Morgunblaðið - 23.12.1994, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994 41
FÓLK í FRÉTTUM
Islenska óperan
STÓRHLJÓMSVEIT meðlima Sinfóníuhjjómsveitarinnar
leikur fyrir dansi eins og á nýársdansleiknum í fyrra.
V ínar dansleikur
á nýársdag
ÍSLENSKA óperan heldur Vínar-
dansleik á nýársdag á Hótel ís-
landi þar sem 25 meðlimir Sin-
fóníuhljómsveitar íslands leika
fyrir dansi undir stjórn Páls P.
Pálssonar. Auk Sinfóníunnar
koma fram einsöngvararnir
Garðar Cortes, sem einnig er
veislustjóri og kynnir kvöldsins,
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Ólaf-
ur Ami Bjarnason og kór Is-
lensku óperunnar. Borin verður
fram margrétta veislumáltíð.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Óperan stendur fyrir Vinardans-
leik á nýársdag, en Hótel ísland
hélt slíka veislu fyrir ári. Ólöf
Kolbrún segir að í fyrstu hafi
skemmtistaðurinn ætlað að sjá
sjálfur um dansleikinn, en síðan
hefði veitingamaðurinn stungið
upp á því að íslenska óperan sæi
um hann.
„íslenska óperan á stóran
styrktarfélagahóp, sem við ætl-
um að reyna að höfða til,“ segir
Ólöf Kolbrún. „Þetta er ágætis
leið til þess að halda sambandi
við þá sem sýna óperunni áhuga.
Við erum komin á fullt með að
undirbúa La Traviata, sem frum-
sýnd verður í febrúar, og er þetta
góð leið til þess að kveikja upp
í fólki fyrir veturinn."
Metnaður að fylla
danskortin
A dansleiknum verða leiknir
dæmigerðir Vínarvalsar, en ein-
söngvaramir og kórinn munu
syngja aríur, dúetta og kórverk
úr óperettum. Ólöf Kolbrún segir
að þetta sé síðkjólaball og verði
dömurnar með danskort, þar sem
herramir skrifi sig á lista til að
fá að dansa við þær. „Ætli það
verði ekki metnaður út af fyrir
sig að fylla danskortið," segir
hún. Einnig verði tvö dömufrí.
Ekki er búist við neinum ágóða
af dansleiknum, enda segir Ólöf
Kolbrún að það sé dýrt að halda
dansleik á nýársdag. „Við viljum
fyrst og fremst láta vita af okkur
og sýna að við séum lifandi,“
segir hún.
’þrofessVfeal
500
KRINGLUNNI, SÍMI 887230.
TAGHeuer
SWISS MA.Dt SINCE 1860
Mynd um
Dietrich?
_^BIÁA LÓNIÐ
j -œvintýri líkast!
►LEIKSTJÓRINN Louis Malle
er að þreifa fyrir sér með gerð
myndar eftir ævi Marlene Ðiet-
rich og hefur hann þegar boðið
leikkonunni Umu Thurman að
fara með hlutverk söngkonunn-
ar. Thurman er að íhuga málið,
en hún er mjög eftirsótt um
þessar mundir í Hollywood eftir
góða frammistöðu sína í Reyf-
ara Tarantinos.
MARLENE Dietrich
Opið um jól og áramót:
Þorláksmessa.........kl. 11-19
Aðfangadagur.........kl. 10-14
Jóladagur............kl. 13-18
Annar í jólum........kl. 10-21
Gamlársdagur.........kl. 10-16
Nýársdagur.................kl. 11-18
Ath. ný símanúmer!
Skrifstofa 92-68800 -fax 92-68888
Baðhús - meðferð 92-67988
Óskum öllum
landsmönnum gleðilegra
jóla ogfarsœldar á nýju ári.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Gleðileg jóll
Óskum öllum landsmönnum
í kvöld