Morgunblaðið - 17.01.1995, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*
Oveður á öllum Vestfjörðum í gær og mikil snjóflóðahætta
500 manns þurftu að
yfirgefa heimili sín
Víða á Vestfjörðum voru
hús rýmd vegna
snjóflóðahættu
20 íbúðir rýmdar |
Fjölskyldan í Hjarðardal fluttur á Þingeyri
HÚS voru rýmd að kröfu almanna-
varnanefnda víða á Vestfjörðum í
gær. Alls staðar gekk vel að flytja
fólk á milli húsa þrátt fyrir vonsku-
veður og ófærð. Flestir fengu húsa-
skjól hjá vinum og vandamönnum
en öðrum var komið fyrir í gistihús-
um. Má áætla að rúmlega 500
manns hafi þurft að yfirgefa heim-
ili sín.
Fólk hélt sig víðast heima í gær
og voru mörg fyrirtæki lokuð vegna
þess að fólk komst ekki á milli
húsa. Víða var beygur í fólki og
óhugur vegna frétta frá Súðavík
en samkvæmt upplýsingum al-
mannavarnayfírvalda á flestum
stöðum á Vestfjörðum hélt fólk ró
sinni. Rafmagnstruflanir urðu alls
staðar á Vestfjörðum og rafmagns-
leysi í Strandasýslu, norðan Hólma-
víkur.
Snjóflóð féll við bæinn Hjarðar-
dal í Dýrafirði í gær og var fjöl-
skyldan sem þar býr sótt á snjóbíl
frá Þingeyri. Að sögn Jónasar Ól-
afssonar sveitarstjóra tókst bónd-
anum að þjappa snjóinn með drátt-
arvél og aka á móti snjóbílnum með
eiginkonu sína og tvö börn. Þegar
Morgunblaðið hafði samband við
Jónas í gærkvöldi hafði ferð snjó-
bílsins tekið um sjö klukkustundir
og var hann ekki enn kominn til
Þingeyrar með fólkið.
Jónas sagði að til stæði að skipta
um mannskap á snjóbílnum þegar
hann kæmi til Þingeyrar. Þá yrði
haldið að bænum Haukadal, sem
er í um sjö km fjarlægð frá Þing-
eyri, til að huga að fullorðinni konu,
sem þar býr ein. Hún hafði beðið
um aðstoð vegna þess að hún hafði
dottið og meitt sig.
Hundrað hús rýmd á
Patreksfirði
Um eitt hundrað hús voru rýmd
á Patreksfirði á því svæði þar sem
talið var að snjóflóðahætta væri
fyrir hendi ofarlega í bænum. Að
sögn Jónasar Sigurðssonar, aðal-
varðstjóra og staðgengils lögreglu-
stjóra, þurftu um 300 manns að
yfirgefa heimili sín. Hann segir að
flestir hafi fengið inni hjá vinum
og vandamönnum en milli 60 og
70 manns fengu inni í félagsheimil-
inu.
Jónas sagði að allir legðust á
eitt við að koma fólki á milli staða;
lögreglumenn, vegagerðarmenn og
hjálparsveitarmenn hjálpuðust að.
Hann sagði að fólk væri ekki ósátt
við að þurfa að yfirgefa heimili sín
og héldi ró sinni.
Fólk felmtri slegið
Á Flateyri voru 20 íbúðir rýmdar
í gær og rúmlega 60 íbúar fluttir
til vina og ættingja. Kristján Jó-
hannesson hjá almannavarnanefnd
sagði að fólk væri felmtri slegið og
órói meiri en venjulega. Hann sagði
að snjó hefði verið mokað í Ólafs-
túni en það skæfi jafnóðum og erf-
itt væri að komast á milli húsa en
björgunarsveitarmenn hefðu verið
að aðstoða fólk við það í allan
gærdag. Hann segir að rafmagn
hafí farið af nokkrum sinnum og
útvarpssendingar hefðu ekki náðst
um tíma síðdegis.
Á Bíldudal þurftu um 35 manns
að fara úr 11 íbúðum í ytri hluta
þorpsins og komust allir í húsaskjól
hjá vinum og vandamönnum. Örn
Gíslason hjá stjórnstöð almanna-
varnanefndar sagði að fóik hefði
farið út úr fleiri húsum að eigin ósk
og hefðu björgunarsveitarmenn
flutt fólk á milli húsa. Hann sagði
að einhver hræðsla væri í fólki en
allt hefði gengið vel. Örn sagði að
á þeim tveimur bæjum sem væru í
byggð í nágrenni Bíldudals væri
allt í góðu lagi. Menn legðu ekki í
að fara neitt út fyrir byggðina
vegna óveðurs og ófærðar.
Rafmagn fór af öðru hveiju í gær
á Bíldudal en .Örn sagði að raf-
magnsleysið hefði ekki verið til
vandræða. Hann sagði þó að um
leið og rafmagnið færi af útvarps-
sendi þá heyrðust ekki FM-útsend-
ingar útvarps og langbylgjuútsend-
ing heyrðist ekki of vel.
Bolvíkingar gátu sig
hvergi hreyft
Þijátíu hús efst í byggðinni í
Bolungarvík og meðfram Traðar-
hyrnu voru rýmd síðdegis í gær.
Milii 50 og 60 manns yfirgáfu heim-
ili sín og fóru flestir til vina og
vandamanna. Jónas Guðmundsson,
formaður almannavarnanefndar í
Bolungarvík, sagði að þeir sem
hefðu ekki í önnur hús að venda
hefðu fengið inni á veitingastað þar
sem verið væri að innrétta gisti-
heimili. Jónas sagði að hann hefði
ekki fundið fyrir hræðslu í fólki og
allir héldu ró sinni. Þeir sem hefðu
óskað þess hefðu verið fluttir á
milli húsa í snjóbíl. Hann sagði að
lítils háttar rafmagnstruflanir
hefðu verið í gær, sjónvarp sást
ekki og illa heyrðist í útvarpi. Veð-
ur var svo slæmt í Bolungarvík að
höfnin lokaðist og gátu Bolvíkingar
sig því hvergi hreyft, því kolófært
var landleiðina.
Almannavarnanefnd ísafjarðar
ákvað í gærmorgun að 16 hús í
Hnífsdal skyldu rýmd og tvö á
ísafirði, Brúarnesti og Seljaland við
mynni Tungudals. Hluti íbúanna fór
til ættingja en aðrir fengu inni á
heimavist Menntaskólans á ísafirði.
Hjálparsveitin á Hnífsdal sá um að
koma fólki á milli staða og gekk
allt snurðulaust fyrir sig.
Öll umferð um Eyrarhlíð, milli
ísafjarðar og Hnífsdals, var bönnuð
nema undir eftirliti lögreglu.
Ekki hætta á Tálknafirði
Á Tálknafirði var ekki snjóflóða-
hætta en að sögn Brynjólfs Gísla-
sonar, sveitarstjóra og formanns
almannavarnanefndar, var mjög vel
fylgst með ástandinu. Menn voru
sendir upp í Tungufell til að kanna
aðstæður en ekki reyndist ástæða
til að lýsa yfir hættuástandi. Snjór
hafði ekki safnast fyrir, vindáttin
var þannig að snjór fauk að mestu
í burtu.
Að sögn Helgu Jónasdóttur,
fréttaritara Morgunblaðsins á
Tálknafirði, leið fólki betur að heyra
að öllu væri óhætt vegna þess að
nokkur beygur hefði verið í fólki.
Áður en fólk vissi að öllu væri óhætt
voru nokkrir sem fluttu úr húsum
sínum í efstu götunni undir Tungu-
felli en þeir fóru heim til sín aftur.
Alls staðar
rafmagnstruflanir
Kristján Haraldsson, orkubús-
stjóri Orkubús Vestfjarða, sagði að
ástand rafmagns hefði verið eins
gott og aðstæður og veður leyfðu
í gær. Rafmagn hefði verið að detta
út alls staðar á Vestfjörðum vegna
truflana á vesturlínu en það hefði
yfirleitt ekki staðið lengur en í um
hálfa til eina klukkustund í hvert
sinn. Hann sagði að rafmagnslaust
hefði verið meira og minna í
Strandasýslu norðan Hólmavíkur
og ástæða þess yrðj könnuð um
leið og veður leyfði. Hann sagðist
ekki vita af neinu alvarlegu tjóni
utan að orkubúið hefði misst
spennistöð í snjóflóðinu á Súðavík
en það væri hjóm eitt miðað við það
manntjón sem þar hefði orðið.
Páll Ásgeirsson læknir
200 símtöl
til Rauða
krossins
HÁTT í tvö hundruð símtöl
höfðu borist Rauða krossi Is-
lands seint í gærkvöldi. Al-
mannavarnir ríkisins fólu
Rauða krossinum að halda utan
um upplýsingar um íbúa á Súða-
vík og sinna áfallahjálp í hús-
næði sínu á Rauðarárstíg. Þar
var opið hús í allan gærdag og
fram til miðnættis.
Fimm sérfræðingar á sviði
sálgæslu, tveir prestar, tveir
sálfræðingar og geðlæknir,
hafa rætt við fólk sem hefur
átt vini eða ættmenni sem hafa
farist eða er saknað í snjóflóð-
unum í Súðavík. Páll Ásgeirsson
geðlæknir segir að einnig hafi
margir leitað til Rauða krossins
sem ekki eigi sjálfir um sárt að
binda í Súðavík heldur hafi sett
sig í spor þeirra sem hafa orðið
fyrir missi. Páll segir að þá rifj-
ist oft upp fyrir þeim sem sjálf-
ir hafi orðið fyrir missi áður.
Prestar heimsóttu
syrgjendur
Sigrún Árnadóttir fram-
kvæmdastjóri Rauða kross Is-
lands sagði að um tuttugu
manns komið á Hótel Lind á
Rauðarárstíg i gær.
Páll sagði að samtölin hefðu
verið af ýmsum toga. Hann
hefði þurft að segja sumu fólki
að ættingja þeirra væri saknað
og það væri erfitt að koma því
á framfæri með aðeins símtólið
milli handa. Sigrún sagði að
haft hefði verið samband við
sóknarpresta þeirra sem hefðu
misst ættingja eða vini og þeir
hefðu jafnvel heimsótt syrgj-
endur.
Innri barátta
semferígang
„Við vitum ekki hvort það sé
ástæða til að hjálpa þessum
hópi eitthvað frekar, þá með
samtölum eða þá að það kæmi
hingað í hóp,“ sagði Sigrún.
Páll hefur reynslu af starfi
sem þessu því hann tók þátt í
því að setja upp áfallahjálp með
Rauða krossinum 1973 þegar
eldgos braust út í Heimaey. Þá
hefði mönnum reiknast til að
fimmtungur Vestmanneyinga
hefði á einn eða annan máta
leitað aðstoðar.
Páll segir að aðalatriðið í
aðstoð sem þessari væri að
hlusta með opnum hug og leyfa
fólki að létta á sér. „Það er innri
barátta sem fer í gang við svona
atburði sem þarf að vinna úr,“
segir Páll.
Hjalti Hjaltason skipsljóri á Fagranesinu sem fór milli ísafjarðar og Súðavíkur
Allt leggst á eitt
að gera þetta eins
erfitt og hægt er
DJÚPBÁTURINN Fagranes
flutti í gær um 100 björgunar-
sveitarmenn og hjúkrunarfólk í
tveimur ferðum frá ísafirði til
Súðavíkur og síðan til ísafjarðar
86 íbúa Súðavíkur auk sjö sem
slösuðust í snjóflóðinu. Hjalti
Hjaltason, skipstjóri á Fagranes-
inu, segir að skipið hafi svo sann-
arlega sannað tilverurétt sinn.
Snarbrjálað veður
Hjalti sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að boð
hefðu borist frá lögreglunni
klukkan að verða 7 í gærmorgun
um að þörf væri á aðstoð Fagra-
nessins vegna snjóflóðanna í
Súðavík, og hefði áhöfnin þegar
verið kölluð til skips. Erfiðleikar
vegna veðurs og ófærðar á
Isafirði gerðu það að verkum að
tafsamt var að koma skipinu úr
höfn, en um borð voru auk
áhafnarinnar um 50 björgunar-
sveitarmenn frá ísafirði sem
komu um borð í Sundahöfn.
Fagranesið var komið til Súða-
víkur kl. 9.50 og lagðist þar að
bryggju. Til stóð að skuttogarinn
Bessi ÍS annaðist flutning á
slösuðum og öðrum farþegum frá
Súðavík, en vegna veðurs og
sjávarfalla gat togarinn ekki
lagst þar að bryggju.
„Yið fórum slðan í snarbijál-
uðu veðri frá Súðavík um klukk-
an tvö eftir hádegið og komum
til Isafjarðar að verða hálffjögur.
Við fórum síðan frá ísafirði um
leið og skipið var tilbúið klukkan
rúmlega fimm með 40-50 manna
hjálparlið. Ætlunin var að fara
líka með gröfur og önnur hjálpar-
tæki til Súðavíkur, en það var
hins vegar ekki hægt þar sem
veður og ókyrrð við bryggjuna á
ísafirði leyfði ekki að koma tækj-
unum um borð. Eins og alþjóð
veit þá höfum við ekki feiju-
bryggju á ísafirði og því erfitt
um vik fyrir okkur. Það er því
allt sem hjálpast að hér til að
gera þetta eins erfitt og hægt
er,“ sagði Hjalti.
Stjórnstöð í Fagranesinu
í gærkvöldi var Fagranesið við
ófyggju á Súðavík og stóð til að
skipið yrði notað sem hvíldarað-
staða og stjórnstöð fyrir útkeyrða
björgunarsveitarmenn.
„Fólk verður að átta sig á að
við búum á íslandi en ekki ein-
hvers staðar á suðlægum slóðum
og hér getur allt gerst.. Þetta
skip er að ég held það hentug-
asta hér um slóðir sem getur
veitt fyrstu aðstoð af þessu tagi,
og það hefur svo sannarlega
sannað gildi sitt svo ekki verður
um villst núna,“ sagði Hjalti.
4~
i
i
i
Í
<
i
i
t
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Í
i
i
(
i
i
I
(
(
I
(
(