Morgunblaðið - 23.12.1994, Síða 16

Morgunblaðið - 23.12.1994, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ EVRÓPA ERLENT Aðildarríki ESB sektuð vegna of- greiðslna til bænda Brussel. The Daily Telegraph. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins sektaði á mið- vikudag tíu aðildarríki sambands- ins um rúma 120 milljarða króna þar sem þau höfðu heimilað niður- greiðslur til bænda umfram það er þeir höfðu rétt á samkvæmt reglum. Harðast er Ítalíu, Spáni, Þýska- landi og Grikklandi refsað en þyngst vegur að þau ríki stóðu ekki við kvótaskuldbindingar sínar í mjólkurframleiðslu. „Svarti sauðurinn“ í hópi ESB- ríkjanna er Ítalía en ítölsk stjórn- völd verða að greiða rúma 60 millj- arða í sektir, þar af um 40 millj- arða vegna mjólkurframleiðslu. Þá verða ítalir að greiða um 2 millj- arða fyrir að láta það viðgangast að ólífuolíuframleiðendur tóku við tvöföldum niðurgreiðslum. Spánveijar urðu aftur á móti að greiða tæpa 40 milljarða vegna mjólkurframleiðslu og Þjóðverjar rúmlega 10 milljarða, annars vegar vegna mjólkurframleiðslu og hins vegar fyrir að nautakjötsframleið- endur í austurhluta landsins þáðu niðurgreiðslur fyrir pólska fram- leiðslu. Tóbakið brennt Grikkir verða að greiða um 9 milljarða, fyrst og fremst vegna tóbaksframleiðslu. Grískir tóbaks- framleiðendur þáðu niðurgreiðslur fyrir fullvinnslu tóbaks og síðan útflutningsbætur að auki vegna útflutnings til Aibaníu. í ljós kom að gæði framleiðslunnar voru það lítil að framleiðendur höfðu ekki hirt um að fullvinna afurðina held- ur fluttu hana út til Albaníu þar ÍRSKIR bændur í kröfugöngu. sem tóbakið var brennt á risavöxn- um bálkestum. Einungis Lúxemborg og Holland sluppu við sektargreiðslur. Þó að hollenskir bændur hafi orðið upp- vísir að smávægilegum svikum áttu þeir nægilega miklar kröfur á hendur sambandinu útistandandi til að jafna dæmið út. Landbúnað- arframleiðsla Lúxemborgar var hins vegar of lítil til að mælast. Réne Steichen, sem fer með landbúnaðarmál í framkvæmda- stjórninni, sagði að aðildarríkin yrðu að hafa virkt eftirlit með óréttmætum kröfum á hendur sameiginlegum sjóðum ESB og grípa til fyrirbyggjandi aðgerða. ESB stað- festir GATT • RÁÐHERRARÁÐ Evrópu- sambandsins staðfesti GATT- samkomulagið um stofnun Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar í gær. Mörg aðildarríki ESB hafa þegar fullgilt samkomulagið. 011 helztu viðskiptastórveldin; ESB, Japan og Bandaríkin, hafa nú fullgilt GATT-samkomulagið. • VERÐBÓLGA í ESB-ríkjum hefur staðið í stað í þrjá mánuði og er 3% að meðaltali, samkvæmt upplýsingum frá EUROSTAT, hagstofu Evrópusambandsins. Lægst er verðbólgan í Frakk- landi, 1,6%, en hæst í Grikk- landi, 10,6%. í Finnlandi, sem gengur í ESB Um áramót, er verðbólgan sú sama og í Frakk- landi. • FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins og Eftirlits- stofnun EFTA hafa samþykkt styrki til landbúnaðar og byggðamála í Finnlandi og Aust- urriki. f Finnlandi munu svæði, sem um 31% íbúa landsins búa á, njóta byggðastyrkja. • ALAIN Juppe, utanríkisráð- herra Frakklands, sagði í gær að innan Evrópusambandsins hefðu menn áhyggjur af þróun mála í Tsjetsjníu og sambandið myndi senda frá sér yfirlýsingu um átökin þar bráðlega. Juppe lagði áherzlu á að Tsjetsjnía væri hluti af rússnesku land- svæði. Hann sagðist jafnframt hafa hvatt stjórnvöld í Moskvu til að forðast blóðsúthellingar og semja við leiðtoga hinna herskáu tsjetsjensku þjóðernissinna. Finnar hafa áhuga á áheyrnaraðild að VES Helsinki. Reuter. FINNSKA ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að hún vilji áheyrnaraðild að Vestur-Evrópusambandinu (VES), sem á að verða varnarmála- armur Evrópusambandsins. í yfirlýsingu stjórnarinnar segir: „Finnska ríkisstjómin hefur upplýst hollenzk stjórnvöld, sem nú fara með formennsku í VES, um áhuga sinn á áheyrnaraðild að samtökun- um. Þessi kostur er áhugaverður þar sem Finnland verður aðildarríki Evrópusambandsins." Finnska þingið mun ræða málið í janúar og líklegt er talið að Finnar sæki formlega um áheyrnaraðiid snemma á næsta ári. Haft er eftir embættismönnum að málið ætti að fara auðveldlega í gegnum þingið, enda hafa stjómarflokkamir öragg- an meirihluta. Sjálfstæð varnar- stefna áfram Finnar hafa lýst því yfir að þeir muni hafa sjálfstæða landvarna- stefnu þótt þeir gangi í Evrópusam- bandið. Stjómin hefur hins vegar ekki útilokað aðild að NATO í fram- tíðinni. Um þrenns konar aðild að VES er að ræða; fulla aðild, aukaaðild og áheyrnaraðild. íslendingar hafa aukaaðild og felur hún í sér meiri áhrif og skuldbindingar en áheyrna- raðild. Sprenging í neðanj arðarlest í New York Einn hinna slös- uðu ákærður New York. Reuter. MAÐUR sem hlaut alvarleg bruna- sár í sprengingu sem varð í neðan- jarðarlest í New York í fyrradag en flúði af slysstað, var í gær ákærður fyrir tilraun til að myrða 45 manns er slösuðust í sprenging- unni. Hún olli geysilegu uppnámi og öngþveiti í Wall Street fjármála- hverfinu. Maðurinn er 49 ára, fyrr- um starfsmaður tölvufyrirtækis. Sprengingin varð um miðjan dag á miðvikudag. Hún sprakk í klefa neðanjarðarlestar er var á leið inn á Fulton Street-stöðina í Wall Street. Segir lögregla hana hafa sprungið í kjöltu mannsins. Um var að ræða glerkrukku með eldfimum vökva og utanáliggjandi kveikibún- aði. Ekki er vitað hvað kom spreng- ingunni af stað. Lestarvagninn var troðfullur og gaus upp mikill eldur. Reyndu skelf- ingu lostnir farþegar hvað þeir gátu til að slökkva hver í öðrum og einn þeirra fann slökkvitæki, sem hann gat notað. Fjórir farþeganna eru með alvarleg brunasár. Sá sem bar sprengjuna, Edward Leary, lagði hins vegar á flótta eft- ir neðanjarðargöngum en fannst tæpri klukkustund síðar í Brooklyn. Hann er með þriðja stigs brunasár á um 45% líkamans. Leary er einnig grunaður um að hafa staðið að baki svipuðu tilfelli er varð í síðustu viku en þá kvikn- aði skyndilega í bakpoka skóla- stúlku í neðanjarðarlest og hlaut 16 ára piltur alvarleg branasár. Ekki er vitað hvað Leary, sem er atvinnulaus, gekk til. Pilla gegn getuleysi New York, London. The Daily Telegraph. í BRETLANDI fara nú f ram til- raunir með fyrstu pilluna, sem gerð hefur verið fyrir karlmenn til að sigrast á getuleysi. Fyrstu niðurstöður þykja uppörvandi, þeir sem reynt hafa Iyfið eru sagð- ir hafa getað notið kynlífs í fyrsta sinn í mörg ár. Lyfið er kallað UK-92 480 og er búist við því að tilraunir geti hafist um heim allan á næsta ári, að sögn hins bandaríska framleið- anda. Fyrstu tilraunirnar fólust í því að sjálfboðaliðar, sem fengu greiddar sem svarar 500 kr. á tím- ann, tóku lyfið og horfðu á klám- myndir en skynjarar mældu við- brögðin. Verði árangur tilraunanna góð- ur, er talið að salan kunni að nema sem svarar rúmum hálfum millj- arði kr. á ári. Að sögn rannsóknar- manna hrjáir getuleysi einkum þá sem eru sykursjúkir og eldri menn, um 20 milljónir karla í Bandaríkjunum einum. Lyfið slak- ar á spennu í vöðvum innan í æðunuin og verður til þess að auka blóðflæði í liminn. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um ágæti nýja tilraunalyfsins. Breskur þvagfærasérfræðingur segir að um lyf við hjartakveisu sé að ræða. Minnir hann á að í helmingi tilfella sé um andlegar orsakir getuleysis að ræða og lík- lega muni þeir karlar helst njóta góðs af lyfinu. Mikilvægt sé fyrir lyfjafyrirtækið að taka með í reikninginn lyfleysuáhrifin, þ.e. að margir læknast af kvillum sem eiga sér sálrænar orsakir vegna þess að þeir trúa á lyfið en ekki vegna lífefnafræðilegra áhrifa þess. Tilraunimar séu svo sem ágætar, „nema hvað stinningin geti staðið tímunum saman.“ Óvænt töf varð á tilraununum fyrir skömmu, er brotist var inn á tilraunastofuna og öllum klám- myndunum stolið. jReuter LÍBANSKUR hermaður stendur vörð um bílflak en sprenging í bílnum varð þremur að bana. Mannskæð sprenging í Líbanon Hizbollah kenn- ir Israelum um Reuter Syndir yfir Atlants- hafíð FRAKKINN Guy Delage, sem hér hvílir sig á fleka sínum, hyggst synda yfir Atlantshafið og hélt hann af stað í fyrradag frá Grænhöfðaeyjum með stefnu á eyjuna Martinique á Karíbahaf- inu. Flekann með matarbirgðum og öðrum hjálpargögnum dregur hann á eftir sér á sundinu og verður að gera ráð fyrir því að hann ætli að sofa um borð. ----» ♦ ♦---- Meint skatt- svikarannsókn Brundtland sökuð um íhlutun Ósló. Reuter. NORSK yfirvöld vísuðu í gær á bug þeirri staðhæfingu í blaðinu Dagens Næringsliv að Gro Harlem Brundt- land forsætisráðherra hefði reynt að hafa áhrif á rannsókn sem verið er að gera á meintum skattsvikum Torsteins Molands seðlabanka- stjóra. Mál Molands var nærri því búið að velta stjórn Brundtland fyrr á árinu en hann fjárfesti ásamt tug- um annarra m$hna í félagi um kaup á Airbus-'flugvél. Saksóknari fór á þriðjudag fram á fangelsis- dóma yfir íjórum kaupsýslumönn- um, sem aðild eiga að málinu. Þeir eru sagðir hafa falsað dagsetningar til að fá skattafrádrátt. Bcirút. Reuter. ÞRÍR íétust er bílsprengja sprakk í hverfi shíta-múslima í Beirút á mið- vikudag. Þar með var endir bundinn á lengsta friðartímabil, 10 mánuði, sem verið hefur í borginni í tvo ára- tugi. Hryðjuverkasamtökin Hizbollah saka ísraela um að standa að baki sprengingunni. Talsmenn Hizbollah segja að til- ræðið hafi komið í kjölfar hótana ísraela gegn samtökunum á síðustu dögum og aukinnar spennu á víglín- unni í suðri, þar sem ísraelar og Hizbollah beijast. Sprengjan sprakk í verslunargötu og særðust ellefu manns auk hinna þriggja sem létust. Myndaðist mikill gígur í götunni, auk þess sem hús og bílar í nágrenninu skemmdust mikið. Ef frá er talinn syðsti hluti Líban- on hefur ekki sprungið sprengja í landinu frá því í febrúar sl. er ellefu manns létust og 50 særðust þegar sprenging varð í kirkju. Hefur ekki verið svo lengi friðsam- legt í Líbanon frá upphafi borgara- stríðsins sem geisaði 1975-1990. Líklegt er talið að sprengjan verði til þess að einhveijir erlendir fjárfest- ar haldi að sér höndum en menn óttast þó ekki að fleiri sprengingar muni fylgja í kjölfarið. Sprengjan sprakk tveimur dögum eftir að íslamskir hryðjuverkamenn drápu tvo ísraelska hermenn við landamærin en nítján ísraelar hafa látið lífið í Líbanon á árinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.