Morgunblaðið

Ulloq
  • Qaammatit siuliiJanuary 1995Qaammatip tullia
    MoTuWeThFrSaSu
    2627282930311
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    23242526272829
    303112345

Morgunblaðið - 31.01.1995, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 31.01.1995, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Spáð 4,5-5% hækkun láns- kjaravísitölu FYRIRSJÁANLEGT er að verðbólga verði meiri á árinu 1995 en verið hefur síðastliðin ár, að mati fréttabréfs Landsbréfa hf. fyrir lífeyrissjóði sem nýlega er komið út. Er því spáð að lánskjaravísitalan mun hækka um 4,5—5% á árinu sem hefði í för með sér að nafnávöxtun verðtryggðra skuldabréfa yrði líklega á bilinu 9-10% á þessu ári. í fréttabréfinu er stuðst við verð- bólgulíkan Seðlabankans sem byggt er á rannsókn Guðmundar Guð- mundssonar. Þar er reiknað með því að launabreytingar valdi 75% samsvarandi breytingu í lánskjara- vísitölu sem þýddi að 10% launa- hækkun myndi valda 7,5% hækkun vísitölunnar. Tekið er mið af kröfugerð Versl- unarmannafélags Reykjavíkur sem hljóðaði upp á 3% launahækkun við undirritun, 3% 1. október og 3% 1. mars 1996. Þetta hefði í för með sér 4% verðbólgu á þessu ári og 2,5% verðbólgu árið 1996. Verði verðhækkanir erlendis 3% á næstu tveimur árum hækkaði það innlent verðlag aukalega um u.þ.b. 0,75%. Hér er ekki gert ráð fyrir verðbreyt- ingum innflutningsvara eða að launaskrið verði á tímabilinu. Hins vegar er á það bent að ef spár um lækkun á gengi krónunnar verði að veruleika muni það hafa áhrif til hækkunar verðbólgu. Sú hækkun kæmi þó ekki fram fyrr en að ein- hveijum tíma liðnum og óvíst hvort hún kæmi fram fýrr en árið 1996. Raunar sé áhætta varðandi gengis- fellingar talin lítil fyrr en í fyrsta lagi eftir kosningar. tffscrfcr/ HAMAX- Snjóþotur-sleðar stýrirsleðar frá Noregi... ... a meðan birgðir endast. _ _ Reidhjóla verslunin SKEIFUNN111 SÍMI, 588-9890 Hádegisverðarfundur í Átthagasal, Hótel Sögu fimmtudaginn 2. febrúar 1995 kl. 11.00-13.00 Niels Helveg Petersen, utanríkisráðherra Danmerkur: REYNSLA DANA Í ESB 0G FRAMTÍÐ EVRÓPUSAMBANDSINS Fyrirlesorinn, Niels Helveg Petersen, flytur ræðu sina ó dönsku en svarar fyrirspurnum ó dönsku og ensku Fundargjald meS veitingum er kr. 2.500 Fundurinn er opinn en tilkynna verður þátttöku fyrirfram í síma 588 6666 (kl. 08-16) VERSLUNARRAÐ ÍSLANDS VINNUVEITENDASAMBAND ÍSLANDS Morgunblaðið/Halldór CARL Johansen (með stóra pottinn) og starfsmenn Skiðaskálans búa sig undir flutning í bæinn. Carl Johansen veitingamaður Selur Skíðaskálann og fer til Grand Hotel CARL Johansen veitingamaður hefur selt Skíðaskálann í Hverad- ölum eftir 10 ára rekstur og mun taka við veitingarekstri hjá Grand Hótel Reykjavík, sem áður var Hótel Hoíiday Inn. Kaupandi Skíðaskálans er Ólafur Torfason, aðaleigandi Kaupgarðs og einn af aðstandendum fyrirtækisins Hótelið við Sigtún 38 í Reykjavík hf., sem keypti Holiday Inn af íslandsbanka fyrr í mánuðinum. Carl sagði að hann og nokkrir kokkar og þjónar í Skíðaskálan- um myndu flytja reksturinn sem fram fór í skálanum með sér á hinn nýja vinnustað. „Við verðum þar með „brasserí", léttur staður þar sem boðið verður upp á ódýra jafnt sem dýra rétti, þar sem þú getur fengið þér samloku en líka piparsteik. Síðan verða þessir ÍSLENSKI markaðsklúbburinn, Imark, boðar til hádegisverðarfundar í dag þar sem reynt verður að varpa ljósi á kostunar- og stuðningsmál fyrirtækja. Einnig verður fjallað um málið frá sjónarhóli þess sem fær stuðninginn. Á fundinum verður leitað svara við því hvaða áhrif stuðningur við stór samtök á borð við Knattspyrnu- samband Islands eða einstök stað- bundin félög hefur á ímynd fyrir- tækja. Þá verður m.a. flallað um hefðbundnu veislusalir fyrir brúð- kaup og annað, þetta verður svona í skálastíl." Auk þess verður boðið upp á veislueldhús úti í bæ. En af hveiju er Carl að selja Skíðaskálann? „Það var kominn tími til að breyta til, við erum ánægðir með að hafa komið þessu húsi upp og okkur finnst það hafa tekist ágætlega. Það verður líka spennandi að takast á við þetta nýja verkefni hjá Grand Hótel,“ sagði Carl. Hann sagði að rekstur Skíðaskálans gengi vel og bókanir væru miklar alveg fram á vor. Carl sagðist ekki vilja gefa upp söluverð Skíðaskálans. Gamli skálinn var reistur árið 1934, en hann brann í janúar 1991. Nýr skáli var svo reistur á sama stað og opnaði hann 17. júní 1992. hvernig hægt sé að nýta stuðninginn með öðrum markaðsaðgerðum og hvað sé eðlilegt að greiða í kostnað. Fýrirlesarar verða Gunnar Steinn Pálsson, almannatengill, Kristján Jóhannsson, kynningarstjóri Eim- skips, Andri Hrólfsson, markaðs- stjóri Visa íslands og Magnús Krist- jánsson, markaðsstjóri íslenska út- varpsfélagsins. Fundurinn verður haldinn í Vík- ingasal Hótels Loftleiða og stendur frá kl. 12.00 til 13.30. Apple með nýja New- ton PDA tölvu Palo Aito, Kaliforníu. Reuter. APPLE-tölvufyrirtækið kynnir þessa dagana nýja og endur- bætta ferða- eða handtölvu, Newton MessagePad 120, sem getur sent og tekið við tölvu- pósti og símbréfum, auk þess að sjá um bókhald og fleira í einkaþágu. Fyrsta Newton tölvan kom á markaðinn fyrir 18 mánuðum. Sagt var að um væri að ræða tölvu af nýrri kynslóð, sem þekkti rithönd notandans, en hún fékk slæma dóma og seld- ist illa. Nú taka starfsmenn Apple vandlega fram að Newton sé látinn„þróast“ án „byltingar," að því er virðist til þess að koma í veg fyrir að of miklar vonir verði bundnar við nýju gerðina, sem kostar 599 dollara eins og sú fyrri. Önnur fyrirtæki bjóða eins konar PDA-tölvur þar á meðal BellSouth, Sharp, Sony, Tandy og Motorola, sem nýlega kynnti afbrigði af Newton frá Apple. Wellcome leitar að betra boði London. Reuter. SÍÐAN brezka lyfjafyrirtækið Wellcome hafnaði 8.9 milljarða punda tilboði Glaxo Plc á þeirri forsendu að tilboðið væri ekki nógu hátt hefur það leitað log- andi ljósi að einhveiju öðru voldugu lyfjafyrirtæki, sem get- ur boðið betur. Tilraunirnar hafa ekki enn borið árangur og hermt er að þýzka fyrirtækið Höchst sé úr leik, þar sem það eigi í viðræð- um um kaup á Marion Merrell Dow. Enn er ekki talið útilokað að Glaxo hækki tilboð sitt og fyrirætlanir um að koma á fót stærsta lyfjafyrirtæki heims verði að veruleika. Hlutabréf í Wellcome-fyrir- tækinu hækkuðu í verði þegar tilboði Glaxo var hafnað og seldust á yfir 10 pund á föstu- dag. Fundur um kostun hjá ímarki Bílaumboð Bnmborg tekur við Ford og Citroen FORD Motor Company og Citroén International hafa nú staðfest sam- komulag Brimborgar hf. og Globus hf. um að Brimborg taki við Ford og Citroén-bílaumboðunum. Eins og fram hefur komið tók Globus þá ákvörðun að draga sig út úr rekstri með bíla og bílavörur og einbeita sér í staðinn að heildsölu- verslun með almennar neysluvörur og umboðsrekstur fyrir áfengi og tóbak annars vegar og hins vegar verslun með vinnuvélar, landbúnað- artæki og samsvarandi þjónustu. I þeim tilgangi hefur Globus hf. verið skipt upp í tvö sjálfstæð fyrirtæki, Globus heildverslun og Globus véla- ver sem hvort um sig mun einbeita sér að sínu sérsviði, að því er segir í fréttatilkynningu. Brimborg hf. mun taka yfír sölu og þjónustu Ford og Citroén bifreiða frá og með 1. febrúar 1995. Brimborg mun kaupa allar eignir tengdar bíladeild Globus, þ.m.t. allan búnað á verkstæði og varahlutaverslun ásamt varahluta- lager og lager nýrra bíla. Flestir starfsmenn bíladeildar Glo- bus munu hefja störf hjá Brimborg 1. febrúar 1995. Brimborg hf. hóf bílainnflutning 1977 með innflutningi á Daihatsu- bifreiðum en systurfyrirtæki þess, Ventill hf., hefur rekið öll þjónustu- verkstæði fyrirtækisins og hefur ver- ið starfrækt frá árinu 1964. Árið 1988 tók Brimborg hf. við sölu og þjónustu Volvo fólks- og vörubifreiða ásamt Volvo Penta-bátavélum og fjölda annarra umboða tengdum fólks- og vörubílum. Með yfírtöku Brimborgar á Ford og Citroén-umboðunum getur fyrir- tækið í fyrsta skipti boðið ökutæki í öllum flokkum fólks-, sendi-, vöru- og fólksflutningabifreiða. Þá segir í fréttinni að þetta muni gera Brim- borg kleift að keppa af meiri krafti á markaðnum. Hagkvæmni í rekstri aukist til muna vegna aukinnar fram- leiðni sem muni skila sér í lægri kostnaði og lægra verði til viðskipta- vina okkar, bæði til Volvo- og Dai- hatsu-viðskiptavina og Ford- og Citroén-viðskiptavina. í upphafi verður jögð mest áhersla á að koma verkstæðis- og varahluta- þjónustu í gott horf og hefur þegar verið hafíst handa við flutninga á varahlutaverslun og verkstæði. Taka mun 10 daga að flytja og telja vara- hlutalager Ford og Citroén ásamt flutningi og uppsetningu á búnaði fyrir verkstæði og mun fullbúin vara- hluta- og viðgerðarþjónusta verða opnuð mánudaginn 6. febrúar á Bíldshöfða 6. Sölustarfsemin mun hefjast í tveimur áföngum. Fyrst verður lögð áhersla á sölu og markaðssetningu Ford-bifreiða en ákveðið hefur verið í samráði við Citroén International að hefja sölu og markaðssetningu um áramótin 1995/1996. Allar upp- lýsingar um nýja og notaða bíla verða þó veittar frá upphafí. Sala nýrra og notaðra bifreiða mun fara fram í sal fyrirtækisins í Faxafeni 8. ) > I )

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
110
Fjöldi tölublaða/hefta:
55340
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
30.12.2023
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar: 25. tölublað (31.01.1995)
https://timarit.is/issue/127086

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

25. tölublað (31.01.1995)

Iliuutsit: