Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 24
24 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
L
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga spennumyndina Terminal Velocity,
eða Banvænn fallhraði eins og hún kallast á íslensku. Með aðalhlutverk
í myndinni fara Charlie Sheen og Nastassja Kinski.
1993 lék hann svo í fram-
haldmynd sem nefndist
„Hot Shots! Part Deux“.
Fyrir skömmu Iék Sheen í
„The Three Musketeers"
og „Major League 11“ og
þá kom hann fram í gesta-
hlutverki í sálfræðitryllin-
um „Deadfall", sem Chris
Coppola leikstýrði. Þá lék
hann í „The Chase“ sem
sýnd var hér á landi í
fyrravor, og væntanleg er
dramað „Fixing the
Shadow“, en í henni leikur
Sheen óeinkennisklæddan
lögreglumann. Hinn fjöl-
hæfi Charlie Sheen hefur
einnig lagt stund á ritstörf
og hefur hann meðal ann-
ars sent frá sér ljóðabók
með myndskreytingum
eftir Adam Rifkin, leik-
stjóra „The Chase“.
Hasarleikur
í háloftunum
ÞAÐ er ekki aðeins fólk sem fer í frjálsu falli um háloftin í Banvænum fallhraða.
HINN kærulausi fallhlíf-
arstökkskennari Ric-
hard „Ditch“ Brodie
(Charlie Sheen) flækist í
hringiðu alþjóðlegra njósna
og spennu þegar gullfalleg
og dularfull kona sem kallar
sig Chris (Nastassja Kinski)
skráir sig í fallhlífarstökk
hjá honum og í fyrsta stökki
hennar opnast hlífin ekki.
Þegar eftirlitsmenn að
ósekju kenna Ditch um
dauða konunnar og loka
skólanum, ákveður hann að
komast sjálfur til botns í
málinu.
Hann kemst fljótlega að
því að ekki er allt sem sýn-
ist - alla vega ekki Chris
sem snýr aftur ljóslifandi,
en í ljós kemur að hún er
fyrrum KGB njósnari. Ban-
vænn fallhraði var frum-
sýnd í Bandaríkjunum í kjöl-
farið á hinni geysivinsælu
Speed, og er myndinni ætlað
að höfða til sama áhorf-
endahóps.
Það var handritshöfund-
urinn David Twohy, sem var
meðhöfundur handritisins
að „The Fugitive“ sem átti
hugmyndina að því að gerð
yrði kvikmynd um konu sem
sviðsetti eigið banaslys í
tengslum við fallhlífarstökk,
en með því vildi hann flétta
saman áhuga sínum á há-
loftaíþróttinni og skrifum.
Framleiðendur myndarinn-
ar, þeir Scott Kroopf og
Tom Engelman, hrifust
strax af hugmyndinni, enda
segja þeir að ómögulegt
hafi verið að leggja frá sér
kvikmyndahandritið fyrr en
það hafí verið lesið til enda.
Þar hafi ráðið miklu að
aðalsöguhetjan er ekki ein-
hver hefðbundin hasar-
myndahetja heldur ósköp
venjulegur náungi sem sýnir
að töggur er í honum þegar
hann flækist í aðstæður þar
sem annaðhvort er að
duga eða drepast. Þeir
félagar fengu svo til
liðs við sig leikstjór-
ann Deran Sarafian,
sem meðal annars
hefur gert hasar-
myndimar „Death
Warrant“ með
Jean-Claude Van Damme,
og „Back in the U.S.S.R.".
Honum fannst Banvænn
fallhraði vera hæfíleg
blanda af spennu og kímni,
og að eigin sögn gladdi það
hann að fá í hendumar kvik-
myndahandrit sem fjallaði
um raunverulegt fólk og
ótrúlegar aðstæður og inni-
hélt að auki ákveðinn boð-
skap.
Engin spurning um
aðalleikara
Hvað Sarafian varðaði
var það engin spuming
hvern hann vildi fá til að
fara með aðalhlutverkið í
myndinni, en Charlie Sheen
var efstur á óskalistanum
alveg frá upphafi. „Hann
býr yfir ákveðinni við-
kvæmni og miklum vits-
munum, og þetta hefur ver-
ið eitt besta samstarf sem
ég hef átt með leikara til
þessa.“
Sjálfur segir Charlie She-
en um hlutverk sitt sem
Ditch að það sem hann í
fyrstu hafi haldið að væri
ósköp venjuleg hasarmynd
um stráka og leikföng
þeirra hafi mun frek-
ar snúist um frammi-
stöðu. „Ég er alltaf á
höttunum eftir því að
leika persónur sem
ég sem áhorfandi
hefði gaman að
því að fylgj-
ast með á hvíta tjaldinu.
Myndir um náunga sem eru
ósköp venjulegir meðalmenn
sem sogast inn í einhveijar
snarvitlausar og óvenjulegar
aðstæður hafa alltaf höfðað
til mín, myndir þar sem ein
lítil ákvörðun, t.d. um það
hvort þú átt að beygja til
hægri eða vinstri, skiptir
sköpum og verður þess vald-
andi að þú .ert kominn á ein-
hveija braut fáránleikans.
Það er einmitt það sem hend-
ir Ditch í myndinni."
Kinski snýr aftur
Hin þýskættaða Nastassja
Kinski sem fer með hlutverk
Chris, fyrrum KGB njósnar-
ans, er dóttir leikarans Klaus
Kinski, sem er látinn, og er
skammt síðan hún snéri sér
á nýjan leik að kvikmynda-
leik eftir að hafa einbeitt sér
í nokkur ár að uppeldi
þriggja bama.sinna. Evr-
ópskur uppruni Nastössju
Kinski réð því að hún var
valin til að leika Chris, en
Sarafian telur hana hafa
fært hlutverkinu mun meira
en glæsilegan framandleika.
„Nastassja er ákaflega til-
fínninganæm og viðkvæm
manneskja sem skyndilega
var þeytt inn í þessa banda-
rísku kvikmynd með banda-
rískan mótleikara og leik-
stjóra í þokkabót. Það eru
svo sannarlega gjörólíkar
vinnuaðstæður frá því sem
DITCH Brodie heldur að hann sé að kenna algjörum
byrjanda þegar hann tekur að sér að kenna hinni
dularfullu Chris Morrow fallhlífarstökk.
fram á yfirgefinni flugstöð
í Arizona, og einnig í Tuc-
son, Phoenix og í Kalifomíu,
en myndatökum lauk í
Moskvu í apríl á síðasta ári.
Áhættuleikarar voru einatt
í eldlínunni og reyndist Ariz-
ona vera tilvalið baksvið fyr-
ir áhættuatriðin sem gegn-
umgangandi eru í myndinni,
og stórbrotið landslagið
leiddi vel í ljós ógnarfall-
hraða fallhlífarstökkv-
aranna.
Framleiðandinn Scott
Kroopf segir að allt of oft
vilji brenna við í myndum
þar sem háloftin ein eru
sviðsmyndin að fallhlífar-
stökk virðist ekki eins ógn-
vekjandi og það í raun og
vem sé. „Það sem er áhuga-
vekjandi fyrir áhorfendurna
að sjá getur skapað ýmsar
hættur fyrir áhættuleikar-
ana, og lentum við vissulega
í miklum sviptivindum og
erfíðri myndatöku.
Það er erfitt að segja til
um hvaða atriði voru hættu-
legust; hvort það til dæmis
var að varpa bílum út úr
flutningavél í háloftunum
eða að láta fallhlífarstök-
kvarana lenda í hálfgerðum
fmmskógi vindrafstöðva
skal ósagt látið, en fyrir
mestu er að allt tókst okkur
þetta á endanum án þess að
nokkur slasaðist." Leikstjór-
inn Sarafian segir að heil-
miklir og nákvæmir útreikn-
ingar hafi oft og tíðum legið
að baki myndatökunni þar
sem margt af því sem gert
var hafi reynst ákaflega
hættulegt, en öryggið hafi
ætíð verið haft í fyrirrúmi.
hún hefur átt að venjast.
Henni tókst hins vegar að
gera persónu sína ákaflega
trúverðuga, en hún er kraft-
urinn í gegnum alla mynd-
ina, árásaraðilinn sem leikur
bæði á Ditch og áhorfend-
ur.“
Um hlutverk sitt í mynd-
inni segir Kinski að um sé
til þess að hún fékk hlutverk
í mynd hans „False Move“,
sem gerð var árið 1975.
Ferill hennar komst á veru-
legt skrið í kjölfarið og sat
hún meðal annars fyrir á
tískuljósmyndum sem Ro-
man Polanski tók og birtar
vom í jólahefti Vogue árið
1976. Kynni hennar af Pol-
CHRIS Morrow sviðsetur eigið banaslys með því að
fá Ditch til að kenna sér fallhlífarstökk, en honum
er svo kennt um að eiga sök á „slysinu“.
að ræða viljasterka og
ábyrga konu sem sjaldnast
hafi tíma til að hugsa um
eigin velferð. „Hún býr einn-
ig yfír einhvers konar sjál-
fleysi sem heillaði mig, og
sömu sögu er að segja um
líkamlegu þrautirnar sem
hún gengur í gegnum, en
einungis það að geta flogið
um loftin blá var sérstaklega
spennandi."
Kinski var aðeins þrettán
ára gömul þegar hún var
kynnt fyrir leikstjóranum
Wim Wenders, og leiddi það
anski urðu til þess að hann
valdi hana til að fara með
aðalhlutverkið í „Tess“ og
eftir það lék hún í myndum
á borð við „One from the
Heart“, „Cat People“, „The
Hotel New Hampshire",
„Exposed“, „Unfaithfully
Yours“, „The Moon in the
Gutter", „Revolution“ og
„Paris, Texas“.
Áhættuleikarar í
eldlínunni
Kvikmyndataka Banvæns
fallhraða fór að miklu leyti
í fremstu víglínu
CHARLIE Sheen hefur
um nokkurt skeið
verið í fremstu víglínu
bandarískra leikara, en
hann öðlaðist fyrst veru-
lega frægð fyrir leik sinn
í óskarsverðlaunamynd
Olivers Stones, „Platoon“,
árið 1986, en einniglék
hann í „Wall Street" sem
Stone gerði. Sheen hefur
leikið í fjölda annarra
kvikmynda sem öðlast
hafa vinsældir bæði meðal
almennings og eins hjá
gagnrýnendum. Fyrsta
kvikmyndahlutverkið lék
hann aðeins níu ára gam-
all, en það var í myndinni
„The Exeeution of Private
Slovik", en í henni lék fað-
ir hans, Martin Sheen, að-
alhlutverkið. Hann dvaidi
um skeið á Filippseyjum á
meðan á tökum „ Apoc-
alypse Now“ stóð, en í
henni lék faðir hans aðal-
hlutverk, og þessi innsýn
í heim kvikmyndaleikar-
ans varð til þess að Sheen
ákvað að gera kvikmynda-
leik að ævistarfi.
Charlie Sheen byijaði á
því að gera 16 mm stutt-
myndir, en síðan fram-
leiddi hann, leikstýrði og
skrifaði handritið að sinni
fyrstu breiðtjaldsmynd
sem heitir „R.P.G. II“.
Hann hefur leikið í fjölda
mynda og má þar t.d.
nefna „Ferris Bueller’s
Day Off“, „Eight Men
Out“, „Young Guns“ og
„Major League". Aðeins á
árinu 1990 lék hann í fjór-
um kvikmyndum, en það
voru „Navy Seals“, „Men
at Work“, „The Rookie“
og ;,Cadence“.
Arið 1991 lék Sheen í
gamanmyndinni „Hot
Shots!“, sem var ein vin-
sælasta mynd ársins, og