Morgunblaðið - 05.03.1995, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MARZ 1995 B 21
haft meiri þýðingu fyrir skógrækt
á íslandi en flesta grunar. Anders-
en-Rysst sagði gjarna að landnáms-
mennirnir hefðu gleymt að taka með
sér norska furu- og greniskóginn,
þegar þeir fluttu búferlum til lands-
ins, og fyrir þetta yrðu Norðmenn
að bæta. Hóf hann að leggja drög
að þjóðargjöf Norðmanna, sem var-
ið skyldi til skógræktarmála á ís-
landi. Andersen-Rysst lést áður en
þetta hafði tekist, en vinir hans
báru málið fram til sigurs. Árið
1960 færði Ólafur V. Noregskon-
ungur íslendingum þessa gjöf, 1
milljón norskra króna. Fyrir %
hluta þjóðargjafarinnar var Rann-
sóknastöð Skógræktar ríkisins á
Mógilsá byggð, en ‘A hluti var sett-
ur í sjóð, sem styrkir skiptiferðir
Norðmanna og íslendinga.
Verkin tala
Hér hefur verið stiklað á stóru
og að mestu um fyrri hluta starfs-
ævi Hákonar Bjarnasonar. Nú voru
verkin farin að tala sínu máli. Skiln-
ingur á skógrækt og gróðurvernd
fór vaxandi hjá miklum hluta þjóð-
arinnar og hagur skógræktarinnar
batnaði smám saman á flestum svið-
um. Þó var ýmislegt, sem olli
áhyggjum. Vegna óhóflegra niður-
greiðslna og útflutningsbóta jókst
sauðfjáreign landsmanna stórkost-
lega á sjöunda og áttunda áratugn-
um, og mun hún einmitt hafa náð
hámarki um þær mundir er Hákon
lét af störfum fyrir aldurs sakir
árið 1977. Af þessu hlutust víða
mikil landþrengsli og örtröð í hög-
um, sem leitt gátu til landspjalla.
Þetta olli vonbrigðum og var í sjálfu
sér mikið áhyggjuefni, og fyrir
bragðið lá iand til skógræktar víð-
ast hvar ekki á lausu. Þetta átti
eftir að breytast mikið á níunda
áratugnum, þegar segja má að
gamla styrkjakerfið hafi hrunið og
nýjar búgreinar brugðist. Þá var
loks farið að horfa til skógræktar
sem vænlegrar stoðgreinar landbún •
aðarins í framtíðinni. Við það varð
eftirleikurinn auðveldari.
Það mun hafa verið snemma sum-
arið 1938 að ég sá Hákon Bjarna-
son fyrst. Það var austur á Laugar-
vatni og ég á níunda ári. Hann var
þar á bíl Skógræktar ríkisins, sem
knúinn var með viðarkolagasi. Er-
indi hans var að gróðursetja furu-
glöntur fyrir ofan héraðsskólann.
Eg var að sniglast þarna kringum
gróðursetningarfólkið. Mér er þetta
mjög minnisstætt og fannst mér ég
aldrei hafa séð fríðari og vasklegri
mann, og svo var hann svo kvikur
í hreyfingum og hispurslaus í tali
við hvem sem var. Síðar áttum við
eftir að verða samferða um alllangt
skeið og ekki breyttist þetta álit
mitt við það. Auðvitað færðist aldur-
inn yfir hann eins gengur og hann
varð ekki alveg jafn léttur í spori,
en hugurinn var alltaf hinn sami,
hann eltist ekki, var fijór og síung-
ur.
Hákon var ágætlega ritfær. Stíll
hans var látlaus, skýr og rökfastur
og laus við alla skrúðmælgi. Eftir
hann liggur fjöldi ritgerða um marg-
vísleg efni, skýrslur og blaðagrein-
ar, fræðslubækur og bæklingar.
Hann var ágætur fyrirlesari og mjög
vinsæll útvarpsmaður, talaði skýrt
og skorinort og fór ekki dult með
skoðanir sínar.
Hákon Bjarnason var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Guðrún Magn-
úsdóttir en þau slitu samvistir. Síð-
ari kona Hákonar var Guðrún Jóns-
dóttir frá Akureyri. Þau bjugga alla
tíð á Snorrabraut 65 í Reykjavík
við mikla rausn, og býr Guðrún þar
raunar enn. Hús þeirra stóð ávallt
opið vinum þeirra og kunningjum.
Þau hjónin höfðu yndi af því að
umgangast fólk og gestrisni þeirra
var rómuð. Þessa nutum við starfs-
menn Skógræktar ríkisins í ríkum
mæli og stöndum æ síðan í þakkar-
skuld við þau hjón.
Hákon Bjarnason var lengst af
ævinnar heilsuhraustur, en allra síð-
ustu árin átti hann við vanheilsu
að stríða. Hann lést hinn 16. apríl
1989.
4-
Höfundur er skógfræðingur og
skógnrvörður á Vesturlnndi og
Vestfjörðum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
FELAGAR í Eir vinna við páskasælgætishringi,
sem eru seldir til styrktar starfseminni.
Lionsklúbburinn Eir
styður fíkniefnavarnir
PAUL Newman er aðalleikari
kvikmyndarinnar „Nobody’s
Fool“ og hefur fengið tilnefn-
ingu til Óskarsverðlauna fyrir
leik sinn í þeirri mynd. Sýningar
á kvikmyndinni eru að hefjast í
Háskólabíói og verður forsýning
þriðjudaginn 7. mars nk.
í tíu ár hefur Lionsklúbburinn
Eir í Reykjavík átt gott sam-
starf við Háskólabíó um forsýn-
ingarrétt á kvikmyndum. Sam-
starfið felst í því að Háskólabíó
eða framleiðendur viðkomandi
kvikmynda eftirláta Lions-
klúbbnum sölu á eitt þúsund
miðum á frumsýninguna. Ágóð-
anum ver Lionsklúbburinn til
líknarmála.
Lionsklúbburinn Eir hefur í
öll tíu skiptin nema í fyrra var-
ið ágóða af sölu forsýninganna
til fíkniefnavarna og hefur
fíkniefna- og forvarnardeild
lögreglunnar notið stuðnings
klúbbsins. Fénu hefur síðan
ýmist verið varið til fræðslu með
útgáfu upplýsingarita eða til
kaupa á tækjabúnaði.
Sala aðgöngumiðanna hefur
jafnan gengið vel og klúbbfélag-
ar sem annast söluna hafa fund-
ið áhuga kaupenda á að styðja
málefnið og leggja sitt af mörk-
um til fíkniefnavarna. Formað-
ur Lionsklúbbsins Eir er Hugr-
ún Jónsdóttir og formaður fjár-
öflunarnefndar Þórhildur
Gunnarsdóttir.
Fyrir forsýningu kvikmynd-
arinnar „Nobody’s Fool“ á
þriðjudag, en sýningin hefst kl.
20.30, verður leikin tónlist í and-
dyri Háskólabíós. Einnig kynna
félagar í Lionsklúbbnum Eir
páskasælgætishringi.
Opið í dag
SUNNUDAG
13-17
BORGARKRINGLAN
- kjarni málsins!
Meiriháttar fermingarföt: í miklu úrvali
fyrir hana... fyrir hann.
Elens teygjukjólar 5.500 kr.
stuttlr/5.9DD kr. siðlr. B lltlr.
Satinkjúlnr 5.500 kr.
5mekkkjúlar JB lltlrj 5.5DD kr.
Sið glansteygjupils 4.900 kr.
Síð blómasatlnplls Itá 3.900 kr.
Jakkar fré B.9DO kr. Ath. 5érSaUITIUITl
v ux?r 1 ortíl !!r- °g breytum fatnaði. 4
Vestl ftá 3.900 kr. “
skyrtur trá 2.500 kr. Vönduð vinnubrögð
Bindi/slaufur frá 990 kr. _
Skúr frá 3.900 kr. --- gOtt VGrð.
Stutt satín pils 2.900 kr.
Hvítar blússur 2.900 kr.
Bnlir nylnn ( 5 lltlrl 1.900 kr.
Lakkskúr frá 3.900 kr., svartir, rauðir, hvitir
Mýjar hárspangir 290 kr. uppseldar
-knma aftur á miðvikudag.
Silfurkrnssar — snkkabuxur í snyrtivnrudeild.
□pið í Kringlunni i dag,
sunnudag, kl. 13-17.
Fermingarfötin sýnd á
tískusýningu fyrir framan
verslunina í dag kl. 15.DD.
Sendum í póstkörfu.
5% staðgreiðsluafsláttur.
Kringlunni, sími BB9D17.
Laugavegi, símar 17440 og 29290.