Morgunblaðið - 23.12.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.12.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994 19 Sparisj óðurinn í Ólafsfirði Eina heildstæða yfirlitið BOKMENNTIR Sagnfræöi SPARISJÓÐUR í 80 ÁR SAGA SPARISJÓÐS ÓLAFSFJARÐAR 1914-1994 eftir Friðrik G. Olgeirsson. Spari- sjóður Ólafsfjarðar 1994 —147 síður. ALLT FRÁ því að ég, ungur strákur fyrir hartnær hálfri öld, var á vertíð með nokkrum Ólafs- firðingum hef ég borið virðingu fyrir þessum harðgerðu, traustu dugnaðarmönnum, nágrönnum mínum úr norðrinu. Alltaf hef ég þóst vita að þeir kynnu fótum sínum forráð og stýrðu málum sínum af fyrirhyggju. Með nokkurri eftir- væntingu opnaði ég því þessa myndarlegu bók. Þegar rakin er saga einu peninga- stofnunarinnar í litlu bæjarfélagi má gera ráð fyrir því að, ef rétt er að staðið, end- urspeglist þar þróun byggðarlags- ins og maður geti séð a.m.k. vissa grundvallarþætti byggðarlagsins sem í skuggsjá. Ekki varð ég fyrir vonbrigðum. Sparisjóður Olafsfjaðar tók til starfa rétt um þijátíu árum eftir að fyrsta fjölskyldan settist að í Ólafsfjarðarhorni. Þá voru íbúar 276. Mikil drift hafði verið í mönn- um undanfarinn áratug og var sparisjóðurinn bein afleiðing þess. I tölum og texta má svo lesa hvem- ig sparisjóðurinn hefur verið burðarás margvíslegrar atvinnu- starfsemi og hvernig viðgangur og KVIKMYNPIR Sagabíö MARTRÖÐIN FYRIR JÓLIN „A NIGHTMARE BEFORE CHRISTMAS" ★ ★ ★ >/2 Leikstjóri: Henry Selick. Handrit: Caroline Thompson. Framleiðandi og höfundur: Tim Burton. Tónlist: Danny Elfman. Raddir. Chris Sarandon, Catherine O’Hara, Willi- am Hickey. Touchstone Pictures. 1993. Á TÍMUM þegar tæknibrellur tröllríða bíómyndunum í Hollywood gerir undrabarnið í draumaborginni, Tim Burton, brúðumynd fyrir um 30 milljónir dollara með faljegri jóla- sögu. Það hefði engum nema honum tekist að sannfæra mógúlana um að það gæti gengið en útkoman er einhver sérstæðasta bíómynd sem gerð hefur verið þar vestra, einfald- leikinn uppmálaður en samt víðáttu- flókið nákvæmnisverk. Martröðin fyrir jólin eða „A Nightmare Before Christmas" var frumsýnd í Banda- ríkjunum fyrir jólin í fyrra en er nú ein af jólamyndum Sambíóanna. Myndinni leikstýrir Henry Selick en Burton er höfundur hennar og hefur þeim tekist að vinna þannig með brúðurnar að það er eins og þær séu lifandi komnar á tjaldið. Persónu- sköpunin sjálf en einstaklega góð en persónurnar eru samsafn af ýmsum furðuverum, kómískum og harmræn- um. Það sem gerir þó útslagið er að ekki finnst skrykkjótt hreyfing í allri myndinni heldur hreyfast brúðumar fullkomlega eðlilega eins og fyrir yfirnáttúrulegu afli. Flóknustu atriði umfang sjóðsins hefur haldist í hendur við viðgang bæjarfélagsins. Enginn vafi er heldur á því að sparisjóðnum hefur ætíð verið vel stýrt. Mikill stöðugleiki hefur verið í stjórn sjóðsins, menn hafa setið lengi í stjórn. Sparisjóðsstjórar hafa verið fáir, raunar aðeins fimm og þar af tveir í 52 ár. Einungis eitt ár var taprekstur og eru ástæð- ur þess skiljanlegar. Auk þátttöku sinnar í atvinnulífi, stuðningi við húsbyggjendur og margs konar framfaramál virðist sjóðurinn jafn- an hafa styrkt ýmiss konar menn- ingarstarfsemi að þeim mörkum sem lög heimiluðu. Friðik G. Olgeirsson hlýtur að hafa verið nokkuð sjálfkjörinn til að rita þessa bók. Hann hafði áður samið ágætt þriggja binda ritverk um sögu Ólafs- íjarðar (Hundrað ár í Horninu, 1984, 1988, 1991) og var því öllum hnútum kunnugur. Þessi söguritun hans er að mínu viti einstak: lega vel heppnuð. í nokkrum stuttum og velskrifuðum köflum fléttar hann á skemmtilegan hátt saman sögu sparisjóðsins og sögu bæjarfélagsins. Textanum fylgir mikill fjöldi skýringarmynda og vel fram settar tölulegar upplýsingar auk margra annarra fróðlegra og fallegra mynda. Ólafsfirðingurinn Baldvin Tryggvason, formaður Sambands íslenskra sparisjóða, fylgir ritinu úr hlaði með einkar vel rituðum og persónulegum aðfaraorðum. Ritið er hið glæsilegasta að öll- um ytri búnaði og því einkar eigu- legur prentgripur. þar sem fleiri en ein og tvær brúður koma saman ganga fullkomlega upp og tímasetning hreyfínga og sam- hæfing er einstök í bæði söng og leik. Myndin er þrekvirki þolinmæð- innar og nákvæmninnar og hún er sannkallað listaverk. Leikmyndirnar og leikmunirnir lýsa einnig frábærri sköpunargáfu en myndin segir af því þegar Jóa graskerakóngi í Hrekkjavökulandi tekur að leiðast lífið og finnur leið inn í Jólalandið þar sem hann vill koma góðu einu til leiðar en hann fær illilega að kenna á því að hrekkjavökustíllinn á ekki sérlega vel við um jólahátíðina. Jólasagan er dæmigerð fyrir Bur- ton. Myndin er enn eitt afbrigðið af sögum hans um þá sem eru utan- veltu í heiminum og hvernig góðsemi þeirra er misskilin og tekin fyrir ónáttúru og illgirni en handritið ger- ir Caroline Thompson, sem skrifaði einnig Edda klippikrumlu. Hér er á ferðinni sérstæð jólamynd fyrir bæði krakka og fullorðna. Arnaldur Indriðason BÆKUR VÍNIN í RÍKINU. Árbók 1995 eftir Einar Thoroddsen. Mál og menning 1995. Prentun G. Ben.- Edda. 2.850 krónur (1.995 í desember). BÓK Einars Thoroddsens lækn- is, Vínin í ríkinu, sem kom út fyr- ir síðustu jól, hefur nú verið end- urútgefin sem „Árbók 1995“. Fyrri hluti bókarinnar (almennur fróð- leikur um vín) hefur verið styttur í um tíu blaðsíður en síðari hlut- inn, það er sjálf úttektin á „vínun- um í ríkinu“, hefur tekið breyting- um í samræmi við breytingar á úrvali ÁTVR síðastliðið ár. Upp- seldar tegundir hafa verið felldar út, umsögnum um nýjar tegundir eða árganga bætt við en eldri umsagnir annars látnar standa óbreyttar. Þá einskorðar höfundur sig nú við vín, styrkt vín (sérrí, madeira og púrtvín) og bjór en sleppir sterku áfengi. Einar Thoroddsep er einhver reyndasti vínsérfræðingur þessa lands og fyllti bók hans í fyrra upp í tómarúm, sem allt of lengi hafði verið til staðar. Þrátt fyrir að ís- lendingar kaupi áfengi fyrir rétt tæpa sex milljarða króna árlega hafa upplýsingar til neytenda og leiðbeiningar verið af allt of skorn- um skai.unti. Í verðskrám hefur til skamms tíma ekki verið að finna neinar upplýsingar um annað en nafn, framleiðanda, magn og verð. Á hinum Norðurlöndunum, þar sem einnig er einkaverslun, inni- halda verðskrár einnig lýsingar á hvetju einstöku víni og upplýsinga- flæði til neytenda er verulegt. Vínin í ríkinu er hins vegar eina heildstæða yfirlitið yfir vínúrvalið í verslunum ÁTVR og ég held óhætt að fullyrða að hún hafi fall- ið í góðan jarðveg og verið mikið notuð, þá ekki síst vínlýsingamar og einkunnagjöfín. Einkunnagjöf og lýsing á víni er auðvitað alltaf mjög persónuleg- ur og smekkbundinn hlutur og marga fyrirvara ber að hafa á. Flesta tekur Einar raunar sjálfur fram í inngangi að bókinni, s.s. það að vínin voru ekki smökkuð í gæðaröð og þokkalegt vín sem kom á eftir stóru víni fékk því hugsan- lega lægri einkunn en það hefði ella fengið. Hefði ekki verið betra að smakka til að mynda Bordeaux- vín saman, Rioja-vín saman o.s.frv. til að fá sanngjarnan samanburð innan hvers flokks? Á heildina litið held ég samt að Einar komist mjög vel frá þessu og ég hef enn ekki rekist á neitt dæmi þar sem ég er honum gjörsamlega ósammála. Lýsingar eru Iifandi og á köflum mjög persónulegar og einkennandi fyrir Einar og kímnigáfu hans. „Þægilegt hunang og steinefni. Minnir dálítið á gamla gosdrykkinn Polo.“ (Morio Muskat.) „Dálítið oxað vín, gæti verið bætt með vel- lyktandi (nei annars): Kryddaður ilmur, þumbaralegt." (Sidi Bra- him.) „Lifrarpylsa og innmatur annar.“ (Blush Chablis.) „Mætti prófa með einhvers konar rækju- kokkteil, en farið varlega með kokkteilsósuna, sem drepur að sögn vín (og fólk - að sumra mati).“ (Anheuser Liebfraumilch.) Lýsingar af þessu tagi kunna að virka stuðandi á suma en ég held að þær geti samt oftar en ekki orðið til að hrista upp í mönn- um og fá þá til að velta hlutum fyrir sér. Einn helsti ókostur bókarinnar er að ekki er gerð nein tilraun til að útskýra fyrir lesandanum það breytta fyrirkomulag sem ríkir í áfengissölu- málum hér á landi og er ein helsta ástæða þess að fjölmargar tegundir, sem ijallað var um í fyrstu útgáfu bókarinnar, eru nú hvergi fáanlegar og að um hundrað tegundir til viðbótar hafa bæst við_. í stað þess að allar áfengistegundir fáist í öllum verslunum ÁTVR er nú þrískipt kerfi í gangi. I fyrsta lagi aðallistinn, það er þær tegundir, sem fást í öllum verslunum. í öðru lagi sk. sérlisti en það eru vönduð vín (og raunar einnig bjór og sterkari drykkir) sem eru sérpöntuð í tak- mörkuðu magni og einungis seld í áfengisverslununum í Austur- stræti og Mjóddinni í Reykjavík. í þriðja lagi var svo á þessu ári tek- inn upp „reynslulisti“ í samræmi við þróunina á hinum Norðurlönd- unum. Umboðsaðilar áfengis geta lagt inn umsóknir fyrir tegundir og þær eru þá með tíð og tíma teknar í sölu til reynslu í útibúum ÁTVR í Kringlunni, Heiðrúnu, Eið- istorgi og á Akureyri. Nái tegund- in ákveðinni lágmarkssölu fer hún inn á aðallista að loknu átta mán- aða reynslutímabili. Þetta þrískipta kerfi gerir það að verkum að neytandinn getur alls ekki gengið að öllum tegundum vísum hvar sem er. Mér hefði þótt sjálfsagt, í handbók af þessu tagi, að gera greinarmun á því hvar ákveðnar tegundir séu í kerfinu til að auðvelda fólki leitina. Handbók á jú að spara sporin, ekki satt. Samkvæmt lauslegri athugun sýnist mér að af 78 rauðvínum, sem um er fjallað í bókinni, séu rúm tíu á jafnt reynslulista sem sér- lista; að af 68 hvítvín- um séu 11 af reynslu- lista og 12 af sérlista og að af 26 bjórteg- undum séu 8 af sér- lista og 4 af reynslu- lista. Það gefur því augaleið að það væri til mikils hægðarauka fyrir lesandann að til- greina það með ein- hveijum hætti hvar í kerfinu viðkomandi tegund eigi heima. Og fyrst ég er byij- aður að fjalla um merkingar á annað borð tel ég að það hefði einnig ver- ið til bóta ef þau vín er höfundur skilgi-einir sem „góð kaup“ hefðu verið auðkennd á einhvern hátt. Öll vinnsla bókarinnar er ágæt og einungis á einum stað hefur orðið myndabrengl (Val de Joanis hvít- og rósavín). Það er góð hugmynd að end- urnýja þessa bók og raunar nauð- synlegt því hún úreldist hratt vegna breytinga á úrvali. í desembermán- uði er hún seld á kynningarverði, 1.995 krónur, en hækkar svo í 2.850 krónur. Mér finnst jafnvel tæpar tvö þúsund krónur fyrir ár- bók af þessu tagi vera í dýrari kant- inum og spuming hvort að ekki eigi að gera útfærsluna ódýrari fyrst hún á hvort eð er einungis að endast sem verðlisti í ár. Falleg ný lína ítrúlofunar- og giftingar- hringum Steingrímur Sigurgeirsson wmmmm 1 olagfonii i ai'c <? er .ívldll'’ að Hótel Örk y y 0, - Fæst íBorgai'kiinghuini ’★( i c cT ÖDK r I 1 S i ■ I i M 8 HVERAGERÐI. Súni 98-34700. Bréfsími 98-34775 . : n m■n mmmmwma■n■■ Friðrik G. Olgeirsson Sigurjón Björnsson Sérstætt listaverk Einar Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.