Morgunblaðið - 08.01.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.01.1995, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hlutafélög stofnuð um skipakaup til að sveitarfélög geti ekki nýtt forkaupsrétt Bæjarstjóri segir lögin gölluð GUÐJÓN Hjörleifsson bæjarstjóri í Vestmannaeyj- um segir að lögin ufh fiskveiðistjómun séu gölluð, sökum þess að þau hindri ekki stofnun hlutafélags í sveitarfélagi um að kaupa skip úr plássinu, en gera það út frá öðru byggðarlagi. Með því móti sé komið í veg fyrir að sveitarfélagið geti neytt forkaupsréttar. Skip með 600 tonna kvóta var nýlega selt frá Eyjum á þennan hátt. Samkvæmt 11. grein laga um stjóm fiskveiða á sveitarstjóm forkaupsrétt, ef selja á fískiskip úr sveitarfélaginu til fyrirtækis, sem á heimilis- festi í öðru sveitarfélagi. Neyti sveitarstjómin for- kaupsréttarins, skal hún strax bjóða fyrirtækjum í sveitarfélaginu að kaupa skipið. í lögunum er hins vegar ekkert, sem bannar mönnum að stofna fyrirtæki í sveitarfélaginu, þar sem seljandi skips- ins á lögheimili, en gera skipið út frá öðm plássi. Stofnað félag um kaup á Sigurborgu VE Nýlega var gengið frá sölu vélbátsins Sigur- borgar VE, sem var eign Kleifa hf. í Eyjum, til eigenda Vonarinnar hf. á Hvammstanga. Að sögn Guðna Ólafssonar, eins af fyrri eigendum skips- ins, fer það til Hvammstanga eftir helgina og mun leggja upp þar. Skipið hefur um 600 þorsk- ígildistonna kvóta. Guðni segir að nýju eigendurn- ir hafí stofnað hlutafélag í Eyjum um rekstur skipsins. „Er það ekki tískan?" sagði hann í sam- tali við blaðamann. Hann sagði að báturinn hefði verið í sölu frá því í sumar og í Eyjum hefði ekki nokkur maður sýnt honum áhuga. Guðjón Hjör- leifsson bæjarstjóri sagði að bærinn hefði haft áhuga á að nýta forkaupsrétt að skipinu. Bærinn skoðaði slík mál ævinlega í botn og hefði keypt þijú skip á seinasta kjörtímabili og eitt, Ágústu Haraldsdóttur VE, fyrir skömmu. Skipin hafa verið seld einkaaðilum. Forkaupsréttur sveitarfélaga hindraður „Mér fínnst þetta vera galli í kerfínu. Sveitarfé- lögin eiga að hafa forkaupsrétt að öllum skipum, sem eru skráð í plássinu," sagði hann. „Það vita allir að þótt það sé verið að stofna hlutafélag í þessu sveitarfélagi er það bara til að koma í veg fyrir að sveitarfélagið fái fórkaupsréttinn." Hæstaréttardómur um ábyrgðir sveitarfélaga Abyrgðir ógildar sé skilyrðum laga ekki fylgt - : • : :: Morgunblaðið/Árni Sæberg Austan hvellur SAMKVÆMT nýlegum hæstaréttar- dómi geta bæjarábyrgðir sem veittar eru án gildra trygginga verið ómerk- ar og án skuldbindinga fyrir bæjar- sjóð, samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins. Samkvæmt lögum eru ábyrgðir sem veittar eru án formlegr- ar ákvörðunar kjörinna fulltrúa í bæjarráði eða bæjarstjóm jafnframt ógildar. í skýrslu Löggiltra endurskoðenda hf. um úttekt á viðskiptum Hagvirk- is-Kletts hf. og Hafnarfjarðarbæjar kemur m.a. fram að allar bókanir í bæjarráði Hafnarfjarðar um íjár- málaleg viðskipti milli bæjarsjóðs og Hagvirki-Kletts séu mjög ófullkomn- ar sem leiði húgann að því hvernig ákvarðanir um fyrirframgreiðslur og veitingu ábyrgða voru teknar. í skýrslu endurskoðendanna kemur fram að í árslok 1992 og byijun árs 1993 hafi bæjarsjóður gengist í al- mennar ábyrgðir fyrir víxlum sem Hagvirki-Klettur var greiðandi að, upphæð alls 43 milljónir króna, og VINNUVETENDASAMBAND ís- lands keypti í febrúar sl. 8 milljóna kr. skuldabréf hjá verðbréfafyrir- tæki, sem gefíð er út af Hymingar- steini hf. sem skuldara til Hagvirkis- Kletts hf. Bæjarsjóður Hafnarfjarðar hafði gengist í ábyrgð fyrir bréfínu yrðu vanskil á því. VSÍ hefur óskað eftir staðfestingu Hafnarfjarðarbæj- ar á því, að bærinn stæði við ábyrgð- aryfirlýsinguna og endurkeypti bréf- ið verði vanskil á því. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, segir að Vinnu- deilusjóður VSÍ sé varðveittur í skuldabréfum af margvíslegum toga, þ.á m. umræddu skuldabréfi, og í kjölfar gjaldþrots Hagvirkis-Kletts FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð- herra hefur ákveðið að bjóða þeim eigendum spariskírteina fyrir um 10 milljarða króna sem koma til innlausnar 10. febrúar sem skipta þeim fyrir ný spariskírteini, sér- staka 0,3% skiptiuppbót ofan á 5% ársávöxtun þannig að heildarávöxt- un nýrra spariskírteina sem verði gefin út í skiptum fyrir eldri skír- teini verði 5,3%. Bréfin voru seld á árinu 1990 með 6-7,05% ávöxtun. „Þetta er í samræmi við alþjóð- legar venjur þegar um skuldbreyt- ingar eldri lána er að ræða,“ sagði Friðrik Sophusson og sagði hefð fyrir því hér á landi að bjóða eig- hefur 41 milljón af því fallið á bæjar- sjóð. Endurskoðendur telja þessa ábyrgðarveitingu bijóta í bága við 89. grein sveitarstjómarlaga en sam- kvæmt henni sé bæjarsjóðum aðeins heimilt að veita einfaldar ábyrgðir. Þá séu tryggingar þær sem félagið setti fyrir ábyrgðum sveitarfélagsins jafnan fólgnar í framtíðartekjum fyrirtækis- ins vegna verkeftia fyrir bæjarsjóð og veki þetta upp spumingar um hvort stjómendur bæjarins hafí gætt nægi- legrar varkámi við öflun trygginga. Samkvæmt heimiidum Morgun- blaðsins getur afgreiðsla ábyrgða sem veittar eru án þess að gætt sé reglna sveitarstjómarlaga talist markleysa. Samhljóða yfírlýsing í bæjarráði dugi til að veita ábyrgð sveitarfélags eða ella þurfí til ákvörð- un meirihluta bæjarstjómar. Bæjarstjóri og embættismenn sveit- arfélags geti hins vegar ekki skuld- bundið sveitarfélag við ábyrgðir án samþykktar kjörinna fulltrúa, sam- kvæmt ákvæðum sveitarstjómarlaga. hafí þótt varlegra að fá það staðfest að bæjarábyrgð Hafnarfjarðar stæð- ist. Sagði hann að bréfíð hefði verið keypt í trausti þess að svo væri. Þórami var ókunnugt um hvort sú staðfesting hefði fengist en skv. heimildum Morgunblaðsins kemur fram í svari bæjarlögmanns Hafnar- fjarðar að bærinn standi við þá yfír- lýsingu sem fylgi skuldabréfínu. Abyrgð bæjarins hafí tekið til þess, að sjá um að greiðslur skv. tilteknum verksamningi rynnu til greiðslu á skuldabréfinu.. Þar sem Hagvirki- Klettur væri nú gjaldþrota yrði ekki af þessu greiðslufyrirkomulagi og bæjarsjóðurinn tæki ekki á sig frek- ari ábyrgð en yfírlýsingin kvæði á um. endum spariskírteina skiptikjör, sérstaklega þegar stór innlausn ætti sér stað. Friðrik sagði að lánskjörin væru í samræmi vð vaxtastefnu ríkis- stjórnarinnar og fælu í sér vaxta- lækkun um 0,7-1,75% á ári frá þeim flokki sem til innlausnar kemur. VEÐRIÐ hnippti aðeins í íbúa höfuðborgarsvæðisins í gær og fyrradag þegar gerði strekk- ingsvind og snjókomu, þótt kannski sé ofmælt að tala um blindbyl. Að sögn lögreglu virt- ust vegfarendur kunna fótum sínum forráð og var umferðin „ÞAÐ er ekki hægt að segja að Íiarna hafí verið um að ræða eðli- ega viðskiptahætti af hálfu hvor- ugs aðilans en ég sé ekki að bæjar- ráð geti gert mikið í því sem þeg- ar er orðin, staðreynd," sagði Magnús Jón Árnason, bæjarstjóri í Hafnarfírði, í samtali við Morg- unblaðið í gær um skýrslu þá sem Löggiltir endurskoðendur hf. hafa gert um úttekt sína á viðskiptum Hagvirkis Kletts hf. við Hafnar- fjarðarbæ. Skýrslan hefur ekki verið lögð fram og að sögn Magn- úsar Jóns hafa aðeins einstakir bæjarfulltrúar hana undir hönd- um. Magnús Jón sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki vilja að svo stöddu tjá sig í einstökum Tilboðið mun standa frá 10.-20. febrúar og geta þeir aðilar sem nýta sér skiptikjörin valið milli 5 og 10 ára spariskírteina af útgáfu ársins 1995 og útgáfu 1994 meðan birgðir endast en af lánstíma þeirra eru eftir 4 og 9 ár. Friðrik Sophusson áréttaði að slysalítil. Ýmsir höfðu samt ama af, enda skyggni takmarkað og skaflar fljótir að myndast, eins og bíleigandi nokkur og farþegi hans komust óþyrmilega að raun um þegar ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á þá við Elliðavatn. atriðum um efni skýrslunnar eða tillögur sínar til bæjarráðs vegna hennar. Um það með hvaða hætti hann teldi eðlilegt að leita niðurstöðu í málinu sagði Magnús Jón Árnason vandséð hvernig með það eigi að fara. „Þama er víða pottur brotinn en það er spuming hvað það hefur upp á sig að vera að eltast við það,“ sagði Magnús Jón Ámason. „Þetta er ein af mörgum skýrslum seny við báðum um þegar við ákváðum að fara ofan í viðskipti bæjarins við nokkur fyrirtæki sem höfðu verið áberandi. Þetta kemur reyndar heldur seint en ég get ekki svarað því á þessu stigi hvað menn gera með þetta frekar," sagði Magnús Jón Árnason. 10. febrúar verði 10 milljarðar króna til ráðstöfunar á lánsfjár- markaði. Fjölbreytni á markaði hafi stóraukist þau 5 ár sem liðin væru frá útgáfu spariskírteinanna og muni ríkissjóður jafnframt bjóða þeim eigendum þeirra, sem þess óska, að skipta þeim í ECU-tengd spariskírteini og ríkisvíxla að eigin vali, á útboðskjörum Lánasýslu rík- isins. Friðrik kvaðst telja líklegt að hluti ofangreindra 10 milljarða muni leita inn á húsbréfamarkaðinn og valda þar tímabundinni vaxta- lækkun, allt eftir þeirri fjárhæð sem á þann markað leiti. ■ Ég mun berjasttil þautar ►Jón Baldvin Hannibalsson, utan- ríkisráðherra og formaður Alþýðu- flokksins, ræðir stöðu flokksins og sj ómmálaviðhorfín. /10 Heilagt stríð ►Jóhn Salvi myrti tvær konur í Boston með guð að leiðarljósi. Hryðjuverk Salvis er óhugnanleg- asti verknaðurinn í baráttu and- stæðinga fóstureyðinga til þessa./13 Pappírslaust Morgun- blað hvern dag ►Með hagnýtingu nýjustu tölvu- tækni geta blindir nú hlustað á texta Morgunblaðsins daglega og þeir sem hafa aðgang að tölvu- kerfí Internets geta auðveldlega nálgastefni blaðsins./16 Hugvit á heimsvísu ►Ýmsir aðilar innan hugbúnaðar- kerfisins hafa sóst eftir styrkjum eða aðstoð frá hinu opinbera án þess að hljóta hljómgrunn. Þrátt fyrir þetta hefur atvinnugreinin náð að blómstra./18 Pólitíkin er lífið ►Sigurgeir Sigurðsson hefur haldið um stjórnartaumana á Sel- tjarnesi hálfa lífævi sína, eða í þrjátíu ár./20 Kortin í kjallaranum ►í Viðskiptum og atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Eyþór Sig- mundsson, sem hefur haslað sér völl á sviði póstkortaútgáfu./22 B ► 1-32 Þjóðerni og tilviljanir ► Hann er sambland af ýmsum þjóðernum, en býr nú í Þrándheimi í Noregi, þar sem hann starfar sem læknir. Hann er með íslenskan rík- isborgararétt og nafnið hefur hann frá afa sínum Vilhjálmi Finsen, stofnanda Morgunblaðsins./l Erfið verkefni eru ögrandi ►Kiddi „bigfoot", sem rekur Dejá vú, Tunglið ogRósenbergkjallar- ann, ásamt félögum í Pizza 67, hefur átt þátt í að breyta ímynd margra skemmtistaða./12 Bridssvanurinn ►Sagt er að áhugi íslendinga á brids sé óvenju mikill miðað við aðrar þjóðir. Hér fylgjumst við með námskeiði í Bridgeskólan- um./14 Átak á nýju ári ►Margir nota upphaf nýs árs sem hvatningu til að drífa sig í líkams- rækt./30 C BÍLAR___________________ ► 1-4 Bíll ársins ►Fiat Punto var kjörinn bíll ársins 1995 í Evrópu af evrópskum bíla- blaðamönnum./l Reynsluakstur ►Kraftmikill Dodge Ram með ýmsum þægindum. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Bréf til blaðsins 36 Leiðari 26 Velvakandi 38 Helgispjali 26 Fólk í fréttum 40 Reykjavikurbréf 26 Bíó/dans 42 Minningar 28 Útvarp/sjónvarp 48 Myndasögur 86 Dagbók/veður 51 Brids 36 Mannlífsstr. 6b Stjömuspá 36 Dægurtónlist lOb Skák 36 Kvikmyndir llb INNLENDARFI ÉTTIR: 2—4—8—BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4-6 Hagvirki-Klettur VSÍ keypti skuldabréf Eigendum spariskírteina fyrir 10 milljarða króna býðst skiptiuppbót Heildarávöxtun 5,3% með uppbót Magnús J. Ámason um úttekt endurskoðenda Ekki verið eðlileg- ir viðskiptahættir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.