Morgunblaðið - 05.03.1995, Síða 25

Morgunblaðið - 05.03.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MARZ 1995 B 25 atvi n n u a uol ys inga r Hjúkrunarfræðingar Heilsugæslustöð Selfoss vantar hjúkrunar- fræðinga í sumarafleysingar. Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra Heilsu- gæslustöðvar í síma 98-21300. Framleiðsla Opal hf. óskar eftir að ráða mann til fram- leiðslustarfa. Starfið felur í sér umsjón með ákveðinni framleiðsludeild. Æskilegur aldur er 25-40 ára. Góð laun í boði fyrir réttan mann. Vinsamlegast skilið umsóknum á skrifstofu Opals, Fosshálsi 27, Reykjavík, eigi síðar en fimmtudaginn 9. mars. Sölufólk óskast Þekkt snyrtivörumerki íheimakynningu óskar eftir að bæta við sig sölufólki um land allt. Ef þú ert um 25 ára eða eldri, viljum við gjarn- an kynnast þér betur. Öllum umsóknum svarað. Vinsamlegast sendið upplýsingar til afgreiðslu Mbl. fyrir 10. mars, merktar: „P - 1000“. Garðabær Sumarstörf Garðabær auglýsir laus til umsóknar eftirfar- andi sumarstörf árið 1995. Bæjarskrifstofa: Eitt starf við bókhald, almenna afgreiðslu og innheimtu gjalda. Nauðsynlegt er að við- komandi hafi góða þekkingu á bókhaldi og reynslu í skrifstofustörfum. Nánari upplýsingar veitir bæjarritari. Vinnuskóli, skólagarðar og smíðavöllur. Yfirflokkstjórar, flokkstjórar, starfsmaður á skrifstofu Vinnuskólans, leiðbeinendur á smíðavelli og skólagarða. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í verkstjórn og reynslu í að starfa með unglingum. Umsækj- endur skulu vera 20 ára og eldri. Ath. Umsóknareyðublöð fyrir unglinga við Vinnuskólann munu liggja frammi í byrjun maí hjá garðyrkjustjóra. Nánar auglýst síðar. Áhaldahús. Almenn verkamannavinna. Garðyrkjudeild. Almenn garðyrkjustörf, siáttur, landgræðsla og stígagerð. Umsækjendur skulu vera fæddir árið 1978 eða fyrr. Verkstjórar við ofangreind störf. Umsækjendur um verkstjórnarstörf skulu vera 20 ára og eldri. Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjar- skrifstofu. Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til 20. mars 1995. Nánari upplýsingar gefur garðyrkjustjóri í síma 565-8500 f.h. og forstöðumaður áhaldahúss í síma 565-8611. Bæjarritari. Heildverslun Heildverslun óskar eftir að ráða starfskraft í fullt starf. Um er að ræða fjölbreytt starf á lager, við útkeyrslu og silkiprentun. Æskilegt er að viðkomandi hafi bíl til umráða og sé á aldrinum 25-40 ára. Með allar umsóknir verður farið sem trúnað- armál og öllum verður svarað. Ráðning verð- ur sem fyrst. Umsækjendur skili inn umsóknum til af- greiðslu Mbl. fyrir 13. mars merktum: „H - 5538“. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Síðumúla 39-108 Reykjavík - Sími: 5888500 - Fax: 5686270 Forsjárdeild Félagsráðgjafar Félagsráðgjafar eða fólk með sambærilega menntun óskast til starfa í tvær hálfsdags- stöður, sem lausar eru frá 1. apríl nk. Önnurstaðan ertil eins árs, hin ótímabundin. Vinnutími er sveigjanlegur. Helstu verkefni eru að vinna með foreldrum er deila innbyrðis um börn sín vegna tilhög- unar forsjár eða umgengni. Óskað er eftir fólki með reynslu af fjölskyldu- vinnu. Umsóknarfrestur er til 20. mars nk. Umsóknir berist til Maríu Þorgeirsdóttur eða Anni G. Haugen, Félagsmálastofnun Reykja- víkurborgar, Síðumúla 39, sem jafnframt gefa nánari upplýsingar um stöðurnar í síma 5888500. Forstöðumaður Laus er staða forstöðumanns á vistheimili barna. Umsækjendur þurfa að hafa menntun á upp- eldis- og félagssviði og áherslá er lögð á reynslu af að vinna með börn og fjölskyldur. Umsóknarfrestur er til 20. mars nk. Umsóknir berist til Erlu Þórðardóttur, for- stöðumanns vistheimilasviðs, Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar um starfið í síma 888500. Dvalarheimili aldraðra Seljahlíð, Hjallaseli 55,109 Reykjavík Hjúkrunarfræðing- ar og sjúkraliðar Hjúkrunarfræðingur óskast strax í hlutastarf, morgun- og kvöldvaktir á hjúkrunardeild. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga og sjúkra- liða í sumarafleysingar á vist og hjúkrunar- deild. Nánari upplýsingar gefur Helga Aðalsteins- dóttir hjúkrunardeildarstjóri í síma 73633 milli kl. 10 og 12 virka daga. Umsóknum skal skilað til Seljahlíðar á um- sóknareyðublöðum sem þar fást. Bókari Lítið útflutningsfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir bókara í u.þ.b. 20% starf fljótlega. Möguleiki á meiri vinnu á köflum. Reynsla og góður skilningur á bókhaldi nauðsynleg. Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu Mbl. merkt: „Bókun - út- flutningur" fyrir 9. mars nk. SVÆÐISSKRIFSTOFA MÁLEFNA FATLAÐRA, REYKJAVÍK Þroskaþjálfar Staða deildarstjóra við nýja dagvist fyrir fatl- aða í Reykjavík er laus til umsóknar. Staðan verður veitt í maí nk. Æskilegt er að viðkomandi geti tekið þátt í undirbúningi og mótun starfseminnar fyrr, eftir nánara sam- komulagi. Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri á skrifstofutíma í síma 621388. Umsóknarfrestur er til 20. mars nk. Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf, berist til Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Nóatúni 17, 105 Reykjavík. . \\ A V ,QV. þig til að nyttog Síðastliðin 5 ár hafa 9 mörg hundruð íslensk ungmenni farið sem aupairá okkar vegum til Bandaríkjanna og Evrópu. Og ekki að ástæðulausu þar sem engin önnur samtök bjóða eins góða, örugga og ódýra þjónustu. Ef þú ert á aldrinum 18-25 ára og langar að fara sem au pair, hefurðu samband og við veitum þér allar nánari upplýsingar. AuPAIR VISTASKIPTI & NÁM ÞÓRSGATA 26 101 REYKJAVÍK SIMI 562 2362 FAX 562 9662 Í SAMSTARFI MEÐ VIÐURKENNDUM MENNINGARSAMTÖKUM í AUSTURRÍKI. BANDARÍKJUNUM, BRETLANDI, DANMÖRKU. FINNLANDI, FRAKKLANDI, HOLLANDI, ÍTALÍU, NOREGI, SPÁNI, SVÍÞJÓÐ OG ÞÝSKALANDI. NORRÆNA FJÁRMÖGNUNARFÉIACIÐ Á SVIÐI UMHVERFISMÁLA er áFiættufjármögn- unarstofnun í eigu Norðurlandanná, stofnað 1990 með það markmið að fjármagna umFiverfisverkefni ( nánasta umhverfi Norðurlandanna í Mið- og Austur-Evrópu. Fjármögnun NEFCOs getur verið í formi eigin fjárfestingar eða lána, yfir- leitt til fyrirtækja, og skilyrði fyrir þátttöku NEFCOs er að verkefnið, fyrir ulan að vera fjárhagslega hagkvæmt, hafi líka jákvæð áhrif á umhverfið. Fyrir utan venjulegt mat á umhverfisáhrifum verkefnanna, er einnig metið hvaða jákvæðum áhrifum er náð. í Ijósi þessa hafa íorgang þau verkefni, sem snerta umhverfi Norðurlandanna sérstaklega. Nánari upplýsingar um stöðuna gefur í síma + 358 0 1800 341 Harro Pitkanen, framkvæmdastjóri, og Solveig Nordström, fjármögnunarstjóri. Umsóknirnar þurfa að hafa borist NEFCO í síðasta lagi 15.03.1995 með utanáskrift: Nordiska Miljöfinanseringsbolaget, Carola Lehesmaa, PB 249, FIN-00171 HELSINGFORS. NEFCO styrkir sína eigin starfsemi og leitar að hæfum UMHVERFISSÉRFRÆÐINGI með reynslu af umhverfishagfræðilegu mati, til að bera ábyrgð á mati á raunverulegum umhverfisáhrifum verkefna. Áhugi á umhverfisstarfi á sviði atvinnulífsins, fjölhæfni, sveigjanleiki og góð málakunnátta (tungumál á vinnustað eru sænska, danska, norska og enska) og hæfileiki til að tjá sig munnlega og skriflega, eru þeir eiginleikar sem sóst er eftir. NEFCO býður uppá áhugavert og krefjandi starf í alþjóðlegu fjármála- umhverfi og samkeppnishæf ráðningarkjör.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.