Morgunblaðið - 08.01.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 19
eru hér á landi. Til kosta töldu þeir
góða þekkingu og menntun íslenskra
forritara sem og lágan launakostnað
miðað við það sem gerist í nágranna-
löndunum. Þá töldu þeir gæði ís-
lensks hugbúnaðar almennt mikil og
tæknistig hátt. Þetta eru allt atriði
sem styrkja samkeppnisstöðu Islend-
inga gagnvart erlendum hugbúnað-
arframleiðendum. Það sama má
segja um þá staðreynd að gjaldskrá
Pósts og síma er ein sú lægsta í
Evrópu fyrir gagnasendingar eftir
símalínum.
Helstu ókostir sem fyrmefndir
aðilar sáu við íslenska hugbúnaðar-
gerð lutu að starfsskilyrðum þeirra.
Að þeirra mati hafa stjórnvöld lítið
sinnt því að búa íslenskum hugbún-
aðarfyrirtækjum viðunandi starfs-
umhverfi. Þeir bentu á að ekki tíðk-
aðist hjá hinu opinbera að bjóða út
verkefni á sviði hugbúnaðargerðar,
þrátt fyrir að í raun beri þeim skylda
til þess að bjóða út öll verkefni er
kosta meira en 16 milljónir. Annað-
hvort sé eigin tölvudeildum falið að
vinna verkið eða það
látið í hendur ákveðnum
aðilum án útboðs. Jafn-
vel sé leitað út fyrir
landsteinana, þó inn-
lendir aðilar séu full-
komlega jafn færir eða
færari um að takast á
við verkið. Þetta hefur
þó eitthvað verið að
breytast að undanfömu.
Að auki benda þessir
aðilar á ýmislegt annað
sem hið opinbera gæti
gert til að bæta starfs-
umhverfi hugbúnaðar-
framleiðenda. Þar mætti t.d. nefna
að samræma lög um virðisauka-
skatt, flokka hugbúnaðarfyrirtæki
sem iðnfyrirtæki í stað þjónustufyrir-
tækja sem myndi minnka þá skatta
sem fyrirtækin þyrftu að borga, taka
meira tillit til hinnar hröðú úrelding-
ar sem verður á vélbúnaði innan
greinarinnar o.s.frv.
Hugbúnaðarframleiðslan er iðn-
grein sem hefur þurft að standa á
eigin fótum. Hún hefur átt í fáa sjóði
að sækja og bankakerfið hefur sýnt
lítinn skilning á þeirra þörfum. Það
virðast hafa verið óskráð lög hér á
landi að fjárfesta ekki í hugviti held-
ur einungis í áþreifanlegum hlutum
eins og minkum og laxi. Þegar
grennslast er fyrir um það hvaða
sjóðir eða styrkir standa hugbúnað-
arframleiðendum opnir hjá hinu opin-
bera verður lítið um svör. Ráðuneyti
eða deildir fá fjármagn til að kaupa
eða þróa hugbúnað fyrir einstök
verkefni en ekki er um heildarúthlut-
un til þessa málaflokks að ræða.
Þeir sjóðir sem formsins vegna ættu
að geta staðið hugbúnaðarframleið-
endum opnir virðast ekki hafa sinnt
því að aðstoða þessa grein iðnaðar
svo nokkru nemi. Að sögn Friðriks
Sigurðssonar formanns SÍH hefur
Rannsóknarsjóðurinn aldrei úthlutað
til óháðra aðila. Einu styrkirnir það-
an hafa runnið til rannsókna innan
veggja Háskóla íslands.
Hvaö þarf ad gera
í apríl 1993 skipaði iðnaðarráðu-
neytið starfshóp til að gera úttekt á
útflutningi hugbúnaðarverka. Helstu
niðurstöður og tillögur hópsins voru
þríþættar.
I fyrsta lagi taldi hann að hið opin-
bera ætti að skapa þannig umhverfi
fyrir fyrirtæki í hugbúnaðariðnaðin-
um að þau sætu við sama borð og
annar iðnaður hérlendis sem og hug-
búnaðariðnaður erlendis. Til þess að
ná þessu markmiði þyrfti að skil-
greina hugbúnaðariðnaðinn sem iðn-
grein sem myndi lækka tryggingar-
gjald fyrirtækjanna og auka aðgang
þeirra að áhættufjármagni. Einnig
þyrfti skattaleg meðferð hugbúnaðar
að taka mið af eignamyndun.
í öðru lagi þyrftu yfirvöld að efla
hugbúnaðarfyrirtækin til að þau geti,
í ríkari mæli, orðið sjálfbær fram-
leiðslu- og útflutningsfyrirtæki. í því
skyni þurfa þau að efla samstarf sín
á milli til að fullnýta sérþekkingu,
aðstöðu og búnað til að stytta þróun-
artíma og minnka 'heildarkostnað.
Þá þyrftu þau að bæta stjórnun og
efla markaðs- og viðskiptavitund.
í þriðja lagi þyrftu fyrirtækin auk-
ið og samstillt markaðsátak erlendis
sem krefst utanaðkomandi stuðn-
ings.
I skýrslunni er gerð úttekt á fyr-
Bjarni K. Þorvaldsson
markaóssljóri hjó Tölvu-
samskiptum. Skjófaxinu
hef ur verió m jög vel lek-
ió erlendis.
Tryggvi Haróarson. mark-
aósstjóri hjá íslenskri for-
ritaþróun. Fyrirtœkió opn-
aói nýlega systurfyrirtæki
i Skotlandi og er þaó
fyrsta skrefió i erlendri
markaóssetningu Opus-
Allt vióskiptahugbún-
aóarins.
Nokkur
dæmi um
íslenskan
hugbúnad
Aldamót: Orðabók Aldamóta
Ferli hf: Boðgreiðslukerfi og
verkbókhaldskerfi
Friðrik Skúlason hf: Ný út-
gáfa af ættfræðiforritinu
Espólín og vírusleitarforritið
Lykla-Pétur (F-Prot)
Gagnaiind hf: Hugbúnaður
fyrir heilsugæslustöðvar í
samvinnu við heilbrigðisráðu-
neyti
Hugur: Stimpilklukkuhug-
búnaður
Hugvirki: Ferliforritið Mar-
bendill og viðhaldskerfið
Ferill
íslensk forritaþróun hf: Við-
skiptahugbúnaðurinn
ÓpusAllt 2.0
Kerfi hf: Endurbætt útgáfa
af Alvís upplýsingakerfinu
Kerfisþróun: Ný útgáfa af
Stólpa viðskiptahugbúnaðin-
um
Menn og mýs hf: Desktop
Strip fyrir Machintosh
Námsgagnastofnun: 17 is-
lensk kennsluforrit
Plúsplús hf: Fiskmarkaðs-
kerfið Boði
Káðhugbúnaður: Tollskýrslu-
gerðarforritið TollRáð 3.0
Softis: Louis forritunar-
grunnur
Strengur hf: Markaðskerfi
Team 200: Tölvuleikir eins
og Bars, Puzzle, Shoot’em up
og Platform
Tðlvu- og hugbúnaðarþjón-
ustan: Viðskiptahugbúnaður-
inn Garri og tölvuleikurinn
Sægreifinn
Tölvunýting hf: Lagerstað-
setningarkerfi
Tölvupúki: Gluggapúki 3.0
sem er villuleitarforrit
Tölvusamskipti: Skjáfax
(Ath! Foritin sem hér eru
nefnd voru valin af handahófi
og ekki er um neina tæmandi
úttekt að ræða.)
irgreiðslu sem íslensk hugbúnaðar-
fyrirtæki hafa hlotið á síðustu árum.
Þar er ekki um auðugan garð að
gresja. Rannsóknarráð ríkisins veitir
styrki til rannsókna- og þróunarverk-
efna þar sem um veiulegar nýjungar
er að ræða og möguleikar eru til
nýtingar í íslensku atvinnulífi. Vöru-
þróunar- og markaðsdeild Iðnlána-
sjóðs hefur veitt lán og styrki tii
fyrirtækja sem vinna að þróun hug-
búnaðar og tengjast þessar styrkveit-
ingar fyrst og fremst markaðssetn-
ingu erlendis svo sem þátttöku á al-
þjóðlegum sýningum og starfí út-
flutningshópa. Þá hefur Þróunarfé-
lag Isiands gert nokkuð af því að
fjárfesta í hugbúnaðarfyrirtækjum
með kaupum á hlutafé. A fímm ára
tímabili, 1988-1992, voru fjárveit-
ingar til rafeinda- og hugbúnaðar-
fyrirtækja samtals 233,4 milljónir
króna þannig að ljóst er að ekki
hefur verið mikið til skiptanna. í
greinargerðinni segir þetta: „Ekki
verður annað sagt en að ósamræmi
sé á milli þeirrar fyrirgreiðslu sem
hugbúnaðarfyrirtæki hafa hlotið og
vaxtarmöguleika þeirra, sem m.a.
endurspeglast í þeirri staðreynd að
flestar nágrannaþjóðir okkar hafa
veðjað á þessa grein umfram aðrar
undanfarin ár.“
Auk framantalinna aðila hafa Afl-
vaki Reykjavíkur hf. og Útflutnings-
ráð lagt fram hlutafé í nokkur hug-
búnaðarfyrirtæki. Skilyrði fyrir hlut-
afjárkaupunum er að fyrirtækin séu
með markaðshæfa vöru sem eigi er-
indi inn á erlenda markaði. Á síðustu
árum hefur einnig færst í vöxt að
fyrirtæki og einstaklingar komi inn
í rekstur hugbúnaðarfyrirtækja með
kaupum á hlutafé.
Framtióarsýn
Um þessar mundir gæti verið að
rofa til hvað varðar aðgang hugbún-
aðarfyrirtækja að fjármagni. Sér-
staklega eru horfumar bjartar ef
horft er til Evrópu. Um nokkurra ára
skeið hefur verið í gangi samstarfs-
verkefni á sviði upplýsingatækni sem
nokkur af Norðurlöndunum standa
að og er ísland eitt af þeim. Árið
1986 var stofnaður samstarfshópur
(data program gruppe) sem vinna
skyldi að tölvumálum á vettvangi
norrænnar samvinnu. Hópurinn mót-
ar stefnu um samvinnu á sviði hug-
búnaðargerðar og í hveiju landi eru
opinber eða háifopinber fyrirtæki
sem sjá um útfærslu þeirrar stefnu
og ákvarðana sem hópurinn tekur.
Sem dæmi um samvinnuverkefni af
þessu tagi má nefna samnýtingu á
kennsluforritum sem þróuð eru innan
hvers lands fyrir sig. Hvert land legg-
ur fram fjögur forrit í sameiginlegan
pott og öðlast þar með aðgang að
16 forritum hinna landanna. Þetta
er því nokkurs konar dreifingarkerfi
fyrir kennsluforrit á Norðurlöndun-
um. Námsgagnastofnun hefur verið
framkvæmdaraðilinn í þessu verkefni
hér. Hingað til hafa 17 íslensk forrit
farið í dreifíngu á Norðurlöndunum
með þessum hætti.
Auk Norðurlandasamstarfsins
hafa ýmsir möguleikar opnast með
aðild Islands að Evrópska efnahags-
svæðinu. Með aðildinni fær ísland
aðgang að styrkja- og sjóðakerfí
Evrópubandalagsins með þátttöku í
útboðum á stærri verkefnum á sviði
hugbúnaðargerðar. Áætlað er að um
það bil 60% af nýjum störfum í Evr-
ópu árið 2000 verði á sviði upplýs-
ingatækni og um 40% af fjármagninu
fari í þennan málaflokk. Væn sneið
af þeirri köku ætti því að renna til
hugbúnaðargerðar. Verkefni sem eru
í burðarliðnum eru t.d. innan heil-
brigðiskerfísins, umferðarstjórnunar,
fjarkennslu og flugumferðarstjórnar
svo eitthvað sé nefnt. Þarna er verið
að keppa um háar fjárhæðir þannig
að til mikils er að vinna fyrir íslensk
hugbúnaðarfyrirtæki sem gætu kom-
ið inn í dæmið sem undirverktakar.
Mikill kostnaður við gerð umsókna
og langur afgreiðslutími þeirra eru
helstu ókostirnir við þessa áætlun
sem nefnist Fjórða rammaáætlunin.
Af þessari samantekt má ráða að
mikil gróska er í íslenskri hugbúnað-
arframleiðslu um þessar mundir.
Útlit er fyrir að þessi sjálfssprottni
iðnaður geti orðið einn af helstu vaxt-
arbroddunum í útflutningi á næstu
árum ef rétt er að málum staðið.
Höfundar eru nemendur í hagnýtri tföl-
miðlafræði við Háskóla Isiands.
Skjáfax á
framabraut
► Gott dæmi um árangur hins ís-
lenska hugbúnaðariðnaðar er fyrir-
tækið Tölvusamskipti. Það var
stofnað árið 1987 af Ásgrími
Skarphéðinssyni og hjá því starfa
nú átta manns auk tveggja sem
vinna á skrifstofu þeirra í New
York.
► Skjáfax heitir hugbúnaðurinn er
þeir hafa þróað og snýst starfsemin
í kringum hann. Allt frá upphafi
var stefnt að því að koma honum
á erlendan markað sem tókst með
miklum ágætum. Tölvusamskipti
selja til um þijátíu landa og að jafn-
aði selja þeir til 10-15 landa í hveij-
um mánuði. Miklu hefur verið til
kostað við að koma upp góðu dreif-
ingarkerfj og má segja að það sé
verðmætasta „eign“ fyrirtækisins
auk hugbúnaðarins sjálfs. Þeir eru
með samstarfsaðila í hverju landi
sem sjá um dreifingu til smásöluað-
ila. Þessir dreifmgaraðilar eru nú
um þijátíu og sá nýjasti er Hy-
undai-samsteypan sem sjá mun um
dreifingu í Kóreu.
► Stærstu markaðssvæðin _eru
Bandaríkin, Bretland, Kanada, ftal-
ía og Skandinavía. Auglýsingar eru
kostaðar af dreifíngaraðilunum og
Tölvusamskiptum. Mikil áhersla
hefur verið lögð á að taka þátt í
tölvu- og hugbúnaðarsýningum út
um allan heim til að vekja athygli
á Skjáfaxinu og hefur það gengið
vel. Skemmst er að minnast þess
að stærsti hugbúnaðarframleiðandi
í heimi, Microsoft, valdi Skjáfax eða
ObjectFax eins og það heitir á ensku
til að kynna OLE 2.0 samskipta-
grunninn á sýningu ásamt sínum
eigin forritum, Word 6.0 og Exel
5.0. Þetta var mjög góð kynning
og viðurkenning á ágæti Skjáfax-.
ins. í september fékk Skjáfaxið síð-
an stimpilinn „Editors’ Choice“ í
tölvutímaritinu PC Magazine
(Network edition), en hann fá ein-
ungis þau forrit sem þykja skara
fram úr á sínu sviði.
i september fékk Sk|á-
faxió, eóa ObjectFax eins
og þaó heitir á ensku,
stimpilinn „Editors' Cho-
ice" i tölvutímaritinu PC
Magazine (Network ed-
ition), en hann fá einung-
is þau forrit sem þykja
skara fram úr á sinu sviói
► Vinsældir Skjáfaxins byggjast á
þægilegu notendaviðmóti. Það er
einfalt í notkun en fullkomið tækni-
lega séð. Þá var forritið gert þann-
ig úr garði að auðveit sé að þýða
það sem eykur útbreiðslumöguleika
þess mikið. Nú er t.d. verið að þýða
hugbúnaðinn yfír á tékknesku og
ungversku. Um 2000 faxkerfí hafa
verið seld til notenda út um allan
heim. Meðal þeirra má nefna fyrir- '
tæki eins og Coca Cola, Pepsi Cola,
Kodak, Shell, Ericson, Electrolux,
Citybank, Thorn EMI, Reuters,
British Telecom, Dell Computers
og svona mætti lengi telja.
► Innlendir aðilar sem nota Skjáfax
eru Eimskip, Flugleiðir, Hagkaup,
Morgunblaðið, Stöð 2, Landsbanki
íslands, Póstur og sími, Landsvirk-
un og ótal fleiri. Markaðs- og dreif-
ingarmálin eru vel skipulögð hjá
Tölvusamskiptum en það eru þau
atriði er skipta hvað mestu ef vel
á að takast til með sölu á hugbún-
aði á erlendum vettvangi. Skjáfaxið
stefnir hátt, það stefnir á toppinn.
InnSýn i heim
stærdfrædinnar
► Hugbúnaður er ekki eingöngu
framleiddur í fyrirtækjum á Is-
landi. Frá árinu 1989 hefur Tölvu-
háskóli Verslunarskóla íslands út-
skrifað kerfísfræðinga með mennt-
un, sem nýtist beint í atvinnulífínu.
Nemendur vinna að raunhæfu hug-
búnaðarverkefni, oft í samvinnu við
fyrirtæki, á síðustu önn sinni í skól-
anum. Verkefnið felst í að greina,
hanna og skrifa söluhæfan hugbún-
að. Meðal útskriftamema síðastliðið
vor voru þrír ungir menn, sem köll-
uðu sig Norðanmenn. Þeir stóðu
saman að gerð lokaverkefnis undir
stjóm dr. Freys Þórarinssonar.
Verkefnið, sem er kennsluforrit í
stærðfræði fyrir framhaldsskóla,
hlaut nafnið InnSýn.
► InnSýn er ætlað að efla tilfínn-
ingu nemenda fyrir sambandi
margliðu-falla og ferla þeirra með
því að tengja saman myndræna og
stærðfræðilega framsetningu á
margliðum. Sem dæmi um notkun
forritsins gæti nemandi búið til
annarrar gráðu margliðu og teiknað
feril hennar á skjáinn. Síðan getur
nemandinn heildað margliðuna og
diffrað; fengið snertla og sniðla; og
skoðað núllstöðvar, beygjuskil og
útgildi svo eitthvað sé nefnt. Það
sem gerir InnSýn frábrugðið öðrum
kennsluforritum í stærðfræði er
einkum tvennt. í fyrsta lagi er ekki
aðeins hægt að breyta ferlinum á
skjánum með því að breyta jöfnu
margliðunnar, heldur er einnig
hægt að breyta jöfnunni með því
að laga til ferilinn á skjánum. í
öðru lagi er skilgreining diffurkvóta
sýnd myndrænt á mjög einfaldan
og auðskiljanlegan hátt.
Skjámynd úr InnSýn.
► InnSýn er skrifað fyrir windows
og hefur allar hefðbundar windows-
aðgerðir, s.s. prentun, vistun á disk
og möguleika til að færa skjámynd-
ir úr forritinu yfir í önnur windows-
kerfí. Notendaviðmótið er mjög ein-
falt og eru allar aðgerðir aðgengi-
legar bæði með því að nota mús
og lyklaborð.
► Fyrsta útgáfa af InnSýn var til-
búin í vor en í sumar hafa höfund-
arnir bætt við og lagað það sem
þeim þótti að betur mætti fara.
Þeir eru byijaðir að kynna forritið
fyrir kennurum í framhaldsskólun-
um og lofa fyrstu viðtökur góðu.
Höfundamir eru stórhuga og stefna
að því að reyna að koma forritinu
á markað erlendis. Að þeirra sögn
er það þó aðeins fjarlægur draumur.
► InnSýn er nokkur nýjung í hönn-
un kennsluforrita í stærðfræði. Það
líður helst fyrir það að efni þess
er takmarkað við fjölliður. En ef
viðtökur verða almennt góðar hafa
Norðanmenn hug á að víkka út
forritið eða skrifa fleiri forrit í sama
stíl er taka á öðrum þáttum stærð-
fræðinnar.