Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 41
FÓLK í FRÉTTU
Stjörnuhliðið -
hliðið til himintunglann
verkið, hirðingjastúlkunnar Sha’uri,
er í höndum ungrar ísraelskrar
leikkonu, Mili Avital. Hún hóf
ferilinn á ævintýralegan
hátt. Hún flutti til
Bandaríkjanna
á síðasta
VORU guðimir geimfarar? Rithöf-
undurinn Erik von Daniken
velti þeirri spurningu fyrir sér við
góðar undirtektir í samnefndri bók
fyrir nokkrum árum og viðfangsefnið
hefur heillað marga, bæði vísinda-
menn og listamenn. Hvað ef guðirnir
voru í raun geimfarar og skildu ekki
aðeins eftir sig rúnir eða önnur um-
merki, jafnvel pýramída, heldur líka
útbúnað til að komast aftur til baka
út í himingeiminn? Hlið til himintungl-
anna, út í geiminn? Um þennan mögu-
leika fjaliar ævintýramynd leikstjór-
ans Roland Emmerich, Stargate eða
Stjömuhliðið.
ÍRIS Erlingsdóttir fór á blaða-
mannafund í Los Angeles vegna
frumsýningar kvikmyndarinnar í
Bandaríkjunum. Þar sátu aðalleikarar
Stjömuhliðsins Kurt Russell og James
Spader, auk leikstjórans Rolands
Emmerichs, fyrir svömm.
Á blaðamannafundinum kom fram
aðStjörnuhliðið, sem kostaði 50 millj-
ónir dala í framleiðslu er afsprengi
leikstjórans Rolands Emmerichs og
Deans Devlins, en þeir skrifuðu hand-
rit myndarinnar. „Mig hafði alltaf
langað til að gera mynd með pýr-
amída Egyptalands í bakgrunninum,"
segir Emmerich. „Devlin dreymdi aft-
ur á móti um að gera mynd um eyði-
merkurveröld á annarri plánetu. Þeg-
ar við tengdum þetta tvennt varð
útkoman Stjörnuhliðið."
Myndin, sem á að mestu leyti að
gerast á annarri plánetu, var tekin í
Yuma í Arizonafylki þar sem gullnir
eyðimerkursandar mynda hóla og
hæðir eins langt og augað eygir. Það
tekur aðeins klukkustund að fljúga
til Yuma frá Los Angeles, sem var
hentugt fyrir alla þá sem unnu að
myndinni.
Það var samt hægara sagt en gert
að koma sviðsmyndunum fyrir, enda
engar smásmíðar. Auk þess þurfti að
halda sandhólunum sporlausum og
sléttum, en til þes var notast við þyrl-
ur, öflugar viftur og hundruðir manna
sem voru stöðugt með sópana á lofti.
„Gljúpur sandurinn var ekki eina
vandamálið sem við áttum við að etja.
Hitinn í eyðimörkinni fór oft yfir 40
stig og olli því jafnvel að það leið
yfír leikarana." sagði Emmerich.
Hann lét síðan eina hrakfallasögu
fylgja með: „í einni af stærstu mynda-
tökunum, með næstum því tvö þúsund
aukaleikurum, rugluðust þeir sem
fremst fóru eitthvað í ríminu og helm-
ingurinn af leikurunum fór til hægri
og hinn helmingurinn til vinstri. Við
þurftum að taka allt upp á nýtt.“
Upphaf myndarinnar á að eiga sér
stað í Giza í Egyptalandi árið 1928.
Þar vinna hundruð manna við fomleif-
auppgröft og virðast hafa komið nið-
ur á merkilegar menjar. Spennan
liggur í loftinu og risastór hringur
er reistur upp úr sandinum, en áletr-
un hans veldur skelfíngu meðal inn-
fæddu verkamannanna og þeir hlaupa
skelfíngu lostnir í burtu.
Leyndardómur stjömuhliðsins er
enn hulinn þegar sögunni víkur að
Los Angeles rúmum sextíu ámm síð-
ar. Það fellur í hlut harðsoðins yfír-
manns í bandaríska hemum, Jacks
O’Neil, sem leikinn er af Kurt Russ-
'el, og Daníels Jacksons, ungs prófess-
ors í egypskum fræðum, sem leikinn
er af James Spader, að leysa gátuna.
Fyrir O’Neil er leiðangurinn um
;Stjömuhliðið eins og hvert annað
verkefni og aðeins hluti af skyldum
hans við herinn. Fyrir prófessorinn
unga er förin í gegnum hliðið hans
stóra tækifæri þar sem jafnvel fjar-
lægustu draumar hans geta ræst.
„Eg leik mann, sem hefur engu
að tapa,“ segir Kurt Russell. „Hann
hefur nýlega orðið fyrir fjölskyldu-
harmleik og stendur á sama um ailt.
Hann er dularfullur og hættulegur
og um leið ánægjuleg persóna að
glíma við.“
Kurt Russell fer með hlutverk
„töffarans" í Stjörnuhliðinu, en per-
sóna James Spaders er algjör and-
stæða hans. „Daníel Jackson er eins
og barn,“ segir Spader, sem vakti
athygli fyrir leik sinn í stónnyndinni
Wolf á árinu. „Undir venjulegum
kringumstæðum leik ég illgjörn af-
styrmi, en þetta hlutverk er algjör
undantekning."
Guðinn, Ra, er leikinn af Jaye
Davidson, en þetta er fyrsta mynd
hans síðan hann var tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í
myndinni „The Crying Game“.
Davidson veitir ekki viðtöl, en Emm-
erich segir það hafa verið sérstaka
upplifun að vinna með honum og
Russell og Spader taka í sama
streng. Við það myndast þögn á
blaðamannafundinum, þar til Emm-
erich hlær vandræðalega. „Ja, við
skulum bara segja að það hafí verið
mjög ... sérstök reynsla. Ég myndi
ekki hika við að
vinna með honum
aftur á morgun.
Hann [David-
son] kemst ef
til vill best að
orði sjálfur:
„Guðinn á að
vera eins og tíu
þúsund ára
gamall
spilltur
krakki
- alveg
eins og
ég.““
Aðalkvenhlut-
ári og vann sem þjónustustúlka á
veitingahúsi þegar hún var uppgötv-
uð af einum gestanna, sem var um-
boðsmaður. Innan tveggja vikna var
hún búin að fá stórt hlutverk í
Stjörnuhliðinu.
Kvikmyndagerðarmennimir létu
ekki aðeins endurgera annan heim
fyrir myndina, heldur hristu þeir líka
nýtt tungumál fram úr erminni. Stu-
art Tyson, prófessor við Fomleifa-
fræðistofnun, Fowler-safnsins í Ka-
lifomíu var beðinn um að „búa til“
egypsku, eins og það mál gæti hugs-
anlega hljómað í dag, eftir nokkur
þúsund ára þróun. Eftir ítarlega
rannsókn á orðum og setninga-
hlutum tókst honum að útbúa
reglur sem hann gat byggt not-
hæfar málfræðireglur á.
Leikamir náðu flestir fljót-
lega tökum á málinu, sérstak-
lega aðalleikkonan, Mili Avital, sem
talar hebresku og arabísku, en Kurt
Russell segir ekki orð á „egypsku" í
myndinni. „Ég leit yfír handritið og
sagði: Er það ekki örugglega rétt
skilið hjá mér að ég þarf ekki að
láta orð út úr mér á þessu tungu-
máli?“
Það er kannski viðeigandi að
gefa Russell lokaorðið, þegar
það er haft í huga að hann
þénaði fjörutíu milljónir króna
á myndinni: „Stjörnuhliðið hef-
ur ekki aðeins skemmtanagildi.
Einn helsti boðskapur myndar-
innar er sá, að sama hvert í veröld-
inni mannskepnan ferðast, þótt það
sé á hjara véraldar, losnar hún aldr-
ei undan þeim kvöðum sem fylgja
því að vera manneskja."
MIKIÐ var lagt í að gera stjömuhlið-
ið sannfærandi.
ATAK IFITUBRENNSLU
8 vikna námskeið fyrir þær sem vilja losna við aukakíló.
Morgun-, dag- og kvöldtímar. Einfaldar og árangurs-
ríkar æfingar.
Athugið!!! Námskeiðið hefst 9.janúar. HRESS
Skráning og nánari upplýsingar í síma 65 22 12 UKAMSRÆKT OG LJÓS
ÆT MT •/ O BÆJARHRAUNI4/VIÐ KEFLAVÍKURVEGINN/SlMI 65 22 12