Morgunblaðið - 23.02.1995, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 17
ERLEIMT
Forsætisráðherrar Bretlands og Irlands á blaðamannafundi í Belfast
Áætlun um frið og sam-
vinnu á Norður-íriandi
Mótmælendur óttast að verið sé að undirbúa sameiningu við írland
Bclfast. Reuter.
Reuter
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, og John Bruton, írsk-
ur starfsbróðir hans, kynna áætlunina um lausn deilunnar á
Norður-írlandi. Þeir lögðu áherslu á, að um væri að ræða um-
ræðugrundvöll en ekki endanlega niðurstöðu.
BRESKA og írska ríkisstjórnin
kynntu í gær áætlun sína um póli-
tíska lausn á deilunum á Norður-
írlandi. Hvatti John Major, forsæt-
isráðherra Bretlands, N-íra til að
segja skilið við gamla fordóma og
dæma áætlunina eingöngu eftir
innihaldi hennar. Vonast er til, að
sá friður, sem ríkt hefur í Norður-
írlandi í hálft ár, vegi það þungt,
að mótmælendur fallist á að ræða
um framtíðina á grundvelli sam-
komulagsdraganna.
„Kynnið ykkur áætlunina vel og
veltið fyrir ykkur hvaða árangur
og ávöxt hún getur borið,“ sagði
Major á blaðamannafundi í Belfast
í gær. „Við skulum samt ekki hrapa
að neinu. Við erum ekki enn komn-
ir í áfangastað." Með Major á fund-
inum var John Bruton, forsætisráð-
herra Irlands.
Áætluninni líkt við „útburð“
Áætlunin er í þremur liðum og
er meðal annars gert ráð fyrir nýju
þingi á Norður-írlandi og sérstök-
um stofnunum, sem eiga að bæta
samskipti írsku ríkjanna, jafnt í
efnahagsmálum sem á öðrum svið-
um. Mótmælendur eru hins vegar
í uppreisnarhug og óttast, að verið
sé að stíga fyrsta skrefið í átt til
sameiningar við írland.
Peter Robinson, varaformaður
Sambandsflokks mótmælenda,
sagði í gær, að áætlunin jafngilti
„útburði", verið væri að reka Norð-
ur-írland út úr Bretlandi.
Bruton og Major vísuðu þessum
ummælum á bug og sögðu, að
áætlunin væri umræðugrundvöllur
fyrir viðræður allra flokka. Hugsan-
leg niðurstaða yrði síðan borin und-
ir þjóðaratkvæði í N-írlandi og loks
þingið.
Meginatriðin
í áætluninni eru meðal annars
þessar tillögur:
■ Nýtt þing, skipað 90 mönnum,
verði kosið hlutfallskosningu en á
Norður-írlandi eru 60% landsmanna
mótmælendur og 40% kaþólikkar.
■ Bretland og Irland falli frá kröf-
um til yfirráða á N-írlandi til að
íbúarnir geti sjálfir ráðið framtíð
sinni.
■ Þing Norður-írlands og þing
írska lýðveldisins komi á fót ýmsum
stofnunum til að greiða fyrir efna-
hagslegri samvinnu. Ákvarðanir
verði teknar einróma og hafi hvort
þingið um sig neitunarvald.
■ Samstarf Breta og íra verði eflt
með skipan fastaráðs og stjórnar-
deildar.
■ Lagt verði fram frumvarp um
mannréttindamál, sem tryggja skuli
menningarleg og borgaraleg rétt-
indi mótmælenda og kaþólikka.
Vopnin verði afhent
Sinn Fein, stjórnmálaarmur
írska lýðveldishersins, IRA, og hóp-
ar, sem tengjast vopnuðum sveitum
mótmælenda, hafa átt í óformlegum
viðræðum við bresku stjórnina en
Major lagði á það áherslu í gær,
að skilyrðið fyrir þátttöku í viðræð-
um allra flokka um framtíð landsins
væri, að vopnin yrðu afhent réttum
yfirvöldum.
Kröfur mótmælenda hafa fyrst
og fremst snúist um stjórnarskrár-
breytingu og nýtt þing en þingið
mun ráða mestu um framtíðarsam-
skipti Norður-írlands og írlands.
Vopnahléið, sem nú hefur ríkt í sex
mánuði, er hins vegar tilkomið
vegna þeirra yfirlýsinga írsku og
bresku stjórnarinnar, að stöðu hér-
aðsins verði aðeins breytt með sam-
þykki meirihluta íbúanna.
Mótmælendur á Norður-írlandi
hafa alltaf viljað efla gæslu á landa-
mærunum við írland en með áætl-
uninni er augljóslega stefnt að því
að leggja þau niður smám saman.
Það væri líka í anda þess, sem nú
er stefnt að innan Evrópusam-
bandsins.
Chirac ætlar
að halda sig
við málefnin
HRATT fylgishrun Edouards
Balladurs forsætisráðherra
Frakklands síðustu daga hefur
verið talið styrkja stöðu sam-
flokksmanns hans, Jacques
Chiracs borgarsljóra í París, í
baráttunni um starf Frakk-
landsforseta. Balladur hefur
sætt gagnrýni fyrir að gefa lög-
reglu heimild til símhlerana.
Hann segir málið hafa verið slit-
ið úr öllu samhengi og varaði í
gær hægrimenn við að beina
spjótum að sér, því það myndi
aðeins auka líkur á því að jafn-
aðarmaður færi með sigur af
hólmi í forsetakosningunum.
Fyrri umferð þeirra fer fram
23. apríl og sú seinni 7. maí.
Chirac hét því í gær að halda
sig við pólitísk málefni fram að
kosningum.
Pólitísk eilífð
„Tilgangslausar persónulegar
árásir, sem leitt geta til klofn-
ings, eru bæði óskynsamlegar
og óréttlætanlegar,“ sagði hann
í útvarpssamtali. Var það svar
hans við áskorun Balladurs og
Francois Leotards vamarmála-
ráðherra, sem varaði „afreks-
menn í pólitiskum launsátursað-
gerðum“ í röðum hægrimanna
við því að færa jafnaðarmönn-
um þriðja sigurinn í forseta-
kosningum í röð.
Hið íhaldssama blað Le Figaro
sagði í gær, að of snemmt væri
að afskrifa Balladur þó svo fylgi
hafi hrunið af honum. Blaðið
sagði að hálf níunda vika væri
til kosninga. „Það er eins og öld
eða meira,“ á mælikvarða
stjórnmálanna, sagði blaðið.
Myndin var tekin á kosninga-
fundi Chiracs í Rúðuborg í gær.
Tróna slagorð hans, Frakkland
fyrir alla, í bak og fyrir.
Frakkar reka
fimm banda-
ríska njósnara
irís. Reuter.
FRÖNSK stjórnvöld hafa farið þess
á leit við bandarísk stjórnvöld, að
þau kalli heim fimm bandaríska
þegna vegna meintra njósna í Frakk-
landi. Þar á meðal eru fjórir stjórnar-
erindrekar, að því er blaðið Le Monde
skýrði frá í gær.
Samkvæmt upplýsingum frönsku
gagnnjósnaþjónustunnar eru hinir
meintu njósnarar allir starfsmenn
bandarísku leyniþjónustunnar (CLA).
Reyndu þeir meðal annars að fá
háttsetta embættismenn til að starfa
fyrir sig.
Um er að ræða þrjár konur og tvo
karlmenn. Öll eru þau utan ein kona
á skrá yfir bandaríska stjórnarerind-
reka.
Pamela Harriman, sendiherra
Bandaríkjanna í París, var kölluð
fyrir Charles Pasqua innanríkisráð-
herra 26. janúar og 3. febrúar. Þar
var þess farið á leit við hana að
bandarísk yfirvöld kölluðu viðkom-
andi heim.
Le Monde sagði hins vegar í gær,
að stjórnarerindrekarnir fjórir hefðu
enn verið á símaskrá sendiráðsins í
fyrradag.
Meðal njósnaranna eru yfirmaður
CIA í Frakklandi og aðstoðarmaður
hans.
Þeim er gefið að sök að hafa
stundað pólitískar og efnahagslegar
njósnir. Reyndu þeir m.a. að fá
mann í einkastarfsliði Edouards
Balladurs forsætisráðherra til liðs
við sig. Þegar það komst upp var
hann samstundis leystur undan
störfum.
Reuter
N O V E L L J «
NetWare 4.1
Inn í framtíðina með Novell NetWare 4.1
Mest selda netstýrikerfið
í heiminum í dag.
NetWare frá Novell.
Skeifunni 17 - Sími 568-1665 - Fax 568-0664
Tæknival