Morgunblaðið - 23.02.1995, Page 15

Morgunblaðið - 23.02.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 15 NEYTENDUR BRÚSINN er með öryggistappa. Glitra í nýjum umbúðum UPPÞVOTTADUFTIÐ Glitra, sem sápugerðin Frigg framleiðir, er nú í nýjum umbúðum og_ er selt undir heitinu Þvol Glitra. í tilkynningu frá framleiðanda kemur fram að umbúðirnar eru með hentugu handfangi og öryggistappa. Þar segir: „Oryggistappinn er settur á brúsann til að auka öryggi bama á heimilum, en alvarleg slys hafa hlotist af því að börn komast í uppþvottaduft, þar sem þau em oft geymd í neðri skápum." Tyggjó úr hárinu STUNDUM vill tyggjó festast í hári lítilla barna og það er ekki skemmtilegt að þurfa að beita skærunum á hárið hjá litlum stelp- um sem eru að safna. Til að koma í veg fyrir sáran grát má reyna þetta ráð sem við rákumst á í er- lendu tímariti. Takið væna skeið af hnetu- smjöri og berið á flötinn þar sem tyggjóið festist. Nuddið smjörinu vel í hárið og bætið við ef þarf. Eftir nokkrar mínútur á tyggjóið að losna úr hárinu. Það þarf varla að taka fram að hárið þarfnast þvottar á eftir. » ♦ ♦--- Títuberja- safi gegn blöðrubólgu? ÞEIR sem fá oft blöðrubólgu ættu að drekka títuberjasafa reglulega. Hann dregur úr bakteríum sam- kvæmt rannsóknum í Bandaríkjun- um. í þessum niðurstöðum kom fram að bakteríum í þvagi 60 sjúklinga sem drukku 3 dl af títubeijasafa daglega í sex mánuði fækkaði verulega í samanburði við hóp sjúklinga sem fékk engan títu- beijasafa. URVERINU Morgunblaðið/Sig. Jóns. UNNIÐ við að landa loðnu úr Júpíter í Stakfellið og á vörubíla á hafnarbakkanum. Júpíter ÞH dælir loðnu á bæði borð í Þorlákshöfn Loðna flokkuð úti á sjó eftirsóttasta hráefnið Selfossi. Morgunblaðið LOÐNUSKIPIÐ Júpíter landaði um 200 tonnum af sjóflokkaðri loðnu í Þorlákshöfn í gær. Loðn- unni var dælt í tvær áttir, á vöru- bíla á hafnarbakkanum og um borð í frystitogarann Stakfell sem lá við hlið Júpíters. Fyrir utan Þorlákshöfn beið svo Sléttanesið eftir að komast að og taka loðnu um borð til frystingar. Bílarnir óku loðnunni til Reykjavíkur, Akranes, Fáskrúðsfjarðar, Þórshafnar og einnig í vinnsluhús í Þorlákshöfn. Allt vitlaust eftir fyrstu 100 tonnin Júpíter er eitt þriggja loðnuskipa sem flokkar loðnu um borð, hin tvö eru Þórshamar og Hákon. Fyrir- hugað var að fá loðnuskipið Amm- assat og Hágangana tvo til að taka hænginn og hrynguna úti á sjó og flytja í bræðslu og frystingu en það fékkst ekki, en Lárus Grímsson sagði að reyndar fengi Ammassat að taka hratið um borð í höfn. Hann sagði að búið væri að leigja pramma til að taka hrat. Þeir gerðu allt til að ná sem mestum afköstum með þeim tækjum sem þeir hefðu. „Eftir fyrstu 100 tonnin varð allt vitlaust og maður finnur inn á að það eru einhveijir að reyna að torvelda þessa starfsemi," sagði Lárus og ennfremur að þetta hefði verið gert undanfarin ár og búið að fá öll leyfi. Allt landið opið fyrir frystingu „Með því að flokka loðnuna þarf frystingin ekki að hugsa um bræðsluna. Við erum því búnir að opna allt landið fyrir frystingu sem var útilokað áður. Það er nefnilega ekki svo auðvelt að losna við hrat- ið eitt og sér til bræðslu. Þetta er ansi mikil bylting sem gefur betra hráefni enda vilja Jap- anir frekar sjóflokkaða loðnu, hún er mun ferskari. Það er best að flokka loðnuna fyrstu 17 tímana auk þess sem hún verður fyrir mun minni veltingi milli tækja með þessu móti. Við hÖfum átt gott samstarf við Fiskistofu og viljum ekki henda hratinu. Við þurfum að fínna út úr því að koma þessu í verð á sem auðveldastan hátt óg leggjum allt undir til að koma öllu í land, ekki bara ijómanum heldur undanrennunni líka,“ sagði Lárus Grímsson skipstjóri á Júpíter þar sem hann sat í brúnni og fylgdist með loðnulönduninni í Stakfellið og á vörubílana sem hver af öðrum ók á brott með verðmæta loðnu til frystingar. Ammassat fær ekki að flylja loðnu utan af sjó Skálar hf. útgerð Júpíters hafði fengið leyfi frá sjávarútvegsráðu- neytinu til flokkunar á loðnu um borð í skipinu. Var þá gert ráð fyrir því, að flokkaðri loðnu yrði dælt um borð í frystiskip eða til landvinnslu, en bræðsluloðnu yrði landað^ í flutningsskip eða beint í land. í leyfí ráðuneytisins sagði, að yrði afla landað um borð í flutn- ingsskip, gilti vigtin á loðnunni, þegar henni væri landað úr flutn- ingsskipinu til bræðslu. Væri þá gert ráð fyrir því að flutningsskipið hefði aðeins tekið við afla frá Júpíter í viðkomandi ferð. Þá var jafnframt gert ráð fyrir því, að yrði flokkaðri loðnu landað um borð í frystiskip skyldi Fiskistofu tilkynnt um áætlað magn hveiju sinni, en endanleg vigt fengist síðan, þegar afurðun- um yrði landað. Júpíter flokkar loðnuna um borð en frystir ekki. Um borð er loðnan flokkuð til þess að auka aflaverð- mæti skipsins. Gert hafði verið ráð fyrir því, að grænlenzka loðnuskip- ið Ammassat, flytti hænginn frá Júpíter til bræðslu í landi. Þá var einnig gert ráð fyrir því, að togar- inn Hágangur flytti flokkaða loðnu ísaða í körum í land til frystingar þar, meðan fjarlægð frá miðunum væri ekki of mikil. Leyfilegt að flylja Ioðnu milli hafna Útgerðinni barst svo skeyti frá sjávarútvegsráðuneytinu nú í vik- unni, að skip undir erlendum fána mættu ekki flytja loðnu frá miðun- um í land. Aðeins væri heimilt að nota erlend skip til slíkra flutninga að loðnunni hefði verið landað og hún vegin í löndunarhöfn fyrst. Vísaði ráðuneytið ákvörðun sinni til stuðnings í lög um veiðar i efna- hagslögsögu íslands, þar sem er- lendum skipum eru bæði bannaðar veiðar og vinnsla innan lögsögunn- ar. Ammassat hefur hins vegar fengið leyfí til að flytja loðnu frá Júpíter, sé henni dælt um borð í höfn, án þess að loðnan hafi verið vegin áður. Þess í stað verði hún vegin í þeirr. höfn, sem henni verði landað til bræðslu. Verið að koma í veg fyrir framfarir Jóhann A. Jónsson, útgerðar- maður, segir að slík túlkun á lög- unum geti varla staðizt. Þarna sé um að ræða flutningaskip, sem hvorki stundi veiðar né vinnslu. Þessi skip hefðu átt að fá greitt sem verktakar fyrir að flytja loðn- una í land, þau hefðu ekki verið með veiðarfæri og aldrei tekið þátt í veiðunum. Þama virtist einungis verið að koma í veg fyrir hag- kvæma vinnslu, en flokkun á loðnu um borð sé ein af forsendum þess, að vel gangi að frysta upp í gerða samninga. Þá þurfí frystingin ekki að tefja sig við að koma úrgangi í bræðslu og flokkun um borð skili mun betri nýtingu en flokkun í landi. „Það hefði verið til hagsbóta fyrir fjölmarga aðila, hefði leyfi fengizt til að flokka úti á sjó og flytja hænginn í land eins og til stóð. Þá hefði Júpíter getað ein- beitt sér að flokkuninni. Nú þarf skipið að fara í höfn til að losa sig við hratið og því verða afköstin við flokkunina minni. Það er kom- in niðurstaða í málið og við verðum að una við hana, þó í henni felist ekki ítrasta hagkvæmni. Þetta er enn eitt dæmið um það hvaða við- spyrnu framfarir og nauðsynlegar nýjungar í sjávarútvegi verða oft fyrir. ,“ segir Jóhann A. Jónsson. Brot gegn EES-samkomulaginu? Sjávarútvegsnefnd Alþingis íjallaði um þetta mál meðal ann- arra í gær og voru nefndarmenn almennt á þeirri skoðun, að ekki væri hægt að banna það, að Amm- assat flyti loðnu frá miðunum í land. Vilhjálmur Egilsson, einn nefndarmanna, segir að líklega bijóti þessi málsmeðferð í bága við samninginn um Evrópska efna- hagssvæðið. Sjávarútvegsráðu- neytið hafí sjálft skilgreint þetta sem flutninga og talað um flutn- ingaskip. Samkvæmt EES-sam- komulaginu megi ekki mismuna aðildarlöndum EES hvað varðar flutninga innan svæðisins. Vil- hjálmur segir, að sér sé enn frem- ur ekki kunnugt um að nokkur lög eða reglur geti bannað erlendum aðilum flutninga hér við land. Norðmenn leyfa veiði á 301 hrefnu NORSKA sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið hrefnukvóta Norð- manna fyrir þetta ár. Alls verður leyft að veiða 301 dýr. Það er sami fjöldi og á síðasta ári, en ákvörðun um fjölda dýra er byggð á vísinda- legum niðurstöðum og reiknistuðl- um, sem hafa verið viðurkenndir af Alþjóða hvalveiðiraðinu. Veiðar mega nú hefjast annan maí. Öll skip, sem veiðarnar stunda skulu vera með eftirlitsmann um borð. í sumar verður einnig hvala- talning í Norðaustur-Atlantshafi undir stjórn Hafrannsóknastofnun- arinanr í Noregi en með þátttöku fleiri þjóða. Hvalatalningin hefst 3. júlí og taka 10 bátar þátt í henni. -----■»■♦ ♦--- Hraðvirkar mæliaðferðir í matvælaiðnaði NÁMSSTEFNA um hraðvirkar mæliaðferðir og tækninýjungar í matvælaiðnaði verður haldin á Hótel Sögu dagana 7.-8. mars næstkomandi. í fréttatilkynningu segir að ólíkt hefðbundnum mæl- iaðferðum, sem veiti fyrst og fremst upplýsingar eftir á um gæði tilbúinna framleiðaluvara, leiði hraðvirkar mæliaðferðir til jafnari gæða og færri framleiðalu- mistaka. Á námsstefnunni verður lögð áhersla á mæliaðferðir sem eru auðveldar í notkun og kreijast ekki mikillar sérfræðiþekkingar. Námsstefnan er einkum ætluð þeim sem koma til með að ákveða hvaða mælingar skuli framkvæmd- ar, þeim sem vinna að uppsetningu gæðakerfa, gæðastjórum og öðr- um sem vilja fylgjast með og kynn- ast nýjum aðferðum og nýrri tækni við gæðastjórnun. -----» ♦ ♦---- Bræla við Bretland BRETAR hafa, ekki síður en við íslendingar, fengið að kenna á þrálátum brælum í vetur. Bafa mörg skip fengið brot á sig og skemmzt. Þeirra á meðal er nó- taksipið Adenia II, en hún er betur þekkt hér á landi undir nafninu Pétur Jónsson RE. Adenia II er gerð út frá Hjalt- landi, en þangað var hún keypt í fyrra. Hún fékk á sig brotsjó um 160 sjómílur út af Leirvík og urðu verulega skemmdir á fiskiskilju á framdekkinu og öðrum búnaði. Skipstjórinn, George Andersson, reyndi fyrst að hleypa undan í bijáluðu veðri, en vindátt snérist síðan og tókst honum þá að kom- ast inn til Leirvíkur eftir töluverða hrakninga. -----♦ ♦ »---- Einkaleyfi ekki fengið MORGUNBLAÐINU hefur borizt sú athugasemd frá Einkaleyfa- stofu íslands, að ekki sé rétt að einkaleyfi hafi fengizt vegna fram- leiðslu á Grip-lásnum, sem ætlaður er til að skeyta saman fléttað tóg. Samkvæmt upplýsingum Einka- leyfastofunnar hefur verið sótt um einkaleyfi vegna framleiðslu láss- ins og er sú umsókn til umfjöllun- ar. Einkaleyfi á framleiðslu hans hefur ekki verið gefið út eins og haft var eftir framleiðendum láss- ins í sérblaði Morgunblaðsins Úr verinu fyrr í þessum mánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.