Morgunblaðið - 08.01.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.01.1995, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ L í Morgunblaðið/RAX KORTINI KJALLARANUM vmsnprwavnoroiíF Á SUNNUDEGI ►Ekki verður sagt að yfirbygging Laxakorta hf. sé yfirþyrmandi. Tvö lítil gluggalaus herbergi í kjallara í Mjölnisholtinu, varla meira en 10 til 15 fermetrar. Þarna situr Eyþór Sigmundsson, þekktur meðal vina sinna sem „kokkurinn“ og byggir upp fyrirtæki sitt. Hann stofnsetti það árið 1989 og það hefur haslað sér völl. Á nú drjúgan hluta af póstkortasölunni í landinu, auk þess sem Eyþór leggur mikla vinnu í ýmis gæluverkefni sem á fjörurnar rekur. Eyþór er fæddur í Reykjavík árið 1934 og má segja að bak- grunnur hans sé allólíkur því sem hann fæst við í dag. Hann fór 13 ára gamall á sjó sem hjálparkokk- ur með föður sínum og var síðan á ýmsum skipum næstu árin uns hann hóf nám í eldamennsku hjá Tryggva Þorfinnssyni skólastjóra. Með náminu vann hann á Keflavíkurflugvelli, á Gamla garði og í Sjálf- stæðishúsinu og loks í Hafnarhúsinu uns hann hóf störf sem kokkur í útvegsbankanum 1. júní 1964. Þar var hann til ársins 1989. Eftir Guðmund Guðjónsson AÐ MÁ segja að ég hafi verið hjá Utvegsbankan- um þar til að hann var gefinn íslandsbanka. Um iíkt leyti var ég að setja Laxakortin á laggirnar. Þó var ég um tíma vakt- og fégæslumaður hjá Islands- banka, en það stóð ekki lengi,“ seg- ir Eyþór. Segja má að Eyþór hafi ekki ráð- ist á garðinn þar sem hann var lægstur er hann ákvað að reyna fyrir sér í póstkortum. Fyrir voru fjögur rótgróin fyrirtæki, Litbrá, Sólarfilma, Kórund og Eddafóto, segir Eyþór. En hvers vegna póst- kort og hvers vegna nafnið „Laxa- kort“. Úreldingin „Laxakort hf. er svona „hobbífyr- irtæki. Ég hef lengi haft áhuga á myndefni, sérstaklega ljósmyndum og þá alveg sérstaklega myndum af náttúru landsins. Spekúlerað mikið í þeim og ég hafði lengi ætlað mér að gera eitthvað skemtilegt þegar úreldingin færi að færast yfir mig. Hins vegar má segja að markaðurinn mátti heita fleytifullur og spurning á sínum tima hversu mikið vit það var að fara út í þetta. Markmiðið var þó strax og er enn, að vera ekki í beinni samkeppni við þá sem fyrir eru. Fyrstu kortin sem ég sendi frá mér voru af mönnum og löxum. Ég hef lengi verið í laxveiðinni og heyrði oft útlenda veiðimenn tala um að slík kort væru ekki til á Islandi og þeim þætti það miður. Síðar varð myndavalið fjölbreyttara, í hefð- bundnum kortum bauð ég annars konar landslagsmyndir en fyrir voru, fór síðan að prófa svart/hvít kort og kom síðan fyrstur á markaðinn með svokölluð panoramakort. Ég hef þannig aldrei beinlínis verið að gera það sama og hinir.“ — Maður með þinn bakgrunn hefur varla haft mikið vit á korta- útgáfu eða hvað? „Það er alveg rétt, ég hafði ekk- ert vit á slíku og engan til að spyrja. Það varð því að fíkra sig áfram og það góða við iðnðaðarmennsku er að menn eru ólíklegir til að gera sömu mistökin oftar en einu sinni. Ég var því alltaf að reka mig á, en lærði smám saman á þetta um leið. Það er fróðlegt að staldra við og líta yfír farinn veg.“ Rokkararnir vildu blóð! — Fyrstu kortin voru af löxum og mönnum segirðu, hvemig gekk það? „Það var nú svona upp og ofan. Eitt kortið var til að mynda af mér sjálfum og ekki falleg mynd! Eigi að síður er það uppselt í dag og hefur lengi verið. Kortin gengu mis- jafnlega. Sum afar illa, eins og kort af tveimur alblóðugum stórlöxum sem lágu dauðir í grasi. Það hreyfð- ist ekkert, utan að rokkhljómsveitin Kiss var mjög spennt fyrir kortinu þegar hún var að spila hér á landi á sínum tíma. Ég fékk upphringingu frá Holiday Inn og viðmælandinn pantaði 200 kort af blóðvellinum! Þó að sum laxakortin Ixy.fi gengið vel og gangi enn var þó ljóst að þau stóðu engan veginn undir svona fyrirtæki. Þetta þróaðist yfir í lands- lagsmyndir og þá var um að gera að breyta út frá venjunni. Ég hef fengið mikla meistara til samstarfs, Árna Sæberg, Ragnar Axelsson og Sigurgeir Sigurjónsson, en þeir eru einhveijir snjöllustu ljósmyndarar landsins. Og ekki má gleyma Magn- úsi Hjörleifssyni, sem tekur fyrir mig stúdíómyndir. Ég hef notað myndir eftir þá Árna, Ragnar og Sigurgeir bæði í hefðbundin kort og síðar panoramakort. Ég bryddaði einnig upp á því að gefa út svart/hvít kort, en þau hafa ekki verið á boðstólum í að minnsta kosti 20 ár. Þau seljast reyndar ekki eins vel og litkortin, en það er ákveðin kynslóð sem vill þau gjaman, yngra fólk og einnig ljósmyndarar í röðum ferðamanna. Það skemmtilega við svart/hvítu kortin er að á þeim eru gjarnan þjóðlífsmyndir og jafnvel grínmyndir. Ég hefði ekki viljað sleppa þeirri útgáfu." — En hvaða kort ganga og hver ekki? „Ég get ekki nefnt neina formúlu og það væri ekkert svar að segja að mýndin verði einfaldlega að vera falleg. Ég er til dæmis með tvær myndir þar sem fegurðardís baðar sig í Bláa lóninu. Önnur selst mjög vel, en hin fremur illa. Þetta eru tvö mótív og ekki spurning að bæði era kortin falleg. Maður verður að þreifa sig áfram í þessum efnum og kaldar staðreyndir ráða ríkjum. Sú vara sem ekki selst skal víkja. Á hveiju ári keyri ég kort á áramótabrenn- urnar. Kort sem ekki hafa gengið nógu vel. Þau sem ganga, geymi ég á safnformum og prenta aftur þegar nauðsyn krefur. I stað þeirra sem fara á bálið koma ný irin og ekkert kort fær lengri tíma en tvö ár til að sanna sig.“ — En munu panoramakortin leysa þau hefðbundnu af hólmi? „Það eru engin teikn á lofti í þá veru. Þetta era 21x10,5 sentimetra kort á móti 10x15 sentimetra kort- um sem era þau algengustu. Ég kalla þau gjaman „Mozartinn" í útgáfunni. Þetta eru myndir teknar á alveg sérstaka vél. Þetta er sér- stök myndataka og það þarf mikla fagmenn til að ráða við dæmið. Vélin er sérsmíðuð, afar dýr og í fárra höndum fyrir vikið. Þau eru vinsæl og vinsældir þeirra fara vax- andi, en þau hafa ekki sömu stöðu og gömlu góðu kortin, ekki enn að minnsta kosti, hvað sem síðar verð- ur. Það verður þó að skoðast, að það era aðeins tvö ár síðan ég setti þessi kort á markaðinn." Tilkynningaskyldan — Hversu öruggur markaður er þetta? „Ég get mér til um að á hveiju ári seljist milli 800.000 og ein millj- ón korta. Ferðaiðnaðurinn á um það bil 80% af þeirri sölu. Þetta er ein- hver besta landkynning sem hugs- ast getur, því kortin fara vítt og breitt um allan heim. Það ber raun- ar vott um góðan starfsanda ef póstkort frá vinnufélögum eru hengd á töflur vinnustaða. Sjálfur hef ég séð slíkt. Stór hópur allra þeirra ferðamanna sem hingað koma nota ekki síma nerna í neyð. Þeir era ekki eins og íslendingar sem hringja heim fímm tímum eftir að þeir koma til Spánar til að spyija hvernig veðrið sé heima. Hringja svo daginn eftir til að segja frá því hvemig veðrið á Spáni sé og spyija svo í leiðinni hvort ekki sé stytt upp heima. Nei, ferðamennirnir erlendu nota póstkort sem tilkynninga- skyldu sína. Ótrúlega stór hópur þeirra sest niður og hripar niður nokkrar línur á póstkort, kannski daglega, kannski annan hvern dag og þannig fylgjast þeirra nánustu með því hvað þeir eru að gera hér. Það gildir einu hvort að þessir ferða- menn era fjáðir eða ekki, þeir nota símann aðeins í neyð. Markaðurinn er því fyrir hendi og ferðamanna- fjöldinn hefur farið vaxandi og það er auðvitað af hinu góða fyrir okkur sem stöndum í þessu. Hins vegar era margir um hituna. Þegar ég byijaði voru fjórir fyrir. Nú era 8 eða 9 aðilar að gefa út og selja póstkort." Sjálfstæðisbarátta í seðlum Eins og fram kom framar í grein þessari, hafa ýmis gæluverkefni fallið að starfsemi Laxakorta. Eitt þeirra vakti mikla athygli á sínum tíma, en þá tók Eyþór upp á því að safna saman öllum peningaseðlum Islands frá upphafi og gefa út á póstkortum. Síðan, þegar hann var búinn að því, gerði hann gott betur, gaf út póstkort af bakhlið allra seðl- anna! „Seðlaútgáfan tók allar frí- stundir mínar í þijú ár og verkefnið heillaði mig æ meira eftir því sem á það leið. Frelsisbaráttu íslendinga má lesa af seðlum þessum og ég tel enga þjóð vera sjálfstæða fyrr en hún hefur eignast sína eigin seðla. Þetta var mikið verk, enda var fyrsti seðillinn gefinn út árið 1778,“ segir Eyþór og getur þess að kortunum hafi verið forkunnar vel tekið. Annað gæluverkefni hefur ekki síður verið umfangsmikið í sniðum. Það var útgáfa spilastokka með myndum af laxaflugum. Það kann að hljóma einfalt og lítilfjörlegt en þegar betur er að gáð er ekki svo. „Það má segja, að með spilaút- gáfunni hafi fyrirtækið Laxakort loks staðið undir nafni. Ég hafði lengi velt því fyrir mér að gefa út svona spilastokka og ég er ekki að tala um einhveijar laxaflugur, held- ur gömlu, klassísku flugur bresku meistaranna. Flugur sem sumar eiga allt að 100 til 200 ára gamlar uppskriftir og skarta sumar hveijar allt að 40 litum af fjöðrum 20 fugla- tegunda sem sumar hveijar eru nú útdauðar. Þegar ég síðan kynntist Pétri Steingrímssyni í Nesi í Aðal- dal sá ég að draumurinn gat loks ræst. Pétur er feiknasnjall hnýtari, margverðlaunaður, og honum leist strax vel á að prófa. Hann hnýtti 52 flugur og aðeins ein er af nýju kynslóðinni. Síðan ljósmyndaði Magnús Hjörleifsson flugurnar og það var mikið afrek að fá alla litina til að njóta sín. Loks litgreindu og skeyttu strákarnir í Litrófi allt sam- I í > i i i i i i i i i > i i i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.