Morgunblaðið - 15.01.1995, Page 1
88 SÍÐUR B/C
12.TBL. 83.ÁRG.
SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
Skarfar í Hafnarfjarðarhöfn
ÞESSIR skarfar spókuðu sig í blíðviðrinu í Hafnarfjarðarhöfn í byijun vikunnar. Von er til þess að veðrið batni að nýju
um vestanvert landið eftir éljaganginn síðustu daga, því spáð er björtu veðri og hægri austlægri átt seinni partinn í dag og
á morgun. Á Norður- og Austurlandi snýst þetta hins vegar við í austanáttinni.
Rússneskur liðsafli kominn til Grosní og gerir linnulitlar árásir
Rússar segjast ráða
miðborginni að mestu
Grosní, Bonn. Reuter.
Hugðust ná
Abkhazíu
FYRRUM varnarmálaráðherra Georg-
iu, Tengiz Kitovani, var í fyrrinótt tek-
inn höndum ásamt 370 stuðningsmönn-
um sínum er þeir voru á leið til Abkhaz-
íuhéraðs sem þeir hugðust ná á sitt
vald. Um 500 stuðningsmenn Kitovanis
og Tengiz Sigua, fyrrum forsætisráð-
herra, sem eru harðir andstæðingar
Edúards Shevardnadzdes, forseta Ge-
orgíu, lögðu upp frá höfuðborginni
Tblisi á föstudag. Shevardnadzde sagði
för hópsins vera tilraun að koma að
nýju af stað borgarastyijöld í Georgíu.
Rússar fara með eftirlit í landinu eftir
að friðarsamkomulag náðist við abk-
hasíska aðskilnaðarsinna.
Skólastjórinn
át orníana
Boston. Morgunblaðið.
TOM Dixey, aðstoðarskólastjóri gagn-
fræðaskóla eins í Illinois í Bandarikjun-
um, opnaði ormagryfju þegar hann
skoraði á nemendur sína að setjast nið-
ur og lesa fjögur þúsund bókmennta-
verk. Dixey kvaðst mundu leggja sér
skordýr til munns ef áskoruninni yrði
tekið. 450 nemendur af 1.500, sem í
skólanum eru, tóku hann á orðinu og
hófu lesturinn. Á föstudag kom að Dix-
ey að standa við sinn hluta. Hann sett-
ist niður í beinni sjónvarpsútsendingu,
setti upp í sig hráan orm og tuggði
vel. Því næst borðaði hann annan fyrir
framan nemendur. Ekki fylgdi sögunni
hvort ormarnir voru lifandi, en hér
voru á ferð lirfur mjölbjöllunnar, sem
eitt sinn þótti lostæti í Grikklandi og
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Flugkona
upp á punt
BRESK flugkona hefur nú höfðað mál
á hendur flugfélagi sem sagði henni
upp störfum fyrir skömmu í kjölfar
þess að hún kvartaði yfir áreitni starfs-
félaga sinna og stöðugum tilraunum
þeirra til að niðurlægja hana. Nefnir
flugkonan, Sandra Valentine, sem
dæmi að í sjö stunda æfingaflugi hafi
hún ekkert fengið að fljúga, heldur
verið skipað að ná í kaffi og samlokur
fyrir hina flugmennina. í fyrstu flug-
ferðinni hafi flugstjórinn kynnt Valent-
ine fyrir fullri vél af farþegum með
orðunum: „Við sitjum uppi með konur
fram í og aftur í núorðið, svo ekki
kenna mér um.“ Þá hafi yfirmaður
hennar kallað hana „flugkonu upp á
punt“ og sagt að „ekki ætti að hleypa
konum í neitt tæknilegra en hnífa og
gaffla um borð i flugvél".
RÚSSAR héldu í gær áfram stöðugum stór-
skotaliðsárásum á Grosní, höfuðborg
Tsjetsjeníu. Létust fjórir í sprengjuárás á
Minutka-torg nærri miðborginni, þar af tveir
rússneskir hermenn. Aukinn liðstyrkur var í
gær á leið til borgarinnar og segjast Rússar
ráða yfir stærstum hluta miðborgarinnar, þar
á meðal höfuðstöðvum Dzhokhars Dúdajevs,
forseta héraðsins. íbúar Grosní sem fréttarit-
ari Reuters ræddi við, voru hins vegar víg-
móðir og sögu Rússum ekki hafa tekist áætl-
unarverk sitt, sem þeir hefðu sagst myndu
uppfylla á tveimur dögum.
Að sögn Interfax héldu 24 rússneskir
skriðdrekar og 72 flutningabílar með her-
mönnum frá Norður-Ossetíu til Grosní í gær-
morgun. Gera Rússar nær linnulausar árásir
á borgina en harðasta hríð gerðu þeir að
forsetahöllinni, bæði úr lofti og af jörðu niðri.
Á föstudag gerðu Rússar árásir á þau fáu
svæði sem ekki höfðu orðið fyrir sprengjum.
Sögðu fréttamenn í borginni að allt sem hefði
mátt eyðileggja, væri nú rústir einar. Meðal
annars var skotið á strætisvagnamiðstöð
borgarinnar en þaðan hafa borgarbúar flúið
til fjalla.
Rússnesk yfirvöld segja að nú veijist að-
eins fáeinir uppreisnarmenn í Grosní eftir að
hafa haldið uppi vörnum í rúman mánuð.
Dómsmálaráðherra Rússlands, Valentín Kov-
aljov, sagði að aðeins væri veitt mótspyma
í þremur byggingum og að Rússar myndu
ná borginni innan viku.
Zhírínovskíj vill ganga lengra
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, ítrekaði
í gær stuðning sinn við Borís Jeltsín Rúss-
landsforseta en lýsti jafnframt yfír áhyggjum
yfir því að mannréttindi væru fótum troðin
í uppreisnarhéraðinu Tsjetsjeníu. Þetta kom
fram í viðtali við dagblaðið Frankfurter Allge-
meine.
Hinn öfgafulli þjóðernissinni, Vladimír
Zhírínovskíj, segir í samtali við þýska tímarit-
ið Der Spiegel yfir að Rússar hefðu ekki
gengið nógu langt gangvart Tsjetsjenum.
Jeltsín hefði átt að látajafna Grosní við jörðu.
Þá fullyrti Zhírínovskíj að fréttir um að meiri-
hluti Rússa væri andvígur hernaði Rússa í
Tsjetsjeníu væri hrein lygi.
MEÐ MAMESU
RÍÐUHEYTIÐ
10
UPPBYGGING A
BESSASTÖÐUM
VANTAR NYJAR
LEIKREGL UR