Morgunblaðið - 22.03.1995, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hláka oUi víða vatns-
aga og vandræðum
Færeyingar landa á
markað í Eyjum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
LÍNUBÁTAR frá Færeyjum hafa
ÚRKOMA og hláka olli víða vatns-
aga á sunnan- og vestanverðu land-
inu í gær. Klaki er í jörðu og því
rennur yfirborðsvatn ekki greiðlega
niður.
Töluvert tjón varð í nokkrum
húsum í Sandgerði í gær vegna
vatns. Slökkviliðið í Sandgerði var
kallað út laust fyrir hádegið í gær
og var upptekið fram á kvöld við
að dæla úr húsum og bægja vatni
frá húsum. Auk þess voru allir
bæjarstarfsmenn meira og minna
uppteknir við að hemja vatnið. Að
sögn Egils Ólafssonar slökkviliðs-
stjóra man hann ekki annan eins
vatnsflaum í bænum og í gær.
Ástandið var verst við gatnamót
Stafnesvegar og Suðurgötu. Þar
rann yfírborðsvatn ofan af Miðnes-
heiði og flæddi í íjórum kjöllurum.
Reynt var að hemja vatnsflauminn
með því að sturta í hann jarðvegs-
hlössum, sem Egill sagði hafa borið
árangur. Tjón var ekki kannað að
fullu í gærkvöldi en ljóst er að tölu-
verðar skemmdir urðu á búslóðum.
Slökkvibíll sem dælir 4 tonnum af
vatni á mínútu hafði ekki undan
flaumnum þegar verst lét.
Snjóflóð utan
byggðar á Pat-
reksfirði og áfram
hættuástand
í Keflavík var allt fastalið
slökkviliðsins upptekið í gær við að
dæla úr og frá húsum. Samkvæmt
upplýsingum slökkviliðsins þar
barst hjálparbeiðni frá eigendum
yfír 20 húsa.
Slökkviliðið í Reykjavík sinnti
tólf útköllum í gær vegna vatns-
aga. Tjón voru yfírleitt minnihátt-
ar, samkvæmt upplýsingum
slökkviliðsins.
Mikill vatnsagi var á norðanverðu
Snæfellsnesi og víða flaut yfír vegi
í gær. Lögreglan í Ólafsvík varaði
við umferð fyrir Búlandshöfða
vegna klakahruns og hættu á
skriðuföllum og snjóflóðum. Fróð-
árheiði var lokuð og því eina land-
leiðin til Ólafsvíkur fyrir höfðann.
Snjóflóð á Patreksfirði
Hættuástandi var lýst annan
daginn í röð á Patreksfírði í gær
vegna hættu á snjóflóðum í kjölfar
rigninga og hláku. 137 íbúar úr 41
húsi á hættusvæðum gistu hjá vin-
um og ættingjum í nótt. Um kl. 17
í gær féll snjóflóð innan við bæinn,
við Stapa á Raknadalshlíð, og lok-
aði þjóðveginum sem liggur meðal
annars á flugvöllinn og inn á Barða-
strönd. Vegagerðin á Patreksfírði
reiknaði með að vegurinn yrði opn-
aður í gærkvöldi.
Á tíunda tímanum í gærkvöldi
féll um 50 metra breitt snjóflóð á
þekktu snjóflóðasvæði við byggðina
það olli ekki tjóni því engin byggð
er leyfð á svæðinu. Eins kom lítil
spýja nokkru utar um klukkan
19.30 og náði niður í miðja fjalls-
hlíðina.
Norðar á Vestfjörðum var hæg-
lætisveður og aflýsti almanna-
varnanefndin á Flateyri hættu-
ástandi vegna snjóflóðahættu í
Önundafírði í gærkvöldi.
■ Vatn flæddi inn í 18 hús/4
á undanförnum dögum landað
rúmum 300 tonnum í Eyjum sem
seld hafa verið á Fiskmarkaði
Vestmannaeyja. 1 gær lönduðu
Færeyingar á markað-
inn og er búist við
áframhaldandi löndun-
um Færeyinganna í Eyj-
um.
Páll Rúnar Pálsson,
framkvæmdastjóri Fisk-
markaðar Vestmanna-
eyja, sagði að landanir
Færeyinganna hefðu
komið þannig til í upp-
hafi að útgerðarmaður
Klakks frá Færeyjum
hefði haft samband við
sig og spurst fyrir um
verð á markaðnum. í
framhaldi af því hafi hann sent
bát sinn hingað og verið mjög
ánægður með það verð sem hann
fékk. Síðan hafi þetta spurst út
meðal Færeyinganna og undið
upp á sig í framhaldi af því.
Páll sagði að meira en helming-
ur aflans frá Færeyingunum hefði
verið ýsa og hefði meðalverð á
henni verið um og yfir 100 krón-
ur. Páll sagði að þeir bátar sem
landað hefðu væru allir á veiðum
á íslandsmiðum. Hann hefði haft
fregnir af því að einhveijir út-
gerðarmenn sem ættu báta sem
væru að fiska við Færeyjar væru
að velta fyrir sér að senda þá til
Eyja með aflann til að selja á Fisk-
markaðnum.
Heildaraflinn yfir 300 tonn
Páll sagði að sjö færeyskir bát-
ar hefðu þegar landað hjá þeim
8 löndunum og væri heildarafli
þeirra kominn yfir 300 tonn. Hann
sagðist bjartsýnn á að framhald
yrði á sölu Færeyinganna hér og
þetta væri kærkomin viðbót fyrir
Fiskmarkaðinn.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Unnið við löndun á afla Færeyinganna
í Vestmannaeyjum í gær.
Kennarar óskuðu þess að
viðræðum yrði slitið
Sáttasemjari vill
haldaáfram
SAMNINGANEFND kennarafélag-
anna óskaði þess í gær við ríkissátta-
semjara að slíta viðræðum við samn-
inganefnd ríkisins, en ríkissátta-
semjari ákvað samt sem áður að
fresta viðræðum deiluaðila þar til í
dag. Eiríkur Jónsson, formaður KÍ,
sagði að það væri mat kennara að
þeir væru að senda röng skilaboð út
í samfélagið með því að mæta á
fundi dag eftir dag án þess að það
skilaði neinum árangri.
Eiríkur sagði að á meðan samn-
ingsaðilar sætu saman hjá ríkis-
sáttasemjara héldi fólk að eitthvað
væri að gerast. Það væri misskiln-
ingur, því nær engin hreyfíng hefði
verið á viðræðum í heilan mánuð.
Samninganefndir deiluaðila
ræddu í gær um mat á sérkjörum
annarra kjarasamninga. Ríkissátta-
semjari hefur óskað eftir því við
Þjóðhagsstofnun að hún leggi mat
á þetta og er von á svari í dag eða
á morgun. Einnig ræddu samninga-
menn um með hvaða hætti væri
hægt að leysa vandamál sem upp
koma við einsetningu grunnskólans.
■ Enn hægt að bjarga/26
ÓLAFUR G. Einarsson lék fyrsta leikinn í skák Margeirs og Ernst.
Snorri Olsen settur
Norðurlandamótið í skák
ríkisskattstjóri
Helgi sigraði Þröst örugglega
SNORRI Olsen, skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu, mun leysa
Garðar Valdimarsson af sem ríkis-
skattstjóri næstu tvö ár meðan Garð-
ar mun að ósk fjármálaráðuneytisins
einbeita sér að gerð tvísköttunar-
samninga fyrir hönd íslands við
ýmis erlend ríki.
Magnús Pétursson ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu segir að
tvísköttunarmál séu mjög ofarlega
á baugi I tengslum við fjárfestingu
Íslendinga erlendis og útlendinga
hér á landi. Geti íslendingar, sem
séu talsvert á eftir flestum vestræn-
um ríkjum í gerð tvísköttunarsamn-
inga, ekki lengur vikist undan því
að gera átak á þessu sviði.
HELGI Ólafsson vann Þröst Þór-
hallsson örugglega í 23 leikjum
í fyrstu umferð á Skákþingi
Norðurlanda sem hófst í gær, en
mótið er jafnframt svæðismót
FIDE.
Á mótinu vann Simen Agde-
stein Rune Djurhuus í 41 leik,
Jonathan Tisdall vann Jonny
Hector í 46 leilgum, Sune Berg
Hansen vann Hannes Hlífar Stef-
ánsson í 39 leikjum, en Hannes
er töluvert hærri að ELO-skák-
stigum en Sune Berg. Erling
Mortensen vann Marko Mannin-
en í 36 leikjum, Curt Hansen
vann Ralf Ákesson í 77 leikjum,
Margeir Pétursson vann Thomas
Ernst í 78 leilgum og Pia Craml-
ing vann Tapani Sammalvuo í
48 leilgum. Lars Degerman og
Jóhann Hjartarson gerðu hins
vegar jafntefli og sömuleiðis þeir
Lars Bo Hansen og Einar Gausel.
Viðskiptaráðuneytið gerir úttekt á erlendri eignaraðild í útgerð hér á landi
Stór fyrirtæki gætu misst veiðirétt
SIGHVATUR Björgvinsson viðskiptaráð-
herra segir að bein og óbein eignaraðild er-
lendra fyrirtækja að sumum umfangsmestu
útgerðarfyrirtækjum íslands sé staðreynd
en slíkt samræmist ekki lögum landsins.
Viðskiptaráðuneytið kannar nú hvort við-
komandi fyrirtæki verði að losa sig tafar-
laust við alla erlenda eignaraðila og hvort
skipum þeirra sé óheimilt að stunda veiðar
innan íslenskrar landhelgi.
„Það liggur ekki alveg ljóst fyrir hvernig
þessu er háttað með veiðiréttinn en ef það
er svo að erlend eignaraðild, þó í litlu sé,
girði fyrir það að skip slíkra útgerða geti
stundað veiðar á íslandsmiðum mun áður
en langt um Iíður losna umtalsverður kvóti
frá stærstu útgerðarfyrirtækjum lands-
manna,“ segir Sighvatur.
Viðskiptaráðherra viðurkennir hins vegar
að hann sé ekki hlynntur þessum lögum og
vill breyta þeim. „Það er fáránlegt að setja
lög sem banna sjávarútveginum að notfæra
sér erlent fjármagn í áhættufé. Þetta eru
engu að síður landslög og því vafasamt að
stjórnvöld geti horft í gegnum fíngur sér
með það.“
Sighvatur kveðst hafa rekið upp stór augu
þegar könnun ráðuneytisins leiddi nýverið í
ljós hreina erlenda eignaraðild í öflugum
sjávarútvegsfyrirtækjum hér á landi en ekki
aðeins óbeina eignaraðild í skjóli hlutafjár-
eignar í t.d. olíufélögum.
Takmarkanir á fjárfestingu erlendra
aðila í atvinnurekstri
í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í
atvinnurekstri á íslandi frá 1991 segir að
slík fjárfesting sé háð eftirfarandi takmörk-
unum: „íslenskir ríkisborgarar sem eiga lög-
heimili hérlendis og lögaðilar sem eiga heim-
ili hér á landi og eru að öllu leyti í eign ís-
lenskra ríkisborgara sem eiga lögheimili hér-
lendis mega einir stunda fiskveiðar í fisk-
veiðilandhelgi Islands samkvæmt lögum nr
33 19. júní 1922, um rétt til fískveiða í land-
helgi.“
Sighvatur segir að erlend eignaraðild að
íslenskum útgerðarfyrirtækjum sé í sumum
tilvikum umtalsverð þótt hún sé yfirleitt frek-
ar lítil.
Danska fyrirtækið Hydro Texaco, sem á
nú 35% hlut í Olís, er eitt þeirra fyrirtækja
sem eiga óbeinan hlut í íslenskum sjávarút-
vegsfyrirtækjum og segir ráðherra að það
mál sé að sjálfsögðu í skoðun í viðskiptaráðu-
neytinu.