Morgunblaðið - 23.02.1995, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.02.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 41 BRÉF TIL BLAÐSINS Kjör kennara Sumarlandið — frásaga um von Frá Sigurði R. Sigurbjörnssyni: KJÖR kennara í grunnskólum landsins eru mörgum sem lokuð bók jafnt almenningi sem stjórn- endum samfélagsins. Mig langar til að skýra með einföldum hætti hver mánaðarlaun kennara í grunnskólum landsins eru í dag og munu verða í náinni framtíð miðað við gang samningavið- ræðna. Ég vil taka sem dæmi kennara sem hefur einn 10 ára bekk til umráða og kennir honum öll bókleg fög eða um 20 kennslu- stundir á viku. Hann kennir þess- um börnum frá kl. 8.30-12.30 alla virka daga vikunnar. Inn á milli eru um 10 kennslustundir (eyður) sem hann nýtir til að undirbúa sig með því að taka til verkefni eða búa þau til, hafa samráð við aðra kennara eða annað starfsfólk skól- ans, ræða við foreldra og fleiri aðila, sem vilja tengjast skólastarf- inu. Mánaðarlaun með kaffitíma- gæslu og heimavinnu kr. 48.000. Lífeyrissjóður 4% kr. -1.920. Stétt- arfélagsgjald 1,8% kr. -864. Út- borguð laun innan skattleysis- marka kr. 45.216. Þetta eru laun sem grunnskóla- kennari fær á mánuði 12 mánuði ársins fýrir að fylgja eftir námi eins bekkjar í grunnskóla. Þessi laun eru miðuð við 3ja-4ra ára starfsaldur, með 4ra ára háskóla- nám að baki. Þessi grunnskóla- kennari getur augljóslega ekki séð sjálfum sér né fjölskyldu sinni far- borða með þessum launum. Hann verður því að kenna meira, eiga góða fyrirvinnu eða vera á bótum frá sveitarfélagi sínu. Með breytt- um kennsluháttum finnst flestum kennurum nóg að kenna einum bekk, hugsa síðan um sín eigin börn og heimili hálfan daginn og sinna síðan yfírferð verkefna og frekari undirbúningi á kvöldin og um helgar heima hjá sér. Ef kenn- ari er fyrirvinna heimilisins verður hann að kenna meira en framtíðin lofar ekki góðu með meiri vinnu fyrir kennara. Einsetning skólanna þýðir minni vinnu meðal kennara. Fyrirvinna sem allt í einu situr í einsetnum skóla verður því að leita sér að annarri eða vera á atvinnu- leysisbótum sem er ekki mikið lak- ari kostur en að hafa vinnu við kennslu á einum bekk, eins og sést hér að ofan. Þegar kennarar sjá framtíðina svona fyrir sér er ekki óeðlilegt að álykta sem svo að þeir hafi litlu að tapa með því að fara í Iangt og strangt verkfall. SIGURÐUR R. SIGURBJÖRNSSON, kennari við grunnskóla Reykjavíkur. Frá Karli Sigurbjörnssyni: ÚT ER komin hjá Skálholtsútgáf- unni — Útgáfufélagi þjóðkirkjunn- ar, bókin „Sumarlandið, frásaga um von,“ eftir norska prestinn og skáldið Eyvind Skeie. Séra Sigurð- ur Pálsson þýddi. Höfundur ritaði þesa bók fyrir tíu árum að ósk foreldra sem orðið höfðu fyrir ein- hverri sárustu reynslu sem um getur, þau misstu unga dóttur af slysförum. Þau sneru sér til Eyvind Skeie og báðu hann um hjálp, eitt- hvað til að lesa saman sem vakið gæti að nýja von og trú. Bókin varð til og hefur síðan komið út í ótal útgáfum í Noregi og verið þýdd á íjölmörg tungumál. Faðir stúlkunnar, listamaðurinn Anders Færevág, myndskreytti bókina. Myndir og frásögn mynda eina heild, ljóðræn, látlaus og nærfærin, hlý og sterk, eins og handtak frá góðum vini. Hún er þrungin lá- gróma gleði og eftirvæntingu, bor- in upp af hinni kristnu von, um birtu sumarlandsins handan við dalinn dimma og þann sem bíður okkar þar og þekkir okkur með nafni. Það er mikill fengur að þess- ari bók. Þýðingin er eins og best verður á kosið og öll útlitshönnun sömuleiðis. Bókin er ljúf og falleg og einkar vel fallin sem gjöf til þeirra sem sorgin hefur sótt heim. Eins og höfundur segir sjálfur: „Við þurfum á allri von okkar og öllum mætti okkar að halda til að ljúka göngunni á vegi sorgarinnar. Frásagan um Sumarlandið getur ef til vill orðið einhveijum til hjálp- ar við að hefja gönguna á vegi sorgarinnar í von.“ Hafi þau öll sem að þessu verki stóðu heilshug- ar þakkir. SR. KARL SIGURBJÖRNSSON. LÁGMÚLA 5 • SÍMI 8 13730 / 813760 Barnapössun alla daga fró kl. 9-16. Hringið og pantið kort eða skráið ykkur I flokka. Við erum við símann núna Við gerum ekki kraftaverk - en þú getur það! Ný námsleeið að hefjast -sniðin aá mannlegum þörfum TOPPI TIL TÁAR Hin vinsælu TT námskeið \ a "shalda áfram. KORT AKERFIÐ Fimm timar i viku. Rauð kort Námskeið sjö vikur í senn. Við vitum að það er ekki hægt að móta alla líkama og allra þarfir í e/tt form. I meira en tuttugu og fimm ..........._..—..._.. hefst 9. janúar. ár höfum við hjá Líkamsrækt JSB unnið með þúsundum kvenna við að byggja uþþ hreysti og viðhalda góðri heilsu og útliti. Til okkar leita konur með ýmsar væntingar. Víð gerum okkar besta til að hjálpa þeim, en árangurinn byggist fyrst og fremst á þeim sjálfum. Græn kort mæting, kennsla ht Þetta námskeið er eingöngu ætlað þeim konum sem berjast við aukakílóin. 'i LOWARA DÆLUR Gæðavara, mikið úrval, hagstætt verð, örugg þjónusta. = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260 í—

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.