Morgunblaðið - 23.02.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.02.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐÍÐ MINNINGAR SIGURÐUR HALLDÓRSSON + Sigurður Hall- dórsson fæddist á Húsavík 28. maí 1898. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 18. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðrún Eldyárns- dóttir ljósmóðir og Halldór Einarsson sjómaður. Ungur að árum fluttist Sig- urður til Seyðisfjarðar. A ann- an jóladag 1924 kvæntist hann Rannveigu Bjarnadóttur, f. 13.7. 1906, og voru þau því gift í 70 ár. Sigurður stundaði sjómennsku framan af ævi eða til fertugs, er hann fór í land og stundaði þar ýmis störf eft- ir það. Hann var m.a. póstur á Seyðisfirði og jafnframt starfsmaður Olíufélags íslands um árabil, þar til hann fluttist ásamt fjölskyldu sinni til syni; Asbii Reykjavíkur 1966. Þar starfaði hann áfram hjá Esso við bensínafgreiðslu uns hann varð að hæ!tta störfum vegna veikinda. Börn Rannveigar og Sigurðar eru sex: Guðrún, gift Gunnari Hannes- Bjamey, gift birni Björns- syni; Halldór, ókvæntur; Svan- hildur, sem var gift Hauki Guðmundssyni er lést 1974, sambýlismaður hennar er Tómas Óskarsson; Ólöf Anna, ekkja eftir Guðmund Helga- son; Ingi, kvæntur Halldóru Friðriksdóttur. Afkomendur þeirra hjóna eru um 50. Útför Sigurðar fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 10.30. Jarðsett verð- ur í Gufuneskirkjugarði. í DAG kveðjum við afa okkar Sig- urð Halldórsson. Með honum er genginn eftir- minnilegur maður, harðskeyttur baráttumaður, áræðinn, meinstríð- inn og með einstaka seiglu. Það eru ljúfar minningar sem tengjast sumardvölum okkar borg- arbræðranna austur á Seyðisfirði. í þeirri paradís var ýmislegt að gera fyrir athafnasama drengi og afí þá aldrei langt undan. Minning- ar í sólskini og blíðviðri við bryggj- una, í Essoskálanum hans afa, úr brekkunum við tankana og fóðrun hænsnanna ber þar hæst. Þegar við vorum spurðir hvar við hefðum verið á sumrin var svarið: „Hjá ömmu og afa í sólinni." Vissulega var bjart, hlýtt og hreint andrúms- loft hjá þeim hjónum. Þegar þau fluttu til Reykjavíkur bar fundum okkar oftar saman þegar við ásamt fjölskyldunum sóttum þau heim í Gnoðarvoginn. Þó afi hafí verið hijúfur á ytra borði hafði hann að geyma ástríkan fjölskyldumann sem hafði lúmskt gaman af að etja okkur og öðrum fjölskyldumeðlimum saman í póli- tískum umræðum. Þegar eldheitan skoðanaágreininginn bar sem hæst, ræskti afí sig og bauð öllum í nefið. Gekk þá tóbaksdósin á milli manna og sættir náðust. Afi naut þess að vera á meðal fólks. Hann bar aldurinn vel, tein- réttur, hárprúður og hafði gott minni þó að sjón og heyrn hafi hrakað síðuStu árin. Amma og afí voru meðal stofn- enda Seyðfirðingafélagsins í Reykjavík og sóttu skemmtanir félagsins meðan heilsa leyfði. Síð- ustu árin dvaldi hann á hjúkrunar- heimilinu Skjóli þar sem aðhlynn- ing og umönnun er til fyrirmynd- ar. Starfsfólkið þar á þakkir skilið fyrir alla aðstoðina. Þegar síðasta Sólarkaffí Seyð- firðingafélagsins stóð sem hæst síðastliðið laugardagskvöld kvaddi afí þessa jarðvist og hélt af stað á vit ástvina úti í jaðri sólarlagsins. Elsku amma og aðrir syrgjend- ur, gleðin yfir góðum minningum verður sorginni yfirsterkari. Hafi afi Sigurður þökk fyrir samveruna. Heimir, Óli Ragnar, Sigurður, Helga og fjölskyldur. Með nokkrum fátæklegum orð- um langar mig að minnast afa míns, Sigurðar Halldórssonar. Margar góðar minningar eru tengdar veru minni hjá afa og ömmu á Seyðisfirði á bemskuárum mínum. Afí fæddist á Húsavík en hóf búskap með Rannveigu ömmu á Seyðisfírði, þau eignuðust sex böm. Ætíð var mér tekið opnum örmum þegar ég kom til þeirra. Sem elsta bamabarnið naut ég vissra forréttinda og fékk oft að dvelja hjá þeim á sumrin, einnig þegar ég sem unglingur fór þangað í vinnu. Afí var mikill vinnuþjarkur, enda fyrir stóru heimili að sjá. Ég man aldrei eftir að honum og ömmu félli verk úr hendi. Auk þess að vera póstur á staðnum sá hann um bensínafgreiðslu ásamt sjoppu tengdri henni, mikið þótti mér gaman að fá að aðstoða hann við þá vinnu, það var alltaf sjálf- gefíð og ætíð var hann þolinmóður við unglinginn. Bensínafgreiðslustarfíð var oft erilsamt, opnunartími var langur og höfðu menn þann háttinn á að þeir þeyttu bílflautuna ef þeir vildu afgreiðslu og var þá ekki ætíð spurt hvað klukkan var. Á síldarár- unum drýgðu afi og amma tekjurn- ar með því að smíða og bólstra dívana fyrir sfldarbraggana, mikii var eftirspurnin svo að langtímum saman höfðust þau við í kjallara húss síns, sem nefnt er Dagsbrún, og þaðan mátti heyra suðið í saumavélinni hennar ömmu. Hún sneið og saumaði áklæðið og afí bólstraði. Trúlega skiptu þeir hundruðum dívanamir sem þannig urðu til. Fyrir ofan húsið uppi í fjallinu var afí með hænsnakofa. Amma seldi eggin vinum og kunningjum. Man ég þegar hún var að vigta þau í brúnum bréfpokum á eldhús- vigtinni sinni. Auk hænsna var afi með rollur og eina kú. Leiddi hann kúna heim eftir Hafnargötunni á kvöldin til mjalta. Eitt einkenndi afa: Hann bar ætíð svarta alpa- húfu á höfði. Hún var hengd á snaga við dymar í ganginum en alltaf gripin og sett á höfuðið á leiðinni út, jafnvel þótt hann þurfti aðeins að bregða sér út á hlað. Til sölu rótgróinn matsölustaður með vínveitinga- leyfi í hjarta borgarinnar. Mjög hagstætt verð. Fyrirtækjasalan Baldur Brjánsson, Skúlagötu 26, sími 626278. Margir eldri Seyðfírðingar minnast eflaust Sigga Hall eins og afí var kallaður, þeysandi um á svarta hjólinu sínu með alpahúf- una á höfði að bera út póstinn til bæjarbúa. Oft hefur verið erfítt að hemja hjólið í misjöfnum vind- um. En afi var mikið hraust- menni. Hefur það margsannast í gegnum árin, því hjartveiki hijáði hann í mörg ár, en ætíð hafði hann betur. Þegar hann var um sextugt árið 1964 voru bömin flest komin til Reykjavíkur. Stuttu síðar fluttu afí og amma einnig, starfaði afí áfram við bensínsölu á meðan heilsan entist. Þau bjuggu um tíma í sömu götu og fjölskylda mín og Guðrún elsta dóttir þeirra og henn- ar fjölskylda. Seinna fluttu þau í Gnoðarvoginn og var alltaf jafn notalegt að sækja þau heim. Þegar heilsu ömmu hrakaði dvaldi hún um tíma á Borgarspítalanum og afi keypti litlá þjónustuíbúð. Var ætlunin að amma gæti dvalið þar sem mest hjá honum, en að því kom að hann flutti á Skjól og hún kom á eftir. Seinustu árin sín lifði hann í myrkri og heymin var orðin slæm. Voru það mikil vonbrigði fyrir mann sem ætíð hafði verið mikill bókaunnandi og átti mikið af bókum. Meðan heymin var í lagi fékk hann bækur frá Blindra- bókasafninu, en hin síðari ár naut hann þess ekki lengur og hefur tíminn eflaust verið lengi að líða fyrir hann þrátt fyrir tíðar heim- sóknir ættingja. Afí og amma vom samrýnd hjón, þau höfðu ekki saman her- bergi en amma eyddi eftirmiðdög- unum síðustu ár í heimsóknum hjá honum. Lét hún renna sér í hjóla- stólnum inn til hans og sat hjá honum fram að kvöldmat. Það verða mikil viðbrigði fyrir ömmu að afí skuli vera farinn, enda voru þau búin að vera gift í 70 ár núna nýlega. Elsku amma mín, ég bið algóðan Guð um að styrkja þig í sorg þinni og alla ættingja^einnig. Rannveig Ásbjörnsdóttir. Þei þei og ró, þögn breiðist yfir ailt. Hnigin er sól í sjó, sof þú í blíðri ró. Við höfum vakað nóg, værðar þú njóta skalt, þei, þei og ró, þöp breiðist yfir allt. (Jóhann Jónsson.) Elsku langafi. Takk fyrir góðar stundir. Barnabarnabörnin í Eyjum. FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 31 - BOLAPRENTUN .v. 25 prentaða boli; hver bolur M.v. 50 prentaða boli; hver bolur M.v. 100 prentaða boli; hver bolur M.v. 500 prentaða boli; hver bolur M.v. 1000 prentaða boli; hver bolur = 734 kr. = 699 kr. = 541 kr. = 444 kr. = 374 kr. sm þú viit il tIfír vltí meðbol fri Merkismönnum! Við bjóðum á einum og sama staðnum hönnun og prentun á boli fyrir fyrirtæki, félagasamtök, íþrótta- og starfsmannafélög. * Verð með VSK m.v. hvítan 145 g stuttermabol og tveggja lita prentun á brjóst. Filmuvinna innifalin. Allar upplýsingar um bolaprentun í síma 568 0020 Merkislmenn Auplýsingastota - Bolaprentun - Silkíprentun - Bilamerkingar - Skiltagerð Skeifunni 3c - 108 ReykjavíK — Símr: 568 0020 - Fax: 568 0021 Hewlett-Packard 1200C er niapreniari lanaðarins á tilboði í Tæknivali Hraðvirkur litaprentari Tilboð á HP DeskJet 1200C kr. með hágæða útprentun Fjölmargir möguleikar. Kynntu þér málið núna í Tæknivali. stgr. m. vsk. Verið velkomin. Opið á laugardögum frá kl. 10.00 til 14.00. 134.900 Tæknival Skeifunni 17 - Simi 568-1665 - Fax 568-0664 í -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.