Morgunblaðið - 23.02.1995, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Kosninga-
miðstöð
Þjóðvaka
opnuð
ÞJÓÐVAKI, hreyfing fólksins,
hefur opnað kosningamiðstöð á
Brekkugötu 5b, Akureyri.
Til að byrja með verður dagskrá
hússins þannig að alla virka daga
er opið og heitt á könnunni á milli
kl. 17 og 19. Miðvikudaga og
fimmtudaga eru málefnahópar að
störfum milli kl. 18 og 20.
Alla laugardagsmorgna verður
morgunkaffi frá kl. 10 til 12. Þá
munu frambjóðendur taka á móti
kaffigestum og ræða málin.
AKUREYRI
Leikskólanefnd fjallar um
afslátt til háskólanema
BJÖRN Jósef Amviðarson bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokks vakti athygli á
ítrekuðum heimsóknum fulltrúa há-
skólanema í viðtalstíma bæjarfull-
trúa en erindi þeirra varðar breytingu
sem felst í því að afsláttur bama
námsmanna á leikskólum bæjarins
hefur verið felldur niður.
Björn sagði á fundi bæjarstjórar
í vikunni að eftir á að hyggja sýnd-
ist sem menn hefðu gengið skrefi
lengra en þeir hefðu viljað í málinu,
ef til vill hefðu menn ekki gert sér
grein fyrir að áhrifin yrðu jafnmikil
á jafnstóran hóp. Gagnrýni hefði
einnig komið á framkvæmd málsins,
námsmönnum hefði ekki verið gefinn
aðlögunartími.
Upplýsti Bjöm að leikskólanefnd
hefði málið til umfjöllunar og vænti
hann þess að það yrði tekið til vin-
samlegrar skoðunar í nefndinni og
að hratt yrði unnið.
Jakob Bjömsson bæjarstjóri sagði
að bréf hefði borist bæjarstjóm þar
sem farið væri fram á að fyrri
ákvörðun yrði hnekkt, afslátturinn
yrði ekki felldur úr gildi. Eftir um-
fjöllun í leikskólanefnd verður málið
tekið fyrir að nýju á næsta fundi
bæjarstjómar.
Valgerður Hrólfsdóttir, Sjálfstæð-
isflokki, sagði við umræðuna að sér
virtist sem leikskólanefnd einbeitti
sér einkum að því að gera úttektir
á hinum ýmsu málum. Vonaðist hún
til að nefndin sæi sér fært að fjalla
um sumarfrí á leikskólum, en það
kæmi illa við marga að þurfa ætíð
að stilla sumarfrí sín inn á sumarlok-
un leikskólanna.
Heimir Ingimarsson, Alþýðu-
bandalagi, kvaðst einnig vilja leggja
inn minnispunkta til leikskólanefnd-
ar, nefnilega að tekin yrði upp um-
ræða um systkinaafslátt. Nefndin
gæti kannski tekið málið upp þegar
umræðu þryti um úttektir.
Löng og ströng törn hjá snjómokstursmönnum sem ekki sér fyrir endann á
Það .
besta er
eftir -
vorið
ÞEIR ERU sammála um það,
starfsmenn bæjarins sem sjá
um snjómoksturinn, að vetur-
inn hefur verið langur og Ieið-
inlegur. Óvenjumikið er af
snjó, hann er blautur og þung-
ur og erfiðleikum bundið að
koma honum frá sér. Törnin
hefur verið löng og ströng og
stærstur hluti þess fjár sem
bæjarstjórn ætlaði til mokst-
ursins er að verða uppurinn.
En mikið á eftir að moka enn.
Þeir stilla saman strengi sína
eftir veðurfréttir í sjónvarpinu,
stórhríðarspá þýðir að „fyrsta
startið“ svokallaða, hópur va-
skra manna hefst handa kl. 5
næsta morgun. Bæjarverk-
stjórinn, Hilmar Gíslason, hef-
ur áætlun á reiðum höndum,
fyrst eru strætisvagnaleiðirnar
opnaðar, sama hversu mikið
hefur snjóað, þær eiga að vera
færar kl. hálfsjö. Þá er tekið
til við að opna leiðir að Ieik-
og grunnskóium bæjarins sem
eiga að vera færar klukku-
stund síðar. Síðan er haldið
áfram koll af kolli, opnað fyrir
íbúa í hverri götunni á fætur
annarri, þeim fjölmennustu
fyrst. Og áfram er haldið fram
á kvöld, því bæjarbúar vilja
komast leiðar sinnar. Vinnu-
dagarnir verða því oft langir á
hörðum vetri sem þessum.
Langverst þegar við erum
eltir upp í ruðningana
„Það fer ekkert í skapið á
okkur,“ sagði einn moksturs-
mannanna sem ræddu við
Morgunblaðið í kaffitímanum í
gærmorgun. Þeir viðurkenndu
reyndar að vissulega væri
hvimleitt hversu margir færu
af stað eftir stórhríðarnótt á
fólksbílum, sætu fastir og
mokstursmenn ættu ekki ann-
ars úrkosti en draga bílana upp
úr sköflunum, slíkt tefði störf
þeirra. „Það er langverst þegar
við erum eltir upp í ruðning-
ana, eins og iðulega kemur
fyrir,“ sagði annar, en enginn
vissi hvað ökumönnum gengur
til við slíkt athæfi. Hilmar
sagði afar mikilvægt að fólk
færði bíla sína, sérstaklega í
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þeir hafa staðið í ströngu
undanfarið, snjómoksturs-
mennirnir, og þá er gott að
koma aðeins inn í hlýjuna
og fá sér kaffisopa.
eldri hlutum bæjarins áður en
snjómoksturinn hæfist, það
sparaði mikinn tíma.
En hvað skyldi vera
skeinmtilegast við þetta starf,
snjómoksturinn? „Það sem er
skemmtilegast við þetta," segir
einn þeirra, „ er ekki komið
enn. Það er vorið.“
Flotinn, tveir heflar, þrjár
hjólaskóflur, jarðýta, dráttar-
vél og lánstæki frá raf- og
vatnsveitu ásamt fjölda Ieigu-
véla hefur verið að nánast
sleitulaust frá áramótum og
ekkert lát virðist vera á siyó-
komunni.
Yfirferðin er mikil, frá
Kjarnaskógi í suðri að Grænhól
nyrst í bænum, opna þarf leið-
ina upp í Hlíðarfjall og að
Hesjuvöllum ofan Akureyrar.
Þá þurfa hestamenn að komast
í Breiðholt og þá þurfa menn
líka að komast að sorphaugum
bæjarins í Glerárdal.
Mikill barningur að
komast gegnum snjóinn
Margir karlanna eiga langan
feril að baki hjá bænum, muna
ýmsa snjóavetur en þessi slær
allt út. Meira að segja stórhríð-
arveturinn 1974—75 ogvissu-
lega segja þeir snjóinn hafa
verið meiri á útmánuðum 1989,
en þá muna menn eftir að hafa
verið við snjómokstur í byrjun
maí. „Snjórinn er erfiður viður-
eignar núna,“ segja þeir, „hann
hefur að mestu komið í suð-
vestanátt sem er óvenjulegt og
það er bara mikill barningur
að komast í gegnum hann.“
Segja þeir áður en farið er í
gallann og út að böðlast í jök-
ulruðningunum.
Hagyrð-
ingakvöld
í Deiglunni
HAGYRÐINGAKVÖLD verð-
ur haldið í Deiglunni í Gróf-
argili í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 23. febrúar, og hefst
það kl. 23.30.
Slíkt hagyrðingakvöld var
haldið í október síðastliðnum
við miklar vinsældir, en þeir
sem nú leiða saman hesta sjna
eru Hákon Aðalsteinsson, Ósk
Þorkelsdóttir og Stefán Vil-
hjálmsson. Hákon er lands-
þekktur fyrir kveðskap sinn,
Ósk sem er Húsvíkingur er
þekkt á heimaslóðum fyrir
yrkingar, en Stefán er á
heimavelli, er Akureyringur
og tók þátt í fyrra hagyrð-
ingakvöldi Gilfélagsins í haust
og átti þar magnaðar vísur.
Þórarinn Hjartarson mun
kveða nokkrar stökur og
Ragnhildur Jónsdóttir lesa
upp. Gestum í sal er fijálst
að láta flest flakka og kasta
fram fyrri- og seinnipörtum
að vild. Stjómandi kvöldsins
er Birgir Sveinbjörnsson.
Gilfélagið og Dagur standa
að hagyrðingakvöldinu í sam-
einingu.
Tónleikar
Bernardel-
kvartetts
BERNARDEL-strengj akvart-
ettinn efnir til tónleika í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju
kl. 16.00 næstkomandi laug-
ardag en þeir eru á vegum
Tónlistarfélags Akureyrar.
Kvartettinn hefur starfað
frá haustinu 1993 og haldið
tónleika víða um land. Hann
skipa þau þau Zbigniew Du-
bik, Gréta Guðnadóttir, Guð-
mundur Kristinsson og Guð-
rún Th. Sigurðardóttir en þau
leika öll með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands og hafa einnig
tekið mikinn þátt í flutningi
kammertónlistar hér á landi
á undanförnum árum.
Á tónleikunum flytja þau
strengjakvartetta eftir Beet-
hoven, Sjostakovich og Moz-
art.
Meðlimir kvartettsins efna
einnig til námskeiðs fyrir
nemendur strengjadeildar
Tónlistarskólans á Akureyri.
Síðustu
sýningar
á Svörtum
fjöðrum
SÍÐUSTU sýning;ar á leikrit-
inu Á svörtum fjöðrum - úr
ljóðum Davíðs Stefánssonar
eftir Erling Sigurðarson,
verða um helgina, á laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
Sýningin verður að hverfa
af sviðinu þar sem undirbún-
ingur næsta verkefnis er
langt á veg kominn og leggja
þarf sviðið undir nýja leik-
mynd.
Á svörtum fjöðrum var sér-
staklega samið fyrir LA í til-
efni af aldarafmæli Davíðs
Stefánssonar og er verkið
byggt á ljóðum skáldsins. Það
gerist eina kvöldstund á heim-
ili hans..