Morgunblaðið - 05.03.1995, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.03.1995, Qupperneq 10
10 B SUNNUDAGUR 5. MARZ1995 MORGUNBLAÐIÐ Hvað er hlægileg*t við handtöskur? eftir Bergljótu Ingólfsdóttur MARGIR skopteiknarar virðast sjá eitthvað hlæg'ilegt við handtöskur kvenna, um það vitna ótal myndir í blöðum. Á þeim eru oftar en ekki rosknar konur, þéttholda, sem halda töskunni frá sér, dálítið kauðalega, en ekki niður með hliðinni eins og eðlilegast er. Margar slíkar myndir Cospers hafa t.d. birst í Morgunblaðinu. Handtöskur eru konum svo mikilvægar að vart er hægt að komast af án þeirra, þar er geymt það nauðsynlegasta þegar farið er úr húsi. Nefna má húslykla, peningaveski, gleraugu, greiðu, pappírs- þurrkur eða vasaklút, spegil, snyrtivörur o.fl. Það gefur því augaleið að konur geta ekki troðið öllum þessum ósköpum í innanverðan brjóstvasa, til þess liggja líffræðilegar ástæð- ur, sem öllum ættu að vera ljós- ar. Konur gæta yfirleitt tösku sinnar eins og sjáaldurs auga síns, enda allt annað en gaman að verða viðskila við þá hluti sem töskurnar geyma. En ekki nægir að gæta þess að leggja ekki töskuna frá sér á al- mannafæri, í sumum stórborg- um eru ferðamenn beinlínis varaðir við töskuþjófum, sem náð hafa mikilli leikni við að þrífa töskur af konum og hverfa svo í mannhafið. Það þarf þó ekki stórborgir í út- löndum til, dusilmenni hér- lendis þrífa töskur af rosknum konum eins og nýlegt dæmi hér í höfuðborginni frá fyrstu viku janúar sýnir. Á vinnustöðum og heima fyrir geyma konur vísast tösk- ur sínar á vissum stað, þar sem hægt er að grípa til þeirra þegar vill. Olíklegt er þó að margar konur gangi eins langt og Elísabet Bretlandsdrottn- ing, það er haft fyrir satt að hún taki með sér tösku sína þegar hún fer til borðstofu í Buckinghamhöll til að snæða. Það þótti bæði fyndið og frá- sagnarvert. Margaret Thatcher og handtöskur hennar í nóvember 1990 hrökklaðist frú Thatcher frá völdum eftir 12 ára setu sem forsætisráð- herra Bretlands. Það varð vegna þrýstings frá samheij- um hennar á þingi, eins og kunnugt er, og fannst ekki öll- um drengilega að farið. Það fór ekki hjá því að frétt- ir af þeim atburði yrðu fyrir- ferðarmiklar í fjölmiðlum og skopteiknarar víða um lönd komust sannarlega í feitt. Handtösku Thatchers voru gerð góð skil á mörgum mynd- anna, á sumum þeirra var task- an eiginlega í aðalhlutverki en frúin sjálf aukaatriðið. Greini- legt var að taskan var talin nokkurskonar einkennismerki forsætisráðherrans. Hér fylgja með tvær myndir úr breskum helgarblöðum 24.-25. nóv. 1990. Önnur er úr Financial Times og sýnir frú Thatcher fleygja tösku sinni í Thamesána af af Westminster- brúnni. Hin er úr Observer og MYND úr Financial Times. Thatcher hendir töskunni í Thamesá. HUGMYND Sunday Times um skjald- armerki Thatchers. Minni myndin er af hinu eiginlega skjaldarmerki. MYND úr Observer. Thatcher strunsar út úr Dowingstræti nr. 10 á þeirri mynd strunsar frúin út úr embættisbústaðnum, Downingstræti nr. 10, og sveiflar töskunni um leið. a Þess má geta að á þeirri mynd sem Sigmund gerði af fyrrnefndu tilefni var hand- taska frú Thatchers að sjálf- sögðu á sínum stað. Barónessan Frú Thatcher var gerð að barónessu og eins og lög gera ráð fyrir þurfti hún að eiga sitt skjaldarmerki. Vinna við gerð þess tók tvö ár og kom fyrst fyrir almenningssjónir í nóvember sl. Á merkinu eru tveir menn sem halda á skildi á milli sín (sjá mynd). Sjóliðs- foringinn á að minna á Falk- landseyjastríðið, sem háð var í stjórnartíð Thatchers. Hinn maðurinn á að vera sir Isaac Newton og táknar áhuga og menntun frú Thatchers á sviði vísinda. Neðst er svo kjörorð, „motto“: „Cherish Freedom" eða varðveitið frelsið. Mikið var fjallað um skjaldarmerkið í fjölmiðlum og menn ekki á eitt sáttir um ágæti þess. Mörgum fannst stjórnartíð Thatchers ekki gerð nógu góð skil, því margt merkilegt hefði áunnist á þeim tíma. Það vantaði heldur ekki illkvittnar athugasemdir eins og búast mátti við. í sjónvarps- þættinum „Spitting Image“ tóku menn sig til og komu með eigin útgáfu. Það þarf vart að taka það fram að sú útfærsla var allt annað en á vinsamleg- um nótum. Sjálf var Thatcher ánægð með skjaldarmerkið og sagði ekki þörf á að breyta því. Hvað sem óendanlegum vangaveltum um skjaldar- merki frú Thatchers Ieið voru menn yfirleitt sammála um að eitt veigamikið atriði hefði gleymst - handtöskuna vant- aði. Sunday Times Breska blaðið Sunday Times kom með sína útgáfu af skjald- armerkinu 20. nóv. sl. Eins og sést á meðfylgjandi mynd er nefskatturinn svokallaði settur efst, en hann varð Thatcher að falli. Vinstra megin þar fyr- ir neðan er hjálmur eins og notaður er við námugröft, hann minnir á mjög langvinnt verkfall námumanna í stjórn- artíð Thatchers. Hægra megin er svo kassinn sem samheijar hennar stungu atkvæðum sín- um i þegar þeir boluðu henni burt úr forsæti. Næst er nafn á auglýsingastofu þeirra Sa- atchi-bræðra, Charles og Maurice. Þeir munu hafa verið Thatcher til aðstoðar við kynn- ingu og breytingar á ímynd fyrr á ferli hennar. Neðst eru hermenn í Falklandseyjastrið- inu. Loks er svo kjörorð á lat- ínu „Dominatrix Immobilis“ sem gæti verið þýtt sem: drottnarinn óhagganlegi. Til hægri er svo Thatcher í brynju, sjálfsagt vel við hæfi, því oft var hún nefnd járnfrú- in. Og síðast en ekki síst er þar kominn sá hlutur sem mönnum fannst sárlega vanta - hand taskan góða er á sínum stað !

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.