Morgunblaðið - 08.11.1994, Qupperneq 24
24 ÞIUÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
f
LISTIR
Leikfélagið frumsýnir
Ofælnu stúlkuna
ÞORGERÐUR Hlöðversdóttir við nokkur verka sinna.
Nálgun
ogjafnvægi
MYNPLIST
Stöðlakot
PAPPÍRSMYNDVERK
ÞORGERÐURHLÖÐVERS-
DÓTTIR.
Opið alla daga frá 14-18. Til 19
nóvember. Aðgangur ókeypis.
NÁMSFERILL Þorgerðar Hlöð-
versdóttur verður að teljast all sér-
stæður, því að áhugi hennar á mynd-
listamámi virðist fyrst hafa vaknað
sjö árum eftir að hún útskrifaðist
úr Fóstruskólanum. Hún hóf nám
við Myndlistarskóla Reykjavíkur
1984, en innritaðist svo í Myndlista-
og handíðaskóla íslands árið eftir og
að lokinni útskrift úr deild textíla
1990 lá leið hennar aftur í Myndlist-
arskólann. Hún hefur verið leikskóla-
kennari í rúman áratug og var full-
trúi Félags leikskólakennara í fram-
kvæmdanefnd Listhátíðar barna í
Reykjavík 1991. Þá hefur hún haldið
myndlistamámskeið fyrir böm og
fullorðna í Heimspekiskólanum og
Heimilisiðnaðarskólanum.
Námsbrautin telst þó fullkomlega
eðlileg, því líkast til hefur umgengnin
við böm í leikskólum reynst kveikja
og aflgjafí sköpunarþarfarinnar. En
þó er öllu algengara að þessu sé öfugt
farið og að lærðir úr MHI kenni við
leikskólana, eða ætti í öllu falli að
vera það við eðlilegar kringumstæður.
Sýningarskráin getur ekki um
neinar framkvæmdir Þorgerðar á
vettvanginum, ekki einu sinni hvað
samsýningar snertir, svo að gera
verður ráð fyrir að hér sé urp frum-
raun hennar að ræða.
Þorgerður gengur hreint til verks
og segja má og verk hennar í neðra
rýminu verði að teljast til hreinnar
innsetningar þótt veggverkin geti
allt eins staðist ein og sér. Um er
að ræða pappírsverk, sem hafa yfir
sér svip mun harðara efnis, t.d. steins
og gips. Átta ferhyrndar plötur, sem
hafa svip af grásteini, umlykja þá
níundu, sem er líkust gifsformi, þar
sem skel myndar miðjuformið. Fram-
kvæmdin nefnist „Leikur" og byggist
á mjög samsvarandi formum og
hnitmiðaðri niðurröðun. Eftir endi-
löngu gólfínu er svo mjór kassi fyllt-
ur sandsalla en smáskeijar mynda
beina línu eftir endilöngu og eins
konar teikningu í sandinn. Hvítkalk-
aðir veggirnir að baki myndanna
veikja nokkuð samlitt gipsformið og
hefðu verkin vafalítið notið sín betur
á dekkri grunni.
Leikurinn er í senn barnslegur sem
hnitmiðaður með skeljaformið sem
gegnumgangandi ferli og telst það
þungamiðja gjörningsins. En hér
hefði verið fróðlegt að vita hugmynd-
ina að baki, og í því skyni hefðu
nokkrar línur í sýningarskrána með
greinargóðum upplýsingum verið
meira en vel þegnar.
Mjög er vandað til verks, jafnvel
full mikið, og hefðu óstýrilátir æsku-
hormónar mátt gegna meira hlut-
verki og blóðstreymið vera meira.
Uppi eru svo níu sjálfstæð verk
hugmyndafræðilegs eðlis, en form-
rænt séð yfirleitt full tilviljanakennd
og óákveðin. Tvö þeirra fannst rýnin-
um bera af eins og gull af eiri hvað
markvissa og ótvíræða skírskotun
snertir; „Einn“ (3) og ,,Nálgun“(4).
Sem frumraun er sýningin verð
allrar athygli.
Bragi Ásgeirsson
LEIKFÉLAG Reykjavíkur frumsýn-
ir á litla sviði Borgarleikhússins
nýtt íslenskt spennuleikrit um ungl-
inga á morgun, 9. nóvember. Nefn-
ist það Ófælna stúlkan og er höf-
undur verksins Anton Helgi Jóns-
son.
Ófælna stúlkan er leiksmiðjuverk
og samið útfrá hinni kunnu þjóð-
sögu um drenginn sem kunni ekki
að hræðast. Þjóðsagnaminni eru
þannig rauði þráðurinn í starfi á
Litla sviðinu, en þar standa nú yfir
sýningar á Óskinni, sm einnig bygg-
ist á þjóðsögu.
í fréttatilkynningu segir: „Að-
standendur Ófælnu stúlkunnar fara
fijálsum höndum um efni þjóðsög-
unnar rétt eins og Jóhann Sigur-
jónsson fyrir áttatíu árum. Ófælni
drengurinn sem kunni ekki að
FJÖLVAÚTGÁFAN, öðru nafni
Fjolva-Vasa, gefur út margar bæk-
ur fyrir jólin þrátt fyrir erfiðleika.
Ýmsar bækur munu bíða útgáfu í
þeirri von að úr rætist.
Undarlegt ferðalag
Undarlegt ferðalag nefnast hug-
leiðingar og skáldskapur eftir Jón
Óskar. Að sögn útgáfunnar ræðir
skáldið um tilvist okkar og óræða
framtíð. Baksviðs birtist hrun Ber-
línarmúrsins og óhugnaður Persa-
flóa- og Bosníustríðsins.
Ný skáldsaga er Eilífðarvélin
eftir Baldur Gunnarsson, en í fyrra
gaf Fjölvaútgáfan út eftir hann
skáldsöguna Með mannabein í
maganum. Nýja skáldsagan fjallar
um íslenskan uppfinningamann og
sérvitring.
Ljóðabókin Að baki mánans eft-
ir Ágústínu Jónsdóttur kom út í
haust.
Eyjafjallafár, skrímsli og
aldahvörf
Fár undir Fjöllum eftir Kristin
Helgason segir frá hinu sérkenni-
lega Eyjafjallamáli þar sem yfír-
MARGRÉT Vilhjálmsdóttir í
Ófælnu stúlkunni.
heyrslur, handtökur, varðhöld,
dómar, lögtök og uppboð létu -fáa
ósnortna.
íslensk skrímsli er samkvæmt
kynningu allsheijar úttekt á ís-
lenskum furðuverum í vötnum og
sjó. Höfundur bókarinnar, sem er
500 blaðsíður, er Þorvaldur Frið-
riksson. Sérstakur þáttur er um
rannsóknir Þórbergs Þórðarsonar
á þessu sviði. Þess er vænst að
bókin nái á markað fyrir jól.
Þeir Albert Jónsson og Trausti
Valsson hafa með Aldahvörfum
gert eins konar úttekt á stöðu ís-
lands í heiminum um leið og þeir
horfa til framtíðar.
Tolkien og Schindler
Annað bindi Hringadróttinssögu
Tolkiens nefnist Tvítyrnið og er
eins og hið fyrra í þýðingu Þor-
steins Thorarfensen. Fyrsta bindi,
Föruneyti hringsins, verður endur-
prentað. Meðal annarra þýddra
bóka er Listi Schindlers, en eftir
henni var kvikmyndin kunna gerð.
Hitlersbörnin eftir Gerald L. Posn-
er segir frá börnum stríðsglæpa-
manna.
hræðast er nú stúlka sem ásamt
tveim kunningjum sínum kemur að
kvöldlagi inn í geymsluhúsnæði í
borginni. Þremenningarnir eiga
einskis ills von en áður en þau vita
af fara öfl að stjá sem þau kunna
ekki ráð við. Spennan verður alls
ráðandi. Fíkniefni og ofbeldi koma
við sögu. Eitt er leikur og annað
alvara og oft er erfitt að greina þar
á milli.“
Það er Hlín Agnarsdóttir sem
setur Ófælnu stúlkuna á svið. Stígur
Steinþórsson gerir leikmynd og bún-
inga, en Þórólfur Eiríksson hannar
leiknum hljóðmynd. Lýsingu gerir
Ögmundur Þór Jóhannesson. Hlut-
verkin í verkinu leika Árni Pétur
Guðjónsson, Benedikt Erlingsson,
Ellert A. Ingimundarson, Jóhanna
Jónas og Margrét Vilhjálmsson.
Heilsa og heilsufarsslys
Stóra fluguhnýtingabókin er eft-
ir Jacqueline Wakeford og er þýdd
af Friðjóni Árnasyni. Ný Topp-
formsbók, kverið Létt og ljúffengt
eftir Marilyn Diamond kemur út.
Móðuraflið er ein af jógabókum
Sri Chinmoys. Bók um amalgam,
silfurfyllingar í tönnum, er sögð
lýsa einu mesta „heilsufarsslysi"
aldarinnar. Góð ráð við gigt er
eftir Dan Dale Alexander.
Kordúla og frægðarsól
Kordúlubækurnar eru
barnabækur eftir þýsku skáldkon-
una Cordulu Tollmien. Út koma
tvær bækur í þessum flokki.
Margrétarbækur Gilberts Delahay-
es halda áfram að koma út.
Me'ðal bóka sem eru í vinnslu,
en óvíst hvort ná að koma út á
þessu ári eru Frægðarsól íslands
rís, saga íslendinga í Kaupmanna-
höfn fyrir daga Jóns Sigurðssonar
eftir Aðalgeir Kristjánsson; bók um
Dublin eftir Jónas Kristjánsson og
írlandsbók eftir Sigurð Á. Magnús-
son.
Skáldskapur og fróðleikur hjá Fj ölvaútgáfunni
Furður á landi og í sjó
n.ur
Kvennapólrtík til hægri
í ffamhaldi af fundi ungra sjálfstæðiskvenna um kvennapólitík til hægri á Hótel Borg 22. okt.
sl. hafa verið stofnaðir eftirtaldir málefnahópar og verða fyrstu fundir sem hér segir:
Skatta- og
lífeyrismál
Formaóur: AslaugMagnúsdóttir
Fundur; Þriðjudag 8. nóv ld. 18.
Hugmyndafræði sjálf-
stæðra kwenna
Formaðurilnga Dóia Sigfúsdóttir
Fundun Miðvikudag 9. nóv kl. 18.
Lagaleg staða
fjölskyldunnar
Formaður: Guðrún Bjöik Bjamadóttir
Fundur: Þriðjudag 8. nóv kl. 20.
Launamál
Formaður: Hiund Hafsteinsdóttir
Fundur: Miðvikudag9. nóv kl. 18.
Réttindi karla
Formaðun Jóhanna Vtlhjálmsdóttir
Fundur: Þriðjudag 8. nóv kL 20.
FundirverðahaldniríValhöU, Háaleitisbrautl. Allarnánariupplýsingarvetttarísima 682900.
Nýjar bækur
Saga Halldóru
Briem arkitekts
KVEÐJA frá annarri strönd - Saga
Halldóru Briem eftir Steinunni Jó-
hannesdóttur er komin út.
Sagt er frá bernsku Halldóru á
Hrafnagili í Eyjafirði, Mosfelli í
Grímsnesi og á Akranesi þar sem
faðir hennar, séra Þorsteinn Briem,
þjónaði sem prestur. Halldóra settist
í stærðfræðideild Menntaskólans í
Reykjavík meðal fyrstu kvenna og
lauk þaðan stúdenisprófi 1935.
Þá er sagt frá náms- og þroska-
árum Halldóru í Stokkhólmi. Þar var
hún m.a. samtíða frænda sínum Ei-
ríki Briem, Jónasi Haralz, Halldóri
Jónssyni, Sigurði Þórarinssyni o.fl.
Hún varð fyrst íslenskra kvenna til
þess að læra arkitektúr og hlaut
sérstaka viðurkenningu í Svíþjóð á
sínu sviði. Á námsárunum í Stokk-
hólmi kynntist Halldóra verðandi
eiginmanni sínum, læknanemanum
Jan Ek. „Fjölskyldusaga þessarar
Islensku konu í Svíþjóð er baráttu-
saga. Hjónaband hennar og Jans
Ek var stormasamt og erfiðleikar
hennar við að sameina eigin starfs-
frama og uppeldi barna voru miklir.
Eftir að hún var orðin ekkja með
fímm böm skaut hún skjólshúsi yfír
Halldóra Steinunn
Briem Jóhannesdóttir
fjölda íslendinga í Stokkhólmi,“ seg-
ir í_ kynningu útgefanda.
Á lífsleiðinni var Halldóra í vin-
fengi við marga andans menn svo
sem Halldór Laxness,‘Jón Helgason,
Olof Lagercrantz og listakonuná Siri
Derkert. Halldóra lést í Stokkhólmi
21. nóvember 1993 skömmu eftir
að Steinunn hafði Iokið ritun bókar-
innar.
Saga Halldóru Briem er 327 bls. í
stóru broti prýdd á annað hundrað
Ijósmynda af fjölskyldu, vinum og
atburðum. Prentvinnsla Oddi hf.,
útgefandi er Hörpuútgáfan á Akra-
nesi. Bókin kostar 3.580 krónur.