Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 4

Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 4
4 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 1/11-7/1 MjsÆÉL INNLENT ►TOGARARNIR Hólma- nes og Hólmatindur í eigu Hraðfrystihúss Eskifjarð- ar hf. fóru ekki til veiða í byrjun vikunnar en áhafnir skipanna hafa krafist leiðréttingar á fis- kverði. Fimmtán manns eru í áhöfn hvors skips. Sjómennimir telja að það verð sem þeir hafa fengið hafi verið nokkuð lægra en það meðalverð sem fiskverkendur í landinu hafa greitt fyrir hráefni af eigin skipum. ►Lánsfjárþörf ríkissjóðs og byggingarsjóða Hús- næðisstofnunar er 18-19 milljarðar kr. fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Tæplega 10 milljarða má rekja til flokks fimm ára spariskírteina frá 1990 sem kemur til innlausnar í febrúar. ►EFTIRLITSSTOFNUN EFTA hefur sent fjár- málaráðuneytinu bréf þar sem gerðar era athuga- semdir við þá mismunun sem erlendir bjórfram- leiðendur sæta við verð- lagningu hjá Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins. Ofan á cif-verð innflutts bjórs er lagt 35% auka- gjald áður en önnur álagning kemur til. Fjár- málaráðherra segir að gjaldið leggist af við af- nám einkaréttar á áfeng- isinnflutningi en með sér- stakri ákvörðun hljóti frumvarpið ekki sam- þykki. Innfluttur bjór gæti lækkað að meðaltali um 12% í verði við afnám gjaldsins. Sóst eftir hlutabréf- umí ÚA STJÓRN KEA á Akureyri hefur lýst sig reiðubúna til að kaupa 30-35% hlut í ÚA af Akureyrarbæ sem á 53% hlut í fyrirtækinu. KEA á nú 8% hlut í ÚA en með slíkum kaupum ætti KEA ráðandi meirihluta í fyrirtæk- inu. Yfír 80% hluthafa íslenskra sjáv- arafurða er því hlynntur að ÍS flytji höfuðstöðvar sínar svo fremi sem um það tekst samstaða að ÍS bjóðist öll viðskipti við ÚA. Þrír aðilar hafa því óskað eftir viðræðum við Akur- eyrarbæ um kaup á hlut hans í ÚA en útgerðarfélagið Samheiji hf. hefur lýst sig reiðubúið að kaupa allan hlut bæjarins. Atkvæðagreiðsla um kennaraverkfall FULLTRÚARÁÐ Kennarasambands íslands og Hins íslenska kennarafé- lags ætla að efna til atkvæða- greiðslna um boðun verkfalls meðal félagsmanna sinna. Verði verkfalls- boðunin samþykkt hefst verkfall í öllum grunn- og framhaldsskólum landsins 17. febrúar ef ekki semst fyrir þann tíma. Atkvæðagreiðslan nær til 5.000 félagsmanna í báðum kennarafélögunum. Drög að tilvísana- kerfi kynnt SIGHVATUR Björgvinsson heil- brigðisráðherra hefur kynnt læknum drög að reglugerð um nýtt tilvísana- kerfi í heilbrigðisþjónustunni. Ráð- herra hyggst koma aftur á tilvísunum til sérfræðinga. Fari sjúklingur til sérfræðings eftir að tilvísanakerfi verður komið á greiðir hann fullan kostnað vegna heimsóknarinnar. Ráðgert er að þessi breyting skili um 100 millj. kr. spamaði á ári. Hörð mótmæli hafa komið fram við tilvís- anakerfíð frá félögum í Læknafélagi Reykjavíkur. Mannskæðar árásir á Grosní gagnrýndar BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, kvaðst á föstudag vilja að ákveðið yrði hvaða dag hemaðaraðgerðunum í Tsjetsjníju yrði hætt og krafðist skýrslu um hvort fyrirmælum hans um að stöðva loft- árásirnar á Grosní, höfuðstað uppreisn- arhéraðsins, hefði verið hlýtt. Jeltsín sagði þetta á fundi með Öryggisráði Rússlands, sem æðstu embættis- menn á sviði örygg- ismála eiga sæti í. Haft var eftir rússneskum þingmanni, Ajvars Lezd- insh, að loftárásunum hefði verið haldið áfram þrátt fyrir tilmæli for- setans og að úrvalssveit rússneskra hermanna væri á leið til Grosní frá höfuðstöðvum hersins í grennd við borgina. Hart var barist um borgina í vikunni sem leið og sættu aðgerðirn- ar vaxandi gagnrýni vestrænna leið- toga, sem hörmuðu mannfallið meðal óbreyttra borgara. Varað við hruni fiski- stofna í Norðursjó FISKISTOFNAR em í bráðri hættu í fiskveiðilögsögu Evrópusambands- ins (ESB) og breytinga er þörf á sjáv- arútvegsstefnu þess ef næsta kynslóð á að geta notið þorsks og ýsu, að sögn ráðgjafarnefndar Johns Majors, forsætisráðherra Bretlands, á fímmtudag. Hún spáir því að fiski- stofna í Norðursjó og írlandshafi bíði að óbreyttu álíka hrun og varð við Nýfundnaland fyrir tveim árum. ►REPÚBLIKANAR tóku formlega við völdum á Bandaríkjaþingi á mið- vikudag og er þetta í fyrsta sinn í 40 ár sem þeir hafa meirihluta í báðum þingdeildunum. Newt Gingrich, nýr for- seti fulltrúadeildarinnar, boðaði miklar umræður um nýja áætlun repúblik- ana, „Samning við Banda- ríkin“. ►TALSMENN PLO, Frelsissamtaka Palest- ínumanna, sögðu á þriðju- dag að friðarsamningarn- ir við Israela hlytu að fara út um þúfur þar sem nú væri ljóst að Israelsstjórn ætlaði sér ekki að stöðva nýbyggðir gyðinga á Vesturbakkanum. Isra- elsstjórn bannaði bygg- ingu 500 íbúða í grennd við palestínska þorpið al- Khader en leyfði hana nálægt gyðingabyggðinni Efrat í sama héraði. ►IVAN Johansen, sjáv- arútvegsráðherra Fær- eyja, vinnur að því ásamt Iandstjórninni allri að af- nema tiltölulega nýsett lög um framseljanlega kvóta. Segir hann þau erfið í framkvæmd og vill taka upp sóknarmark í staðinn. ►SAMEINUÐU þjóðirn- ar hafa óskað eftir 6.000 friðargæsluliðum til við- bótar í Bosníu til að hafa eftirlit með fjögurra mán- aða vopnahléi sem sam- þykkt var á gamlársdag. FRÉTTIR Guðmundur Árni Stefánsson fyrrverandi bæjarstjóri Sýnir skilningsleysi á þörfum atvinnulífs GUÐMUNDUR Ámi Stefánsson, fyrrv. bæjarstjóri í Hafnarfirði, vís- ar því algerlega á bug að viðskipti Hagvirkis-Kletts hf. við Hafnar- fjarðarbæ bijóti í bága við ákvæði sveitarstjómarlaga. Niðurstaða endurskoðunarfyrirtækisins Lög- giltir endurskoðendur hf. er sú, að ábyrgðaveiting bæjarsjóðs á víxl- um sem Hagvirki-Klettur var greiðandi að í árslok 1992 og byij- un árs 1993 bijóti á bága við 89. gr. sveitarstjómarlaga. „Ég hef ekki séð þessa skýrslu og get ekki svarað einstökum efn- isatriðum en mér finnst þetta mál endurspegla fullkomlega skiln- ingsleysi núverandi meirihluta á þörfum atvinnulífs og eðli sam- skipta bæjarins við stór atvinnu- fyrirtæki í bænum. Það er áug- ljóst mál að þessi meirihluti er að sprengja sig innan frá,“ segir hann. „Þarna snýr málið ekki að Alþýðuflokknum heldur einum bæjarfulltrúa meirihlutans," segir hann ennfremur. Guðmundur Árni neitar því að um ábyrgðarveitingar hafi verið að ræða heldur fyrirframgreiðslu upp í verk til fyrirtækisins. Hag- virki-Klettur hefði um árabil verið með stórverkefni fyrir Hafnar- fjarðarbæ sem það hefði fengið vegna hagstæðra tilboða. „Þegar Dæmi um að reglum er ekki fylgt MAGNÚS Gunnarsson, forseti bæjarráðs í Hafnarfirði og oddviti sjálfstæðismanna, segir að skýrsla Löggiltra endurskoðenda hf. um úttekt á viðskiptum Hagvirkis- Kletts og Hafnarfjarðarbæjar sé enn eitt dæmið Um að menn hafi ekki virt þær reglur sem þeim sé gert að starfa eftir sem sveitar- sljórnarmenn. „Þessi skýrsla er alls ekki góð. Hún verður lögð fyrir bæjaráð en ég á eftir að mynda mér skoðun á framhaldi málsins,“ sagði Magn- ús. Hann sagðist þurfa að átta sig betur á efni skýrslunnar áður en hann gæti tjáð sig um það hvaða kostir væru í stöðunni. meirihluti Alþýðuflokksins fór frá var þetta fyrirtæki í stórum verk- efnum. Ef ekki hefði til þess kom- ið að þetta fyrirtæki var rekið í gjaldþrot og bæjarsjóður gerði ekkert til' að koma í veg fyrir það, þá hefði verið leikur einn að ná inneign bæjarins til baka,“ seg- ir hann. „Það er augljóst að þessi endurskoðunarkontór hefur ekki nokkurn skilning á því hvernig gangur mála er hjá sveitarfélög- um,“ segir hann ennfremur. Viðskipti ganga ekki öll í gegnum bæjarráð Hann segir það einnig rangt að „bæjarráði hafi ekki verið kunnugt um gangverkið í þessum málum“, eins og hann orðaði það. „Oft og iðulega voru þessi málefni fyrirtækisins mjög opinskátt til umræðu í bæjarráði,“ segir hann. Aðspurður hvort umræddar sam- þykktir hefðu ekki verið afgreidd- ar formlega í bæjarráði sagði hann að það gæfi augaleið að bæjarsjóð- ur ætti í viðskiptum við fjölda aðila og þau gengju ekki öll í gegn- tim bæjarráð. í Slippnum ÞÓTT trébátum í flota lands- eiga tréskipin sjálfsagt eftir að manna hafi farið ört fækkandi sigla marga báruna enn, þar á undanfarna áratugi fer því fjarri meðal þessi trébátur sem þessa að slík för heyri sögunni til. Með dagana er í klössun í slipp í hæfilegu viðhaldi og endurbótum Reykjavík. ÁKVEÐIÐ hefur verið að endurtaka forval á lista Kvennalistans í Reykja- neskjördæmi fyrir Alþingiskosning- arnar í vor þar sem Kristín Halldórs- dóttir, fv. þingkona, hefur tekið áskorun um að gefa kost á sér. Að sögn Helgu Siguijónsdóttur, oddvita Kvennaiistans í Kópavogi, var búið að samþykkja á félagsfundi að láta forval sem þegar hefur farið fram gilda. Þar var Helga í efsta sæti. Helga mun ekki segja sig úr flokknum vegna þessa en hún mun ekki taka þátt í forvali á ný. „Þetta eru ekki fyrst og fremst sárindi vegna eigin persónu," sagði Helga. „Eg er innilega sorgmædd vegna þess hvernig þessi kvenna- hreyfing er að fara. Hreyfing sem ætlaði sér að standa uppúr hvað varðaði heilindi og heiðarleg vinnu- brögð.“ Helga sagðist telja að þarna væri á ferð hópur sem ekki sætti sig við lýðræðislegar ákvarðanir. Forval Kvennalista í Reykjanesi endurtekið Kristín Hall- dórsdóttir tekur áskorun Jóhann G. Bergþórsson 1 bréfi til bæjarráðs Hafnarfjarðar Bærinn hagnaðist um 170 milljónir króna í NÝLEGU bréfi til bæjarráðs Hafn- arfjarðar um uppgjör Hagvirkis- Kletts hf. við bæjarsjóð Hafnarfjarð- ar kemst Jóhann G. Bergþórsson bæjarfulltrúi og fyrrv. fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins að þeirri niðurstöðu að bæjarsjóður Hafnar- fjarðar hafi ekki tapað krónu á við- skiptum sínum við fyrirtækið, heldur þvert á móti haft af þeim ómældan hag. Jóhann bendir á í bréfi sínu að ef skoðaður sé mismunurinn á tilboð- um Hagvirkis og síðar Hagvirkis- Kletts í þau verkefni sem þau hafi unnið gegnum tíðina fyrir bæjarsjóð og á næstlægstu tilboðum sem í verkin bárust nemi hagnaður bæjar- sjóðs af þessum viðskiptum rúmlega 170 milljónum króna. Jóhann telur að samkomulag skiptastjóra þrotabús Hagvirkis- Kletts hf. og Hafnarfjarðarbæjar hafi ekki verið í samræmi við eðlilegt uppgjör við starfandi fyrirtæki, held- ur til þess gert að unnt sé að selja eignir þrotabús án tillits til raunveru- legrar stöðu viðskiptareiknings við fyrirtækið. Tekur hann dæmi um ýmis viðskipti fyrirtækisins við Hafn- arfjarðarbæ og bendir m.a. á að aldr- ei hafi verið gengið til endanlegs uppgjörs vegna byggingar safnaðar- heimilis og tónlistarskóla. Greiddur kostnaður fyrirtækisins vegna fram- kvæmdanna umfram greiðslur frá bæjarsjóði hafi numið rúmum 38 millj. kr. án virðisaukaskatts við gjaldþrotið og úr þessu verði aldrei afgreitt, hversu mikið af þessurn kosntaði Hagvirki-Klettur hafi átt rétt á að fá endurgreitt. Segir hann að leiða megi rök að því að bæjarsjóður hafi hagnast á gjaldþrotinu en ekki tapað, sé horft fram hjá hagnaði bæjarsjóðs af öflugum atvinnurekstri og tekjum af útsvari starfsmanna. > I > I > > 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.