Morgunblaðið - 08.11.1994, Síða 53

Morgunblaðið - 08.11.1994, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1994 53 h I I I I : i J i i i J UNGLINGAR Fjölskyldan XJVERNIG sjáið þið „fyrir- myndarfjölskylduna" fyrir ykkur? Hvernig ættu samskipti fjölskyldumeðlima að vera (svo góður andi ríki á heimilinu)? Verðið þið vör við „kynslóðabií" í þjóðfélaginu? Kynslóðabil: Minnka má bilið með því að auka samskipti milli fólks. Einelti: Dæmi eru um einelti for- eldra á börnum og öfugt. Fyrirmyndar- fjölskylda: Hver og einn á sína ímynd. Traust: Börn og unglingar verða að ávinna sér traust foreldra. Ef það glatast er erfiðara að vinna það aftur. Reglur: Ekki banna allt og ekki leyfa allt. Að skammast sín fyrir foreldra: Unglingar skammast sín oft fyrir foreldra sína og það getur verið sárt bæði fyrir foreldra og ungl- inga. Þarfír: Ekki er hægt að koma til móts við allar þarfír, t.d. peninga, umhyggju og athyglisþarfír. Systkini: Gott er ef þau geta staðið sam- an. Mistök eldri systkina bitna oft á þeim yngri. Það er til foreldra- vandamál NAFN: Baldur Árnason. ALDUR: 13 ára. HEIMA: Reykjavík. SKÓLI: Hlíðaskóli. Getur skólinn verið betri en hann er? Mér fínnst að það megi skipta nemendum meira niður eftir getu. Þannig að þeir sem eru lélegir séu ekki að taka tíma frá hinum. Hverju myndir þú vilja breyta í, þjóðfélaginu? Eg myndi vilja minnka ofbeldi og atvinnuleysi. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að vera með skemmtilegu fólki. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að vakna og fara í skólann. Hvernig er fyrirmyndarungl- ingur? Skemmtilegur og félagslyndur og einnig myndarlegur. Hvað er unglingavandamál? Það eru vissulega til unglinga- vandamál og hafa alltaf verið en ég get ekki útskýrt nákvæmlega hvað það er. Er til foreldravanda- mál? Já, foreldrar sem drekka og vanrækja börnin sín og sinna þeim ekkert. Beita þau andlegu og líkamlegu ofbeldi og hjálpa þeim ekki við heima- lærdóminn. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Cg hef ekki hugmynd um það, mig langar til að verða arkitekt. Hver er munurinn á önd og strætisvagni? Ekki málið, önd er dýr og strætisvagn er vél. „Lonníetta' Ég lonníettumar lét á nefið svo lesið gæti ég frá þér bréfið ég las það oft og mér leiddist aldrei og lifað gæti ég ei án þín. Júlíus Rosalega Hilmar flottur sportbfll ■Jo-nv.o Mannréttindi GETA unglingar gert sérstakar kröfur um réttindi sér til handa? Er eitthvað sem greinir unglinga frá öðrum hvað þetta varðar? Eru mannréttindi unglinga virt á íslandi? — Flest mannréttindabrot eru framin innan skólans: starfsfólk, aðstaða, „skólareglur" og ungling- amir sjálfír. — Framkoma lögreglu við unglinga er oft mjög dónaleg og ósanngjörn. — Auka mætti jákvæðari frétta- flutning af unglingum. — Flest stærri bæjarfélög standa vel að félagsmálum en þau smærri ver. — Allir eiga rétt á félagslífí óháð búsetu. — Lög og regla eru oft of strangar gagnvart unglingum. — Hafa mætti unglinga með í ráð- um í þeim málefnum sem þeim koma við. Islenskt þjóðfélag’ 1-1VAÐ er það að vera íslending- ur? Hvernig tilfínning er það? Hafa íslendingarþað gott? Hvern- ig viljum við að Island framtíðar- innar verði? — Landinu líður vel og þar sem því líður ekki vel er verið að bæta. — Við höfum það gott vegna þess að meðaltekjur eru háar og at- vinnuleysi ekki ríkjandi. Það er trúfrelsi í landinu. En ofbeldi mætti vera minna. — Flestum þykja stjórnmál leiðin- leg en það fer eftir umræðuefninu. — íslendingur verður að tala ís- lensku og hafa einhverja tengingu við land og þjóð. — íslendingar eru vandlátir og vanþakklátir. — Við erum friðsöm þjóð. — Unglingum er oft kennt um ólætin sem fullorðnir eiga þátt í. — Nauðsynlegt er að foreldrar hlusti á börnin sín eins og þau ætL ast til að við hlustum á þau. — Unglingar geta lært af foreldr- um sínum sem eru lífsreyndari en þeir, þó verða unglingarnir jafn- framt að koma skoðunum sínum á framfæri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.