Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR31. JANÚAR 1995 27
AÐSENDAR GREINAR
af þessum toga eru um að setja
inn í frumvarpið almennar pólitísk-
ar stefnuyfirlýsingar um oft ágæt
baráttumál ýmissa þjóðfélagshópa.
Slíkar yfirlýsingar eiga ekki heima
í stjórnarskránni. Þær gera ekki
annað, eins og áður sagði, en að
þynna út þau ákvæði, sem hafa
raunverulegt réttarlegt gildi og
veita mönnum vernd gegn misbeit-
ingu ríkisvalds. Dæmin sem þekkj-
ast úr stjórnarskrám annarra ríkja
um ákvæði af þessu tagi, eru yfir-
leitt úr stjórnarskrám þeirra ríkja
sem mest hafa fótum troðið mann-
réttindi. Syndaaflausnin hefur þá
falist í merkingarlausum fagurgala
í stjórnarskrá. Við skulum forðast
þetta.
Misskilningur um
félagafrelsi
í þriðja lagi hefur komið fram
gagnrýni frá verkalýðshreyfing-
unni á ákvæði 12. gr. frumvarpsins
um félagafrelsi. Þar er í 1. mgr.
kveðið á um rétt manna til að
stofna félög í sérhveijum löglegum
tilgangi. Verkalýðshreyfingin virð-
ist vilja að stéttarfélög verði þar
nefnd sérstaklega. Auðvitað er
engin ástæða til þess. Þau félög
njóta að sjálfsögðu frelsins rétt
eins og hver önnur félög. Gagnrýn-
in beinist að öðru leyti aðallega
að 2. mgr. greinarinnar, þar sem
segir: „Engan má skylda til aðildar
að félagi. Með lögum má þó kveða
á um slíka skyldu ef það er nauð-
synlegt til að félag geti sinnt lög-
mæltu hlutverki vegna almanna-
hagsmuna eða réttinda annarra."
Alþýðusamband íslands telur, að
þessu ákvæði sé beint gegn starf-
semi stéttarfélaga í landinu. Finn-
ur sambandið að því að ekki sé
að vernda borgarana í samskiptum
þeirra við ríkisvaldið. Þar er gerð
grein fyrir þeim grundvallarréttind-
um, sem valdhafar mega ekki
skerða. Það er því afar varasamt
að þynna mannréttindaákvæði út
með því að veita víðtækar heimildir
til undantekninga frá þeim, eins og
gert er í 11. og 12. grein stjórnar-
skrárfrumvarpsins. Nú kann ein-
hver að segja að þessar undantekn-
ingar geti ekki verið skaðlegar, þar
sem sett sé það skilyrði að þær
komi fram í lögum og lögin séu
sett af lýðræðislega kjörnu þingi.
Það er rétt að þetta lögmætisskil-
yrði dregur úr hættunni á skerðingu
mannréttinda, en það útilokar hana
hins vegar ekki. Það er ekki tryggt,
að meirihluti Alþingis eða meiri-
hluti þjóðarinnar sé ávallt tilbúinn
að virða tjáningarfrelsi einstakra
hópa eða einstaklinga með óvinsæl-
ar skoðanir, eða taka tillit til óska
einhverra manna um að standa utan
félaga sem almennt eru talin vinna
í þágu almannahagsmuna. Það á
hins vegar ekki að leiða til þess að
réttur þessara aðila verði fyrir borð
borinn. Mannréttindaákvæðum er
ekki síður ætlað að vernda rétt
minnihlutahópa en meirihlutans.
Þá má geta þess að lokum að
dómstólar hér á landi hafa talið
löggjafann hafa afar mikið svigrúm
til að meta hvenær nota beri heim-
ildir sem veittar eru til undantekn-
inga frá meginreglum sem fram
koma í stjórnarskránni. Til dæmis
um það má nefna ákvæðið um
bráðabirgðalög, en þar segir að
setja megi bráðabirgðalög þegar
„brýna nauðsyn beri til“. Dómstólar
hafa alveg látið bráðabirgðalöggjaf-
anum eftir að meta hvenær þetta
orðalag eigi við og hvenær ekki.
Einnig hafa þeir fallist á mat lög-
gjafans á því hvenær „almennings-
þörf“ leiði til þess að skerða megi
eignarrétt manna og hvenær „al-
menningsheill“ krefjist þess að bönd
séu lögð á atvinnufrelsi manna. Nú
er lagt til í stjórnarskrárfrumvarp-
inu að löggjafinn hafi enn meira
svigrúm en í þessum dæmum til
að takmarka tjáningarfrelsið og
félagafrelsið og verður það að telj-
ast afar varasöm þróun.
Höfundur stundar nám í lögfræði
við Háskóla íslands.
minnst á starfsemi stéttarfélaga
eða forgangsréttarákvæði kjara-
samninga og skyldugreiðslur til
stéttarfélaga í greinargerð með
frumvarpinu. Hér er einhver mis-
skilningur á ferðinni. Minnt skal
á, að verkalýðshreyfingin hefur
jafnan sagt, að enginn sé skyldað-
ur til aðildar að stéttarfélögum.
Einungis sé um að ræða forgangs-
réttarákvæði í kjarasamningum,
sem séu fijálsir samningar milli
félaga launþega og atvinnurek-
enda og kveði á um forgang laun-
þeganna í viðkomandi stéttarfélagi
til vinnu hjá atvinnurekendunum í
hópi viðsemjendanna. Um þetta er
ekki verið að íjalla í þessu ákvæði
frumvarpsins. Að mínum dómi er
það miður. Mér finnst að það ætti
að vernda menn gegn þeirri þving-
un til aðildar að verkalýðsfélögum
sem felst í þessum forgangsréttar-
ákvæðum kjarasamninga. Menn
eigi sjálfir að fá að ráða því þving-
unarlaust í hvaða félög þeir ganga.
En þessi vernd er ekki veitt í frum-
varpinu. Það er því torskilið, hvers
vegna verkalýðshreyfingin leggst
gegn þessu ákvæði. Nema menn
þar á bæ vilji að í stjórnarskrána
verði tekið ákvæði sem hreinlega
heimilar löggjafanum að skylda
alla launþega til aðildar að verka-
lýðsfélögum. Ef Alþýðusambandið
vill fá slíkt ákvæði í stjórnar-
skrána, á sambandið að segja það
skýrt og skorinort. Ég fullyrði, að
um slíkt getur aldrei orðið neitt
samkomulag, auk þess sem líkleg-
ast er að þess háttar lagaskylda
yrði talin fara í bága við Mannrétt-
indasáttmála Evrópu.
Ég fæ ekki betur séð en að þær
umræður sem fram hafa farið opin-
berlega um þetta stjórnarskrár-
frumvarp staðfesti að vel hefur
tekist til við gerð þess. Sýnist
frumvarpið fela í sér sanngjarna
málamiðlun milli mismunandi
sjónarmiða. Er þess að vænta að
Alþingi samþykki frumvarpið eins
og það liggur fyrir.
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
Um síðustu áramót stóðu kæliefnanotendur
á krossgötum. Hefur þú áttað þig?
Suva MP39 (R40IA):Á gömul kerfi, ein olíuskipti, alhliða notkun
Suva MP66 (R40I B):Á gömul kerfi, ein olíuskipti, fyrir frystigáma o.fl.
Suva 134a (Rl 34a): Á ný og gömul kerfi, alhliða notkun.
Suva HP80 (R402A): Á gömul kerfi, ein olíuskipti, alhliða notkun.
Suva HP81 (R402B): Á gömul kerfi, ein olíuskipti, td. fyrir ísvélar o.fl.
Suva HP62 (R404A):Á ný og gömul kerfi, alhliða notkun.
rlð velk°'1lin
NÝBÝLAVEGUR
Toyota
Opið virka
daga
frá kl. 9 - 18
og laugardaga
frá kl. 10-14
Splunkunýjar vörur með
afslætti í nokkra daga!!
Aðeins nokkrir
dagar eftir!!
□ Stakir herrajakkar frá kr. 5.900
□ Jakkaföt frá kr. 9.900
□ Herrabuxur, fínni frá kr. 2.900
□ Flauelsbuxur frá kr. 2.900
□ Herraskyrtur frá kr. 790
□ Dömudragtir frá kr. 8.900
□ Dömujakkar frá kr. 5.900
□ Dömubuxur, fínni frá kr. 2.900
□ Dömupeysur frá kr. 2.900
□ Dömublússur frá kr. 2.500
□ Kuldaúlpur frá kr. 2.900
Mikið úrval af allskonar fatnaði
f ódýra horninu.
Nýbýlavegi 4, (Dalbrekkumegin)
Kópavogi, sími 45800.
GLÆSILEG VERSLUN MIÐSVÆÐIS Á ST Ó R - R E Y K J AV í KU R S VÆÐIN U