Morgunblaðið - 08.01.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.01.1995, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Markaðsátak Lands- Kirkjuferð sambands veiðifélaga Utivistar Landssamband veiðifélaga og nokkrir leigutakar lax- og silungs- veiðiáa hafa tekið höndum saman og hleypt af stokkunum átaki í markaðssókn. Er spjótunum einkum beint að erlendum veiðimönnum. Hópurinn hefur látið hanna og prenta möppu með upplýsingum um 14 lax- og silungsveiðistaði. Allt er á vönduðum pappír og litprentað, unnið af Rafni Hafnfjörð sem er kunnur af vejðimennsku sinni og ljósmyndun. Átak þetta kemur í beinu framhaldi af ört minnkandi sókn innlendra sem erlendra veiði- manna í íslenskar ár hin seinni ár og náði sú þróun hugsanlega há- marki síðasta sumar. Þá var einnig víða aflabrestur í ám þannig að ástandið var fjarri því gott. Deilur Ekki hefur farið hjá því, að deilur hafa verið uppi um framtak landeig- enda og leigutakanna sem um ræð- ir. Hafa einkum forráðamenn hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur gagnrýnt átakið og sagt það benda til þess að bændur og einstakir leigu- takar vilji beija hausnum við stein ef vera skyldi að takast mætti að halda við lýði of háu verði veiði- leyfa. Það þurfí að lækka veiðileyfí og SVFR hefur einmitt unnið ötul- lega að því að ná þeim markmiðum á veiðisvæðum þeim sem félagið hefur á leigu eða í umboðssölu. Hafa forráðamenn SVFR gefið í skyn að markaðsátak ofangreindra bendi eindregið til þess að litið sé á íslenska veiðimenn sem annars flokks viðskiptavini, en benda á, að bændur gætu aldrei „botnselt" ár sínar ef innlendir veiðimenn væru ekki til staðar til að kaupa dreggj- arnar af veiðitímanum, þ.e.a.s. þann tíma sem erlendir auðkýfíngar líta ekki við, júní, ágúst og september. Böðvar Sigvaldason á Barði í Mið- fírði, formaður Landssambands veiðifélaga, sagði í samtali við Morg- unblaðið að langur vegur væri að LANGÁ er ein þeirra áa sem kynntar eru í möppunni sem um ræðir. Hér eru þeir Runólf- ur Ágústsson, einn leigutaka árinnar, t.v. og „Toni“, ræðis- maður íslands í Puerto Rico, með 16 punda fisk úr Gianna. því að hér væri um aðför að íslensk- um veiðimönnum að ræða. Þeir hefðu alltaf verið og yrðu vonandi enn um sinn mikilvægustu og trygg- ustu viðskiptavinir veiðiréttareig- enda. „Hins vegar hefur framboðið aukist en eftirspum minnkað vegna sérstakra aðstæðna. Við erum svona að athuga hver viðbrögð verða við þessu, hvort möguleiki sé á því að auka eftirspumina með því að leita að nýjum markhópum. Þar fyrir utan þá telst það vera nýmæli að leigutak- ar og veiðiréttareigendur þjappi sér saman um eitthvað. Yfírleitt hefur það fremur verið þannig að menn hafa haldið spilunum fast að sér og troðið skóinn hver af öðrurn," sagði Böðvar. Sem fyrr segir eru fjórtán veiði- vötn kynnt í möppunni sem um ræð- ir og hefur hvert svæði eitt laust blað í möppunni. Flestar eru mynd- irnar eftir Rafn Hafnfjörð og konu hans Kristínu Jóhannsdóttur. Svæð- in sem um ræðir eru Flekkudalsá, Laxá í Kjós, Kvíslaveitur (nieð Þóris- vatni og Köldukvísl), Laxá í Þingeyj- arsýslu, urriðasvæðið, Langá, Grímsá, Vatnsdalsá laxasvæði, Vatnsdalsá, silungasvæði, Víðidalsá, Miðfjarðará, Hítará, Laxá í Dölum og Rangárnar. Það er einnig ný- mæli að silungsveiði á íslandi sé borin á borð sem söluvara fyrir er- lenda veiðimenn. AÐ VENJU verður fyrsta dagsferð Útivistar á nýju ári, nýjárs- og kirkjuferð. Fyrst er gengin gamla þjóðleiðin að Krísuvíkurkirkju en hún er fyrsta kirkjan sem heimsótt er í hinum árlegu nýjárs- og kirkjuferðum fé- lagsins. Áð því loknu verður ekið til Hafnarfjarðar og fjallað um kirkjur sem íbúar Hafnaríjarðar hafa sótt í gegnum aldirnar. Komið verður við á kirkjustæðum og kirkj- ur heimsóttar. Kl. 14 verður farið til messu að Görðum hjá sr. Braga Friðrikssyni, prófasti. Þaðan verður gengin göm- ul alfaraleið niður í Hafnarfjörð. Farið verður frá Umferðarmið- stöðinni kl. 10.30 á sunnudaginn 8. janúar. Stoppað verður á Kópa- vogshálsi við Ásgarð í Garðabæ og við Sjóminjasafnið í Hafnar- firði. Þar kemur Kristján Bersi Ólafsson, skólameistari, í rútuna og verður fylgdarmaður hópsins í ferðinni. Áætlað er að koma til baka að Umferðarmiðstöðinni um kl. 18. ------» ♦ «----- Jafnaðarmannafélag Islands Lýsir stuðningi við Þjóðvaka Jafnaðarmannafélag íslands hef- ur samþykkt stuðning við Þjóðvaka og hvetur meðlimi sína til að taka þátt í stefnumótun og starfi flokks- ins. Þetta var samþykkt á félagsfundi Jafnaðarmannafélags íslands á fimmtudagskvöld og í samþykktinni er einnig skorað á alla íslenska jafn- aðarmenn og fijálslynda að fylkja sér um framboð Þjóðvaka í kom- andi kosningum. Jafnaðarmannafélag íslands var stofnað á síðasta ári og sótti um inngöngu í Alþýðuflokkinn. Sú inn- ganga var samþykkt með því for- orði að félagið breytti um nafn en af því varð ekki. Félagið hvatti í haust til stofnunar nýrra stjórn- málasamtaka undir forustu Jó- hönnu Sigurðardóttur. Framkvæmdastjóri Hljóðvarps hættir Lífið býður upp á margt Elfa Björk Gunnarsdóttir ELFA Björk Gunn- arsdóttir settist við skriftir á nýársdag og skrifaði uppsagnarbréf með nýja lindarpennanum sínum. Hún hættir störfum 1. apríl næstkomandi. Hvers vegna sagði hún upp sem framkvæmdastjóri Ríkisútvarpsins - Hljóð- varps? „Þann 1. febrúar verð ég búin að vera í þessu starfi í tíu ár. Þetta hefur verið gífurlega gaman og mjög lærdómsríkt en ég hef haft það í huga í nokk- ur ár að breyta til. Á mín- um aldri er eðlilegt að hugsa út í það að annað- hvort lætur maður verða af því _ um fímmtugt eða ekki. Ég er æviráðin og gæti þess vegna verið 19 ár í viðbót!“ - Hvað tekur nú við hjá þér? „Ég er ekki komin með annað starf, er bara laus! Ég get veitt mér það að fara í virkilega langt og gott frí, jafnvel allt upp í eitt ár. Mig hefur dreymt um að fara aftur í nám, ég er ein af þeim sem geta alltaf verið að læra. Mér finnst lífið hafa upp á svo margt að bjóða. Mér fínnst að ef það er einhver leið og maður getur veitt sér það þá sé skemmtilegra að fá fleiri Iiti í lífíð. Þetta er því mjög jákvætt." - Svo þér fannst bara tímabært að hætta? „Já, mér fínnst eðlilegt að það séu tímabundnar ráðningar í svona stöður, þótt auðvitað séu skiptar skoðanir um það. Svo er víðast hvar við erlendar útvarpsstöðvar. Menn eru þar gjaman í sex eða átta ár. Mér finnst eðlilegt að fólk sé bara visst árabil í svona erfiðum störfum og svo fái aðrir tækifæri." - Þú hefur flutt þig til á tíu ára fresti? „Já, þetta er eitthvað í persónu- leikanum. Ég kom heim eftir tíu ára dvöl við nám og störf í Svíþjóð og fór þá að starfa hjá Borg- arbókasafninu. Ég byijaði þar með hljóðbókasafn sem nú er Blindra- bókasafn. Við unnum býsna kraftmikið í safninu og vorum að breyta því í nútímastofnun. Ég held að það hafí tekist, að ein- hveiju leyti að minnsta kosti. Svo þegar ég var búin að vera borgar- bókavörður í sjö, átta ár fór ég að leita mér að öðru starfi. Fór virkilega að óróast! Ég er mjög ánægð yfir að ég skyldi hætta að vera borgarbókavörður og fara í Útvarpið. Það var mikið ævintýri!" - Þekktir þú eitthvað til Út- varpsins þegar þú gerðist fram- kvæmdastjóri þess? „Já, ég var þar meira segja sem barn. Ég var í barnatímarium hjá Skeggja [Ásbjamar- syni]. Maður kom með bókina sína grafalvarlegur og sett- ist inn í stúdíóið og beið eftir græna Ijósinu. Svo var ég á auglýs- ingadeildinni og innheimtunni. Þetta var allt áður en ég flutti til Svíþjóðar." - Nú varstu æviráðin og hefðir getað setið lengi enn. Hvað finnst þér um æviráðningar? „Ég skoðaði svolítið ráðningar- reglur yfírmanna hjá ríkinu fýrir nokkrum árum og mér fínnst ástæða til að samræma þær. í sum- um stofnunum gildir æviráðning, í öðrum eru menn ráðnir um ákveð- inn tíma og hægt að endurráða þá, sem oft reynist æviráðning í raun. Svo em líka dæmi um að menn séu ►Elfa Björk Gunnarsdóttir er fædd 29.9.1943 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1965. Nam bókmenntasögu, ensku og enskar bókmenntir við Stokkhólmsháskóla 1966-71. Útskrifaðist sem bókasafns- fræðingur frá Stockholms Stadsbiblioteks biblioteksskola 1973. Elfa var deildarstjóri á Borgarbókasafni Reykjavíkur 1974- 75 og vann meðal annars að uppbyggingu hljóðbókasafns Borgarbókasafnsins og Blindra- félagsins, sem nú er Blindra- bókasafn Islands. Hún var borg- arbókavörður í Reykjavík 1975- 85 og gerðist þá fram- kvæmdasljóri Ríkisútvarpsins - Hljóðvarps. Elfa hefur átt sæti í fjölda stjórna og nefnda, með- al annars í stjórn SinfóníuhUóm- sveitar íslands frá 1986 og Krabbameinsfélags íslands frá 1989. ráðnir eitt, eða í hæsta lagi tvö tímabil. Ég var í stjóm Félags for- stöðumanna ríkisstofnana. Þar varð ég vör við að marga langar eðlilega til að skipta um eftir mörg ár í sama starfí. Manneskjan er þannig að hún kemur að nýju starfí full af orku og vinnur vel, en síðan kemur þreyta og þá er tímabært að skipta um. En það er svo erfitt, sérstaklega ef það þýðir að menn þurfa að fara í lægri stöðu. Þetta verður til þess að það er allt of mikið af þreyttum toppstjómend- um. Þeir geta verið ágætir menn, en þeir em bara búnir að fá nóg! Ef þeir gætu skipt um starf þá væri það bæði gott fyrir ríkið sem vinnustað, fyrirtækin og einstakl- inginn.“ - Áttu þér ekkert draumastarf? „Ég hefði ekkert á móti því að fínna ein- hvem tíma starf þar sem ég ætti svolítið meira eftir af sjálfri mér, fyrir heimili mitt, vini og ættingja. Maður hefur það ekki í svona starfi, það er aldrei neitt eftir af manni. Þetta er lýj- andi, en þannig á það bara að vera. Nú vantar mig bara eftir fríið að fá virkilega skemmtilegt starf. Ég er búin að vera í 20 ár í stjórnunarstarfi, en gæti vel hugsað mér að breyta alveg til. Ég er bókasafnsfræðingur, en líka menntuð í leiklist, ensku og ensk- um bókmenntum. Svo hef ég hald- ið sænskunni við og það kemur sér vel innan Norðurlandanna. Ég vona bara að mér hegnist ekki fyrir það að vera svolítið ævintýra- leg í þessu og segja upp án þess að hafa tryggt mér annað starf.“ Tímabært að skipta um starf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.