Morgunblaðið - 23.02.1995, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 39
FRÉTTIR
Umferðarátak lögreglunnar á Suðvesturlandi
• •
Okumenn
hvattir til
samstarfs
SAMEIGINLEGT umferðará-
tak lögreglunnar á Suðvestur-
landi hófst á þriðjudag og er
athyglinni sérstaklega beint að
ástandi ökutækja og öku-
manna.
Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar, aðstoðaryfirlög-
regluþjóns í Reykjavík, tóku
nær allir lögreglumenn þátt í
átakinu í fyrradag, einnig þeir
sem alla jaJfna vinna innistörf.
Á þriðja þúsund
miðar afhentir
Á þriðja þúsund miðar voru
afhentir ökumönnum á svæð-
inu þar sem þeir eru hvattir
til samstarfs um að fækka
umferðarslysum. Einnig voru Ómar Smári sagði að mest ekki verið með beltin spennt.
gerðar athugasemdir við þau hefði borið á vanbúnaði ljósa Annars hefðu ökumenn tekið
ökutæki þar sem þurfa þótti. og of margir ökumenn hefðu viðleitni lögreglunnar vel.
MorgunhJaðið/Júlíus
BJÖRN Helgason rannsóknarlögreglumaður (t.v.) og Ómar
Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn ræða við öku-
mann á Hringbrautinni í Reykjavík á þriðjudagsmorgun.
Hátíðar-
fundur Ætt-
fræðifélags
ÆTTFRÆÐIFÉLAGIÐ er 50 ára
um þessar mundir. Af því tilefni
heldur félagið hátíðarfund í Gerðu-
bergi laugardaginn 25. febrúar.
Þar verður einnig opnuð sýningin
Ættfræðinnar ýmsu hliðar. Sýnt er
hvernig unnt er að nálgast ættfræð-
ina frá ýmsum hliðum. Sigurður
Líndal, prófessor, flytur hátíðarræðu
fundarins og sýnishorn af æsku
landsins, Léttsveit Tónmenntaskól-
ans í Reykjavík undir stjórn Snæ-
bjarnar Jónssonar spilar fyrir gest-
ina.
„Ættfræðiáhugi hefur vaxið gíf-
urlega á seinustu árum eins og t.d.
hin mörgu niðjamót sanna en þar
hittist náskylt fólk oft í fyrsta sinn
og stofnar til kynna. Tölvuforrit
hafa líka aukið til muna áhuga yngri
kynslóðarinnar á ættfræði. Allir hafa
þörf fyrir að þekkja til uppruna síns
og ættar og ábyrgðin hvílir á hvetj-
um og einum að halda við og miðla
ættfræðinni til komandi kynslóða
svo þessi mikilvæga keðja fróðleiks
og tengsla slitni aldrei,“ segir í frétt
frá Ættfræðifélaginu.
Lauk doktorsprófi
í læknisfræði
EINAR S. Bjömsson
læknir lauk fyrir
skömmu doktorsprófi
í læknisfræði við há-
skólann í Gautaborg í
Svíþjóð.
Doktorsritgerðin
ber heitið „Interdiges-
tive gastrointestinal
motility in humans.
Studies wiht special
reference to small int-
estinal peristalsis" og
fjallar um hreyfingar
í maga og skeifugörn
hjá heilbrigðu fólki við
ýmsar kringumstæð-
ur. Þar er lýst m.a.
óþekktu hreyfingar-
munstri í skeifugörn og áhrifum
hækkaðs blóðsykurs og insúlíns á
hreyfingar í maga og smágirni.
Leiðbeinandi var Hasse Abrahams-
son, yfirlæknir á Sahlgrenska
sjúkrahúsinu í Gautaborg, og and-
mælandi Lionel Bueno, prófessor
við háskólann í Toulouse í Frakk-
landi.
Einar S. Björnsson
•fæddist á Siglufirði
23. apríl 1958, sonur
hjónanna Þorbjargar
Einarsdóttur og
Bjöms Stefánssonar
fv. kaupfélagsstjóra.
Hann lauk stúdents-
prófi árið 1978 frá
Menntaskólanum á
Akureyri. Einar
stundaði nám í heim-
speki og sálarfræði
við Háskóla íslands í
3 ár áður en hann hóf
nám í læknisfræði,
sem hann lauk árið
1989. Að loknu emb-
ættisprófi starfaði
hann á kandidatsári í Mora í Sví-
þjóð en hefur búið í Gautaborg frá
1990 og starfað á Sahlgrenska
sjúkrahúsinu. Einar hefur lokið
sérfræðiprófi í lyflækningum en
er nú í framhaldsnámi í meltingar-
sjúkdómum. Kona Einars er Þor-
gerður Jónsdóttir framhaldsskóla-
kennari og eiga þau fjögur börn.
Dr. Einar S.
Bjömsson
Hönnunar-
dagar 1995
hefjast í dag
HÖNNUNARDAGAR 1995 hefj-
ast í dag, fimmtudaginn 23. febr-
úar, og lýkur 5. mars. Markmið
Hönnunardaga er tvíþætt: Að
vekja íslenska framleiðendur til
aukinnar vitundar um vægi hönn-
unar í markaðssetningu iðnaðar-
vara og kynna íslenska hönnun
fyrir almenningi.
Dagskráin hefst, eins og fyrr
segir, í dag með opnu húsi hús-
gagna- og innréttingaverslana
sem selja íslenska hönnun frá kl.
14-16. Þeir sem taka þátt í opnu
húsi eru: Axis-húsgögn hf., Á.
Guðmundsson hf., Penninn hús-
gögn hf., Egill Árnason hf., Eld-
hús og bað hf. og Epal hf. Um
kvöldið kl. 18.30 verður teiti í
sýningarsal Hafnarhússins. Þar
verða veitt verðlaun fyrir bestu
hönnunina í þessum geira og jafn-
framt verða Hönnunardagar
1995 settir. Frá föstudeginum
verða opnar fimm hönnunarsýn-
ingar frá kl. 12-19.
I Hafnarhúsi verður sýning
húsgagna hönnuða og framleið-
enda. Þar verða 8 framleiðendur
með sýnishorn af framleiðslu á
íslenskt hönnuðum húsbúnaði.
Ennfremur verða 12 fremstu
hönnuðir landsins með nýjustu
verk sín.
í Geysishúsi verða leirlista-
menn, textílhönnuðir og gullsmið-
ir með sameiginlega sýningu.
Alls munu um 30 manns eiga
verk á sýningunni.
í gamla Morgunblaðshúsinu
verður Félag íslenskra iðnrek-
enda með sýningu. Þessi yngsta
grein hönnunar mun gera grein
fyrir hlutverki sínu og verksviði.
í Iðnó verða landslagsarkitekt-
ar, arkitektar og svonefndir fata-
iðnir með sameiginlega sýningu.
í Kringlunni verða grafískir
hönnuðir með plakatsýningu.
Hönnuðirnir sýna á gríðarstórum
plakötum eða borðum.
Auk sýninga verða haldnir
fyrirlestrar í Norræna húsinu er
tengjast þessum sviðum og hafa
verið fengnir fjórir valinkunnir
norrænir fyrirlesarar sem munu
halda erindi í Norræna húsinu
meðan á dagskránni stendur en
þeir eru Charlie Norrman, Petter
T. Moshus, Tapio Y. Viikari og
Claus Bjarrum.
Fundur um
ástandið í
Rússlandi
UTANRÍKISNEFND Sambands
ungra sjálfstæðismanna heldur
fimmtudaginn 23. febrúar kl.
20.30 opinn fund í neðri deild
Valhallar á Háaleitisbraut 1 um
stjórnmálaástandið í Rússlandi.
Frummælandi verður Amór
Hannibalsson, prófessor við Há-
skóla íslands. Hann mun m.a.
ræða það hvort óstöðugleiki í
Rússlandi ógni stöðugleika í
heiminum og hver framtíð Jelts-
íns sé í rússneskum stjómmálum.
Allir velkomnir meðan húsrými
leyfir.
•VÍttiijéif
Dregið í BKI bílaleiknum
DREGIÐ var í BKI bílaleiknum
22. desember sl. Aðalvinningur-
inn Fiat Punto árg. 95 kom í
hlut Sigurðar Sigurðssonar
sem búsettur er á Selfossi.
Myndin er tekin þegar Sigurð-
ur veitti bílnum viðtöku. Með
honum á myndinni eru eigin-
kona hans og dóttir ásamt Pál-
ínu Magnúsdóttur frá íslensk-
ameríska hf. Til að taka þátt í
þessum leik þurfti að senda
tvær strikamerkingar ásamst
þátttökuseðli til Útvarpsstöðv-
arinnar Bylgjunnar sem sá um
framkvæmd leiksins.
4 milljónir gesta á 13 árum
STÆRSTI salur Bíóhallarinnar, Salur 1, gjörbreyttur eftir endurnýjunina með nýjum sætum eins
og raunar allir fimm salir biósins.í kjallara er svo Sagabíó með þremur söium.
Morgunblaðinu hefur borizt frétta-
tilkynning frá Bíóhöllinni, sem er
svohljóðandi:
„Á þESSU ári eru liðin tuttugu
ár frá því að bíókóngurinn Árni
Samúelsson opnaði sitt fyrsta
kvikmyndahús, Nýja Bíó, í Kefla-
vík. Hans þekktasta kvikmynda-
hús er þó Bíóhöllin sem opnaði 2.
mars 1982. Á þeim þrettán árum
sem húsið hefur verið opið hafa
komið þangað fjórar milljónir kvik-
myndahússgesta og ekkert lát er
á aðsókninni.
Að sögn Árna Samúelssonar,
eiganda Sambíóanna, töldu flestir
að þetta ævintýri væri dæmt til
að mistakast. „Það héldu allir að
ég væri bandvitlaus að fara út í
þessar framkvæmdir, vegna þess
að videovæðingin var í algleym-
ingi.
Fólk var alveg visst um að kvik-
myndir myndu leggjast af, enda
voru myndirnar alltaf orðnar svo
gamlar þegar þær bárust til ís-
lands,“ segir Árni.
„Þessu snérum við við og hófum
að Evrópufrumsýna þær myndir
sem við höfðum rétt á fýrir ís-
land. Því var svo vel tekið að Bíó-
höllin er búin að vera aðsóknar-
mesta kvikmyndahús á íslandi frá
opnun þess fyrir réttum 13 árum.“
Að sögn Árna var aðdragandinn
að opnun Bíóhallarinnar sá að
kvikmyndahús hans í Keflavík átti
orðið mikinn lager kvikmynda sem
þurfti að sýna í Reykjavík og því
var ákveðið að fara út í bygging-
una. í Dagblaðinu & Vísi 19. febr-
úar 1982 má sjá viðtal við Árna
undir fyrirsögninni „Hinir bíóeig-
endurnir ráku mig út í þetta.“
Þar kemur einmitt fram að Árni
flutti inn mikinn fjölda mynda sem
ekki fengu sýningu í reykvískum
kvikmyndahúsum og því teldi
hann besta kostinn að byggja sitt
eigið kvikmyndahús fyrir Reykvík-
inga.
Mikill slagur stóð um lóð húss-
ins í Mjóddinni, en svo fór að Árni
fékk henni úthlutað árið 1981. Frá
þeim tíma hefur margt breyst í
útliti og rekstri kvikmyndahússins,
en áherslan hefur alltaf verið lögð
á að bjóða upp á allt það besta
sem völ er á fyrir kvikmyndhús.
Því til staðfestingar hafa Bíóhall-
armenn nú skipt um alla stóla í
kvikmyndahúsinu og eru nýju stól-
arnar með því besta sem völ er á
í heiminum.
Einnig hafa allir salir hússins
verið endurnýjaðir og því má segja
að Bíóhöllin sé nú glænýtt kvik-
myndahús þrettán árum eftir opn-
un þess.“