Morgunblaðið - 08.11.1994, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUF. 8. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
_______________MALEFNI SLYSAVARNAFELAGSIIMS
Svar við yfirlýsingu stjórnar
SVFÍ frá Hálfdani Henryssyni
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt yfirlýsing frá Hálfdani Henrys-
syni fyrrverandi deildarstjóra
björgunvarsveita SVFÍ, sem vilkið
var úr starfi af stjórn félagsins fyr-
ir hálfum mánuði:
„í rúmlega 2 vikur frá því mér
var fyrirvaralaust vikið úr starfi hjá
Slysavamafélagi íslands hef ég án
árangurs leitað eftir skýringum frá
stjórn félagsins, fyrst og fremst til
að fá tækifæri til að tala mínu
máli gagnvart félögum í slysa-
varnadeildum og björgunarsveitum
og svara beint þeim ávirðingum,
sem brottreksturinn byggðist á. Ég
hef heyrt ýmislegt haft eftir fram-
kvæmdaráðsmönnum á skotspón-
um og frétt af tveimur fundum þar
sem þeir skýrðu gerðir sínar. Sam-
kvæmt mínum heimildum voru
skýringar þeirra ekki taldar full-
nægjandi þegar litið -var til hinna
harkalegu aðgerða og munu þeir
ótæpilega hafa fengið að heyra það
frá félögum deilda og björgunar-
sveita víðs vegar um landið síðustu
vikur. Það er svo loks sl. fimmtudag
að fjölmiðlum er send greinargerð
stjórnar félagsins um þessi mál,
undirrituð af 1. varaforseta þess,
Gunnari Tómassyni, og er það í
fýrsta sinn, sem ég sé svart á hvítu,
hvað ég er talinn hafa unnið til
saka. Þar er mér borið á þrýn að
hafa “farið með málið í íjölmiðla"
og verið með einhliða og villandi
frásagnir. Ég neita þessu alfarið,
en ég hlaut að skýra þeim frá minni
hlið málsins, er fjölmiðlar af fyrra
bragði höfðu samband við mig. Ég
hefði svo sannarlega kosið að fá
að ræða mál þetta innan félagsins
og ég bað stjórnina er hún kom
saman viku eftir uppsögn mína, að
fá að koma á fund hennar til að
heyra þær ávirðingar, sem á mig
voru bornar og að fá tækifæri til
að tala máli mínu. Það taldi ég lág-
marks mannréttindi. Þetta var
hundsað.
Yfirklór
Greinargerð stjórnar SVFÍ ber
þess greinileg merki að hún er sett
saman til að réttlæta gjörðir, sem
mælst hafa illa fyrir. Þar sem fyrri
skýringar hafa ekki þótt fullnægj-
andi er nú bætt í og er þá oft farið
fijálslega með staðreyndir og mjög
hallað réttu máli. Aður en ég sný
mér að hinum einstöku “dæmum
um samskiptavandamál" vil ég al-
mennt segja það, að ýmislegt af
því, sem þama kemur fram og ég
er talinn ábyrgur fyrir, kemur mér
gjörsamlega á óvart, t.d. að brott-
för Áma Gunnarssonar úr starfi
framkvæmdastjóra hafí átt rætur
að rekja til mín. Held ég áð allir,
sem þekkja til mála, ekki síst stjórn-
armenn, viti að þetta er með öllu
rangt.
Vann ég gegn stjórninni?
Einnig virðist stjórnin vilja gera
mig að persónugervingi fyrir gagn-
rýni, sem hún hefur orðið fyrir á
undanfomum misserum, sérstak-
lega af hálfu björgunarsveitamanna
og ég gerður ábyrgur sem höfuðpa-
ur í samsæri gegn stjórninni. Þetta
tel ég slíka fjarstæðu að ekki taki
nokkru tali og vísa ég því með öllu
á bug. Að vísu hefur það stundum
fallið í minn hlut að tala máli björg-
unarsveitamanna gagnvart stjóm
og framkvæmdastjóra og ég skal
alls ekki neita því að þar hafa skoð-
anir okkar ekki alltaf farið saman.
Ég hef líka á sama hátt túlkað
skoðanir stjórnar gagnvart björg-
unarsveitamönnum eins og ég hef
talið mér skylt. Það hafa vissulega
farið fram miklar og stundum harð-
ar umræður um ýmis málefni á
vettvangi félagsins, m.a. um sam-
skipti við Landsbjörgu, stofnun
björgunarskóla o.fl. en það er hróp-
lega ranglátt að gera mig og aðra
starfsmenn björgunardeildar að for-
söngvurum í þeirri umræðu og það
er reyndar lítilsvirðing við björgun-
arsveitamenn félagsins að ætla
þeim það að hafa látið okkur ráða
afstöðu þeirra í þessum málum.
Þeir hafa sínar ákveðnu skoðanir,
sem þeir eru fullfærir um að láta
koma fram. Hins vegar höfum við
starfsmenn vanist því að við hefðum
fullt mál- og skoðanafrelsi í umræð-
um um einstök mál áður en ákvarð-
anir eru teknar um þau. Þar virðist
annað hljóð komið í strokkinn en
áður var.
Aldrei áminntur
Ég vil líka taka það fram hér,
að það eru hrein ósannindi að ég
hafi verið áminntur af forseta fé-
lagsins eða öðrum eins og fram
kemur í greinargerðinni. Við mig
hafði ALDREI verið rætt á neinn
þann hátt, sem ég gæti túlkað svo
að stjórnin teldi starf mitt þannig
af hendi leyst að uppsögn væri til
umræðu eða skoðunar. Ekkert slíkt
hefur heldur verið bókað í bækur
félagsins, sem þó hefði verið eðlileg-
ur undanfari svo harkalegra að-
gerða sem raun varð á. Ég mót-
mæli því einnig að ég hafi „neitað
að fara eftir fyrirmælum þrátt fyrir
rnarg ítrekaðar aðfinnslur einstakra
stjórnarmanna og framkvæmda-
stjóra" eins og segir í greinargerð-
inni. Þarna er Gunnar Tómasson
reyndar kominn í mótsögn við sjálf-
an sig því í samtali við ríkisútvarp-
ið sunnudaginn 23. október sl. neit-
aði hann því aðspurður að ég hefði
óhlýðnast stjóm félagsins, eða
þannig skildi ég orð hans.
Samskiptin við núverandi
framkvæmdasljóra
Ég sný mér þá að þeim ávirðing-
um, sem á mig eru helstar bomar
í greinargerðinni. Þar kemur fram
að ég hafi strax sett mig upp á
móti ráðningu Estherar Guðmunds-
dóttur sem framkvæmdastjóra. Ég
kannast ekki við að hafa nokkum
tíma látið slíka afstöðu í ljós og
skiptir þar ekki máli þótt ég hafí
sótt um starfið eins og reyndar fleiri
starfsmenn. í yfírlýsingunni er vitn-
að til ummæla á fundi á Úlfljóts-
vatni í október 1993 og sagt að ég
hafí lýst því yfir að ég væri „óbund-
inn af stjórnvaldi framkvæmda-
stjóra". Þetta er rangtúlkun, en hið
rétta er að í spjalli við nokkra
stjórnarmenn benti ég á ákvæði í
ráðningarsamningi mínum, sem
hljóðar svo: „Þegin stjórnun: Frá
forstjóra hvað varðar allar meiri-
háttar ákvarðanir vegna leitar- og
björgunarstarfa og tilkynningar-
skyldu, stjórnun bakvakta og val
starfsmanna." Ég taldi ákvæðið
varðandi leit og björgun ekki lengur
eiga við þar sem við starfí fram-
kvæmdastjóra hafði tekið kona,
sem ekki hafði þekkingu á þeim
málum, en þetta ákvæði kom inn í
samninginn í forstjóratíð Hannesar
Þ. Hafstein, sem hafði áratuga
reynsju á þessu sviði svo sem alþjóð
veit. í þessu fólst engin lítilsvirðing
gagnvart Esther Guðmundsdóttur
og að öðru leyti véfengdi ég ekki
boðvald hennar sem framkvæmda-
stjóra. Vil ég og geta þess af þessu
tilefni að auk sjómannsreynslu
minnar í tæp 30 ár hafði ég lokið
prófum frá björgunarskólum
bandarísku og bresku strandgæsl-
unnar. Um þetta urðu engar deilur
á fundinum á Úlfljótsvatni heldur
aðeins rætt á vinsamlegum nótum,
a.m.k. að því er ég taldi, og síst
af öllu kannast ég við að hafa ver-
ið áminntur af þessu tilefni. Hvað
varðar það að ég hafi skapað óróa
á vinnustað finnst mér það furðuleg
ásökun og vil ég aðeins í því sam-
bandi vísa til yfirlýsingar starfs-
fólks SVFÍ, skömmu eftir burt-
rekstur minn og birst hefur að hluta
í fjölmiðlum. Undir yfírlýsinguna
skrifuðu 18, af 20, starfsmönnum
félagsins og sýnir það best hug
þeirra í minn garð. Fram kemur
og að ég hafí verið tregur að veita
framkvæmdastjóra umbeðnar upp-
lýsingar. Reglulega fékk hún upp-
lýsingar um stöðu mála sem mér
tilheyrðu, og ég kannast ekki við
annað en að greið svör hafi alltaf
verið gefín þegar spurt var. Upplýs-
ingar sem hún fékk virðast ekki
hafa verið lesnar eða kynntar stjórn
en í fórum mínum hef ég ótai bréf
til framkvæmdastjóra þar sem ég
reyni að kynna málefni. Það verður
að segjast að sjaldan fékk ég svör
eða viðbrögð frá stjórn né fram-
kvæmdastjóra. Með hinum nýju
stjórnarháttum sem stjórn félagsins
tók upp á árinu 1991 rofnaði mjög
samband starfsfólks við stjórnina
Áður voru starfsmenn oft kallaðir
fyrir stjórnarfundi og þeir beðnir
um að skýra stöðu málá og svara
spumingum er vörðuðu þeirra svið.
Nú var slíku hætt en allt skyldi flutt
milli stjórnar og starfsfólks með
milligöngu framkvæmdastjórans.
Starfsmenn voru óánægðir með
þennan hátt mála, þar sem hið góða
samband sem oftast hafði verið
milli stjórnar og starfsfólks, og
nauðsynlegt er í slíkum félagsstörf-
um rofnaði alveg. Til marks um
þetta reyndi ég árangurslaust að
kynna stöðu og störf björgunarmið-
stöðvarinnar ásamt málefnum Til-
kynningaskyldunnar og einkanlega
þeirrar sjálfvirku tilkynningaskyldu
sem unnið er að, en áhugi fannst
mér vera takmarkaður.
Fundur björgunarsveita-
manna 1993
Sagt er að ég hafi látið skerast
í odda með mönnum og sérstaklega
bent á fund formanna björgunar-
sveita í apríl 1993 í því sambandi,
og að fundartíminn hafí verið valinn
skömmu fyrir landsþing félagsins í
maí það ár til að menn væru mátu-
lega heitir fyrir þingið. Það rétta í
málinu er að snemma í janúar 1993
var ákveðið að halda fyrrgreindan
fund í apríl. Bréf um það efni var
kynnt framkvæmdastjóra 21. jan-
úar og var engin athugasemd gerð
við fundartímann. Á fundi fram-
kvæmdaráðs félagsins þann 6. mars
1993 las framkvæmdastjóri upp
fyrirhugaða dagskrá fundarins og
kynnti fundarstað og tíma. Fram-
kvæmdaráðsmenn gerðu engar at-
hugasemdir eins og fram kemur í
fundargerð. í yfírlýsingu Gunnars
Tómassonar kemur fram að ég hafí
á formannafundinum hitað menn
upp gegn stofnun björgunarskóla.
í ræðu minni sem ég flutti á fund-
inum er engin ádeila á stjórn SVFÍ.
Þar ræddi ég hinsvegar um nauðsyn
á stofnun björgunarskóla og hveiju
slíkur skóli gæti fengið áorkað. Því
er óskiljanlegt að mér sé nú kennt
um 'að hafa verið á móti stofnun
slíks skóla. Stjórn SVFÍ ætti hins
vegar að vera fullljóst að ég taldi
stofnun sameiginlegs björgunar-
skóla með öðrum björgunarsamtök-
um greiðustu leiðina til að bæta
samvinnu björgunaraðilanna svo oft
hef ég rætt þau mál í ræðu og riti.
í ítarlegri fundargerð, sem send var
slysavarnafólki um allt land að
loknum formannafundi er enga
gagnrýni að finna á stjórn SVFI.
Hinsvegar eru þar ýmsar tillögur
björgunarsveitamanna um bætta
skipan björgunar- og fræðslumála
sem leggjast skyldu fyrir landsþing
félagsins Á fundinum var gerð at-
hugasemd við nýgerða bókun fram-
kvæmdaráðs þess efnis ef björgun-
arsveitamenn, sem óskuðu eftir er-
indisflutningi eða kennslu hjá sveit-
um sínum, yrðu að fá leyfí fram-
kvæmdastjóra félagsins. Þetta
töldu formenn þyngja stjórnkerfi
félagsins og varla nauðsynlegt að
framkvæmdastjóri þyrfti að vita um
slíka þætti nákvæmlega hveiju
sinni, enda oft erfitt að ná í hann.
Samskiptin við Landsbjörgu
Mér er gefið að sök að hafa ver-
ið á móti samningum við Lands-
björgu og unnið gegn þeim ljóst og
leynt. Þetta er rangt þótt ég hafi
bent á að ýmsir þættir samningsins
mættu betur fara. Ég vil benda á
í þessu sambandi að ég var skipað-
ur í allskonar nefndir, sem unnu
að útfærslu samningsins m.a.
Landsstjórn björgunarsveita, sem
ég hef setið í frá upphafi. Sá þáttur
sem við starfsmenn björgunardeild-
ar og ég hygg allir björgunarsveita-
menn SVFI á landinu vildu að
breytt yrði, var undirtitill undir
nafninu Landsbjörg ,en það var
„Landssamband björgunarsveita“
Við töldum þennan titil gefa ranga
hugmynd um starfsemi Landsbjarg-
ar þar sem 30 sveitir væru innan
þeirra vébanda en 90 sveitir SVFÍ
utan. Það hefur nú margoft komið
á daginn að við höfðum rétt fyrir
okkur bæði hér innanlands, m.a.
vegna fjáraflana og erlendis, sér-
staklega vegna áratuga sambanda
SVFÍ við erlenda björgunaraðila.
Hið enska heiti Landsbjargar er
„The Association Of Icelandic
Rescue Teams“ og öllum ætti að
vera ljóst að það getur orsakað
misskilning. Björgunarsveitamönn-
um þótti stjórn SVFÍ vera slök í
þessu máli, enda árangur til lagfær-
inga enginn.
Björgunarbátur við
Reykjavíkurhöfn
Þá er í yfírlýsingu Gunnars Tóm-
assonar sagt frá fundi um björgun-
arbát fyrir Reykjavíkurhöfn og að
ég hafi tekið stefnumarkandi
ákvörðun án vitundar stjómar og
framkvæmdastjórnar. Þetta mál
sýnir best það sambandsleysi, sem
ríkt hefur innan SVFÍ um nokkurn
tíma. Ég hef skrifað allmörg bréf
til framkvæmdastjóra SVFI um
þetta mál, en af þessum ásökunum
í minn garð hlýtur að vera Ijóst að
stjóm félagsins hefur sennilega
aldrei fengið um það að vita, og svo
er líklega um ýmis önnur mál. Það
er rétt að viðræður voru í gangi
við Reykjavíkurhöfn og fleiri aðila
um björgunarbát við höfnina, sem
lögreglan í Reykjavík og jafnvel
fleiri hefðu aðgang að. Það sem ég
hafði um þetta mál að segja var
að ég var á annarri skoðun um
gerð bátsins en aldrei á móti báta-
kaupum. Ég taldi hinsvegar ekki
rétt að kaupa stóran dýran harð-
botna björgunarbát, þar sem nokkr-
ir slíkir væru fyrir. Mín skoðun var
sú að í þessu skyni hentaði betur
slöngubátur, sem búinn væri tveim-
ur vélum og hægt væri að sjósetja
af fáum mönnum og nota við björg-
un fólks úr flæðiskerjum og úr höfn-
inni, en algengustu óhöpp við
Reykjavík eru að fólk fellur í höfn-
ina eða verður umflotið á flæði-
skerjum. Vegna þessa vil ég geta
bréfa, sem stjórn og framkvæmda-
stjóra bárust um málið og ekki
fengust svör við fyrr en nú í fyrr-
greindri yfirlýsingu:. Bréf til stjórn-
ar SVFÍ dags. 28. ágúst 1992 um
fund með lögreglunni og hafnaryfír-
völdum í Reykjavík vegna bættrar
aðstöðu fyrir björgunarbáta lög-
reglunnar og aukna samvinnu undi-
irritað af Hálfdani Henryssyni. Bréf
til Guðmundar Hallvarðssonar for-
manns hafnarstjórnar í Reykjavík
dags. 27. sept. 1993 um björgunar-
bátamál í Reykjavík undirritað af
Hálfdani Henrýssyni, afrit afhent
framkvæmdastjóra SVFÍ. Bréf til
Estherar Guðmundsdóttur dags.
20. okt. 1993 um fund með um-
dæmisstjórum og formönnum
björgunarsveita í umdæmi 1 vegna
hugmynda hafnayfirvalda, lögregl-
unnar, slökkviliðsins og flugmálayf-
irvalda um hraðskreiðan björgunar-
bát. Bréf til Estherar Guðmunds-
dóttur dags. 9. nóv. 1993 frá Torfa
Þórhallssyni form. björgunarsveitar
Ingólfs í Reykjavík um málefni
björgunarbáts í Reykjavík. Frá
þessum tíma hafa þessi mál verið
í höndum Estherar Guðmundsdótt-
ur framkv.stjóra, eða í nær ár.
Málefni björgunarskóla
í yfirlýsingu Gunnars Tómasson-
ar er greint frá að vitað sé að vill-
andi upplýsingar hafi komið frá
mér um nýstofnaðan björgunar-
skóla. Ég lýsi undrun minni á þess-
ari staðhæfingu, því ég hef ekkert
skipt mér af málefnum björgunar-
skólans utan þess að hafa rætt um
kostnað sem björgunarsveitir og
deildir þurftu að bera vegna nám-
skeiða. Ekkert var rætt við mig um
niðurgreiðslur námskeiða svo sem
fram kemur í yfirlýsingunni. Ég
veit ekki annað en að þeir sem
þátt hafa tekið í námskeiðum fram
til þessa hafi þurft að greiða fullt
gjald og gæti nefnt dæmi því til
sönnunar. í fundargerð björgunar-
ráðs frá 10. okt. sl. og minnst er
á, kemur eingöngu fram að miklar
kvartanir hafi borist frá björgunar-
sveitum en ekkert um niðurgreiðsl-
ur.
Haft er eftir Esther Guðmunds-
dóttur að gerð hafí verið athuga-
semd við mig vegna þessa máls og
ég brugðist ókvæða við. Það er
ekki rétt, um þetta mál hefur ekk-
ert verið rætt við mig og mér hefur
algjörlega verið haldið utan við
það. Um það getur samstarfsfólk
mitt hjá 5VFÍ borið.
Slysavarna- og
bj örgunarmálefni
Gefíð er í skyn að ég hafí verið
á móti framlögum til slysavarna-
málefna og talið slík framlög draga
úr framlögum til björgunarstarfs-
ins. Ég minnist þess ekki að hafa
gefið slíkt í skyn enda alltaf verið
hlynntur þeim þætti slysavarna-
starfsins. Ég taldi hins vegar að
mér bæri að koma á framfæri ósk-
um björgunarsveitarmanna víðs
vegar um landið um fjárhagslega
aðstoð til að treysta þá keðju björg-
unarsveita SVFI, sem félaginu hef-
ur ætíð verið keppikefli að væri
sterk og þar yrði að huga vel að
veikustu hlekkjunum. Mér hefur
einnig fundist dregið úr slysavöm-
um varðandi sjómenn. Ég minnist
þess t.d. ekki að háfa séð SVFÍ
taka þátt í tilmælum um að senda
varðskip í Smuguna, þyrlumál hafa
ekki verið í hávegum höfð af hálfu
félagsins, í það minnsta ekki á opin-
berum vettvangi. Hér áður fyrr
voru þetta mikil baráttumál félags-
ins, en nú orðið fer ekki mikið fyr-
ir slíku.
SVFÍ er fjöldahreyfing en ekki
fyrirtæki
Skipulagsbreytingar geta verið
nauðsynlegar og átt fullan rétt á
sér og ég tel að breytingar hafi á
sínum tíma þurft að gera á innra
skipulagi félagsins. Skipurit fyrir-
tækja er hins vegar ekki endilega
alltaf hægt að yfirfæra beint á
fjöldasamtök, þar sem á miklu ríður
að gott samband sé milli þeirra, sem
eru kjörnir trúnaðarmenn, og laun-
aðra starfsmanna. Þetta tel ég að
núverandi stjórnendur félagsins
hafi ekki gert sér nægilega grein
fyrir og hef ég áhyggjur af því fé-
lagsins vegna ef svo heldur fram
sem nú horfir.
Lokaorð
í yfirlýsingu Gunnars Tómasson-
ar kemur fram að hjá SVFÍ sé jafn-
an róinn lífróður í fyrirbyggjandi
starfi og til að bjarga mannslífum.
Flestum mun vera ljóst að til að róa
lífróður þarf að kunna áralagið ef
ná á landi. Stjórn SVFÍ þarf nú að
taka höndum saman og læra ára-
lagið svo komast megi hjá að siglt
verði í strand."
I