Morgunblaðið - 08.01.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.01.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 17 netið. Efnið er meðhöndlað sérstak- lega í hvoru tilviki fyrir sig. Þannig eru greinar og fréttir flokkaðar í efnisflokka sem birtast í valmynd blaðsins á Interneti. Við hvern efn- isflokk er tilgreint hversu margar fréttir eða greinar hann geymir hveiju sinni. Þegar lesandinn velur sér efnisflokk birtast honum fyrir- sagnir og með því að velja eina þeirra fær hann texta greinarinnar eða fréttarinnar. Þessi þjónusta hefur vakið mikla athygli víða um heim. Um hádegi síðastliðinn föstudag höfðu alls 465 aðilar víðs vegar á hnettinum lesið blaðið á netinu, sumir oft, aðrir sjaldan. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvaðan lesendurnir eru. Margir hafa sett sig í samband við Streng hf. bæði til að leita upp- lýsinga og tjá álit sitt á þessari nýbreytni. Flestir þeirra eru utan- lands og lýsa yfirleitt allir ánægju sinni með þetta framtak og finnst gott að geta lesið nýjustu fréttir að heiman. Aðgangur að blaðinu er ókeypis og öllum heimill til 1. febrúar næst- komandi. Þá verður farið að selja áskrift og á hún að kosta 1.500 krónur. Nokkrir hafa gert athuga- semd við þetta og finnst ýmist þjón- ustan vera of dýr eða að hún eigi að vera ókeypis. Það kostar jú ekk- ert að setja þetta á Internetið, segja menn. Haukur Garðarsson, fram- kvæmdastjóri Strengs hf., segir að það sé misskilningur að þetta kosti ekki neitt. Það villi mönnum sýn að á Internetinu er ókeypis aðgang- ur að miklum hafsjó upplýsinga. „Upplýsingar kosta það sem kostar að búa þær til,“ segir Haukur. „Þær upplýsingar sem eru ókeypis á net- inu eru gjarnan frá stofnunum sem ná kostnaðinum öðruvísi en með því að innheimta.hann af notendum Internets. Þær eru þá kostaðar af skattborgurum eða á annan hátt. Það hefur kostað mikla fiármuni að koma Morgunblaðinu á Internet- ið og ekkert óeðlilegt að lesendur greiði þann kostnað, rétt eins og hefðbundna áskrift. Til að gera þetta kleift höfum við hjá Streng hf. fjárfest í öflugum tölvubúnaði, tengibúnaði, samskiptahugbúnaði og fleiru. Við erum með starfsfólk sem sér um að þetta sé í lagi og svo kostar sitt að reka kerfið, leigja samband hjá Pósti og síma og fleira mætti telja. Svo má ekki gleyma því að það kostar heilmikið að búa Morgunblaðið til. Blaðamennirnir gera það ekki í sjálfboðavinnu!" Þróunin heldur áfram Það sér ekki fyrir endann á tækniþróuninni. Þeim hjá Streng hf. varð tíðrætt um þá möguleika sem opnuðust þegar það verður fjárhagslega kleift að nýta sér öfl- ugra tölvusamband við umheiminn. Nú er notast við 128Kb samband, vegna þess að annað er ekki fjár- hagslega kleift, en til að þjóna not- endum sem best þyrfti að verða fjárhagslega mögulegt að nota 2Mb samband sem hefur margfalda flutningsgetu. Þetta ræðst af verð- lagningu hjá Pósti og síma að sögn þeirra hjá Streng hf. Stöðugt er verið að skoða nýja möguleika. Þannig má nefna að skipstjórnarmenn hafa óskað eftir því að fá Morgunblaðið sent um borð daglega og eru þeir hjá Streng hf. að kanna möguleika á því. soniGsn/iiDJAiu A U G L Y S I R : NU 6ETA ALLIR LÆRT AÐ SYN6JA unqir sem aldnir, laqlausir sem laqvísir. z z o PC FYRIR FOLKA ÖLLUM ALDRI! NU GETAALLIR HALDIÐ ÁFRAMAÐ LÆRAAÐSYN6JA! Byrjendasnámskeið: Námskeið fyrir unga sem aldna, laglausa sem lagvísa. Söngkennsla í hóp. Þátttakendur fá grunnþjálfun í raddbeitingu, réttri öndun og ýmsu fleiru sem hjálpar þeim að ná tökum á söngröddinni. Framhaldsnámskeið: Fyrir fólk á öllum aldri, fyrir þá sem hafa verið á byrjendanámskeiði hjá Söngsmiðjunni eða í öðru sambærilegu námi. Einnig fyrir kórfólk sem vill bæta söngkunnáttuna. Þátttakendur fá þjálfun í raddbeitingu og líkamsburði (læra að virkja röddina, rétta líkamsbeitingu og rétta öndun). Unnið er með létta og skemmtilega tónlist sem sungin er í hóp. Einsönqsnám (klassískt oq sönqleikja): Fyrir þá sem hafa hæfileika, iöngun og metnað til að leggja út á einsöngvarabraut, er boðið upp á einstakt tækifæri til náms. Klassísk deild, en einnig er boðið upp á kennslu fyrir þá sem ætla að leggja fyrir sig aðrar tegundir tónlistar. Sönqkennsla/raddþjálfun (4 í hóp): Möguleiki á að ljúka I-III stigi í söng. Kennslulýsing: Söngkennsla (öndun, raddbeiting), einstaklingskennsla og hlustun. Einnig er möguleiki á tímum með undirleik og tónfræði/tónheym. Verkefni yngri nemenda er „hippatíniabilið“ og eldri nemendur flytja perlur úr ýmsum frægum söngleikjum. Kennd er raddbeiting, leikræn tjáning, hreyfing, tónfræði og tónheym. Nemendur fá tækifæri á að kynnast heimi leikhússins, þar sem unnið er að hinum ýmsu sýningarverkefnum. Kórhópur sem syngur „gospel", ásamt tónlist af ýmsum toga. Stjómandi er Esther Helga Guðmundsdóttir. SONGLEIKJASMIÐJA Námskeiðin eru aldursskipt frá fimm ára aldri. Krakkarnir fá grunnþjálfun í söng, leik, hreyfingu, tónheyrn og ýmsum táknum í tónlistinni. Unnið að þátttöku í tónleikum og sýningu að loknu námskeiði. Kennsla hefst mánudaginn 16. janúar 1995 Söngleikjadeild (byrjendur oq framhaid) Sönghópur Söngsmiðjunnar Barna- og unglingadeild Upplýsingar og innritun í síma: 612455 Fax 612456 eða á skrifstofu skólans, Skipholti 25, Reykjavík, alla virka daga frá kl. 10.00-18.00. SÖIUGSIVIIÐJAIU Skipholti 25 Faxafeni v/Suðurlandsbraut SERVERSLUNMEÐ STOK TEPPI OG MOTTUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.