Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 37
BRÉFTIL BLAÐSINS
Dagmæður
og frjáls
samkeppni
Frá Amal Rún Qase:
í FRÉTTUM RÚV hinn 8. desember
1994 ræddi fréttamaður við for-
mann Samtaka dagmæðra. Tilefnið
var að formaður samtakanna hafa
lýst opinberlega
yfir andstöðu við
nýlega reglugerð
þar sem dag-
mæðrum er
óheimilt að sam-
ræma gjaldskrár
sínar. Aðspurð
um hvetjar væru
ástæður fyrir
andstöðu hennar
við þessa reglu-
gerð svaraði hún á þá leið að nú
væru dagmæður að keppa við hvetja
aðra. Skelfingin leyndi sér ekki í
svip hennar um leið og hún bætti
við að þetta þýddi lægri dagvistar-
gjöld og atvinnuieysi hjá dagmæðr-
um.
Ætla mætti að formaðurinn telji
að foreldrum standi nokkuð á sama
um það hjá hveijum böm þeirra
dvelja í dagvistun svo fremi sem
gjaldið sé í lágmarki. Ég vænti þess
að fáum sé það ljósara en einmitt
dagmæðmm að foreldra skiptir það
meginmáli að vel sé hugsað um
böm þeirra þær dagsstundir sem
þau þurfa að koma þeim í fóstur.
Það getur vel verið að sumar
dagmæður snúi sér eitthvert annað
við aukna samkeppni en hitt er víst
að bestu dagmæðumar verða eftir
á markaðnum. Aukin samkeppni er
aðeins til góðs á þessu sviði sem
öðrum.
Ég óska öllum dagmæðrum,
fóstmm og starfsfólki leikskóla
landsins gleðilegs nýs árs.
AMALRÚN QASE,
foreldri.
» » ------
Hirðisbréf
Njarðar P.
Njarðvík
Frá Jóni Á. Gissurarsyni:
ÞANN 15. desember sl. birti Njörð-
ur P. Njarðvík grein í Morgunblað-
inu. Heitir hún Blaðamennska. Um
þær mundir dvaldist Njörður á Eng-
landi.
I grein sinni teflir Njörður fram
sex völdum breskum blöðum gegn
íslenskum fjölmiðlum og ber saman
efnistök og málfar beggja. Skiptir
þar í tvö hom: Bretar dæmast snill-
ingar en íslendingar bögubósar án
undantekningar. Orðrétt segir: „Hér
standast íslenskir fjölmiðlar engan
samanburð. Því miður er svo komið,
að maður opnar ekki svo blað á ís-
landi eða hlustar á útvarp eða sjón-
varp, að þar særi ekki málvillur af
ýmsu tagi, ambögur og jafnvel bein-
ar beygingarvillur...“
Nú hefði mátt ætla, að höfundur
styddi fullyrðingar sínar dæmum,
sem rekja mætti til réttra aðila.
Aðeins einni ambögu em gerð skil
og því aðeins, að hún tengdist fyrri
grein hans sjálfs. Vegna ávirðingar
eins blaðamanns er stétt fjölmiðla-
manna dæmd og léttvæg fundin.
Er það í anda hinna fornu kenning-
ar: betra að saklaus líði en sekur
sleppi, því að Drottinn þekkir sína.
I pistlum sínum, íslensku máli,
gagnrýnir Gísli Jónsson gjarnan
málfar ijölmiðlamanna. Hann finnur
orðum sínum ætíð stað, svo að rekja
má til réttra aðila. Hann sýnir og
með ljósum dæmum, hvernig breyta
má brengluðum texta og ambögum
í vandað mál. Slík vinnubrögð eru
vænlegri til árangurs en Blaða-
mennsku-grein Njarðar. Hún missir
marks og er höfundi til vansa.
JÓN Á. GISSURARSON,
Sjafnargötu 9, Reykjavík.
Siðferði
fjölmiðlafólks
Frá Ásthildi Cecil Þórðardóttur:
GUÐNÝ Halldórsdóttir og Edda
Björgvinsdóttir sátu fyrir svörum
um áramótaskaup sjónvarpsins
þriðjudaginn 3. janúar sl. Þetta
viðtal hlýtur að hafa verið ein-
hvers konar nýársskaup. Mér
fannst þær verða sér til háborinn-
ar skammar, og ég fór þá að hugsa
um, á hvaða leið við erum eigin-
lega. Það er mikið rætt um sið-
ferði (siðleysi) stjórnmálamanna -
en hvar er siðferði fjölmiðla-
manna? Eftir viðtalið við þessar
tvær konur, ætla ég að vona að
þær séu ekki dæmigerðir fulltrúar
þess hóps. Erum við virkilega
svona grimm að okkur finnist
gaman að sjá meðbræður okkar
ataða auri og jafnvel börn þeirra
9 SMÁ HJEM
Vlka í Kaupmannahöfn með eigin
baöherbergi og salerni, sjónvarpi,
bar, ísskáp og morgunmat, sameigin-
legu nýtísku eldhúsi og þvottahúsi.
Allt innréttaö í fallegum byggingum.
Njóttu lúxus-gistingar á lágu veröi
viö Osterport st. Viö byggjum á því
aö leigja út herbergi til lengri tíma.
Skrifstofan er opin daglega kl. 9-17.
Verö fyrir herbergi:
Eins manns.......2.058 dkr. á viku.
Elns manns.........385 dkr. á dag.
Tveggja manna....2.765 dkr. á viku.
Tveggja manna......485 dkr. á dag.
Morgunverður er innifalinn i verðinu.
Hótel— íbúöir
meö séreldhúsi, baðherbergi og
salerni og aögangi aö þvottahúsi.
Eins herbergis ibúö, sem rúmar einn,
2.058 dkr. á viku.
Eins herbergis íbúö, sem rúmar tvo,
2.765 dkr. á viku.
Eins manns íbúö m/eldunaraðstööu,
sem rúmar tvo, 2.989 dkr. á viku.
Tveggja herbergja íbúö.
Verö á viku 3.486 dkr.
Tveggja herbergja íbúö.
Hótel-íbúö sem rúmar fjóra.
Verö á viku 3.990 dkr.
Morgunmatur er ekki innifalinn.
I okkar rekstri:
Tagensvej 43, Thorsgade 99-103,
2200 Kobenhavn N,
2ja herbergja hótel—íbúöir
sem rúma þrjá.
Með sturtuklefa...2.198 dkr.
3ja herbergja.....3.990 dkr.
HOTEL
9 SMÁ HJEM,
Classengade 40,
DK-2100 Kobenhavn O.
Sími (00 45) 35 26 16 47.
Fax (00 45) 35 43 17 84.
og makar dregnir með, og það á
vettvangi þar sem menn geta ekki
varið sig. Finnst okkur þessi lág-
kúra fyndin? Er allt í lagi hvað
sagt er í svona þætti af því að
„það er svo mikill heiður að fá að
vera með?“ Forsvarsmönnum sjón-
varpsins finnst það örugglega,
allavega eru þeir búnir að fá
Guðnýju til að endurtaka leikinn
næsta ár, eftir því sem hún sagði
sjálf í viðtalinu. Mitt svar verður
að næsta gamlárskvöld verði ein-
ungis stillt á Stöð 2. Að mínu áliti
átti skaupið ekkert skylt við létt
grín, heldur í flestum tilfellum
argasta rógburð og illmælgi.
Fólki sem er fengið til þátta-
gerðar á opinberum vettvangi
hlýtur að bera skylda til að gæta
velsæmis gagnvart samborgurun-
um og vera ekki særandi í umfjöll-
un sinni. Þeir sem ekki geta látið
vera að nota tækifærið og ná sér
niðri á fólki sem þeim er illa við
eða ósammála, eiga ekkert erindi
í fjölmiðla sem þáttagerðarmenn.
Ég hef heyrt að kommúnistar haldi
því fram að tilgangurinn helgi
meðalið. Eigum við ekki bara að
sleppa áramótaskaupinu næst og
nota peningana okkar í eitthvað
uppbyggilegt eins og hlutlausa
úttekt á meðhöndlun frétta-,
þáttagerðar- og pistlahöfunda
ríkisútvarps og sjónvarps á frétt-
um og skemmtiefni, eftir pólitísk-
um skoðunum þeirra. Það væri
mjög fróðlegt - og gæti komið
skemmtilega á óvart.
ÁSTHILDUR CECIL ÞÓRÐARDÓTTIR,
ísafirði.
C lœsilegt
Kanarítiibofo
1. februar
3 vikur
Aöe\ns
\bub\í
Viö höfum nú fengiö viöbótar-
gistingu á Sonora golf smáhýsa-
garöinum, einum fegursta
smáhýsagaröinum í Maspalomas.
Snyrtilega innréttuö smáhýsi meö einu svefnherbergi, baöi, eldhúsi
og stofu. Hvert smáhýsi hefur afar fallegan garð og góð sameiginleg
aöstaða er á hótelinu, gób sundlaug, bar, veitingastabur og móttaka
opin allan sólarhringinn.
Veribkr. 77300
pr. mann m.v. 2 í smáhýsi.____________________
Verbkr. 73.500
pr. mann m.v, 3 ísmáhýsi.____________________
Ekki innifalið í verbi ferbar flugvallarskattur og forfallagjöld kr. 3.660.
BRASILIA
- 22. febrúar
Abeins 4 sæli laus.
Ver& frá kr. 109.200
tkLj mnlfaliö I v»föt ferö»r ftugvallarskíttur og forfallagjöW kr. 4.860.
fen
HEIMSFERÐIR
,..L JJ-j
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 624600.
KÆLISKÁPATILBOÐ
FAGOR ^
KÆUSKÁPAR
ÞÚ GETUR
TREYST FAGOR
FAGOR S-30N
FAGOR D-27R
FAGOR C31R 2-Pressur
RÖNNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
Kælir 265 I Frystir: 25I
HxBxD140x60x57
Kr: 39.900stg
Kælir 212 I Frystir: 78I
HxBxD147x60x57
Kr: 46.900stg
Kælir 270 I Frystir: 1101
HxBxD 175x60x57
Kr: 64.900stg
W-JLUV'