Morgunblaðið - 23.02.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 11
Víðtæk verkefni Rannsóknaráðs
Hlutverkið að
styrkja stoðir menn-
ingar og atvinnulífs
NÝLEGA gekk Rannsóknarráð ís-
lands frá skipun í fagráð og úthlut-
unarnefndir á vegum ráðsins, en
samkvæmt lögum skipar ráðið tvær
úthlutunarnefndir, eina fyrir Vís-
indasjóð og aðra fyrir Tæknisjóð,
og sitja fimm manns í hvorri nefnd.
Lög um Rannsóknarráð íslands
tóku gildi á miðju síðastliðnu ári
með sameiningu á Vísindaráði og
Rannsóknaráði ríkisins, og er hlut-
verk ráðsins samkvæmt lögunum að
styrkja stoðir íslenskrar menningar
og atvinnulífs. Að undanförnu hefur
verið unnið að skipulagningu á störf-
um ráðsins. í ráðinu sitja eftirtaldir
einstaklingar: Prófessor Sigmundur
Guðbjarnason, formaður, prófessor
Þórólfur Þórlindsson, dr. Alda Möll-
er, prófessor Anna Soffía Hauks-
dóttir, dr. Halldór Þorgeirsson, Hall-
grímur Jónasson, prófessor Helgi
Valdimarsson, Jakob Jakobsson og
prófessor Vésteinn Olason.
Sex fagráð
Skipuð hafa verið sex fagráð til
að fjalla um einstök svið vísinda og
tækni og gefa faglegar umsagnir
um styrkumsóknir tii sjóðanna, en
hvert fagráð er skipað sjö sérfróðum'
einstaklingum.
Fagráðin meta vísindalegt, tækni-
legt og hagrænt gildi umsókna og
flokka þær eftir hæfni umsækjenda
og gæðum og gagnsemi verkefn-
anna, en fagráðin gera hins vegar
ekki tillögu um úthlutun þar sem
það er á verksviði úthlutunarnefnd-
anna. Jafnframt er fagráðunum ætl-
að að meta stöðuna á viðkomandi
vísinda- og tæknisviði og vera Rann-
sóknarráði íslands til aðstoðar við
stefnumörkun og eflingu rannsókn-
arstarfseminnar í landinu.
Stefna ráðsins mótuð
til næstu framtíðar
Að sögn Sigmundar Guðbjarna-
sonar, formanns Rannsóknarráðs,
er annað meginverkefni ráðsins, auk
þess að undirbúa úthlutanir styrkja,
að móta stefnu ráðsins til næstu
framtíðar og er sú vinna nú í undir-
búningi.
Hann sagði að þegar búið væri
að móta nokkuð útiínurnar á þennan
hátt væri áformað að funda með
fagráðunum og reyna að takast á
við tiltekin fræðasvið eftir því sem
við ætti. Mótuð yrði sameiginleg
stefna hvað varðar áherslur ráðsins
með hliðsjón af því sem annars veg-
ar væri að þróast í þjóðfélaginu og
hins vegar því sem talin væri þörf
á að leggja áherslu á.
„Þessi sameiginlega stefna kemur
svo til með að hafa áhrif á það hvern-
ig styrkjum verður ráðstafað, t.d. á
næsta ári, og þannig verður þetta
unnið í áföngum. Við byijum á því
að reyna að gera okkur grein fyrir
því í stórum dráttum í hvernig sam-
félagi við viljum búa, og þar erum
við bytjuð að greina meginlínur. Síð-
an er ætlunin að taka hveija megin-
grein fyrir sig og skilgreina þau
áherslusvið sem rannóknastarfsemin
og Rannsóknarráð getur beint sér
að, hvort sem það er á sviði menn-
ingarmála, heilbrigðismála, mennta-
mála, umhverfismála eða atvinnu-
mála í víðum skilningi. Að þessu
verður unnið á næstu vikum og
mánuðum og við gerum ráð fyrir
að einhveijum slíkum áfanga verði
náð í haust, sem síðan verður til
hliðsjónar við úthlutun styrkja að
ári. Þannig tökum við svo fyrir eitt
sviðið af öðru,“ sagði Sigmundur.
Athugasemd TR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
athugasemd frá Tryggingastofnun
ríkisins sem nefnd er „Rangar upp-
lýsingar frá sérfræðingum". Þar seg-
ir:
„Vegna heilsíðu auglýsingar frá
257 sérfræðingum sem birtist á síðu
5 í Morgunblaðinu 22. febrúar skal
eftirfarandi tekið fram:
Af þeim sérfræðingum sem undir-
rita yfirlýsingu um að þeir hafi sagt
sig úr samningi við Tryggingastofn-
un frá og með 1. maí 1995, hefur
41 læknir ekki sagt sig úr samningi
við stofnunina frá þeim tíma. í aug-
lýsingunni eru birt nöfn 35 lækna,
sem sagt hafa upp samningi við
Tryggingastofnun frá og með 1. júní
1995, en ekki 1. maí. Að auki hafa
uppsagnir enn ekki borist til stofnun-
arinnar frá sex læknum, sem undir-
rita auglýsinguna.
Þessir læknar eru því að veita al-
menningi rangar upplýsingar, sem
ber að leiðrétta.
Þeir 35 læknar, sem undirrita aug-
lýsinguna, en hafa í raun sagt upp
samningi við Tryggingastofnun frá
og með 1. júní 1995, en ekki 1. maí:
1. Ingibjörg Georgsdóttir,
barnalæknir
2. Stefán Hreiðarsson, bamalæknir
3. Þröstur Laxdal, barnalæknir
4. Brynjólfur Mogensen,
bæklunarlæknir
5. Gunnar Þór Jónsson,
bæklunarlæknir
6. Ragnar Jónsson, bæklunarlæknir
7. Stefán Carlsson, bæklunarlæknir
8. Grétar Sigurbergsson, geðlæknir
9. Ingvar Kristjánsson, geðlæknir
10. Óiafur Bjamason, geðlæknir
11. Rannveig Pálsdóttir, húðlæknir
12. Magnús Ólason,
endurhæfingarlæknir
13. Sigurður Árnason,
krabbameinslæknir
14. Arnar Hauksson,
kvensjúkdómalæknir
15. Gunnlaugur Snædal,
kvensjúkdómalæknir
16. Andrés Sigvaldason, lyflæknir
17. Árni Kristinsson, lyflæknir
18. Bjarni Þjóðleifsson, lyflæknir
19. Guðmundur Þorgeirsson,
lyflæknir
20. Haraldur Briem, lyflæknir
21. Kjartan Pálsson, lyflæknir
22. Kristján Steinsson, lyflæknir
23. Höskuldur Kristvinsson,
skurðlæknir
24. Kjartan G. Magnússon,
skurðlæknir
25. Sigurgeir Kjartansson,
skurðlæknir
26. Ólafur Þ. Jónsson,
svæfingalæknir
27. Ásgeir Ellertsson, taugalæknir
28. Einar Valdimarsson,
taugalæknir
29. Elías Ólafsson, taugalæknir
30. Finnbogi Jakobsson,
taugalæknir
31. Grétar Guðmundsson,
taugalæknir
32. Gunnar Guðmundsson,
taugalæknir
33. Marinó Hafstein, taugalæknir
34. Þorsteinn Gíslason, þvagfæra-
skurðlæknir
35. Sigurbjöm Björnsson,
öldrunarlæknir
Uppsagnir á samningi hafa ekki
borist Tryggingastofnun frá þessum
sex læknum, sem þó skrifa undir
auglýsinguna:
1. Þórey Sigurjónsdóttir,
barnalæknir
2. Guðmundur Björnsson,
endurhæfingarlæknir
3. Jóhann G. Þorbergsson, lyflæknir
4. Jón Þorsteinsson, lyflæknir
5. Sjöfn Kristjánsdóttir, lyflæknir
6. Þórarinn Gíslason, lyflæknir"
Morgunblaðið/RAX
RANNSÓKNARRÁÐ Islands ásamt starfsmönnum á fundi nú í vikunni. Talið frá vinstri eru Hörður
Jónsson, forstöðumaður tæknisviðs Rannsóknarráðs, dr. Alda Möller, prófessor Vésteinn Ólason, dr.
Halldór Þorgeirsson, dr. Vilhjálmur Lúðviksson, framkvæmdasljóri Rannsóknarráðs, prófessor Sig-
mundur Guðbjarnason, formaður Rannsóknarráðs, prófessor Anna Soffía Hauksdóttir, dr. Jónas
Jónasson, Jakob Jakobsson og Kristján Kristjánsson, forstöðumaður visindasviðs Rannsóknarrráðs.
j,; I ' t /kiii B t
|i
Austurlönd fjær
Á hverju ári annast skrifstofa Eimskips í Hamborg flutning á þúsundum gámaein-
inga af inn- og útflutningsvöru íslendinga á leið sinni til og frá Austurlöndum fjær.
Samstarfsaðilár Eimskips í þessum flutningum eru öflug alþjóðleg flutningafyrirtæki
eins og Hapaq-Loyd, Mærsk, Evergreen, K-line og Mitsui. Með því samstarfi tryggir
Eimskip viðskiptavinum sínum fyrsta flokks flutningaþjónustu við Austurlönd fjær.
„Vanti þig ráðgjöf og vandaða
flutningsmiðlunarþjónustu vegna
flutninga til og frá Austurlöndum fjær
skaltu hafa samband við Eimskip.“
Eimskip býður viðskiptavinum upp á heildarlausnir í flutninga-
pjónustu, inn- og útflutning, vöruhúsapjónustu, innanlands-
flutninga, framháldsflutninga og forflutninga erlendis.
EIMSKIP
Sími 569 71 00 • Fax 569 71 79
Netfang: mottaka@eimskip.is