Morgunblaðið - 08.01.1995, Side 6
6 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
PÁFI situr að snæðingi með gestum sínum, m.a. Kim kardínála frá Suður-Kóreu.
HEIMSÓKN PÁFA TIL ASÍU OG ÁSTRALÍU
flLIPPSEYJAR
Colombo
SRI LANKA
ÁSTRALÍA
Prátt fyrir áhygjur manna af heilsufari hins 74 ára gamla
Jóhannesar Páls páfa, heldur hann í vikunni
í ferö til Asíu og Ástralíu sem mun
i mjög á þrek hans
© 12.-16. janúar Manila, Filippseyjum
16.-18. januar Port Moresby,
Papúa Nýju Gíneu
18.-20. janúar Sydney, Ástralíu
20.-21. januar Colombo, Sri Lanka \
Asíu- og Astralíuferð páfa er 63 utanlandsferö hans frá því
hann tók við embætti árið 1978. Að ferðinni lokinni mun hann
hafa heimsótt 111 ríki og ferðast 904.175 km, sem jafngildir nærri því
23 ferðum umhverfis jörðina eða rúmlega ferð til tunglsins og heim aftur
REUTER
íhaldssami hirðirinn
Gagnrýni á Jóhannes Pál II páfa eykst
sífellt. íhaldssemi hans þykir hafa ýtt
undir klofning innan kaþólsku kirkjunnar
og hafa orðið til þess að flöldi
fólks hefur yfírgefíð hana.
FAGNAÐARLÆTI mann-
flöldans er Jóhannes Páll
II páfi birtist á svölum
Péturskirkjunnar í Róm
eru ekki hin sömu og fyrir sextán
árum. Ástæður þess eru fjölmarg-
ar, miklar breytingar hafa orðið í
heiminum á þeim tíma sem liðinn
er og eykst gagnrýni sífellt á páf-
ann fyrir íhaldssemi hans.
Þegar Karol Wojtyla var kjörinn
páfi árið 1978, fyrstur Pólveija,
vakti hann athygli og aðdáun fyrir
lífsgleði og orku, hann synti, lék
fótbolta, fór á skíði og hafði leikið
á sviði. Hann hafði barist gegn
kúgun kommúnista í heimalandi
sínu og þótti einkar vel til þess
fallinn að leiða kirkjuna inn í nýja
tíma, til að kynna Vesturlandabú-
um kirkjuna að nýju og blása nýju
lífi ítrúboðkirkjunnaríþriðjaheim-
inum.
Fólksflótti úr kirkjunni
Nú hefur aldurinn sett sitt mark
á páfann. Þrátt fyrir að hann eigi
enn miklum vinsældum að fagna
og sé vel ern, hefur íhaldssemi hans
skapað klofning innan kirkjunnar.
Hún hefur hrakið frá sér fólk í iðn-
væddum ríkjum og ýtt undir átök
fijálslyndra og íhaldssamra í þró-
unarríkjum.
Páfi hefur verið sakaður um bók-
stafstrú og ósveigjanleika, sérstak-
lega hvað varðar fóstureyðingar og
getnaðarvamir. Þá ver hann af
festu það skírlífisheit sem prestar
kaþólsku kirkjunnar eru skyldaðir
til að gangast undir. Hefur það
fælt ijölda manna frá þjónustu við
kirkjuna.
Skömmu fyrir lát sitt líkti rithöf-
undurinn Graham Greene, sem
gerðist kaþólikki á miðjum aldri,
páfa við Ronald Reagan: „Hann var
fyrrum leikari, sem var hrifinn af
mannfjöida og myndavélum."
Sú ákvörðun páfa að neita að Ijá
fýlgi sitt svonefndri „frelsunarguð-
fræði“, sem er undir sterkum áhrif-
um frá marxisma, ýtti undir harð-
vítugar deilur fylgismanna stefn-
unnar og íhaldssamra biskupa og
leiddi til fólksflótta úr kirkjunni.
Þá hefur páfi hrakið frá sér
ýmsa hópa kaþólskra í Bandaríkj-
unum, s.s. meðal samkynhneigða,
kvenréttindakonur og nýaldar-
sinna. í Afríku og Asíu ógnar að-
dráttarafl gamals og hefðbundins
átrúnaðar í löndunum kaþólsku
kirkjunni og jafnvel í Póllandi, einu
öflugasta vígi hennar, hefur fylgis-
mönnum hennar fækkað mikið.
Slagorð á borð við „Sendum prest-
ana til tunglsins" heyrast æ oftar
og slagorð gegn kommúnisma;
„Losum okkur við þá rauðu“ hefur
breyst í „Losum okkur við þá svörtu
[hempuklædda prestana]". Af þeim
63% sem sækja kirkju reglulega,
telur þriðjungur að hún hafi ekki
sinnt hlutverki sínu vel.
Hættumerki
Þessi hættumerki verða meira
áberandi á sama tíma og heilsu
páfans hefur hrakað. Mönnum er
enn í fersku minni för hans til
Zagreb fyrr í haust, þar sem hann
virtist máttlítill og þjáður.
Þegar páfinn tók við embætti var
honum falið það verk að leiða kirkj-
una á vit þriðja árþúsunds kirkjunn-
ar. Leggur hann nú drög að mikilli
hátíð í tilefni þess, auk þess sem
hann hefur sett sér að ná sáttum
við rétttrúnaðarkirkjuna í austur-
hluta álfunnar. Sú spurning, sem
gerist hins vegar æ áleitnari, er
hvaða stefnu kirkjan eigi að taka
undir stjóm eftirmanns hans.
íhaldssöm öfl innan kaþólsku
kirkjunnar eru þar ráðandi. Páfi
hefur sjálfur skipað fjölmarga af
kardínálunum og Ijóst þykir að
næsti páfi mun án efa verða undir
áhrifum Jóhannesar Páls II. Fijáls-
lyndari kardínálar innan kirkjunnar
eru ósáttir við þetta og sá frambjóð-
andi sem þeir binda mestar vonir
við, er kardínálinn í Mílanó, Carlo
Maria Martini. Hann er 66 ára jesú-
íti og gjarnan kallaður „verðandi
páfi“.
Hann lifir að minnsta
kosti enn
Heilsa páfans er æ oftar til um-
fjöllunar. í júlí 1992 var fjarlægt
æxli úr ristli páfa. í apríl á síðasta
ári skrikaði honum fótur á snyrting-
unni og hefur þurft að setja málm-
plötur í mjöðm hans. Hann hefur
ekki náð sér að fullu eftir fallið en
harðneitar engu að síður að minnka
við sig vinnu. „Hans heilagleiki
vinnur hvem einasta dag vikunnar,
16 stundir á dag. Hann er 74 ára
og tekur ekki frí um helgar,“ segir
Joaquin Navarro Valls, talsmaður
Páfagarðs.
Fjölmiðlarnir, sem páfi nýtti sér
svo vel á fyrstu árum sínum í emb-
ætti, beina nú athyglinni að aldri
hans og heilsubresti. Páfí gerir sér
fylliiega grein fyrir þessu. Þegar
mannfjöldinn við Péturskirkjuna
hrópaði „lifi páfinn" í október sl.
svaraði hann „Per ora vive“ (Hann
lifír að minnsta kosti enn).
Þrátt fyrir kímnigáfuna hefur
páfi orðið æ fjarlægari og minna
áberandi í fjölmiðlum. Hann hefur
verið sagður eiga sér tvær hliðar;
annars vegar heimspekingurinn og
hins vegar hinn tilfínninganæmi og
kraftmikli maður. Með áranum hef-
ur hefur hin íhugula hlið orðið æ
meira áberandi.
Þetta kom ekki hvað síst í ljós í
bók páfans sem út kom í haust.
Textinn er upphaflega svar við
spurningum sem ítalskur blaða-
maður, Vittorio Messori, sendi páfa
fyrir viðtal þeirra. Bókin þykir á
köflum verða flóknar heimspekileg-
ar vangaveltur, en hún hefur engu
að síður náð metsölu um heim all-
an, en það er sönnun þeirra vin-
sælda sem páfinn nýtur þrátt fyrir
aukna gagnrýni.
Dómgreindarbrestur
Þeir sem gagnrýnt hafa páfa
vegna íhaldssemi hans, óttast
áhersluna sem lögð er á óskeikul-
leika hans. Benda þeir á það að
dómgreindin hafi nokkrum sinnum
Trrugðist honum illilega. Dæmi um
það hafi verið sú ákvörðun að veita
Kurt Waldheim, fyrram forseta
Austurrikis, sem þagði um störf sín
fyrir þýsku leyniþjónustuna í Króat-
íu í síðari heimsstyijöldinni, orðu
Páfagarðs fyrir þjónustu sína í þágu
mannréttinda.
Tilraunir páfa til að ná sáttum
við rétttrúnaðarkirkjuna hafa mis-
tekist. Hrun jámtjaldsins í Evrópu
hefur ef eitthvað er breikkað bilið
á milli kirkjudeildanna. Rússneska
rétttrúnaðarkirkjan var neydd til
samstarfs við sovétstjórnina og yf-
irtók nokkrar kaþólskar stofnanir.
Nú líta Rússar á Páfagarð sem
stofnun sem kunni að vilja end-
urheimta eignir sínar.
í lýðveldum fyrrum Júgóslavíu
hefur blossað upp hatur á milli
hinna rómversk-kaþólsku Króata
og Serba, sem tilheyra rétttrún-
aðarkirkjunni. Raunar lá Páfagarði
svo á að viðurkenna sjálfstæði Kró-
atíu að hann og Þýskaland urðu
fyrstir til þess [ásamt íslandi]. Frá
þeim tíma hefur páfi gert hvað
hann getur til þess að draga úr
áhrifum þessa. Serbar hafa ekki
fyrirgefið páfa og neyddu hann til
að hætta við heimsókn til Sarajevo
í haust.
Páfi stefnir að miklum hátíða-
höldum í tilefni upphafs þriðja ár-
þúsunds og er vonast til þess að
allt að 40 milljónir manna muni
halda til Rómar til slíkra hátíða-
halda. Búist er við því að páfinn
muni í tilefni afmælisins fara ofan
í saumana á sögu kirkjunnar til að
kanna hvar henni hefur skjátlast.
Meðal þess sem án efa mun bera
á góma er rannsóknarrétturinn,
ofsóknir á hendur mennta- og vís-
indamönnum (m.a. Galileo), stuðn-
ingur kirkjunnar við nýlendustefnu
í Ameríku og afstaða kirkjunnar í
helförinni.
Brjóta bann kirkjunnar
Gagnrýnisraddirnar munu tæp-
ast þagna. Kaþólska kirkjan er sök-
uð um að hafa fjarlægst þegna sína
og þótti það koma berlega í ljós á
mannfjöldaráðstefnunni í Kaíró í
haust, en þá börðust fulltrúar Páfa-
garðs hatrammlega gegn því að
fóstureyðingar og getnaðarvarnir
yrðu viðurkenndar. Kaþólska kirkj-
an getur hins vegar ekki að eilífu
neitað að fjalla um getnaðarvarnir,
kvenpresta og skírlífi presta. Þessi
málefni hafa valdið miklum deilum
innan kaþólsku kirkjunnar.
Fjölmargir kaþólikkar bijóta
bann kirkjunnar við getnaðarvörn-
um, enda eru kaþólsk lönd á meðal
þeirra landa þar sem fæðingartíðni
er lægst. Krafa Páfagarðs um skír-
lífi presta (ekki skylda fyrr en á
13. öld) er ein aðalástæða þess að
um 100.000 prestar hafa kastað
hempunni á síðustu 25 árum.
Enginn efast um sannfæringu
páfa, þátt hans í hruni kommúnism-
ans og í því að kynna fólki kirkjuna
sem raunhæfan valkost þeirra sem
sætta sig ekki við neysluhyggjuna
á Vesturlöndum, sem páfí telur
hafa skapað guðlausa veröld án
raunveralegra gilda. En getur kirkj-
an beðið í aldir með að leysa vand-
ann sem fylgir því að draga úr fjölg-
un mannkyns? Og er það hægt
undir stjórn páfa með svo fastmót-
aðar trúarskoðanir?
Mikilvægasta verkefni kaþólsku
kirkjunnar er að sameina kaþólikka
að nýju. Hvort Karol Wojtyla er
rétti hirðirinn til að leiða söfnuðina
inn í næsta árþúsund á eftir að
koma í ljós.
Byggt á The Financial Times.
Nýja bílasalan, Bíldshöfða 8, s. 673766
MMC Galant GLSI 4x4, árg. ‘92,
ek. 38. þús. km, rauður,
sumardekk, vetrardekk, beín-
skiptur 5 g., spoiler, álfelgur,
toppbíll með öllu. Verð kr. 1.490
þús. stgr. Eigum einnig árg.
‘90-’91.
MMC L-200 Double Cab 4x4
dísel, árg. ‘92, ek. 75 þús. km.,
dökkgrænn, 5g., 31’’dekk,
lengdur pallur, getur verið vsk.
bill, jeppaskoðaðaur, upph. fyrir
33”, skipti mögul. á ódýrari. Verð
kr. 1.550 þús. stgr.
MMC L-300 4x4 dísel, árg. '90,
ek. 147 þús. km, 8 manna, grár
tvíl., 5 g., skiptii á ódýrari. Verð
kr. 1.350 þús. stgr. Eigum einnig
árg. ‘88—’93, bensín.
MMC Colt GLXI, árg. ‘91, ek. 69
þús. km, dökkgrænn, sumardekk,
vetrardekk, 5 g„ rafm. í öllu,
skipti mögul. á ódýrari. Verð kr.
880 þús. stgr. Eigum einnig árg.
'89—'92.
Hyundai Sonata GLSI 16V, árg.
'94, ek. 10. þús. km., vínrauður,
framhjóladr., 4 sumardekk, 4
vetrardekk, 5. g„ skipti mögul. á
ódýrari. Verð kr. 1.450 þús. stgr.
VANTAR ALLAR GERÐIR AF NÝLEGUM BÍLUM Á SKRÁ OG Á STAÐINN.
VottaKim
hollustu
Tókýó. Reuter.
HER Norður-Kóreu vottaði Kim
Jong-il, leiðtoga landsins, hollustu
í fjöldagöngu hermanna á miðviku-
dag, að sögn fréttastofu landsins.
Fréttastofan sagði að Choe
Kwang, forseti herráðs kóreska
Alþýðuhersins, og fleiri ræðumenn
hefðu lofað að efla herinn, „samein-
aðan í einum huga um hinn mikla
leiðtoga, félaga Kim Jong-il“.