Morgunblaðið - 05.03.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
MANNLÍFSSTRAUMAR
VERALDARVAFSTUR/5/ot, vírusar og bóluefni?
Rafsviðssköpun
SÚ DEILA hefur staðið yfir nokkurn
tíma í vísindaheiminum hvort að lif-
andi verur séu eingöngu efnafræði-
vélar, en sú kenning, sem byggð er
á fræðum Newtons, getur ekki skýrt
líf sem fyrirbæri, eða fyrst og fremst
rafsegulsviðseiningar, sem raða efn-
inu saman eins og við sjáum það og
getur um leið fært okkur nær sann-
leikanum um fyrirbærið líf.
VIÐ Max Planck-rannsóknar-
stofnunina í lífeðlisfræði í Berl-
ín er nú verið að gera merkilegar
tilraunir í því skyni að virkja upp-
götvun vísindamannsins Dr. Bars-
amian á sviði raf-
sviðs lifandi vera.
Samhliða tilraunir
fara fram í Ástral-
íu. Dr. Barsamian
hefur sett saman
tæki sem getur
mælt orkusvið lif-
andi fruma og t.d.
sagt fyrir um
væntanlega sjúkdóma, hvort heldur
sem er í plöntum, dýrum eða fólki,
vegna frávika sem koma í ljós löngu
á undan í rafsegulsviði frumanna.
Tækið nefnir hann DDA eða Di-
electric Diagnostic Analyser (ekki-
leiðandi sjúkdómsgreiningarmælir).
Ekki-leiðari þýðir að frumur leiða
ekki rafstraum en er samt stjórnað
af rafsegulsviðum (EMF). Hugmynd-
in er að gera tækið hagkvæmt fyrir
notkun í sjúkrahúsum fýrst í stað.
Þannig geta skynjarar fylgst með
hverjum sjúklingi og sent upplýs-
ingamar til miðstöðvar, þar sem unnt
er að fylgjast með mörgum sjúkling-
um í einu og fá stöðugar upplýsingar
um sjúkdómsgreiningu, ástand og
h'ugsanlega fleiri ný sjúkdómsein-
kenni á nokkurra mínútna fresti.
Meginuppistaða tækisins er tölvu-
forrit og tæki sem geta fylgst með
rafsegulbreytingum í ytri húð
(cyptoplasm) lifandi fruma. Raf-
skynjurum er komið fyrir á plöntu,
dýri eða manni. Þeir þurfa ekki að
vera tengdir með rafsnúrum við tölv-
una, þannig að t.d. er unnt að fylgj-
ast með breytingum á kornakri, eða
annars staðar sem sjúkdómar geta
heijað á lifandi verur og t.d. eyði-
lagt uppskeru.
FLUGLEIDIR
Aðalfundur Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 16. mars
1995 íEfriþingsölum Scandic Hótels Loftleiða og hefst kl 14-00.
Dagskrd:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10 gr. samþykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins til samræmis við lög nr. 2/1995 um
hlutafélög.
3. Onnur mál, löglega upp borin.
Tilliigur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða aíhent á aðalskrifstofu
félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild á 2. hæd frá og meb 9■■ mars
kl. 14:00. Dagana 10. og 13. til 15. mars verða gögn afgreidd frá kl 09:00 til
17:00 og fundardag til kl. 12:00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 12:00 á
fundardegi.
Stjórn Flugleiða hf.
Eftir Einar
Þorstein
Á bak við þetta tæki er fyrir
hendi vísindakenning, sem Dr.
Barsamian tókst að færa sönnur á
með snjöllum hætti. Hún gengur
út á það að svið gerð úr rafsegul-
krafti af mjög lágri tíðni stjórni
vexti og þroska allra lifandi vera.
Þau eru eins konar umlykjandi leið-
arvísir um hveija einingu lifandi
efnis og án þessa sviðs er efni og
þar með öll efnafræði ekki til! Með
öðrum orðum: Allt efni hefur lág-
tíðni-rafsegulhjúp sem „safnar og
heldur efninu saman“.
Kenningarnar um sviðin ósýni-
legu, voru fyrst settar fram af Jan
Christiaan Smuts, sem eitt sinn var
forsætisráðherra Suður-Afríku
(1870-1950). En þær byggjast þó
á aldagömlum kenningum allt aftur
til Grikklands og Egyptalands hins
forna. Breski lífefnafræðingurinn
Rupert Sheldrake hefur á síðustu
árum tekið þessa kenningu upp á
ný og bætt við hana. En það að
hver lifandi fruma hefur um sig raf-
segulhjúp uppgötvaði rússneski vís-
indamaðurinn Deveyatkov fyrir um
40 árum. Meira um þetta efni var
rannsakað af Harold Saxon Burr,
hinum virðulega taugalíffræðingi frá
háskólanum í Yale um miðja öldina.
Hann fann svokölluð L-svið eða líf-
svið umhverfis ýmis dýr og plöntur.
Þannig gat hann mælt formin á
ósýnilegu sviði í kringum sala-
möndruegg og fræ með rót, sem
höfðu lögun fullvaxinna einstaklinga
og kollvarpaði þar með gömlum
kenningum um lífvöxt tegundarein-
kenna.
Sviðið skilgreinir Dr. Barsamian
þannig: Það er lágorkusvið, lifandi,
tekur á móti og sendir út, er í sam-
bandi við öll orkusvið sem eru til í
alheiminum. Það er ábyrgt fyrir til-
vist efnisins og vexti og þróun í lif-
andi lífefni. Það eru truflanir á svið-
inu sem orsaka sjúkdóma. Sviðs-
áhrif frá utanaðkomandi sjúkdóms-
valdi getur orsakað sjúkdóm i lifandi
verum, ef svið hennar sjálfrar er
truflað annars ekki. „Við drögum
það til okkar sem samsvarar okkar
kerfi.“
Frumur eru því mjög viðkvæmar
fyrir mjög margvíslegum rafsegul-
sviðum annað hvort gerðum af
manna höndum, eins og örbylgjum,
eða rafsegulsviði í kringum há-
spennulínur, spennustöðvar, radar,
sjónvarp o.s.frv. eða náttúrulegum
t.d. frá nálægum truflunum í lífræn-
um verum, vegna fæðuskorts, lífk-
eðjutruflana (umhverfismengunar),
útfjólublárra geisla, eiturlyfja, stöð-
ugrar andlegrar spennu, bælingar
sköpunarþarfarinnar, jarðárutruflana
og litningaþátta. Slík áhrif hafa í
för með sér lífsviðs- (rafsegulsviðs-)
truflanir, frumuskaða, svo og ónæm-
iskerfisbælingu.
Ætli þurfi ekki að skrifa sögu
læknavísindanna upp á nýtt?
____________________ SÚNNUDAGUR 5. MÍÁRZ 1995 B 7
Þetta er mitt líf
Námskeið fyrir konur sem vilja losna frá
því að stjórnast af öðrum, svo sem maka,
börnum, skyldmennum, vinum og starfs-
félögum. Næsta námskeið 9. mars kl. 20,
Síðumúla 33, 2. hæð. Tekið er við pöntunum
á námskeið sem haldin verða síðar svo og í
einkaviðtöl og hópa.
Upplýsingar og skráning hjá Ástu Kristrúnu Ólafsdóttur,
ráðgjafa CCDP, síma 814004 og 17789 á kvöidin.
Starfsmaður í bókun
Greenland Tourism Incomming skipuleggur ferðalög, bæði lengri
ferðir f. hópa og dagsferðir.
Verksvið bókunarstarfsmanns er í megindráttum dagleg stjórnun
á úthlutun hópferða og sér hann m.a. um tengsl milli danskra og
annarra erlendra viðskiptamanna.
Við væntum þess að þú hafir:
* Reynslu af samskiptum við viðskiptamenn.
* Menntun í ferðamennsku eða sambærilega
menntun og þekkingu á bókunarstarfi.
* Góða kunnáttu í ensku og dönsku, bæði munnlega og skriflega.
* Góða samstarfshæfileika.
Umsækjandi þarf að geta aðlagað sig sveigjanlegum vinnutima.
Ráðning og laun eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur:
Framleiðslustjóri Peter Gunnarson Rasmussen.
Greenland Tourísm a/s
Postbox 1552 • DK-3900 Nuuk • Greenland
Phone: +299 22888 • Fax: +299 22877