðisnefnd
Bessastaðahrepps
óskar hér með eftir umsóknum um eina fjög-
urra herbergja almenna kaupleiguíbúð sem
til úthlutunar er á vegum nefndarinnar í ár.
Réttur til úthlutunar er bundinn við eftirfar-
andi skilyrði:
1. Lögheimili sé í Bessastaðahreppi.
2. Greiðslugeta sé fyrir hendi, sbr. reglur
Húsnæðisstofnunar ríkisins.
3. Skilyrði um iðgjaldagreiðslu til lífeyris-
sjóðs, skv. 12. gr. laga um Húsnæðis-
stofnun ríkisins.
Áætlaður afhendingartími er í árslok 1995.
Áætlað söluverð er um níu milljónir króna
m.v. vísitölu byggingarkostnaðar í október
1994. Um lán og lánskjör vísast til laga nr.
70/1990 um Húsnæðisstofnun ríkisins með
síðari breytingum.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu Bessa-
staðahrepps, Bjarnastöðum, í síðasta lagi
fimmtudaginn 17. nóvember 1994 á eyðu-
blöðum sem þar fást. Athugið að eldri, óaf-
greiddar umsóknir þarf að endurnýja.
Húsnæðisnefnd Bessastaðahrepps.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Iðnskólinn í Reykjavík þakkar öllum þeim,
sem sóttu skólann heim, sendu honum kveðj-
ur, gáfu honum gjafir eða styrktu hann á
annan hátt á 90 ára afmælinu.
Skólameistari og skólanefnd.
Handverk
- reynsluverkefni
minnir á að frestur til að skila inn tillögum í
samkeppni um hönnun á minjagripum og
minni nytjahlutum úr fslensku hráefni er tii
föstudagsins 4. nóvember nk. kl. 12 á hádegi.
Tillögurnar skulu berast skrifstofu verkefn-
isins á Laufásvegi 2, 101 Reykjavík fyrir
þann tíma. Allar nánari upplýsingar fást í
síma 91-17595.
Styrkir til námsefnisgerðar
á framhaldsskólastigi
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir um-
sóknum um styrki til námsefnisgerðar í bók-
legum og verklegum greinum á framhalds-
skólastigi. Minnt skal á að heimilt er, skv.
nýjum reglum um úthlutun, að verja allt að
fimmtungi heildarúthlutunar til að efla tiltek-
in svið.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðu-
neytinu, námsefnisnefnd, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, fyrir 18. nóvember nk. á þar
til gerðum eyðublöðum, sem hægt er að fá
í ráðuneytinu.
Útboð
Sorpstöð Suðurlands óskar eftir tilboðum í
gerð sorpurðunarsvæðis í landi Kirkjuferju-
hjáleigu í Ölfusi.
Helstu verkþættir:
Uppúrtekt: 15.000 rm
__ Dren-og burðarlög: 3.000 rm
Frárennslislagnir: 500 m
Girðingar: 1.000 m
Steypt hreinsivirki:
Útboðsgögn fást keypt hjá Verkfræðistofu
Suðurlands hf., Eyravegi 27, Selfossi, á
kr. 5.000.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir
kl. 11.00, fimmtudaginn 10. nóv. nk., en þá
verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóð-
endum, er þess óska.
Auglýsing
um deiliskipulag 5. áfanga sumarbú-
staðahverfis og breytingu á áföng-
um 1-4 f landi Vatnsenda, Skorra-
dalshreppi
Samkvæmt ákvæðum í gr. 4.4. í skipulags-
reglugerð nr. 318/1985, með breytingum 1.
júlí 1992 er hér með lýst eftir athugasemdum
við tillögu að deiliskipulagi 5. áfanga sumar-
bústaðahverfis í landi Vatnsenda og breyt-
ingum á samþykktu skipulagi 1.-4. áfanga.
Deiliskipulagstillagan ásamt greinargerð og
skilmálum liggurframmi á Grund og að Dag-
verðarnesi í Skorradal og hjá Skipulagi ríkis-
ins, Laugavegi 166, frá 4. nóvember til 2.
desember, á skrifstofutíma. Jafnframt er til
sýnis hugmynd að heildarskipulagi jarðarinn-
ar Vatnsenda.
Athugasemdum skal skila fyrir 10. desember
til hreppsnefndar Skorradalshrepps, Grund,
Skorradal og skulu þær vera skriflegar.
Oddviti Skorradalshrepps,
Skipulagsstjóri ríkisins.
Styrkir til handritarann-
sókna í Kaupmannahöfn
í framhaldi af lyktum handritamálsins ákváðu
dönsk stjórnvöld að veita íslenskum fræði-
manni styrk til handritarannsókna við Stofn-
un Árna Magnússonar (Det Arnamagnæ-
anske Institut) í Kaupmannahöfn. Styrkurinn
veitist til allt að tólf mánaða dvalar og nem-
ur nú um 16.700 dönskum krónum á mán-
uði, auk ferðakostnaðar.
Styrkur Árna Magnússonar (Det Arna-
magnæanske Legat).
Sjóðurinn Det Arnamagnæanske Legat hefur
það verkefni að veita íslenskum ríkisborgur-
um styrki til rannsókna íÁrnasafni eða öðrum
söfnum í Kaupmannahöfn. Styrkir eru veittir
námsmönnum og kandídötum, sem hafa
sýnt svo mikla þekkingu á sviði norrænnar
eða íslenskrar tungu, sögu eða bókmennt-
um, að vænta megi að þeir muni inna af
hendi verk í þessum greinum, sem þyki skara
fram úr. Til úthlutunar á næsta ári eru 32.000
danskar krónur.
Umsóknarfrestur um ofangreinda styrki á
árinu 1995 er tii 5. desember nk., en um-
sóknir ber að stíla til Árnanefndar (Den Arna-
magnæanske Kommission) í Kaupmanna-
höfn. Nánari upplýsingar um styrkina og til-
högun umsókna fást í menntamálaráðuneyt-
inu, Stofnun Árna Magnússonar á íslandi
og skrifstofu heimspekideildar Háskóla
íslands.
Menntamálaráðuneytið,
27. október 1994.
Sjómannasamband íslands
19. þing Sjómannasambands íslands verður
sett miðvikudáginn 2. nóvember nk. kl. 10.00
árdegis í þingstofu A, Hótel Sögu.
Sjómannasamband íslands.
VÍMULAUS ÆSKA
foreldrasamtök
Aðalfundur vímulausrar æsku verður haldinn
miðvikudaginn 9. nóvember 1994 kl. 17.00
á Grensásvegi 16.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKiPTI
Aðalfundur verður haldinn í Félagsmiðstöð-
inni Frostaskjól, Frostaskjóli 2, laugardaginn
12. nóvember kl. 16.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Allir AUS-arar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Rafiðnaðarsamband
íslands
Rafiðnaðarmenn
ríkisstofnunum
Rafiðnaðarsamband íslands heldurfund með
rafiðnaðarmönnum sem starfa hjá ríkisstofn-
unum nk. þriðjudag, 1. nóvember, kl. 18.00
í félagsheimilinu Háaleitisbraut 68.
Fundarefni: Væntanlegir kjarasamningar.
Miðstjórn RSÍ.