Morgunblaðið - 23.12.1994, Side 10

Morgunblaðið - 23.12.1994, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sigurjón Sighvatsson hættír hjá Propaganda Films „Þetta hefur verið ævintýralegur tími“ SIGURJÓN Sighvatsson hefur sagt upp frá og með áramótum starfi sínu sem annar af stjórnendum Propaganda Films, sem hann stofnaði fyrir átta árum ásamt Steve Golin og byggði upp í fyrirtæki sem meðal annars var brauti-yðjandi í gerð tónlistarmyndbanda og veltir nú tíu milljörðum íslenskra króna á ári. Siguijón sagði í samtali við Morgunblað- ið að hann myndi halda áfram að vinna verk- efni fyrir Propaganda og veita ráðgjöf þar, en hann hygðist einbeita sér að kvikmynda- gerð og vinna sem sjálfstæður framleiðandi. „Ég er á ákveðnum krossgötum í lífinu, bæði persónulega og hjá Propaganda; árið 1994 hefur verið uppgjörsár hjá mér á marg- an hátt. Ég var til dæmis að ættleiða bam og gerast uppalandi í annað sinn eftir 20 ár. Ég var svo kannski ekki nógu ánægður með það sem ég var að gera sjálfur,“ sagði Sigur- jón. Þurfti að velja „Það var annað hvort að einbeita mér að rekstri fyrirtækisins - sem er ennþá í vexti og er að fara inn á ný svið - eða að ein- beita mér að því sem ég ætlaði í raun alltaf að gera hér: að búa til bíómyndir." Siguijón sagði að það hefðu verið ákveðin persónuleg vonbrigði fyrir sig að kvikmyndir sem hann hefði gert hefðu ekki hlotið eins góða aðsókn og við var búist þrátt fyrir góða dóma. Til dæmis hefði myndin Red Rock West verið í öðru sæti á lista Time yfir bestu myndir ársins en aðsóknin hefði ekki verið í samræmi við það. „Ég þarf kannski að setja aðeins meiri einbeitingu í kvikmynda- gerðina og sjá hvað gerist. Mér fannst ég ekki geta getað verið í hvorutveggja, stjóm- unarstörfum og kvikmyndagerð." „Engin Ieiðindi“ Sigurjón ætlar að byija að vinna í janúar við gerð myndar sem kallast Just Looking - sem er gerð í samvinnu Propaganda og ann- ars fyrirtækis - og hyggst síðan snúa sér að gerð stórmyndarinnar American Rebel in Paris, sem Propaganda stendur fyrir. Hann sagðist væntanlega halda sambandi við Propaganda að minnsta kosti næsta árið en síðan yrði hann kominn alveg á eigin spýt- ur. Hann myndi vinna í Hollywood að minnsta kosti næstu árin. „Ég er kannski ekki trúað- ur á fimm ára áætlanir eins og í Sovétríkjun- um sálugu, en ég held að ef til vill komi svo aftur tími til uppgjörs um aldamótin.“ Aðspurður sagði Siguijón að það hafi ver- ið ákveðin spenna í Propaganda hvað varð- aði framtíðarsýn fyrirtækisins - bæði á milli hans og Golins og PolyGram, gem keyptu Propaganda árið 1992 - en hann gæti ekki kvartað yfir samstarfinu eða starfslokasamn- ingi sínum. PolyGram hefði til dæmis boðið honum sérstakan samning um að vinna við kvikmyndagerð næstu árin, en hann hefði ákveðið að það væri best að starfa sjálf- stætt. „En ég væri ekki héma áfram hjá Propaganda bæði sem ráðgjafi og að fram- leiða kvikmyndir ef það væru einhver leið- indi.“ Siguijón sagði að það væri heldur ekki eins erfitt að yfirgefa fyrirtækið nú vegna þess að hann ætti ekki fýrirtækið lengur. Salan til PoIyGram hefði hjálpað vexti fyrir- tækisins mikið, en við hana hefði hann í fyrsta skipti farið að vinna hjá öðrum og hann vildi helst vera eigin herra. Úr 15 fermetrum í Hollywood-veldi Siguijón var spurður að lokum hvernig það væri að líta til baka á sögu Propaganda Films á þeim átta árum sem hann og Golin hafa stjómað fyrirtækinu og gert það að þekktum framleiðanda á kvikmyndum, sjónvarpsefni, tónlistarmyndböndum og auglýsingagerð. „Þetta hefur verið ævintýralegur tími fyrir mig. Ég held að það hafi enginn og allra síst ég sjálfur gert ráð fyrir því að við mynd- um byggja upp fyrirtæki sem í dag veltir tíu milljörðum íslenskra króna. Við byijuðum með tvær hendur tómar í 15 fermetra her- bergiskytru með einn síma; við höfðum ekki efni á að vera með tvo síma. Við byggðum svo fyrirtækið upp sjálfir og það hefur verið ævintýralegt. Maður hef- ur helst verið hræddur um að allt hafi geng- ið of vel. Við náttúrlega gjörbyltum auglýs- ingabransanum og notuðum síðan þá þekk- ingu sem við höfðum við tónlistarmyndbönd- Sigurjón Sighvatsson. in. Við vorum einir af þeim sem byggðum upp þann iðnað. Við erum ekki bara þeir sem hafa framleitt flest myndbönd fyrir MTV - kannski um 7-800 - heldur byltum við því hvernig tónlist er markaðssett.“ í frétt frá Propaganda Films, sem send var út í gær, segir að undir stjórn Sighvats hafi fyrirtækið vaxið í að verða stærsti fram- leiðandi auglýsinga og tónlistarmyndbanda í Norður-Ameríku og hafi náð að skapa sér ímynd með gerð kvikmynda eins og Wild at Heart, sem vann Gullpálmann í Cannes, Truth og Dare söngkonunnar Madonnu og Red Rock West, sem hlotið hafi lof gagnrýn- enda. Þá hafi hann staðið fyrir sjónvarpsþátt- um eins og Twin Peaks og Beverly Hills 90210. Þar er haft eftir hinum stofnanda og stjómanda Propaganda, Steve Golin, að Sig- uijón hafí verið „mikilvægur samstarfsmaður undanfarin átta ár. Ég veit að hann mun sýna af sér sama dugnað og framsýni í fram- tídarverkefnum sínum og hann sýndi við uppbyggingu þessa fyrirtækis.“ Hæstiréttur Lögleg handtaka veiðimanna HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað rík- issjóð af kröfum tveggja manna sem handteknir voru ásamt fleirum á Blönduósi í ágúst 1991 fyrir að hindra störf lögreglu og veiðieftir- litsmanns og taka net úr höndum hins síðarnefnda sem lagt hafði hald á netin í sjó við Hvammstanga þar sem þau voru talin bijóta gegn ákvæðum laga um lax- og silungs1 veiði og reglum um netaveiði göngu- silungs í sjó. Mennirnir voru eftir handtöku vistaðir í fangageymslu á Blöndu- ósi. Hæstiréttur segir ljóst að fram- ferði mannanna hafi verið með þeim hætti að lögregla hafi haft lögmæta ástæðu til að handtaka þá. Sýslu- maður leitaði liðsinnis RLR við rann- sókn málsins og liðu tæpar 16 klst. frá handtöku og þar til mennirnir voru látnir lausir eftir yfirheyrslu. Hæstiréttur segir það hafa verið eðlilega ráðstöfun sýslumanns að óska eftir því að RLR rannsakaði málið þar sem rannsóknin hafi m.a. hlotið að beinast að viðskiptum mannanna við lögreglu á staðnum. Þetta hafi því átt að tryggja óhlut- dræga meðferð málsins en hafi orð- ið óhjákvæmilega til þess að rann- sókn tófst þar sem rannsóknarlög- reglumenn áttu um langan veg að fara og fleiri menn en einn voru grunaðir um aðild að málinu. Tafirn- ar verði þó ekki taldar óhæfílegar og að auki hafi mennirnir tilnefnt sér réttargæslumenn sem hafi þurft að koma frá Reykjavík til að vera viðstaddir yfirheyrslur. Bótakrafa hafði ekki stoð í lögum Þvl fellst Hæstiréttur hvorki á að lögmæt skiiyrði hafi skort til aðgerða lögreglu né að þær hafi verið harkalegri eða víðtækari en tilefni og aðstæður buðu. Því verði bótakrafa mannanna ekki talin eiga stoð í lögum. Ríkið var því sýknað í Hæstarétti en Héraðsdómur hafði tekið kröfuna til greina og dæmt hvorum mannanna 50 þús. kr. bæt- ur. Viðbrögð VSÍ vegna fyrirhugaðra breytinga á skattalögum . A'crslunin, Laugavegfi 52 - sínii 5624244’ Sveigjanleiki í fyrn- ingnm verði aukinn VINNUVEITENDASAMBAND ís- lands leggur til að í stað flýtifyrn- inga í ár og á næsta ári sem eru einn þáttur í aðgerðum stjórnvalda til að styrkja stöðugleika verði svig- rúm fyrirtækja til að ákveða sjálf umfang skattlegra fyrninga aukið. Vilja samtökin að hægt verði að færa til frádráttar tapað hlutafé og fram kemur að verktakamiðar í nú- verandi formi, sem ekki skilji á milli efnis og vinnu, geti ekki orðið hald- bær grundvöllur skatteftirlits. Þetta kemur fram í greinargerð VSÍ til efnahags- og viðskiptanefnd- ar Alþingis vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um tekju- og eignaskatt, en frumvarp þar að lút- andi er til meðferðar á Alþingi. Samtökin leggja til að sannanlegt tap á eignarhlut í félögum verði frá- dráttarbært, þannig að heimilt verði að gjaldfæra tapað'hlutafé í öðrum félögum. Þá er lagt til að í stað tíma- bundinnar flýtifymingar verði svig- rúm fyrirtækja til að auka sjálft svigrúm fyminga aukið. Lagt er til að mörk lágmarks- og hámarksfyrn- inga verði víkkuð þannig að svigrúm til gjaldfærslu fyrninga, til dæmis á vélbúnað til iðnaðar og verksmiðju- reksturs verði aukið. Varðandi fyrirhugaðar breytingar á tvísköttun lífeyris minnir VSI á að mesta ranglætið varðandi sam- spil skatta- og lífeyrismála varðar sjálfstætt starfandi einstaklinga, þar sem þeim sé ekki heimilt að draga frá í rekstraruppgjöri lögbundið 6% iðgjald í lífeyrissjóð. Þá er því beint til þingmanna að þeir tryggi með löggjöf að skattþegnar og skattyfir- völd lúti sömu lögmálum. Ofteknir skattar verði endurgreiddir með hlið- stæðu álagi og innheimt sé á van- greidd gjöld og sömu vaxtakjör gildi fyrir báða. Jafnframt verði skipun Yfirskattanefndar endurekoðuð, þar sem það sé með öllu óviðunandi að fjármálaráðherra, sem sé aðeins annar hagsmunaðila í skattamálum, skipi alla nefndina. Verktakamiðar ekki grunnur Þá segir að verktakamiðar j nú- verandi formi geti ekki orðið hald- bær grunnur skatteftirlits og sú stranga refsiregla sem sé fyrirhuguð samkvæmt frumvarpinu og geð- þóttavald skattastjóra séu ekki ásættanlegar og því er lagt til að viðkomandi grein verði felld út úr frumvarpinu. Ennfremur segir: „Frumvarpið virðist þannig mótað af því hugarþeli að allar tekjur fyrir- tækja sé eðlilegt skattandlag en fyr- ir sérstaka og þó afmarkaða náð skattyfirvalda megi telja ýmislegan kostnað við tekjuöflunina til frá- dráttar áður en skattur sé á lagður. Vafamál skýri skattstjórar og full- trúar þeirra. VSÍ varar mjög við þessari stefnu og beinir því eindreg- ið til alþingismanna að þeir komi réttarríkinu til varnar í þessu efni og hafni þessum tillögum. Ef vilji er fyrir því að herða refsingar ber að horfa til þess verkefnis í heild, þannig að þolanlegt samræmi sé í refsingum og refsikenndum viður- lögum við einstökum brotum og bro- taflokkum, en ekki láta tilviljunar- kenndar óskir embættismanna á ein- stökum sviðum ráða þróun mála. í öllu falli verður að viðhalda því grundvallarlögmáli réttarríkisins að allir eigi kröfu á réttlátari dómsmeð- ferð. Því er brýnt að hafna tillögum um sérstakar gildrur fyrir skatt- þegna svo skattleggja megi tekjur í atvinnurekstri án tillits til kostnaðar við öflun þeirra.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.