Morgunblaðið - 23.02.1995, Side 6
6 JIMMTUDAGUR 23, FBBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Endurskipulagning Alþingisreits gerir meðal annars ráð fyrir flutningi Vonarstrætis 8 í Kirkiustræti
Húsin tengd
neðaniarðar
NYHUGMYND að skipulagi á
Alþingisreit hefur verið kynnt í
borgarráði. Gert er ráð fyrir að
hús Alþingis verði tengd neðan-
jarðar og að Vonarstræti 8 verði
flutt í Kirkjustræti. Að sögn Þor-
valdar S. Þorvaldssonar for-
stöðumanns borgarskipulags, er
þetta hugmynd að mögulegum
byggingum Alþingis í framtíð-
inni. Hönnunarvinnu er ólokið
og hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um hvenær ráðist verður í
þá vinnu né byggingafram-
kvæmdir.
ísamvinnu viðborgina
I bókun skipulagsnefndar, sem
samþykkt var samhljóða á fundi
nefndarinnar, er mælt með því
við Alþingi að unnið verði að
uppbyggingu á Alþingisreit með
hliðsjón af þeim hugmyndum
sem borgarskipulag hafi nú sett
fram um skipulag reitsins. Jafn-
framt að öll frekari vinna að
uppbyggingu á reitnum verði
unnin í samráði við borgarskipu-
lag og lögð fyrir viðkomandi
nefndir borgarinnar áður en
ákvarðanir um framkvæmdir
verði teknar.
Byggtmeð Tjarnargötu
Þorvaldur sagði að með þess-
ari hugmynd hafí verið tekin
ákvörðun um að byggt yrði með
götunni frá Oddfellowhúsinu við
Vonarstræti 10, eftir Tjarnar-
götu og nánast að horni Kirkju-
strætis. Þá væri gert ráð fyrir
að Vonarstræti 12 yrði flutt á
hornlóð á mótum Tjarnargötu
og Kirkjustrætis. „Þar með er
tekin ákvörðun um að láta gömlu
húsin við Kirkjustræti standa
áfram,“ sagði hann. Benti hann
jafnframt á að samkvæmt nýjum
þjóðminjalögum nái friðun húsa
til húsanna sem standa við Kirk-
justræti en sum þeirra voru
byggð fyrir aldamót.
Oddfellow vill
byggja við
Hugmyndin gerir ráð fyrir að
byggingarnar í eigu Alþingis á
reitnum verði tengdar með
gönguleiðum neðanjarðar. Þá er
gert ráð fyrir bílastæðum neðan-
jarðar í bílakjallara. Sagði Þor-
valdur að öll hús Alþingis ásamt
Oddfellowhúsinu fengju sömu
aðkomu um bílakjallarann.
Ákveðið hefur verið að Odd-
fellowreglan verði áfram til húsa
við Vonarstræti en til stóð að
byggja á lóð sem reglunni var
úthlutað við Sigtún. „Þeir vilja
helst vera í miðborginni,“ sagði
Þorvaldur. „Og hafa mikla löng-
un til að gera tímabundna samn-
inga við Alþingi um að byggja
smávegis við Vonarstræti 10.“
TÖLVUMYNDIN sýnir hugmynd að uppbyggingu Alþingis sem randbyggð, byggða í áföngum í sam-
ræmi við bókun skipulagsnefndar. Hér er ekki um útlit húsanna að ræða heldur einungis byggingar-
magn og áfangaskiptingu. Að sögn Þorvaldar S. Þorvaldssonar forstöðumanns borgarskipulags, er
gert ráð fyrir að nýbyggingin verði þijár til fjórar hæðir.
Snjóflóðin
á Súðavík
Ríkissjóð-
ur greiðir
kostnað
RÍKISSJÓÐUR greiðir útfarir
þeirra sem fórust í snjóflóðinu
á Súðavík í seinasta mánuði,
flutning bráðabirgðáhúsnæðis
frá Selfossi til Súðavíkur og
kostnað við uppsetningu hús-
anna. Ríkissjóður mun jafn-
framt greiða ýmsan kostnað
sem til féll við björgunarstörf
og í framhaldi af þeim.
Starfshópur
afgreiðir erindi
Ólafur Davíðsson ráðuneyt-
isstjóri i forsætisráðuneytinu
segir að settur hafi verið á fót
starfshópur, skipaður fulltrú-
um nokkurra ráðuneyta, sem
hefur samræmt og athugað
greiðslur á ofangreindum
kostnaðarþáttum, greitt úr
málum og kannað hveijir
borguðu reikninga sem berast
ráðuneytinu, þannig að í öllum
tilvikum væri tryggt að þeir
aðilar sem hefðu lagt út fyrir
einhveijum kostnaði, fengju
hann greiddan.
Hópurinn afgreiði fyrir-
spurnir og reikninga og geri
tillögur um meðferð mála.
Greitt með
aukafjárveitingu
Ólafur segir ekki ljóst
hversu mikill kostnaður er
þessu samfara fyrir ríkissjóð,
auk þess sem öll kurl séu ekki
komin til grafar. Þegar heild-
arkostnaður liggi fyrir, verði
lögð til aukafjárveiting á fjár-
lögum í því skyni að greiða
hann.
337 kvartanir bárust embætti umboðsmanns Alþingis í fyrra
Flest mál vegna málsmeðferðar
eða starfshátta í stjórnsýslu
UMBOÐSMANNI Alþingis bárust
337 kvartanir frá einstaklingum og
samstökum á seinasta ári, auk þess
sem umboðsmaður tók upp 5 mál
að eigin frumkvæði. í upphafi árs-
ins var 118 málum ólokið og því
fjallaði umboðsmaður Alþingis um
460 mál á liðnu ári, en lokið var
við afgreiðslu 321 máls.
Þessu til viðbótar hafa borist fjöl-
margar fyrirspurnir til skrifstofu
umboðsmanns, sem leyst hefur ver-
ið úr með leiðbeiningum til viðkom-
andi.
Þær kvartanir sem bárust um-
boðsmanni Alþingis lutu að ýmsum
þáttum í stjómsýslunni. Af einstök-
um málaflokkum hafa flest mál lot-
ið að málsmeðferð og starfsháttum
í stjórnsýslu eða samtals 64 mál,
38 mál lutu að sköttum og þjónustu-
gjöldum, 27 mál að ýmsum atriðum
er varða opinbera starfsmenn, þar
af 12 um stöðuveitingar og 18 mál
lutu að almannatryggingum.
Af öðrum málaflokkum má og
nefna málefni fanga, mál er varða
atvinnuréttindi og atvinnuleyfi,
málefni barna og lífeyrismál.
159 afgreiddum málum á sein-
asta ári Iauk á þann hátt að um-
boðsmaður lét uppi álit sitt á því
hvort að tiltekin athöfn stjórnvalds
bryti á bága við lög eða vandaða
stjórnsýsluhætti eða að umboðs-
maður ákvað að fj'alla ekki frekar
um mál, að fenginni skýringu
stjórnvalda, eða þeir er báru fram
kvörtun fengu leiðréttingu sinna
mála eftir að umboðsmaður hafi
beint fyrirspurn til hlutaðeigandi
stjórnvalds um það efni sem kvart-
að var yfir.
í 76 tilvikum hafði málum ekki
verið vísað til æðsta stjórnvalds
áður en kvörtun var borin undir
umboðsmann, en það er lögmælt
skilyrði þess að umboðsmaður geti
fjallað um kvörtun. í 32 tilvikum
féllu mál utan starfssviðs umboðs-
manns, svo sem vegna þess að þau
fjölluðu um störf Alþingis eða dóm- #
stólar höfðu áður ú'allað um málin. |
1.320 mál frá upphafi
Frá því að embætti umboðs-
manns Alþingis tók til starfa, áriðl
1988, eru mál sem komið hefur til;
kasta þess 1.320 talsins og hafa
aldrei verið fleiri en í fyrra.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur sýknað Sigmund Hannesson hrl.
af öllum kröfum eigenda tveggja
smábáta sem töldu að mistök hans
sem málafærslumanns hefðu valdið
hvorum þeirra um 11 milljóna króna
tjóni.
Mennimir höfðu hvor keypt sinn
32 feta bátinn af norskri skipasmíða-
stöð og fengið þá flutta til landsins
í september 1990 í flutningsstólum,
sem þeir létu smíða sérstaklega, á
þilfari Hvassafellsins. Þegar flutn-
ingaskipið fékk á sig hnút út af
Héðinsfírði losnuðu bátamir og ultu
til áður en þá tók fyrir borð. Þeir
fundust síðan skemmdir á reki og
kostaði viðgerð annars bátsins 3,5
milljónir króna en hins 4,5 milljónir,
auk þess sem greiða þurfti ríflega
eina milljón króna í björgunarlaun.
Eigendur bátanna sneru sér fljót-
lega til Sigmundar Hannessonar og
hugðust fela honum að gæta hags-
muna sinna gagnvart Samskipum
sem þeir töldu bera skaðabótaábyrgð
vegna atviksins. Umboðið var aftur-
kallað en veitt að nýju í apríl 1991.
Lögmaður sýknað-
ur af milljónakröfu
skjólstæðinga
Eftir árangurslausar samninga-
viðræður stefndi Sigmundur Sam-
skipum fyrir þeirra.hönd í nóvember
1991 en með dómi uppkveðnum í
júní 1993 vora Samskip sýknuð á
þeirri forsendu að kröfur mannanna
hefðu fyrnst nokkru áður en stefna
var útgefin.
í dómi Valtýs Sigurðssonar hér-
aðsdómara kemur fram að Sigmund-
ur hafí áfrýjað dóminum en áður
höfðu eigendur bátanna leitað álits
Jóns Oddssonar hrl., sem hafði tjáð
þeim að hann teldi að Sigmundi
hefðu orðið á þau mistök að höfða
málið of seint og bæri hann bóta-
ábyrgð á því tjóni sem af leiddi.
Einnig kemur fram að þrátt fyrir
að Sigmundur hafi rökstutt þá skoð-
un sína að með því að fylgja eftir
áfrýjun dómsins væri líklegt að önn-
ur niðurstaða fengist hafi Jón Odds-
son fyrir hönd mannanna fellt áfrýj-
unina niður. Síðan var Sigmundi
stefnt og beint að honum kröfu um
11-12 milljóna bætur frá hvoram
mannanna.
Um það hvort Sigmundi hafi orð-
ið á mistök segir í dóminum að
ákvörðun Jóns Oddssonar um að
fella niður áfrýjun héraðsdómsins til
Hæstaréttar hafi alfarið verið á_
ábyrgð eigenda bátanna og Ieiði þau
málalok ekki sjálfkrafa til skaða-
bótaskyldu Sigmundar gagnvart
þeim.
Ekki bótaskylt tjón
Hins vegar kemst dómurinn að
þeirri niðurstöðu að ástæða þess að
bátarnir losnuðu á þilfari Hvassa-
fellsins og skemmdust hafi verið sú
að hinir sérstöku stólar sem bátarn-
ir hafi verið fluttir í hafi ekki verið
nægilega traustbyggðir; þeir hafi
gefið sig þegar hnúturinn kom á
skipið og við það hafi bátarnir farið
á hreyfingu. Samkvæmt farmskír-
teini hafi farmflytjandi ekki borið
ábyrgð á því sem var á þilfari skips-
ins.
Stólarnir hafi verið smíðaðir á
ábyrgð eigenda bátanna og áhöfn
skipsins hafi sýnt eðlilega árvekni
við að sjóbúa skipið en ekki gáleysi
eins og krafa mannanna á hendur
skipafélaginu hafði byggst á. Því
hafi bátseigendurnir ekki átt lög-
varða kröfu á hendur Samskipum
vegna málsins og þar af leiði að því
sé hafnað að málafærslumistök Sig-
mundar Hannessonar hafi leitt til
tjóns fyrir mennina.