Morgunblaðið - 23.02.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 13
LAIMDIÐ
Atak slysavarnafélagsdeilda á Suðurlandi
Vörn fyrir börn
Fagradal - Slysavarnafélags-
deildir á Suðurlandi hrintu af
stað núna í febrúarátakinu Vörn
fyrir börn og fengu til sam-
starfs við sig Rauðakrossdeildir
á Suðurlandi, Kaupfélag Árnes-
inga og Mjólkurbú Flóamanna.
Átakið verður í fernu lagi og
nær yfir allt Suðurland frá
Kirkjubæjarklaustri að Selfossi.
Fyrsti áfangi felst í því að gefin
eru spjöld með upplýsingum og
myndum af öryggisbúnaði fyrir
börn á allar heilsugæslustöðvar
á svæðinu og munu allar
verslanir Kaupfélags Árnesinga
selja öryggisvörur fyrir börn i
sérstökum básum og mun hagn-
aður af sölunni renna til slysa-
varna barna á Suðurlandi. í sam-
bandi við átakið er dreift bækl-
ingi með myndum af helstu ör-
yggisvörum til að varna slysum
á börnum bæði heima og í bíln-
um.
Hópur á vegum átaksins, Her-
dís Storgaard frá Slysavarnafé-
lagi Islands, Gunnar Einarsson,
björgunarsveitinni Tryggva
SVFI, Selfossi, formaður átaks-
ins, og Bryndís Harðardóttir frá
björgunarsveitinni Víkverja
SVFI, Vík, Grétar Einarsson,
formaður Víkverja, Sigurður
Ævar Harðarson, formaður
Rauðakrossdeildar Víkurlækn-
ishéraðs, kom saman á heilsu-
gæslustöðinni í Vík í Mýrdal í
vikunni og var þar afhent eitt
af þessum skiltum. Þar lýsti
Helga Þorbergsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur, ánægju sinni með
þetta framtak og upplýsti að
ákveðið er að halda námskeið á
vegum Rauða krossdeildar Vík-
urlæknishéraðs um slysavarnir
á börnum og skyndihjálp í Vík
ef næg þátttaka fæst.
Frá heilsugæslustöðinni var
haldið til verslunar Kaupfélags
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
FRÁ afhendingu spjaldsins i heilsugæslunni á Vík. F.v.: Helga
Þorbergsdóttir, Bryndís Harðardóttir, Herdís Storgaard, Grétar
Einarsson og Sigurður Ævar Harðarson.
Árnesinga og Guðmundi Pétri,
verslunarstjóra, kynntar vör-
urnar. Þegar því var lokið var
haldið á Kirkjubæjarklaustur
þar sem hópurinn fékk fádæma
góðar viðtökur.
Hofshreppur
Þak féll á fjárhúsi
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
FJÖLMENNT var í Skálholtskirkju við útskrift sérkennaranna.
30 kennarar luku
sérkennslunámi
Selfossi - Þrjátíu kennarar sem
lokið hafa sérkennslunámi frá
Kennaraháskóla íslands fengu
prófskírteini sín afhent í Skálholti
þar sem fram fóru formleg slit á
náminu. Kennararnir eru víða að
af landinu en flestir af Suður-
landi, 14 talsins. Um er að ræða
tveggja ára nám sem að hluta til
var fjarnám en auk þess unnið í
námslotum á vor-, sumar- og
hausttíma og að auki í janúar.
Mikið af verkefnum er unnið í
náminu sem miðast að því að gera
kennarana færari um að fást við
hið flókna starf sérkennarans.
Gréta K. Björnsdóttir kennari
og fulltrúi námsmanna sagði að
hún og aðrir sem stunduðu námið
hefðu haft af því mikið gagn og
það veitti kennurum sem fást við
sérkennslu öryggi í starfinu. Hún
sagði þau hafa kynnst hugmynd-
um og fengið þjálfun í að leita að
þekkingu út frá þeim viðfangsefn-
um sem birtust í sérkennum nem-
enda þeirra hveiju sinni.
Við athöfnina söng Unglingakór
Selfosskirkju undir stjórn og við
undirleik Glúms Gylfasonar og
Stefáns Þorleifssonar. Ávörp
fluttu Jón Hjartarson fræðslustjóri
á Suðurlandi, Grétar L. Marinós-
son umsjónarmaður sérkennslun-
ámsins og Þórir Ólafsson rektor
Kennaraháskóla íslands.
Hofsósi - Undanfarið hefur verið
mikil ótíð og kyngt niður snjó um
austanverðan Skagafjörð og hefur
snjórinn í flestum tilfellum verið
mjög þungur þar sem snjóað hefur
nánast í frostlausu veðri.
Aðfaranótt mánudags féll þak
á fjárhúsi niður undan snjóþunga
á bænum Enni í Hofshreppi. Þetta
var stálgrindarhús og féll þakið
Læknirinn
gangandi
vegna
ófærðar
Miðhúsum, Reykhólahreppi -
Þórður Ingólfsson læknir í
Búðardal var að láta lyf og
fleira ofan í bakpoka er
fréttaritari átti við hann stutt
samtal. Svínadalur verður
ekki mokaður í bili og farið
verður út fyrir strandir.
Aðspurður sagði Þórður
að læknunum í Búðardal
hefði tekist að komast í Reyk-
hóla í hverri viku í vetur utan
einu sinni. Hins vegar hefði
sjaldan tekist að halda áætl-
un.
Ætla má að Þórður hafi
ekki komist til Reykhóla í
gærkvöldi. Hann mun þurfa
að ganga yfir Slitrin í Gils-
firði.
að hluta til niður í húsið. Engin
kind Ienti undir þakinu því þær
björguðu sér sjálfar í þann enda
hússins er þakið hékk uppi.
Beðið var um aðstoð hjá björg-
unarsveitinni Gretti á Hofsósi og
brugðust félagar úr sveitjnni fljótt
við og aðstoðuðu við að hreinsa
til og loka þeim hluta hússins sem
uppi stóð.
Eyja- og Mikla-
holtshreppur
Þak lætur
undan
snjóþunga
Borg, Eyja- og Miklaholts-
hreppi - Þak á fjárhúsum á Þverá
í Eyja- og Miklaholtshreppi brotn-
aði undan snjóþunga fyrir
skömmu.
Mikill snjór hafði safnast á
hlöðuþak og féll það niður á fjár-
húsin með þessum afleiðingum.
Ekki slys á skepnum
Engin slys urðu á skepnum en
í húsunum eru bæði nautgripir og
sauðfé. Mikill snjór féll ofan í hús-
in og munu það vera um 150 fer-
metrar sem féllu niður af þakinu.
.
Furðufólk
búið til úr
snjónum
ÞAÐ hefur snjóað töluvert á
Norðurlandi það sem af er
vetri og þó allir séu ekki jafn-
hrifnir þá kunna börnin að
meta snjóinn því úr honum
geta þau reist sér heilan furðu-
heim og skapað í hann furðu-
fólk. Þessi fríði hópur si\jó-
trölla er reyndar ekki hár í
loftinu og er sennilegt að hann
verði bráðnaður áður en hann
vex sköpurum sínum yfir höf-
uð.
Fataskópur
145 cm breiður x 200 cm hór og 60 cm djúpur.
s^*
-----O--------
Postulínsfílar
hæð 43 cm.
Ýmsir litir.
Frábivrt pottatilboð 3 stk. t,s itr. + 2,0 m. + 5,0 m
Allt adetns 1.998 Stgr.
Samlokugrill 2.900 stgr.
Hraðsuðukanna 2.320 Stgr.
Brauðrist 1.990 stgr.
Hrœrívél 2.460 stgr.
Ukufoim 3 stk. Stœr} 23,25 o<! 27 cm. Allt a 650 Stgt.
iVVt góð tilboð. ^
eldhus-
miðstöðin
Amsterdam sófasett leðurlíki 3+2 sæti.
*9-
11
m*
1 p 1
Sófaborð 105x53 cm og 2 stk. bomborö 53x53 tm.
AII,4aííilj^0sVÍ*
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Lágmúla 6, simi 684910, fax 684914.