Morgunblaðið - 23.02.1995, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Anne Manson stjórnar Sinfóníuhljómsveit íslands fyrst kvenna
Anægjulegast
að vinna
við óperur
Morgunblaðið/RAX
ANNE Manson á hljómsveitarpallinum í Háskólabíói. Hún hefur
starfað víðs vegar um Evrópu og í Bandaríkjunum og verið
aðstoðarmaður Claudios Abbados. I forföllum hans stjórnaði
hún m.a. Vínarfílharmóníunni, sem er eingöngu skipuð körlum.
Opin vika
í Keflavík
ÞESSA dagna stendur „opna vikan“
yfir í Tónlistarskólanum í Keflavík.
Þá fara nemendur og kennarar á
stjá og leika fyrir bæjarbúa. Ýmsar
stofnanir eins og sjúkrahús, elli-
heimili og þroskahjálp eru heimsótt-
ar auk þess sem leikskólabörnum
er boðið í heimsókn í tónlistarskól-
ann og vinnustaðir heimsóttir. Til-
gangurinn með „opnu vikunni" er
að færa tónlistina út til fólksins og
er þetta sjötta árið sem skólinn
stendur fyrir slíkri viku. Opna vikan
nær hámarki laugardaginn 25.
febrúar nk. en þá halda tónlistar-
skólamir á Suðumesjum uppá „dag
tónlistarskólanna" með sameigin-
legum tónleikum í íþróttahúsinu í
Njarðvík, „Ljónagryfjunni". Skól-
amir á Suðurnesjum em fimm; í
Keflavík, Njarðvík, Grindavík,
Garði og Sandgerði. A tónleikunum
mun hver skóli vera með sérstakt
atriði auk þess sem sameiginlegar
hljómsveitir og kórar allra skólanna
munu leika og syngja saman. Að-
gangur að tónleikum, sem hefjast
kl. 15 er ókeypis.
—...♦ ♦ ♦----
Tvær textíl-
sýningar
TVEIR textílhönnuðir Leo Santos
og Margrét Adolfsdóttir opna sýn-
ingar samtímis í Gallerí Sólon ís-
landus og í Gallerí Sævars Karls á
morgun, föstudaginn 24. febrúar,
kl. 16.
í kynningu segir: „Leo Santos
er breskur og starfar í Bretlandi,
hann sýnir textílhönnun 16 verk
unnin á pappír í blandaða tækni.
Sýning hans er opin daglega til 6.
mars.
Margrét starfar einnig í Bret-
landi, hún sýnir þrjár pullur, áklæð-
ið er handklippt og ullarfyllt. Einn-
ig em á sýningunni 14 mynstur
unnin á pappír í blandaða tækni.
Sýning hennar er opin á verslunar-
tíma til 15. mars.
FYRSTA konan til að stjórna
Sinfóníuhljómsveit íslands er
ung að árum en hefur engu að
síður vakið athygli fyrir störf
sín auk þess sem henni hefur
gefist færi á því að starfa með
einum þekktasta hljómsveitar-
sljóra heims, Claudio Abbado.
Anne Manson heitir hún og
sfjórnar í kvöld flutningi á fjór-
um verkum eftir íslensk tón-
skáld; Langnætti eftir Jón Nor-
dal, Coniunctio eftir Snorra
Sigfús Birgisson, Ljáðu mér
vængi eftir Atla Heimi Sveins-
son og forleikinn Geysi eftirJón-
Leifs.
Anne segist ekki vita hvort
hún eigi að kalla sig Bandaríkja-
mann eða Breta. Hún er fædd
og uppalin í Bandaríkjunum,
dóttir Breta og Bandaríkja-
manns, en hefur búið í Bretlandi
í áratug. Þar hefur hún aðetur
og er m.a. tónlistarstjóri Meck-
lenburgh-óperunnar í London.
Vegna starfans er hún hins veg-
ar á eilífum þeytingi hálft árið.
Mest hefur hún starfað í Evr-
ópu, t.d. Austurríki, Þýskalandi
og Frakklandi.
Úr læknisfræði
í tónlist
Anne lærði á víólu og söng
mikið í kórum á unglingsárum.
Hún hóf nám í læknisfræði en
snerist hugur og hélt til Bret-
lands í tónlistamám. Ekki var
langt liðið á námið er hljóm-
sveitarstjórnin átti hug liennar
allan. Eftir að námi lauk hefur
hún haft nóg að gera.
Hún komst að sem aðstoðar-
maður hjá Claudio Abbado fyrir
tilviljun, hafði fengið að fylgjast
með æfingum hjá honum og
hljóp í skarðið þegar aðstoðar-
maður hans komst ekki til
starfa. „Það er frábært tæki-
færi, ég hef lært geysilega mik-
ið á öllum sviðum hljómsveitar-
stjórnunar á því að starfa með
honum,“ segir Anne.
Hún er þekkt fyrir túlkun sína
á nútímatónlist, sem hún hefur
kynnst vel vegna starfanna fyrir
Mecklenburgh-óperuna, sem
sérhæfir sig í nýrri verkum. En
Anne hefur ekki síður stjórnað
flutningi á eldri verkum, segir
nauðsynlegt að leika bæði nýrra
og eldri tónlist.
Sjálf hefur hún mest dálæti á
þeim verkum sem samin voru á
fyrrihluta þessarar aldar, t.d.
eftir Bartok, Janacek, Debussy
og Ravel. Ánægjulegustu verk-
efnin séu þó óperurnar, vegna
þess hversu langur tími gefist
til æfinga.
Anne gafst lítill tími til að
kynna sér íslensku verkin, sem
hún segir hafa tón, sem hljóti
að bera keim af landinu og þjóð-
inni. Hún eigi hins vegar afar
erfitt með að lýsa tónlistinni.
Breytt
viðhorf
Auk Anne hafa þijár aðrar
konur unnið sér fastan sess sem
hljómsveitarstjórar í Bretlandi
og hún segist vita um fáeinar í
viðbót á meginlandinu. Astæðan
fyrir því að æ fleiri konur hafi
snúið sér að hljómsveitarstjórn,
sé líklega sú að þær væntingar
sem menn hafi til starfsins hafi
breyst. Áður hafi menn talið
hljómsveitarstjórann eiga að
vera kraftmikinn, með mikið
vald, jafnvel einræðistilhneig-
ingar, einkenni sem tengist körl-
um mun frekar en konum. Þetta
þyki hins vegar ekki lengur
æskilegt, hlj ómsveitarstjórar
leggi nú mun meiri áherslu á
samstarf við hljómsveitina.
Anne segir að sér hafi yfir-
leitt verið vel tekið. „Annars er
erfitt að segja til um það hver
ástæðan er fyrir viðbrögðum
fólks. Fái égt.d. ekki eitthvert
verkefni veit ég ekki hvort
ástæðan er sú að ég sé kona,
mönnum lítist ekki á hvernig ég
starfa, falli ekki við mig eða
vijji einfaldlega einhvern annan.
Stjórnaði
Vínarfílharmóníunni
Hápunkturinn á mínum ferli
var líklega þegar ég stjórnaði
Vínarfílharmóníunni en hljóð-
færaleikararnir eru þar allir
karlkyns. Abbado átti að stjórna
hljómsveitinni en veiktist og því
var ég kölluð til. Þetta var ein-
stakt tækifæri enda um frábæra
hljóðfæraleikara að ræða. Mér
datt ekki einu sinni í hug að
vera bangin við að taka verkefn-
ið að mér, það var svo spenn-
andi. Ég sagði við sjálfa mig að
ef ég nyti þessa ekki, væri til-
gangslaust fyrir mig að verá að
fást við hjjómsveitarstjórn."
Fyrir þá sem ekki geta beðið eftir fmmsýninguririi á
RENAULT LAGUNA um helgina:
og svo getur þú auðvitað séð hann með eigin augum
í sýningarsal okkar að Ármúla 13 um helgina.
RENAULT
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
RENNUR ÚT!
ÁRMÚLA 13 • SÍMI 553 1236
•27
•28
•29
•30
‘31