Morgunblaðið - 23.12.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.12.1994, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÖLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK það fengi hér ákveðna fótfestu. „Síðan verður það þá að keppa við önnur olíufélög um þær lóðir sem kæmu til afgreiðslu síðar,“ sagði Ingibjörg. Othar Örn Petersen, umboðs- maður Irving Oil hérlendis, sagði í samtali við Morgunblaðið þegar umsóknimar voru lagðar fram í haust að bensínstöðvamar yrðu reistar í samræmi við ströngustu kröfur, en ný reglugerð um bensín og olíusölu í landi hefði verið sett á þessu ári. Olían flutt með eigin skipum Irving-olíufélagið rekur um 1.600 bensínstöðvar á austur- strönd Kanda og Bandaríkjanna, í Quebec, Maine, Vermont og New Hampshire. Félagið vinnur allar olíuvömr í eigin olíuhreinsunar- stöð í Kanada og hyggst nota eig- in olíuskip til flutninga til íslands. Ekki samið við sjúkra- liða fyrir jól SAMNINGAFUNDUR í sjúkra- liðadeildunni var árangurslaus í gær og bendir allt til að sjúkralið- ar verði í verkfalli um jólin. Samningsaðilar gerðu í gær al- varlega tilraun til að ná samkomu- lagi og tókst að nálgast sjónarmið hvor annars í nokkrum atriðum. Enn ber þó of mikið í milli að mati Þorsteins Geirssonar, for- manns samninganefndar rík'isins. Samninganefndir hafa undan- farna daga einbeitt sér að því að ná samkomulagi um sérkröfur sjúkrahða og um ýmis tæknileg atriði. í gær ræddu þær ítarlega um ákvæði um námskeið og fram- kvæmd þeirra og segist Þorsteinn hafa trú á að samkomulag um þau tækist fljótlega Fyrst starfsstétta til að halda jól í verkfalli Sjúkraliðafélagið hefur verið með lausa samninga í bráðum 22 mánuði og hefur verkfall þess staðið frá 10. nóvember. Leysist verkfallið ekki fyrir jól, sem fátt bendir til sem stendur, verða sjúkraliðar fýrsta starfsstétt á ís- landi til að halda jól í verkfalli eftir því sem best er vitað. Fjárfestingar í verðbréfum erlendis Keypt fyrir 7,1 milljarð fyrstu ellefu mánuðina ÍSLENDINGAR keyptu verðbréf sem gefin eru út erlendis fyrir um 7,1 milljarð króna nettó fyrstu ellefu mánuði ársins. Þar af nema kaup á skuldabréfum sem ríkissjóður hefur gefíð út erlendis alls um 3,7 milljörð- um króna. Takmarkanir á fjárfestingum í erlendum langtímaverðbréfum voru afnumdar um síðustu áramót og núna um áramótin falla brott höml- ur á viðskiptum með skammtíma- verðbréf. Þá geta íslendingar fjár- Test í ríkisvíxlum og öðrum skamm- tímabréfum annarra landa og lagt fé inn á bankareikninga að vild. Yngvi Örn Kristinsson, fram- kvæmdastjóri hjá Seðlabanka Is- lands, sagði í samtali við Morgun- blaðið að það væri mat Seðlabank- ans að ekki væri von á stórkostleg- um breytingum eftir áramótin þegar takmarkanir á skammtímahreyfing- um yrðu afnumdar. Erfitt væri þó að fullyrða um hver áhrifin yrðu. Hann sagði hins vegar afar mikil- vægt að vaxtastigið á skammtíma- bréfum væri í samræmi við vaxta- stigið erlendis. „Ávöxtun á ríkisvíxl- um hefur verið að þokast upp frá því í haust bæði á eftirmarkaði og í útboðum. 1 síðasta útboði hækkaði ávöxtun ríkisvíxla um nítján punkta [0,19%] og .kaupávöxtunarkrafa Seðlabankans í þriggja mánaða rík- isvíxla er komin í 5,95% á Verð- bréfaþingi. Þannig hefur bilið minnkað á milli vaxta hérlendis og erlendra vaxta. Það er ekkert ólík- legt að framhald verði á því á næstu vikum og ef breytingar verða er- lendis á vöxtum verðum við að fylgja þeim.“ ■ Spákaupmennska gagnvart/14 Rannsakað hvort Nótt sé enn á lífi NÓTT frá Kröggólfsstöðum var í gær færð til blóðtöku þjá Grétari H. Harðarsyni dýralækni á Hellu en sá orðrómur hefur komist á kreik að hin raunverulega Nótt sé fallin frá fyrir um tveimur til þremur árum. Bæring Sigur- björnsson hrossabóndi á Stóra- Hofi mætti með Nótt á landsmótið í sumar þar sem hryssan stóð efst af heiðursverðlaunahryssum. Full- yrt hefur verið að sú hryssa sem hann mætti með þar hafi ekki ver- ið sú rétta Nótt sem verið var að verðlauna. Bæring segir að í þessu felist alvarlegar ásakanir sem ekki sé sitjandi undir og viþ'i hann fá þessi mál á hreint. Blóðsýni verða send utan til rannsóknar. Veðsetning kvóta Sighvatur vill óbreytt ástand SIGHVATUR Björgvinsson við- skiptaráðherra segir óhjákvæmilegt að reynt verði að ná sáttum á Al- þingi um að breyta frumvarpi um samningsveð þannig að stjórnvöld hafí áfram rétt til að breyta eða af- nema núverandi fiskveiðistjómun- arkerfí án þess að baka sér hugsan- lega skaðabótaskyldu. Sighvatur segist vilja viðhalda núverandi ástandi varðandi veðsetningu kvóta, með þeirri óvissu, sem því fylgi. Þegar bankar taka veð í fiskiskip- um gegn Iáni, er vanalega gerð yfír- lýsing um að eigandi skipsins muni ekki framselja veiðiheimildir, sem því fylgja. Þetta telja bankar hins vegar ekki tryggja öryggi veðsins. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- og dómsmálaráðherra segir nauðsyn- legt að kveða á um það í lögum að taka megi veð í kvóta. Þannig séu hagsmunir lánveitenda og innstæðu- eigenda í bönkum bezt tryggðir. Með slíku sé heldur ekki verið að skapa nein ný réttindi. Sættir verði reyndar Sighvatur Björgvinsson segist telja óhjákvæmilegt að sættir verði reyndar milli jóla og nýárs í nefndum Alþingis. „Ég er reiðubúinn að taka af tvímæli um að það sé allt í lagi að halda áfram eins og menn hafa gert hingað til, en ekki tilbúinn að samþykkja að sett verði í lögin nein ákvæði, sem gera það að verkum að þjóðin missi stjómina á auðlindinni," sagði Sighvatur. ■ Deilt um réttaröryggi/4 Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Morgunblaðið/Þorkell Viðbyggingin að koma í ljós VIÐBYGGINGIN við Laugar- dalshöllina er að bvrja að taka á sig mynd. Búið er að reisa hluta límtrésgrindar hússins. Ráðist var í framkvæmdirnar vegna heimsmeistaramótsins í hand- knattleik sem haldið verður hér í vor. Starfsmenn ístaks hf. hófu vinnu við bygginguna í lok nóv- ember og er áætlað að verkinu Ijúki 15. mars. H AFNARSTJ ÓRN Reykjavíkur hefur samþykkt að gefa kanadíska olíufyrirtækinu Irving Oil kost á lóð undir starfsemi sína á Kletta- svæði í Sundahöfn. Umsókn fé- lagsins um lóðir undir bensínstöðv- ar eru enn til athugunar hjá Reykj avíkurborg. Að sögn Hannesar Valdimars- sonar hafnarstjóra á borgarstjórn eftir að samþykkja ákvörðun hafn- arstjórnar endanlega en síðan verður farið í viðræður við Irving Oil um það hvenær félagið vilji taka við lóðinni og á hvaða hátt. Lóðin sem félaginu verður gef- inn kostur á er 35 þúsund fermetr- ar að stærð eins og farið var fram á í umsókn. Svæðið sem hún er á hefur verið í uppbyggingu og mótun undir ýmsa starfsemi, að sögn Hannesar, m.a. stækkun lóð- ar Olís og iðnaðarstarfsemi. Þegar Reykjavíkurhöfn var dýpkuð í Úthlutun á 2-3 lóðum undir bensín- stöðvar í athugun sumar var efni sem tekið var upp úr höfninni flutt í Sundahöfn og notað til þessarar landstækkunar. 2-3 bensínstöðvalóðir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að nú sé verið að skoða umsókn Irving Oil um lóðir undir bensínstöðvar í Reykja- vík, það hefði ekki haft neitt upp á sig að afgreiða þá umsókn ef ekki hefði verið hægt að gefa fyrir- tækinu kost á lóð við höfnina. Ingi- björg segist alltaf hafa sagt að vonlaust væri fyrir borgina að koma til móts við óskir fyrirtækis- ins um 6-8 bensínstöðvalóðir en til skoðunar hefði verið að gefa því kost á 2-3 lóðum til þess að Irving Oil fær lóð í Sundahöfn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.