Morgunblaðið - 23.12.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.12.1994, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skiptar skoðanir um hvort taka má veð í aflakvóta sem fylgir skipum Deilt um réttaröryggi og sameign fiskimiða Ein grein í frumvarpi um samningsveð hefur orðið tilefni deilna, sem samkvæmt úttekt ------------------------- Olafs Þ. Stephensens, snúast annars vegar um öryggi banka og innstæðueigenda við lánveitingar til útvegsfyrirtækja og hins veg- ar um tryggingu þjóðareignar á fískimiðum. Metflutn- ingar Eim- skips milli erlendra hafna MEIRI flutningar eru milli hafna erlendis með skipum Eimskips í þessari viku en dæmi eru um frá því félagið hóf að leggja aukna áherslu á starfsemi sína erlendis. Samtals er um að ræða flutninga á 420 gámaeiningum með vörum af ýmsu tagi en ein gámaeining samsvarar 20 feta gámi. Margir þættir valda þessum miklu flutningum, samkvæmt upp- lýsingum Eimskips. Vegur þar þyngst mikill útflutningur á frysti- vöru frá Nýfundnalandi og einnig mikill innflutningur þangað. Um þriðjungur af útflutningnum frá Nýfundnalandi í þessari viku fer til Svíþjóðar. Útflytjendur leggja kapp á að flytja sem mest af rækju þang- að áður en tollar hækka um áramót- in þegar Svíar ganga í Evrópusam- bandið. Hluti af innflutningsvörunni til Nýfundnalands er þorskur úr Barentshafínu sem fluttur var frá Gautaborg og Fredrikstad. Flutningar milli erlendra hafna hafa aukist um fjórðung Áætlað er að Eimskip flytji um 100 þúsund tonn milli erlendra hafna á þessu ári sem er um 25% aukning frá árinu 1993. Félagið rekur nú 14 eigin skrif- stofur í 10 löndum í Evrópu og Norður-Ameríku. Er áætlað að tekj- ur af starfsemi Eimskips erlendis verði um 1,5 milljarðar og hafa þær aukist um 16% milli ára. Langtíma- markmið félagsins er að tekjur af starfsemi erlendis verði um 18-20% af veltu. RÉTTARÖRYGGI í lánveitingum og þjóðareign á fískimiðum eru mark- mið, sem togazt er á um í deilunni um það hvort heimilt eigi að vera að taka veð í aflakvóta, sem fylgir fiskiskipi. Allsheijarnefnd Alþingis reynir nú, í samráði við sjávarút- vegsnefnd, að ná saman um lausn á málinu, sem upp er komið vegna frumvarps um samningsveð, sem dómsmálaráðherra hefur lagt fram á Aiþingi, og er jafnvel vonazt til að það takist rnilli jóla og nýárs. Alþýðuflokksmenn, með Sighvat Björgvinsson viðskiptaráðherra í broddi fylkingar, hafa mótmælt því harðlega að veð í kvóta verði tryggt með Iögum. Forsaga málsins er í stuttu máli sú, að við gildistöku nýrra laga um stjóm fiskveiða i ársbyijun 1991 breyttist réttarstaðan að því er varð- aði veð í veiðiheimildum. Fyrír þann tíma gilti sú regla, að varanlegt framsal kvóta vár óheimilt nema viðkomandi fískiskip væri afmáð af skipaskrá. Afskráning var háð því skilyrði að ekki hvíldu veðbönd á skipinu og í rauninni mátti því ekki selja kvóta nema með samþykki sjávarútvegsráðuneytisins. Á þessum tíma gátu bankar, sem lánuðu útgerðarfyrirtækjum gegn veði í skipi, treyst því að skipið félli ekki í verði við það að kvóti þess væri seldur. Lán veitt gegn skriflegum yfirlýsinguni Veð, sem voru í gildi þegar lögin tóku gildi, haldast áfram, en hvað varðar veðsamninga, sem gerðir hafaverið eftir l.janúar 1991, verða veðhafar að tryggja með öðrum hætti að skipin rýrni ekki í verði vegna þess að kvóti sé fluttur af þeim. Að sögn Áma Ármanns Árnason- ar, lögfræðings í útlánastýringu hjá Landsbankanum, hafa bankarnir veitt lán gegn veði í- fiskiskipum gegn því að eigendur skipanna hafí um leið gefið út skriflega yfirlýsingu um að þeir muni ekki framselja kvót- ann á meðan veðsamningur sé í gildi. Samkomulaginu hefur verið þinglýst á skip, og það tilkynnt sjávarútvegs- ráðuneytinu. Árni segir hins vegar að þetta veiti ekki nægilegt réttaröryggi, því að kaupanda kvóta sé ekki skylt að kynna sér þinglýsingabók. Sá mögu- leiki sé því í raun opinn að lántakend- ur selji kvótann, án þess að bankinn geti mikið við því gert. Sjávarútvegs- ráðuneytið stöðvi heldur ekki lengur sölu á kvóta nema veðsetning skips hafi átt sér stað fyrir 1991. Árni segir að segja megi að þessi óvissa hafi orðið til þess að bankarn- ir hafí orðið tregari til en ella að lána sjávarútvegsfyrirtækjum og leitazt hafí verið við að taka trygg- ingar í öðrum eignum, en þær séu margar hveijar rýrar. Fiskvinnslu- hús séu í mörgum tilfellum nánast verðlaus. „Það er í rauninni það sterkasta, sem til er, að taka öruggt veð í kvóta,“ segir hann. Trygging á öryggi banka og innstæðueigenda Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra, sem lagði frumvarpið um samningsveð fram, vill tryggja rétta- röryggi bankanna. Þess má geta að frumvarpið er raunar tilkomið að tilstuðlan bankanna, sem fengu Þor- geir Örlygsson lagaprófessor til að taka saman heildstætt frumvarp um samningsveð, en ákvæði um slíkt voru áður mjög brotakennd. Ákvæð- ið um veð í kvóta er hins vegar það eina, sem ágreiningur er um á Al- þingi. „Aflaheimildir eru að sjálfsögðu veðsettar í dag. Það er forsenda þorra lánaviðskipta við útgerðirnar í landinu og um leið það öryggi, sem innstæðueigendur hafa,“ segir Þor- steinn Pálsson. „Það væru ekki margir fúsir að leggja sparifé sitt í banka ef bankastjórunum væri óheimilt að taka veð í aflaheimildun- um, því að ekki er mikils virði að taka veð í skipi, sem ekki hefur veiði- rétt. Við búum hér við löggjöf, þar sem er með skýrum hætti kveðið á um að fiskimiðin eru sameign þjóð- arinnar, en veiðirétturinn er á hönd- um útgerðarinnar. Sá réttur felur í sér verðmæti og er því takmörkuð eignarréttindi. Það er heimilt að framselja hann og það 'væri skringi- legt ef menn gætu ekki ráðstafað honum með takmarkaðri hætti með því að veðsetja hann.“ Þorsteinn segir að með samnings- veðslögunum sé ekki verið að mæla fyrir um nein ný réttindi, heldur ein- vörðungu að festa í sessi núverandi venju og ákveða með skýrum hætti hvernig farið sé með veðsetningar. Stjórnvöldum gert erfiðara fyrir að breyta kerfinu Sighvatur Björgvinsson viðskipta- ráðherra segist hafa það á móti umræddu ákvæði í samningsveðs- frumvarpinu, að með því sé stjórn- völdum gert erfiðara fyrir að breyta fískveiðistjórnunarkerfinu. Fyrsta grein laga um stjórn fiskveiða, þar sem kveðið er á um að fiskimiðin séu sameign þjóðarinnar og úthlutun veiðiheimilda skapi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði yfir veiðiheimildum, geri stjórnvöldum kleift að breyta kerfinu án þess að handhafar kvóta geti gert neinar kröfur um skaðabætur. „Þeir, sem hafa veitt lán út á skip, tekið veð í þeim og fengið yfirlýsingar frá eig- endum um að þeir muni ekki selja eða leigja kvóta frá sér nema með samþykki lánveitanda, hafa tekið áhættuna af þessu. Þeir geta ekkert sagt, þó svo gerð yrði breyting á kvótakerfinu þannig að skipið yrði aðeins skipsskrokksins virði,“ segir Sighvatur. „Ef ákvæðið um veð í kvóta yrði lögfest eins og það er í frumvarpinu, væri hætta á því að það væri hægt að túlka það svo að ef ríkið breytti eða afnæmi kvóta- kerfið, ættu þeir skaðabótakröfu, sem hefðu tekið veð í skipi og veiðik- vóta. Þá væri búið að veita þeim lagastoð til að hafa þótzt ekki taka neina áhættu. Ég vil ekki fallast á að þannig sé hægt að fara bakdyra- megin inn í kerfið." Sighvatur segist vera til viðræðu um að breyta samningsveðsfrum- varpinu þannig að sú áhætta, sem lántakendur taka nú, verði óbreytt. „Ég geri mér alveg ljóst að hluti af verðmæti skipa er aflaheimildirnar, sem þau búa yfir. En í dag er það áhætta lánveitandans, að stjórnvöld kunni að breyta þessu, og því vil ég ekki breyta,“ segir hann. Sighvatur segist telja að með slíku verði sjávar- útveginum ekki sköpuð verri skilyrði en til þessa. Ilugmyndir um tengingu við kvótalög í allsheijarnefnd Alþingis eru uppi hugmyndir um að breyta núverandi grein í frumvarpinu, en hún hljóðar nú svo: „Þegar skip er sett að veði er heimilt að semja í veðbréfi að veðrétturinn nái einnig til veiðiheim- ilda skips.“ Rætt er um að tengja ákvæðið með einhveijum hætti við 1. grein fiskveiðistjómunarlaganna, þannig að það verði í raun áfram ljóst, að lánveitendur séu að taka áhættu, eins og viðskiptaráðherra vill. Rætt er um að greinin verði einhvern veginn á þann veg, að hafi ekki verið samið um annað í veð- bréfi, eigi að líta þannig á að veðrétt- ur í fiskiskipi nái einnig til kvóta þess, en með þeim takmörkunum, sem leiði af 1. grein fiskveiðistjórn- unarlaganna. Árni Ármann Árnason segir að slíkt væri í raun ekki óeðlilegt. „Þessi veðsetning er háð lögunum um stjórn fiskveiða á hveijum tíma. Við gerum okkur grein fyrir þeirri áhættu, enda erum við í slíkum áhættulánveitingum alla daga. Þetta eru áhættuveð, en við verðum að geta tekið veð í kvóta,“ segir hann. NORÐURLAND EYSTRA VESTRA AUSTURLAND SUÐUR- LAND Jólasiðakönnun Hagvangs: ÞORLAKSMESSUSKATAN SÆKIR A Borðar þú yfirleitl skötu á Þorláksmessu? 1987 Skipt eftir aldri 1994 Svör % Karlar, % Konur, % Já, nær alltaf 223 28,6 25,1 31,6 Já, stundum 89 11,4 13,1 9,9 Samtals 312 40,0 38,2 41,5 Nei, yfirleitt ekki 469 60,0 61,9 58,5 1989 Svör % Karlar, % Konur, % Já, nær alltaf 247 32,0 31,6 32,6 Já, stundum 69 9,0 11,6 6,4 Samtals 316 41,0 43,2 39,1 Nei, yfirleitt ekki 454 59,0 56,8 60,9 1994 Svör % Karlar, % Konur, % Já, nær alltaf 239 33,1 35,5 30,8 Já, stundum 77 10,7 10,7 10,6 Samtals 316 43,8 46,2 41,4 ao n% Nei, yfirleitt ekki 406 56,2 53,8 58,6 SÍFELLT fleiri borða skötu á Þoriáksmessu af jólasiða- könnunum Hagvangs hf. að dæma. Tæp 44% þeirra sem spurðir voru í síðustu könnun sögðust borða skötu alltaf eða stundum á Þorláksmessu. Árið 1987 var sambærileg niðurstaða 40% og 1989 rúmlega 41%. Hagvangur hf. gerði jólasiðakönnun um síðustu mánaðarmót. Meðal annars var spurt: Borðar þú yfírleitt skötu á Þorláksmessu? 33,1 % svarenda svaraði „Já, nær alltaf" og ef einnig eru teknir þeir sem sögðu „Já, stundum" þá voru það 43,8% sem leggja sér til munns þennan ýmist elskaða eða hataða fisk. 43,8% 41.1% VESTFIRÐIR ;!»c; 51,7% 64,5% 50,7% VESTURLAND 35,4% 35,7% 34,2% REYKJAVIK Skipt eftir landshlutum 1994 REYKJANES Þegar svörun er greind eftir aldursflokkum sést að skatan er vinsælust meðal eldra fólks, á aldrinum 50-67 ára. VesHjrðingar eru eindregnastir í skötuátinu, þar voru 76,9% aðsr viss um eða töldu líklegt að skata yrði á borðum hjá þei. ^essu, einungis 23,1 % Vestfirðinga leggur skötu sér aldrc ! Fiskbúð Hafliða fengust þær upplýsingar að fyrir fjöi, fjölskyldu væri passlegt að kaupa 1,5 kg af skötu. Ef re. með 350 g á mann að meðaitali má ætla að landsmenn ht milli 30 og 40 tonn af skötu á Þorláksmessu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.