Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 35 MINNINGAR HELGI ELÍASSON + Helgi Elíasson fæddist í Hörgsdal á Síðu 18. mars 1904. Hann lést í Reykjavík 22. febrúar síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Dómkirkj- unni 3. mars. HELGI Elíasson fyrrverandi fræðslumálastjóri, sem nú er nýlát- inn, kom með nokkuð einstökum hætti við sögu Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Ekki veit ég hvaða ár hann varð félagi, en árið 1963 og næstu fjögur árin var hann einn af varafulltrúum félagsins á aðal- fundum Krabbameinsfélags íslands og síðan meðal aðalfulltrúa árin 1968-1970. Árið 1967 gerðist það að Helgi tók að sér í fyrsta sinn fundar- stjórn á aðalfundi Krabbameinsfé- lags Reykjavík. Ekki er að orð- lengja það að upp frá því gegndi hann árlega þessu virðulega hlut- verki af stakri röggsemi og ljúf- mennsku allt til ársins 1978 og þar með tólf ár samfleytt. Hefur enginn verið oftar fundarstjóri á aðalfund- um félagsins þau 46 ár sem það hefur starfað. Af þessu er ljóst að Helgi hefur notið mikils áliís meðal félaga sinna í Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. Er það í góðu samræmi við þá til- trú sem honum var hvarvetna sýnd. Fyrir hönd félagsins vil ég votta minningu Helga Elíassonar virð- ingu og þakka störf hans. Sigríður Lister, formaður Krabbameinsfé- lags Reykjavíkur. Á sólbjörtum morgni annars mars síðastliðins var Helgi Elías- son, fyrrum fræðslumálastjóri, jarðsunginn frá Dómkirkjunni kominn nær eitt ár á tíræðisaldur. Frá 1930 til 1974 hafði hann unn- ið í yfirstjórn skólamála. Upphaf- lega í hlutastarfi starfsmaður fræðslumálastjóra árlangt en þá staðgengill hans að málefnum barnafræðslunnar í þijú ár. Frá 1934 í tíu ár fulltrúi fræðslumála- stjóranna Ásgeirs Ásgeirssonar og Jakobs Kristinssonar. Við starfslok sr. Jakobs var Helgi settur ogfljót- lega skipaður í embætti fræðslu- málastjóra. Því gegndi hann til 1971 að embættið og fræðslumála- skrifstofan voru lögð niður en Helgi skipaður deildarstjóri grunnskóla- deildar í menntamálaráðuneytinu, sem hann annaðist til sjötugs ald- urs. Helgi naut góðrar heilsu og hafði notið á annasamri ævi. Hann lauk embættisstörfum vel starf- hæfur og bjó yfir mikilli reynslu og kunnáttu í skólamálum þjóðar- innar, en atorka Helga og þekking féll ekki að nýju skipulagi yfir- stjórnar skólamála. Það var notast við hann sem prófdómara við kenn- arapróf, þar til hann varð 1980 fyrir því áfalli að erfitt var að skilja mál hans og hægri armur og fótur lamaðist. Tveimur árum frá því að Helgi varð fyrir þessari lömun lést Hólmfríður eiginkona hans Davíðs- dóttir (f. 1911). Hjónaband þeirra hafði verið sérstaklega farsælt og ástríkt. Þriggja sona og einnar dóttur varð þeim auðið. Er Helgi lést voru afkomendur þeirra Hólm- fríðar orðnir tuttugu og fimm. íþróttafulltrúi skrifstofu fræðslumálastjóra réðst ég er þess- ar línu skrifa 1941. Ég hafði mín sérverk á skrifstofunni og hlaut að fylgjast með þeim störfum sem þar voru unnin af úrvals starfsfólki, sem flest átti að baki störf við kennslu. Að eðlisfari var Helgi hjálpsam- ur. Undravert var hvað hann axl- aði í annríki sínu erfiða hjálpsemi. Utangarðsmenn nýttu sér þetta og var umtalsvert hvað hann varði tíma og peningum í þá. Ég minnist þess að eitt sinn á Þorláksmessu réðst hann við annan þeim hjálp- saman að koma áfengissjúklingi, sem ákveðið hafði að láta af drykkju, á hæli austan Stokkseyr- ar. Færð var slæm og eins veðurút- lit. Lagt var í þessa för, er aðrir voru uppteknir af jólaundirbúningi. Á hælið komu þeir skjólstæðingn- um síðdegis á aðfangadag jóla og heim í jólagleði ástvinanna á annan dag jóla. Ég var áhorfandi að þakklæti sem Helga var veitt í eldaskála vegavinnumanna uppi á Þorska- fjarðarheiði. Við vorum 30 saman á hundadögum í roki og regni á leið yfir heiðina milli vegaenda. Komumst í bækistöð vegavinnu- manna eftir hrakninga. I dyrum eldaskála tók á móti okkur gildvax- in ráðskona í víðum hermanna- frakka. Hún tók að lesa yfir okkur reykvískum angurgöpum, skammir fyrir að álpast um heiðar í slíku veðri, en allt í einu braust hún til Helga með ávarpi og umörmum. Helgi hvarf í stóran faðm og frakka. Vegna Helga lét þessi kona okkur í té skjól og hressingu. Þessi kona hafði verið gift skólastjóra sem missti geðheilsu. Dóttir þeirra sagði mér að enginn hefði staðið betur við bak móður sinnar í veik- indunum en Helgi. Eftir að Helgi lét af störfum vann ég áfram að sérmálefnum þeim sem ég annaðist innan skóla. Ég átti því skipti við marga skóla- menn. Þeir spurðu margs um Helga og dáðu þjónustu hans og starfs- fólks. Þökkuðu skilning hans á kjörum og starfsaðstöðu. Þeir sökn- uðu fræðslumálaskrifstofunnar sem hafði annast útvegun ýmissa gagna og tækja. Þá undraði hvers vegna hún hefði ekki fengið að starfa áfram þó menntamálaráðu- neytið yki völd sín. Þeir vitnuðu til þjónustustarfa, t.d. skrifstofu vegamála, pósts og síma o.s.frv. Það kom líka fljótt á daginn að stofnuð var þjónustumiðstöð fyrir skólana. I um 40 ár má segja að Helga Elíassyni tækist að starf- rækja með samstarfsfólki sínu dáða þjónustumiðstöð. Margt yfirsést okkur sem minn- umst Helga Elíassonar. Eins vil ég geta, sem fáir vita sem ég. Fræðslumálastofnun Þjóðveija í Berlín sendi 1938 hingað Erik Daudert, einn af forstjórum sínum, ásamt upptökumanni. Þeir tóku í Vestmannaeyjum kvikmynd af eggjatekju. Áður en leiðangurinn hélt utan afhenti hann Helga sýn- ingarvél af fullkominni gerð og eitt- hvað af filmum. Þetta var upphaf fræðslumyndasafns ríkisins. I her- bergi í kjallara Amarhvols var myndasafnið geymt, sýningarvél og bensínvél til að framleiða raf- straum svo unnt væri að sýna kvik- myndir í skólum þar sem rafafls naut ekki við. Mörg kvöld vann Helgi að því að yfirfara myndir og gera við þær. Frá þessu þegnskap- arstarfi í kjallaraherbergi er orðin til stórvirk stofnun. Helga tókst að afla stofnuninni upptökuvélar, sem hann lét í hendur Kjartans Ó. Bjarnasonar, sem tók á hana róm- aðar fræðslumyndir af náttúru ís- lands, atvinnuháttum og þjóðlífí. Ríkisútgáfu námsbóka vann hann ómetanleg störf, frá upphafi þessarar þörfu stofnunar, sem aðr- ir munu rekja mér kunnugri. Gaman og alvara, kennslubók í lestri, var þörf útgáfa 1933, sem Helgi og ísak Jónsson sömdu. Bók- in var oft endurprentuð. Samning bókarinnar: Lög og reglur um skóla og menningarmál, sem Helgi ann- aðist útgáfu á 1944, var og er enn þörf handbók. Þá var vel þegin rit- gerð hans í almanaki Þjóðvinafé- lagsins 1945 um skólamál á íslandi 1874-1944. Lengi varði hann störfum með fleirum að samantekt og útgáfu 1962 Landabréfabókar, sem honum vannst 1980 heilsa til að sjá til að var endurútgefin. Nefnd sem endurskoðaði fræðslu- lög er voru samþykkt á Alþingi 1936, naut aðstoðar Helga. í október 1944 varð Brynjólfur Bjarnason menntamálaráðherra. Forsætisráðherra og hann ákváðu að ráða starfsmann sem þjónaði báðum. Varð þar með til vísir að menntamálaráðuneyti. Milliþinga- nefnd um skólamál var skipuð 1945 og var Helgi ritari hennar og mjög virkur í nefndinni. Með honum og Brynjólfi menntamálaráðherra tók- ust náin kynni og leitaði ráðherra mjög til Helga um upplýsingar, svo að Helgi hafði aldrei fyrr notið slíkrar viðurkenningar. Komst á kreik sá orðrómur vegna þessa nána samstarfs við Brynjólf Bjarnason, að Helgi væri kommún- isti. Galt Helgi þess hjá andstæð- ingum ráðherra í stjórnmálum. í maí 1971 var stigið til fullnustu sporið varðandi myndun mennta- málaráðuneytis og fræðslumála- skrifstofan lögð niður. Helgi flutt- ist þar með í menntamálaráðuneyt- ið og varð deildarstjóri grunnskóla- deildar. Var með þessu skrefi starfssvið Helga mjög skert og það var illa gert gagnvart þessum hrekklausa, velvirka og reynda skólamálamanni að hann varð að þola að fram hjá honum væri geng- ið. Helgi var félagslyndur og virkur félagi í ýmsum félögum, t.d. um málefni barnaheimila, tónmennta, aðstoð við áfengissjúka o.s.frv. Fyrir öll sín virku þjónustustörf var hann sæmdur heiðursviðurkenn- ingum. Til að mynda var hann heið- ursfélagi Barnakennarafélags ís- lands. Hann hlaut stórriddarakross fálkaorðunnar og dönsk og þýsk heiðursmerki er sýna hverrar virð- ingar hann naut sem starfsmaður. Við sem nutum þess að vinna með og undir stjórn Helga Elías- sonar erum honum þakklát fyrir hve hlýr, hugulsamur og örvandi yfirmaður hann var. Hann var hrekklaus og bjóst við því sama af öðrum. Um skeið bauð Helgi starfsfólk- inu og mökum þess í ferðalag að sumarlagi. Þá kynntumst við vel honum og Hólmfríði konu hans. Gleði þeirra var svo fölskvalaus, að öllum leið vel í návist þeirra. Við sem nutum að starfa með og hjá Helga Elíassyni eigum hon- um þakkir að galda. Samúðarkveðjur til ykkar ást- vina Helga Elíassonar. Þorsteinn Einarsson. Sérfræðingar í blóiiiasUi'rylingiHii \ió öll la'Uila'i'i J) blómaverkstæði ÍINNA^ Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hiaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta. Upplýsingar í síma 22322 FLUGLEIÐIR HÓTEL LOFTLEIDIK t Útför FRIÐRIKS GÍSLA DANÍELSSONAR, Þinghólsbraut 35, Kópavogi, fer fram frá Kristskirkju, Landakoti, fimmtudaginn 23. mars kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Landgræðslusjóð. Elísabet Finsen, Árni Friðriksson, Brynja Á. Sigurðardóttir, Daníel G. Friðriksson, Brynhiidur Flóvenz, ísleifur Friðriksson, Borghildur Hertervig, Hannes Friðriksson, Guðrún Eyjólfsdóttir, Oddur Friðriksson og barnabörn. t Systir mín og mágkona, AÐALHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Sólvangi, áður Austurgötu 26, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 23. mars kl. 13.30. Guðmann Pálsson, Guðmunda Sigurðardóttir, Sigurborg Valdimarsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR ODDSSON sem andaðist á heimili sínu mánu- daginn 13. mars, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju föstudaginn 24. mars kl. 14.00. Regfna Sigurðardóttir, Sigurður Kjartansson, Lýður Sigurðsson, Aðalbjörg Björnsdóttir, Vigfús Sigurðsson, Ásdís Kjartansdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÞORKATLA BJARNADÓTTIR frá Grundarfirði, lést í Sjúkrahúsi Stykkishólms 20. mars. Jarðsett verður frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 25. mars kl. 14.00. rcu Cd rdiauumi, Sigríður Jónasdóttir, Ragnheiður Jónasdóttir, Þorbjörg Jónasdóttir, Bjarni Jónasson, Erla Jónasdóttir, Helga Jónasdóttir, Ragnar Jónasson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn s-iicio i imiuuyaauii, Arni Markússon, Þorleifur Þorsteinsson, Jens Hansen, Þórarinn Guðjónsson, Emil Wilhelmsson, Sigriður Sigurgeirsdóttir, t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför frænku okkar, KARITASAR ÁRNEYJAR JÓNSDÓTTUR (Kæju), Holtsgötu 6, Reykjavík. Guðbjörg Friðriksdóttir, Jón Friðriksson, Ögmundur Friðriksson, Margrét Arnórsdóttir, Halldór Jón Arnórsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDU JÓHANNESDÓTTUR, áðurtil heimilis á Norðurgötu 36, Akureyri. Sérstakar þakkirtil starfsfólksins á dval- arheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Jóhannes Björnsson, Dagný Sigurgeirsdóttir, Hulda A. Jóhannesdóttir, Sigtryggur Guðlaugsson, Björn Jóhannesson, Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir, Katrin Jóhannesdóttir, Sigurður Sigurðsson, Sveinbjörn Jóhannesson og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.