Morgunblaðið - 02.11.1994, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LÍFSSKOUNN VESTURBERGI73
ÍDAG
Selma Júlíusdóttir, ilmfræö-
ingur, heldur námskeið í
meöferö ilmolía og sog-
æðanuddi, helgina 5.-6.
nóvember
Námskeið verða haldin í
vetur um heilun, fingra
eyrnapunktanuddi og um
forvarnir almennt gegn
sjúkdómum.
----- SÍMI77070
OPINN FUNDUR UM
FRISVÆÐI
Á ÍSLANDI
í kvöld
á kosningaskrifstofu
Kristjáns Páksonary
Hafnargötu 45,
Keflavík, kl. 21.00
Fundarstjóri:
Ellert Eiriksson,
bajarstjóri
Stuðningsmenn
BRIDS
Umsjön Guðm. Páll
Arnarson
TYRKINN Özdil er litríkur
spilari með sjálfsálitið í lagi.
Hann hefur góða frásagn-
argáfu og er þess vegna í
miklum metum hjá brids-
blaðamönnum í leit að efni.
Þeir koma ekki að tómum
kofanum hjá Özdil. Hér er
eitt afrek hans í Albuqu-
erque. „Það tók mig um það
bil fjórar sekúndur að
greina spilið í botn,“ viður-
kenndi Özdil, en það er óra-
tími á hans mælikvarða:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ K32
¥ Á102
♦ Á8652
♦ 54
Vestur
♦ 10975
¥ 986
♦ KG
♦ K1098
Austur
♦ ÁDG864
▼ 43
♦ 109
♦ D63
Suður ♦ -
¥ KDG75
♦ D743 ♦ ÁG72
Austur Suður
Özdil
1 hjarta
Paæ 1 grandl 2 spaðar Dobl**
4 spaðar 5 hjörtu Allir pass
*krafa
**úttekt
Útspil: Spaðatía.
Özdil gerði sér strax
grein fyrir vandanum: Að
stinga lauf í borði án þess
að missa vald á trompinu.
Ekki gengur að dúkka lauf
eða spila tígulás og tígli.
Vömin spilár alltaf spaða
og fær á endanum slag á
tromp. Eftir fjórar sekúnd-
ur sá Özdil lausnina. Hann
dúkkaði tígul í öðrum slagi!
Vestur átti slaginn og
spilaði spaða. Özdil tromp-
aði og gaf slag á lauf. Spili
vörnin spaða í þriðja sinn,
trompar suður, tekur KD í
hjarta, fer inn í borð á tígul-
ás og spilar hjartaás. Öfug-
ur blindur. Og ef andstæð-
ingarnir spila tígli, er hægt
að trompa lauf í borði. Lyk-
ilatriðið er að geyma tígul-
ásinn í borði sem innkomu.
VELVAKANDI
Svarar í slma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Lítið
framboð af
norður-
amerískum
bókum
HÉR Á landi er alltof lítið
af bókum frá löndum eins
og Bandaríkjunum og
Kanada þó að þetta séu
miklar bókaþjóðir. Ég vil
gjarnan fá upplýsingar
um það hjá þeim aðilum
sem selja erlendar bækur
hér á landi, eða öðrum,
hvar ég geti keypt banda-
rískar eða kanadískar
náttúrulífsbækur um flór-
ur, eða bækur sem fjalla
um gróður, lönd og dýr.
í lokin væri fróðlegt að
fá vitneskju um það frá
aðilum sem selja erlendar
bækur hvers vegna bækur
frá Bretlandseyjum séu
langalgengastar í versl-
unum hér á landi.
Upplýsingar um þetta
væru vel þegnar í síma
92-46558.
Bókaunnandi
Köttur tapaðist
SVARTUR fresskettiing-
ur með hvíta sokka tapað-
ist frá Hraunbrún 2 sl.
fimmtudag. Hafí einhver
orðið ferða hans var er
hann vinsamlega beðinn
um að hringja í síma
651715.
Síamsfressið
hennar Hörpu
HARPA, sem á eyma-
merkta síamsfressið úr
Æsufelli, er beðin um að
hafa samband í síma
877182.
TAPAÐ/FUIMDIÐ
Hanski
tapaðist
SVARTUR leðurhanski
með ullarfóðri tapaðist sl.
laugardag í Bónus við
Holtagarða eða á bíla-
stæðinu. Hanskinn er
merktur inni í fóðrinu. Ef
einhver finnur hann er
hann vinsamlega beðinn
um að hringja í síma
12267.
Myndavél
tapaðist
VETURLIÐI Gunnarsson
tapaði myndavél sinni sl.
miðvikudag í Grasa-
garðinum í Laugardal.
Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma
879321.
Með morgunkaffinu
Áster...
10-14
að giska á hvaða
gjöf er frá henni.
TM Reg. U.S. P«t. 0«. - afl rights reserved
(e) 1094 Los Angeles Tbnes Syncbcate
Ég veit alveg
hvað þetta þýðir,
svo þú getur
sleppt þessu mín
vegna.
Þetta hafðir þú upp úr
því að gefa vísindunum
hjarta þitt.
14.
Ég veit ekki, Pétur minn.
Spurðu mig aftur þegar
þú ert búinn að koma
konunni þinni fyrir katt-
arnef.
Víkveiji skrifar...
FYRIRHYGGJA er eitthvað sem
ekki virðist hrjá íslenska öku-
menn um of, þegar fyrstu snjóar
vetrarins leggjast á götur og vegi
höfuðborgarsvæðisins. Haust eftir
haust verðum við vitni að því, að
umferð á höfuðborgarsvæðinu
gengur löturhægt í fyrstu snjóum.
Bílamir eru enn í sumarbúningi og
hvarvetna myndast óralangar bíla-
lestir, þar sem hver bíll silast áfram
nokkra metra í senn og víða eru
sumardekkjabílar sem spóla og
þvælast fyrir hinum sem forsjálli
voru. Það var nú á mánudagsmorg-
un, sem alhvít jörð og mikil hálka
heilsaði þeim sem þurftu að leggja
af stað til vinnu. Líklega voru þeir
margir ökumennimir sem ekki
höfðu haft þá fyrirhyggju að koma
bílum sínum yfir á vetrardekk, jafn-
vel þótt 1. nóvember væri í gær.
Auk þess hafa þeir örugglega skipt
þúsundum ökumennirnir, sem á
mánudagsmorgun lögðu af stað til
vinnu sinnar, á sama tíma og venju-
lega. Eðlilegt hefði á hinn bóginn
verið, að fenginni margra ára
reynslu, að menn væru á fyrri skip-
unum á leið til vinnu sinnar, því
þegar óhætt er að tvöfalda, eða
jafnvel þrefalda þann tíma, sem
tekur að koma sér til vinnu, f hálku
og ófærð, þá verður að taka tillit
til slíkra útreikninga og leggja þess
fyrr af stað.
HAFA menn hugleitt það,
hversu mörg þúsund vinnu-
stundir glatast atvinnulífinu, við
það að þorri vinnandi fólks mætir
of seint til vinnu? Gefum okkur, að
30 þúsund manns hafi hér á Stór-
Reykjavíkursvæðinu mætt korteri
of seint til vinnu, nú á mánudags-
morgun. Það jafngildir því að at-
vinnulífínu hafa tapast 7.500 vinnu-
stundir á þessari morgunstund. Það
jafngildir því aftur, að tæplega 200
vinnuvikur hafi farið í súginn, þar
sem menn sátu fastir í bifreiðum
sínum í bílalestunum, eða spóluðu
sig löþurhægt í átt til vinnustaðar-
ins. Út frá talnaleik sem þessum,
má þannig komast að þeirri niður-
stöðu, að hafi 30 þúsund manns
mætt fimmtán mínútum of seint til
vinnu, sl. mánudagsmorgun, þá
jafngildir það því, að næstum því
fjögur ársverk glötuðust í hálkunni.
XXX
MEÐ þennan leik að tölum í
huga, sem þarf hreint ekki
að vera fjarri lagi, að mati Vík-
verja, er ekki úr vegi, að brýna
fyrir ökumönnum að huga í tíma
að vetrarútbúnaði bíla sinna. Það
þarf ekki marga svarta sauði í sum-
arbúningi, til þess að eyðileggja
fyrir þeim hvítu, sem þrátt fyrir
góðan útbúnað, geta verið dæmdir
til þess að sitja fastir í bílalestinni,
vegna þeirra svörtu.
xxx
STUNDUM virðist Víkverji sem
hugmyndaríkum markaðs-
mönnum takist að hafa fjölmiðla-
fólk að hálfgerðum ginningarfífl-
um. Þannig gerðist það um síðustu
helgi að lögreglan stöðvaði að nóttu
til tónleika sem haldnir voru í leyfís-
leysi í miðbæ Reykjavíkur. Stöð 2
var strax komin á vettvang og á
sunnudagskvöld var viðtal við einn
hljómsveitarmeðliminn, sem svaraði
fyrir um hvers vegna hljómsveitin
hefði gerst brotleg með þessum
hætti. Ungi maðurinn var ekki í
vandræðum með svarið, þar sem
hann sagði með bros á vör, að
hljómsveitin væri að reyna að fá
ókeypis auglýsingu vegna hljóm-
plötu sem hún væri að gefa út.
Brosti síðan breiðar og sagði við
fréttamanninn, að augljóslega hefði
þetta virkað, því hann væri kominn
í sjónvarpsviðtal við Stöð 2! Það
gerði gott betur en að virka, því
fjórdálka litmynd á forsíðu ásamt
fyrirsögn af atburðinum, prýddi svo
mánudagsblað DV.