Morgunblaðið - 31.01.1995, Page 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
UNGLINGAR
Það er spurning
Hvernig
veðurfar
finnst
þér best?
&
m
Þóranna 13 ára.
Heitt sumar
Valur 14 ára.
Sól, hiti og sumar
Freydís 13 ára.
Rigning og rok.
Karen 13 ára.
Sól og hiti
Heimsendir
klukkan 16.00
á laugardögum
EG VAR eiginlega nörd sem unglingur,
segir Siguijón Kjartansson
tónlistarmaður. Hann hefur
komið víða við og
annars leikið í kvikmyndum
Oskars Jónassonar, nú síðast í
þið munið hann Jörund sem Rík
issjónvarpið sýndi í desember.
Ég hafði rosalegan áhuga á tón
list og,þann áhuga hef ég enn-
þá. Eg átti nokkrar uppá-
halds hljómsveitir og
var að klippa allskon-
ar út úr blöðum um
þær. Ég var safn-
ari, svona skrif-
borðsskúffusafnari. Ég
var alltaf með eitthvað dútl í gangi,
var að stofna hljómsveitir og þess hátt-
ar. Ég var, nota bene, á Isafirði sem
unglingur, flutti suður þegar ég var
sautján ára. Það var ekkert geggjað
að vera fyrir vestan. Ég hef oft spáð
í það hvemig ég hefði veri ef ég hefði
verið unglingur héma, ég veit það ekki.
En ég held samt að ég hefði ekki orðið neinn
vandræðaunglingur, sama hvar ég hefði verið.
Mér fanrist alltaf eins og það væri meira að
gerast í Reykjavík en fyrir vestan, og fleiri tæki-
færi til að gera hluti og má vera að ég hefði
gert meira hér. Mér fannst ekkert sérstaklega
gaman í skóla, var frekar Jatur. Ég var meira
fyrir að gera eitthvað utan skóla, var voðalega
pönk og grúpp gæi og allskonar svoleiðis.
Ur Ham
Ég var í nokkrum hljómsveitum, en engri í
alvöru fyrr en í Ham. Við stofnuðum hana 1988,
þegar ég var tvítugur. Ég var í hljómsveitabrans-
anum frá 13 til 16 en svo hætti ég alveg að spá
í hljómsveitir í ein íjögur ár. Ég ætlaði eiginlega
að fara í kvikmyndagerð, eða hafði meiri áhuga
á því frekar en að fara í músík. En það
var bara eitthvað tímabil, síðan bara
var það ekki nógu sniðugt, mér fannst
miklu einfaldara að vera í mússík.
Þetta var bara spurning um það að
maður var 19 ára
eða tvítugur og
langaði að gera
eitthvað og þá var
rokkið og hljómsveita-
bransinn miklu fljótlegri
leið. Ham starfaði öðruvísi
en aðrar hljómsveitir, við
sömdum aldrei neitt saman,
ég samdi músíkina og ég
og Óttar gerðum textana.
Við vorum ekki eins og
svo margar hljóm-
eitir sem gera allt
unnum þar af leið-
andi eftir öðrum forsendum en þær og kannski
þess vegna entumst við lengur en margar aðrar
hljómsveitir. Þegar við hættum þá gerðum við
það vegna þess að okkur
fannst komið nóg, ég vildi
starfa öðruvísi, mér fannst
ég vera búinn að klára þenn-
an pakka. Mér fannst við
vera komnir á ákveðinn topp
sem við gátum eiginlega ekki
toppað, það má segja að þetta hafi verið ein-
stigi og okkur vantaði „challenge". Maður vinn-
ur alltaf út á „challenge" ég geri það allavega,
ég er alltaf að „challengera“ sjálfan mig og vill
fá eitthvað nýtt viðfangsefni.
(challenge = áskorun)
í Ólympíu
Ég var ákveðinn í að stofna eins manns hljóm-
sveit eins og Ólympía er, ég fæ síðan spilara til
að spila með mér þegar ég held tónleika. Þetta
gæti verið sóló eitthvað Siguijón Kjartansson,
STJÖHgWft jG
STóRFJSKAR
mér finnst nafnið bara ekki það flott að ég valdi
að nota Ólympíu. Ég setti nafnið ekki í samband
við undirfatabúðina með sama nafni, heldur
tengdi ég það Ólympíuhugsjóninni. Ég ætla að
halda áfram að gera það sem ég hef verið að
gera. Helst ætla ég að gera nýja plötu á þessu
ári og láta hlutina svolítið vinda upp á sig. Ég
var að ljúka við að gera kvikmyndatónlist við
stuttmynd eftir Ingu Lísu Middleton sem heitir
„I draumi sérhvers manns“ og verður frumsýnd
11. febrúar.
Kvikmyndaleikur
Óskar Jónasson hefur kallað í mig til að leika
í nokkrum myndum, en ég ætlaði mér ekki að
verða leikari. Með því að leika
í þessum myndum hef ég séð
hvernig það er og ég myndi
alls ekki vilja vera leikari. Það
er kannsi bara vegna þess að
tónlistin gefur mér miklu meira
en leiklist, en það er gaman
að leika og fínt að gera það inn á milli, en ekki
gera það að ævistarfi.
Útvarpsþátturinn
Ég er með þátt á Rás tvö á hveijum laugar-
degi, við Magga Stína sem er með þáttinn með
mér, fengum hugmynd að þessum viðtalsþætti.
Við fáum alltaf einn gest og erum líka með fram-
haldsleikrit. Jón Gnarr vinur minn og ég höfum
verið að skrifa saman, djók allskonar og það
varð að þessu framhaldsleikriti. Þátturinn heitir
Heimsendir ... endir.
Algjör steypa.
Álög Simpson
fj ölskyldunnar
á stórsljörnur
HOLLYWOOD stjörnur eiga bágt með
að hlægja að hinum vinsælu sjón-
varpsþáttum um Simpson fjölskyld-
una, en einkennilegt ólán hefur heij-
að á fjölda dægurstjarna eftir að þær hafa ver-
ið gestaleikarar með hinum orðhnyttna Bart og
hans undarlegu fjölskyldu.
Dægurstjörnur eins og Michael Jackson, Eliza-
beth Taylor, Kelsey Grammer, Dustin Hoffman
og James Brown hafa orðið fyrir áföllum, bæði
í vinnu og í einkalífí, eftir að hafa ljáð rödd sína
í þætti Simpson íjölskyldunnar.
Álögin spottuð
Sumar stjörnur spotta hugmyndina um „álög
Simpson fjölskyldunnar" en margir taka hana
alvarlega. Hér á eftir er skrá yfír þá sem hafa
þjáðst eftir að hafa leikið gestahlutverk í Simp-
son þáttunum.
Michael Jackson - 1992 lék hann geðsjúkling
sem deildi sjúkrahúsherbergi með Homer. Síðan
þá hefur allt farið í hund og kött hjá þeim han-
skaklædda. Frami hans hlaut brotlendingu
vegna ákæru um kynferðislega misnotkun og
Pepsí sleit stórum samningi um auglýsingar.
Michael giftist Lisu Marie Presley 1994 en sagt
er að hjónabandið sé í molum og rætt um skilnað.
Kelsey Grammer - Stjarnan úr sjónvarpsþátt-
unum um Fraiser (sálfræðingnum úr Staupa-
steini) lenti í vandræðum eftir að hafa leikið
Auka-Bjössa (Sideshow Bob) í Simpsons.
Skömmu eftir að þátturinn var sýndur var hann
handtekinn fyrir ölvunarakstur og að hafa kóka-
ín í fórum sínum. En nú veður hann leðju Qg
verst ásökunum um að hann hafí átt í kynferðis-
sambandi við kornunga barnapíu.
Elizabeth Taylor - 1992 varð hún þess heið-
urs aðnjótandi að ljá smábarninu Möggu hennar
fyrsta orð. Nokkrum stundum eftir hljóðupptök-
una var henni ekið með flýti á sjúkrahús nær
dauða en lífi vegna öndunartruflana. Slæm
heilsa hefir plagað hana alla tíð síðan.
Dustin Hoffman - Ekkert hefur gengið upp
hjá honum eftir að hann lék nefmæltan afleys-
ingakennara Lisu í þætti árið 1991. Síðustu
myndir hans, t.d. Billy Bathgate og Krókur,
hafa floppað hrikalega.
James Brown - „Guðfaðir sálartónlistarinnar“
lék sjálfan sig í Simpson þætti, syngjandi með
lúðrasveit Springfieldbæjar. En nú er hann aft-
ur komin í kast við lögin, ákærður fyrir heimilis-
ofbeldi gegn spúsu sinni.
Þýtt og cnduraagt úr alúðurritinu Thc Sun.
Eiturlyfja-
neysla unglinga
NU Á dögum eru eiturlyf ekki sama bannorð-
ið og áður fyrr. Foreldrar mega prísa sig
sæla ef börnin þeirra halda sig við áfengi og
tóbak, en láti eiturlyfin fara veg allrar veraldar,
þó að áfengi og tóbak séu ekki til fyrirmyndar.
Eiturlyfín eru orðin stór partur af skemmtana-
lífi unglinga og fer hlutur þeirra ört vaxandi.
Til þess að hamla á móti þessari þróun teljum
við undirritaðir að best sé að gefa áfengisneyslu
unglinga aðeins lausari tauminn. Teljum við að
með þessu móti megi stórlega minnka landa-
og eiturlyfjaneyslu unglinga, sem sagt að þeir
haldi sig þá frekar við vínið fyrst það er ekki
bannað. Einig er gott að nota fé, sem sett er í
forvamarstarf gegn áfengis- og tóbaksneyslu, í
meira mæli til forvarnarstarfs gegn eiturlyfja-
neyslu. Erum við þó alls ekki að gefa í skyn að
leggja ætti annað forvamarstarf niður, aðeins
að auka eiturlyfjaforvarnir þar sem eiturlyfin
eru miklu hættulegri en áfengið og tóbakið. Þar
að auki ættu eiturlyfjasalar að fá þeim mun
lengri dóma fyrir afbrot sín.
En forvarnarstarfið ætti ekki eingöngu að
fara fram í skólunum, foreldrar þyrftu að vera
meira á varðbergi gagnvart þessu böli og fræða
börn sín um hættur eiturlyfja. Þeir ættu þó að
forðast að nefna eigin afrek á sínum yngri ámm
í tengslum við fíkniefni, því að engin afsökun
er betri en þessi: „Þú ættir ekki að segja mikið,
þú varst nú bara ekkert skárri á þínum æskuá-
rum.“
Betra er fyrir foreldrana að segjast hafa ver-
ið bamanna bestir, en hafa þó þekkt mann sem
fór illa út úr eiturlyfjaneyslu. Það skaðar ekkert
að hagræða sannleikanum aðeins, ef málstaður-
inn er góður.
Við undirritaðir vonum að grein þessi geti
komið einhveijum til góða og stuðli að minnk-
aðri eiturlyfjaneyslu unglinga á fögru landi voru.
Lifið heil.
Við skomm á Menntaskólann á Laugarvatni,
að skrifa um eyðingu regnskóga í Suður-Amer-
íku.
Andrés Ingason, Jóhann Gunnar
Guðmundsson, Skógaskóla.