Morgunblaðið - 31.01.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 19
Reuter
Afhenda landsvæði
MOHAMED Malakawi, yfirmaður jórdanska hersins, og hinn ísra-
elski starfsbróðir hans Yousef Michlab, takast í hendur við athfön
í Ar Rish við landamæri ríkjanna í gær. Var verið að halda upp á
að Israelar afhentu Jórdönum landsvæði, sem hernumin voru í
sexdagastríðinu, í samræmi við friðarsáttmála ríkjanna frá í októ-
ber á síðasta ári.
Listagagnrýnandi
The Times hrifinn
Minnt á íslenskt
faðerni Thorvaldsens
BRESKA blaðið The Times
birti nýlega grein undir fyrir-
sögninni „Danskur snillingur
hylitur" um 150 ára ártíð Bert-
els Thorvaldsens sem haldið
var upp á í Kaupmannahöfn í
fyrra með mikilli viðhöfn..
Gagnrýnandinn, John Russel
Taylor, lýsir hrifningu sinni á
verkum Thorvaldsens sem
hafi óvírætt verið meðal
fremstu myndhöggvara Evr-
ópu á síðari tímum og segir
frá íslensku faðerni lista-
mannsins.
Taylor minnir á að íslenska
lýðveldið hafi átt 50 ára af-
mæli í fyrra og segir að ekki
sé fjarri sannleikanum að
kalla Thorvaldsen mesta lista-
mann íslendinga frá upphafi.
„Það er ekki á allra vitorði
en Thorvaldsen var af íslensk-
um ættum og hélt uppi tryggu
sambandi við ísland allt sitt
líf. Afi hans var prestur sem
smiðaði og skreytti sjálfur at-
hyglisverða viðarkirkju á Is-
landi. Faðirinn var skipasmið-
ur sem hélt til Kaupmanna-
hafnar til að starfa í skipa-
smíðastöð, þar skar hann út
stafnslíkön og aðrar skreyt-
ingar.
Ferill Thorvaldsens hófst
er hann aðstoðaði föður sinn
við að teikna drög að viðar-
skurði. Er Thorvaldsen
hreppti styrk til að fara til
JASON með gullna reifið,
eitt af verkum Bertells
Thorvaldsens.
ítaliu 1793 var sagt að verkum
föðurins hefði strax hrakað
n\jög.“
Taylor ber saman verk
Thorvaldsens og Canova, seg-
ir að dálítið hijúf áferð á
marmara hins fyrrnefnda
valdi því að verkin hafi í sér
„innri glóð“ og séu mun að-
gengilegri en fægður Carr-
ara-marmari Canova: Hjá
Canova nái birtan ekki inn í
steininn, hann sé svo gljáfægð-
ur að verkin virðist oft vera
mótuð í sápu. Thorvaldsen sé
vissulega tígulegur í list sinni
en hann glati aldrei tengslun-
um við almenning.
Elísabet drottning
hætt komin 1960
London. Reuter.
EKKI munaði nema 15 metrum,
að tvær vestur-þýskar herþotur
flygju á breska flugvél með Elísa-
betu Englandsdrottningu innan-
borðs árið 1960. Átti þetta sér stað
innan vestur-þýskrar lofthelgi en
frá þessum atburði hefur ekki verið
skýrt fyrr en nú.
Breska dagblaðið The Observer
skýrði frá þessu um helgina og
sagði, að breska stjórnin á þessum
tíma hefði ákveðið að hafa ekki
hátt um atburðinn til að glata ekki
stuðningi Vestur-Þjóðveija við um-
sókn Breta um aðild að Efnahags-
bandalaginu, sem þá var, síðar
Evrópusambandinu. Af aðildinni
varð þó ekki fyrr en síðar vegna
þess, að De Gaulle, forseti Frakk-
lands, beitt neitunarvaldi gegn
henni 1963.
The Observer sló þessari meira
en 30 ára gömlu frétt upp á forsíðu
og þykir það sýna vel hvað sam-
skipti Breta og Þjóðvetja eru enn
viðkvæm hálfri öld eftir stríðslok.
Elísabet drottning var á heimleið
frá Danmörku með Comet-flugvél
þegar aðstoðarflugmaðurinn sá allt
í einu tvær herþotur nálgast rétt
hægra megin við vélina. Kvað hann
engan tíma hafa verið til að bregð-
ast við en hann sá svarta krossa
vestur-þýska flughersins á þotun-
um þegar þær geystust hjá.
Bresk og v-þýsk yfirvöld könn-
uðu málið í kjölfarið en flugmenn-
imir sögðust ekki hafa farið jafn
nærri vél drottningar og aðstoðar-
flugmaður hennar staðhæfði. V-
þýska stjórnin neitaði að bera fram
formlega afsökun vegna atviksins.
ERLENT
Franskir sjómenn undirbúa aðgerðir gegn
innfluttum sjávarafurðum
Óeirðarlögregla fylgdi
norskum flutninga-
bílum til Boulogne
Ósló. Morgunblaðið.
ÁTJÁN norskir flutningabílur óku í gær til borgarinnar Boulogne
í Frakklandi í fylgd lögreglu. Rúmlega hundrað sérþjálfaðir lögreglu-
menn höfðu verið kallaðir út þar sem talin var hætta á að norskir
sjómenn myndu reyna að hindra för flutningabílanna. Af aðgerðum
varð þó ekki.
„Ég var vissulega smeykur þeg-
ar ég fór yfir frönsku landamærin.
Þegar lögreglan stöðVaði mig
nokkrum kílómetrum fyrir utan
Boulogne var ég viss um að eitt-
hvað myndi gerast. Sem betur fer
fór allt vel,“ sagði bílstjórinn Jan
•Jorum í samtali við blaðið Aften-
posten.
Klukkan níu um morguninn var
hann búinn að afhenda frönsku
kaupendunum fiskinn.
Lögreglumennirnir, sem fylgdu
flutningabílunum inní borgina,
voru úr sérsveitum óeirðalögregl-
unnar CRS (Compagnie
Republique de Securite). Þegar
blaðamaður Aftenposten kom á
staðinn þar sem flutningabílstjór-
arnir söfnuðust saman höfðu lög-
reglumennirnir fengið upplýsingar
um að franskir sjómenn væru að
undirbúa aðgerðir. Bílalestin ók inn
í borginna í fylgd lögreglubifreiða
en lögreglurútur og ökutæki sérs-
veitanna voru í viðbragðsstöðu á
meðan.
„Við ákváðum að fylgja flutn-
ingabílunum vegna upplýsinga frá
flugumönnum okkar og vegna þess
að í tvígang var ráðist á hollenska
flutningabíla sl. miðvikudag,"
sagði yfirmaður lögreglusveitanna.
Hann vildi ekki gefa upp nafn sitt
og bannaði ljósmyndurum að taka
myndir af viðbúnaði lögreglunnar.
Sagði hann það vera í samræmi
við samkomulag sem CRS hefði
gert við ákveðinn stjórnarerin-
dreka í norska sendiráðinu í París.
Heimildir í Boulogne herma að
togarafloti sé nú á leið frá
Bretagneskaga að Boulogne og að
þegar séu 22 togarar komnir til
borgarinnar fullir af sjómönnum
sem eru mjög æstir vegna lélegra
aflabragða að undanförnu og lágu
verði á innfluttum sjávarafurðum.
Sjómennirnir krefjast þess með-
al annars að ákvörðun Evrópusam-
bandsins um lágmarksverð, sem
rann úr gildi um áramótin, verði
látin gilda áfram. Er búist við að
þeir muni á næstunni hefja aðgerð-
ir til að þrýsta á stjómvöld en
kosningabaráttan fyrir forseta-
kosningarnar er nú að hefjast.
ToPPlooo
G Ó L F E F N 1
Iðnaðarqólf
e' •? • <7. • __ n/. * * * * . * *<* • * * * O' <á • . 4* * s ^* .* ^. * ** * X7 • . T .♦'* *<>'*<\ *. •-•r;
50.000 m2
reynsla
Á síðustu þremur árum höfum við lagt yfir
50.000 m2 af fúgulausum iðnaðargólfum.
Viðskiptavinir hafa verið mörg helstu
fyrirtæki landsins á sviði matvæla-
og þjónustuiðnaðar.
Leitið til fagmanna sem bjóða fyrsta flokks
þjónustu.Veitum ráögjöf og gerum tilboð.
1. Steypa
2. Topp 4000
eða 4060 grunnur
3. Topp 4000 gólfefni
4. Topp 4000 toppfylling
IÐNAÐARGÓLfl
Smiðjuvegur 70 • 200 Kópavogur
Símar 989 24170 og 564 1740 • Bréfasfmi 554 1769