Morgunblaðið - 23.02.1995, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 21
_______________ LISTIR
Myrkir músíkdagar
Morgunblaðið/Jónas Þór Jóhannsson
TATU átónleikum í Valaskjálf.
Tatu Kantomaa á
tónleikum í Valaskjálf
TÓNUST
Gerdarsaíni
TVÍLEIKUR
Laufey Sigurðardóttir, fiðlu, Elísabet
Waage, hörpu. Lex van Delden tón-
skáld, Mist Þorkelsdóttir tónsk., Leif-
ur Þórarinsson tónsk., Jurriaan
Andriessen tónsk.
Þriðjudagur 21. febrúar.
MYRKIR músíkdagar halda
áfram og Tónskáldafélagið telst
ennþá aðeins fimmtíu ára.
í annars myndarlegri efnisskrá
Tónskáldafélagsins saknar maður
þess nokkuð að ekki skuli rakinn
að einhveiju marki ferill Tón-
skáldafélagsins á þessu fímmtíu
ára tímabili. Kannski er efnið þó
of viðamikið, því sli'k býsn hefur
verið skrifað af tónlist á þessu
tímabili og svo margir komið við
sögu, að til þarf líklega heila tón-
listarsögu til að gagni komi, og
vonandi er sú saga í smíðum, þótt
reyndar verði sagan aldrei sögð,
því hún er jú alltaf að skapast.
Góð hugmynd, og sjálfsögð, er
að flytja verk erlendra höfunda á
þessum tónleikum ásamt íslensku
verkunum, m.a. til að minna okkur
á að við erum ekki ein í heiminum
og kynna strauma annars staðar
frá, séu þeir ekki þegar komnir inn
í okkar heimaframleiðslu. Ekki sá
ég þó sérstaka ástæðu til að kynna
Duetto eftir Hollending að nafni
Lex van Delden. Að vísu er verkið
ljúft, nýrómantísk og tematískt,
með tveim hægum þáttum og ein-
um hröðum, þar sem í fyrsta þætti
að harpan var undirleikur fíðlunn-
ar. Þótt báðar spiluðu vel, fannst
mér einhvern veginn sem verkið
næði ekki fyllilega tökum á flytj-
endunum og þó kannske síður á
þeim ágæta fíðlara, sem Laufey er.
Mist Þorkelsdóttir átti aftur á
móti fallegt verk í „Haustlaufi"
sínu, sem skrifað er frá áhrifum
haustsins á NA-strönd Bandaríkj-
anna. Kannske minnti það mig
ekki fyrst og fremst á haustlauf,
en á fegurð haustsins gjarnan og
um leið á íslenskan dans, í miðju
verksins. En hvað um það, þetta
er fallega skrifað verk og fullt af
póesíu og náði sannarlega hjörtum
flytjendanna. Um frumflutning
verksins var hér að ræða. Leifur
Þórarinsson lætur of sjaldan í sér
heyra. Eftir hann var frumflutt
Serena, sem hann skrifaði fyrir
þær Laufeyju og Elísabet og tilefn-
ið í kvöld. Byijaði með löngum
flasulett-tónum á fíðluna og stök-
um plokk-tónum á strengi hörp-
unnar. í sinni hægferð um tónsvið-
ið var yfírborð verksins óráðið,
djúp íhugun eða trúarleit, kannske
líka eitthvað allt annað, en verkið
greip mann og áreiðanlega einnig
flytjendurna.
Tónleikunum lauk með verki
eftir Jurriaan nokkurn Andriessen,
sem ég veit engin deili á, en bend-
ir til að sé hollenskur, eins og
höfundur fyrsta verksins. Eftir
þennan J. A. voru fluttir tveir þætt-
ir, byggðir á sögunum um Don
Kíkóta, sá fyrri „Söngur til hinnar
ljúfu Dulcineu“ og sá síðari um
„Baráttu Don Kíkóta við vindmyll-
urnar“. J.A. þessi mun hafa lært
um tíma hjá 0. Messiaen, og þótti
tónsmíðin bæri þess engin greini-
leg merki, var hún lífleg, dálítið
úr hinni og þessari áttinni, en
hvers vegna ekki?
Ragnar Björnsson
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
TATU Kantomaa, fínnskur harm-
oníkuleikari, hélt tónleika í Vala-
skjálf, laugardaginn 11. febrúar sl.
Harmóníkufélag Héraðsbúa
stendur fyrir komu hans til landsins
og verður hann hér á landi fram í
apríl. Hann mun veita harmóníku-
leikurum tilsögn og kennslu á með-
an hann dvelur hér. Að sögn Hreins
Halldórssonar formanns Harmón-
íkufélags Héraðsbúa tókust tónleik-
arnir vel. Þeir stóðu yfír í einn og
hálfan tíma og flutti hann 21 lag.
Tónleikar verða víðar
Tónleikamir sem Tatu hélt í
Valaskjálf eru þeir fyrstu sem hann
hélt í þessari ferð sinni. Fleiri eru
á döfínni og verður hann í Borgar-
firði eystri um næstu helgi og fyrir-
hugað er að heimsækja Vopnafjörð,
Þórshöfn og fleiri staði í Þingeyjar-
sýslum. Tatu verður síðan með tón-
leika í Reykjavík um miðjan mars
og á Skíðaviku ísfírðinga um pásk-
ana.
félögum í Arkítektafélagi
islands, FAIagi húsgagna-
og innanhússarkitekta og
Fólagl iðnhönnuða.
Lystadún-Snæland efnir til
samkeppnl um Hönnun
húsgagna með svampi.
Keppnln er haldin I samvinnu
vlö Hönnunarstöðina og ætluð
Tillögum ber að skila tll
Hönnunarstöðvarlnnar,
Hallveigarstlg 1, fyrir kl.
%. 17:00 þann 21. april 1995
Ir
. *
» a
g t rtð Skútuvogl 11.
a flpm" !- — —Verðlaunafé eöalls 350.000 kr.
T , — 1. verðlaun \ 200^00 kr.
2. verðlaun ^IPO.OÖO Rr.
3. verðlaun 50/000 krT ~
Hægt er_s Lék inn * um í
-Jiromur flokkiujrr
1. Svefnhúsgagn
Meá svefnliúsgagni er meðal annars
átt við svefnsófa, svefnstól, legukekk
osfrv. Markkópur Jressara liúsgagna
geta verið köm, táningar og ungt fólk.
2. Nytjahúsgagn
Með nytjakúsgagni er átt við sófa,
stól, raðkúsgagn osfrv.
3. Frjáls flokkur
Tllgangur samkeppnlnnar er:
l. Að veita könnuðum lækifæri til
að nýta svamp sem kráefni í
atkyglisverða kötinun.
2. Framlag LystaJúns-Snælands til
að vekja atkygli á íslenskri könnun.
Skilyrðí er að við könnunina sé
notaáur svampur að stórum kluta.
Lystadún—Snæland mun annast
framJeiðslu fruntgerðar af
verðlaunatillögunum í samráði við
könnuði. ' >*v ’
l dómnefnd verða jtrír; einn frá
Félagi kúsgagna- og innankúss-
arkitekta, einn frá Árkitektafélagi
Islands, tilnefndur af Lystadúni—
Snæland og loks einn frá
fyrirtækinu sjálfu.
HÖNNUNARSTÖÐ
Des-IÚN CENTgn
Skútuvogi Í3 • Sími 568-5588