Morgunblaðið - 31.01.1995, Síða 42

Morgunblaðið - 31.01.1995, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Ferdinand CHRISTMA5 "THANK YOU' LETTER5 ARE IMPORTANT. THEY 5HOULD ALWAVS BE WRITTEN PROMPTLV... 'U' ijok, tfafinjtttíf.doVL uoiL-OjitfiZtfne.. TooJjoxL- jJi ^>íl!L jÚrt-thlÞ AMH/L. Það er mjög áríðandi að senda jólaþakkarbréf... þau ætti alltaf að senda fljótt. Elsku amma, þakka þér fyrir fallegu brúðuna sem þú sendir mér. Verst að hún skyldi detta í ána. Og með tilfinningu ... Vitaskuld. BREF TEL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími569 1100 • Símbréf 5691329 Varðandi Ósk- arsverðlaun Frá Þorsteini Jónssyni: KÆRA Stöð 2 (varla RÚV). Ég skrifa þetta bréf til að koma á framfæri ósk minni (og örugglega annarra) um að sjá Oskarsverð- launaafhendinguna í beinni útsend- ingu (líkt og gert var þegar Friðrik var útnefndur og Sylvester Stallone bögglaði nafninu hans sæmilega rétt út úr sér við upplestur út- nefndra). Ég skrifaði fyrir tæpu ári með sömu ósk en hún birtist ekki nógu snemma til að geta haft einhver áhrif. Mér þætti því gaman að sjá hvort Stöð 2 sjái sér fært um að svara þessu bréfi. Það er líka ástæða fyrir því að ég skrifa þetta bréf í Morgunblaðið en hringi ekki í Stöð 2 eða skrifa beint þangað: til að aðrir geti séð þessa ósk og kannski tekið undir hana (og til að pressa meira á Stöð 2). Mér skilst að svona útsending kosti mikinn pening og býst fast- lega við því að það sé meginástæð- an fyrir að sýna þetta ekki, en aft- ur á móti hafa verið sýndir hér á landi í beinni útsendingu útslitaleik- irnir í NBA-körfunni. Eins og allir vita koma þeir frá sömu paradís (Bandaríkjunum), og eru sendir út á u.þ.b. sama tíma (já, á næturn- ar). Útsending hvers leiks tekur tvo og hálfan tíma (gróft meðaltal) og alls eru leikirnir 6-7. Óskarsverð- launin taka rúmlega þrjá tíma og eru aðeins einu sinni. Auglýsinga- hlé eru kannski fleiri á NBA-leikjum en þau eru samt ansi mörg á „Ósk- arnum“. Ég efast mjög um að aðdá- endur NBA séu sex til sjö sinnum fleiri en kvikmyndaaðdáendur hér. Þess vegna get ég ekki skilið af hveiju íslenskir kvikmyndaaðdá- endur geti ekki verið hluti af meira en milljarði jarðarbúa sem horfa á athöfnina beint! Er samvinna milli kvikmyndahúsa og Stöðvar 2 ómöguleg (upp á kostnaðinn)? Er virkilega svona mikill munur á kostnaði á NBA og Óskamum? Umdeild verðlaun Við á íslandi erum alltaf að fá nýjustu myndirnar og getum því betur og betur fylgst með þeim er nær dregur athöfninni. Flestar hafa verið sýndar þegar að henni kemur og margar komu strax á sl. sumri/hausti (Forrest Gump, Pulp Fiction, Four Weddings..., The Lion King o.fl., o.fl.). Og nú þegar Gold- en Globe eru afstaðin, þá er maður enn spenntari fyrir Óskamum. Það má alltaf deila um gæði/gildi Óskarsins og þetta em mjög um- deild verðlaun, en staðreyndin er samt sem áður sú, að þetta em þau verðlaun sem flestir leikarar sækj- ast eftir, þetta em verðlaunin frá höfuðborg kvikmyndanna, þetta em verðlaun sem hafa mikil áhrif á aðsókn og auðvitað er Óskarsverð- launahafhendingin mikið „show“ og stórkostleg á að horfa (dansar, söngvar, afhendingar, kynningar, brot úr myndum og margt fleira). Ég bið því forráðamenn Stöðvar 2 um að íhuga þetta vel. Ef svarið um beina útsendingu er algjört nei, þá vildi ég gjaman fá það skrifað frá þeim „hvers vegna ekki“ og ástæðurnar verða að vera góðar! Plús til Moggans Að lokum vil ég þakka Morgun- blaðinu fyrir sína kvikmyndaum- fjöllun á sunnudögum (og öðmm dögum) og hrósa þeim Amaldi og Sæbirni sérstaklega fyrir skemmti- lega og marktæka gagnrýni, og líka ársyfirlit 1994 (sem önnur blöð virð- ast ekki hafa tekið saman). Einnig fær Mogginn stóran plús fyrir að hafa birt góða frétt frá Golden Globe afhendingunni. Með kvikmyndaþökk, ÞORSTEINN JÓNSSON, kvikmyndafíkill, Breiðvangi 56, Hafnarfirði. Atvinnulausir álykta ATVINNULAUSIR staddir á nám- skeiðum MFA (Menningar- og fræðslusambands alþýðu), í gamla Stýrimannaskólanum, dagana 23.-27. janúar 1995, álykta eftir- farandi: Þar sem atvinnuleysi er greini- lega komið til að vera hér á landi, fínnst okkur að meðferð þeirra mála þurfi algjöra uppstokkun. Um árabil hefur lítil sem engin reynsla verið af atvinnuleysi hér og kemur það ekki síst fram í verk- lagi þeirra stofnana sem á þeim málum taka. Að okkar áliti er því tími til kominn að aflétta ýmsum höftum og kvöðum sem eru lögð á atvinnu- leysisbótaþega, eins og takmörkun ferðafrelsis, og í leiðinni gefa þeim elstu kost á að halda óslitnum bótagreiðslum án setu á námskeið- um. Reynslan sýnir að heppilegast væri að sníða stakkinn eftir bestu fyrirmyndum erlendis frá. Eftir umsögnum að dæma eiga atvinnulausir ekki upp á pallborðið hjá viðkomandi stéttarfélögum, svo ekki sé talað um þar þar sem for- ystusauðimir sitja beggja megin við borðið, sem í sjálfu sér er lítt skiljanleg staða. Því vaknar sú spuming, hvort ekki sé tími til kominn að hinn stóri hópur at- vinnulausra bindist öflugum sam- tökum um sín vandamál? Er hér með vakin athygli á því. Fyrir hönd hópsins. STEFÁN VILHELMSSON. Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.